Morgunblaðið - 05.10.1973, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. OKTÖBER 1973.
25
ffleÖfíiorQunkaffinu
— Jæja, herra minn, hér kemur
þá matseðillinn.
♦
— Hvað starfið þér?
— Égergötusali.
— Já, sko til! Segið mér, hvað
er eiginlega gangverð á götum
nú til dags?
— Afsakið, frú, ekki gætuð
þér vfst — en flottur hattur,
sem þér eruð með á höfðinu —
lánað mér nokkrar krónur?
*
Lftii telpa stóð við gluggann,
en úti voru þrumur og elding-
ar.
Komdu og sjáðu, mamma,
Guð er að taka myndir.
xjötoiupa
Jeane Dixon
1 m Hrúturinn 21. marz — 19. aprfl Láttu ekki stundarerfiðleika á þig fá. Einbeitni þfn og forystuhæfi- leikar njóta sfn aldrei betur en þegar á móti blæs. Láttu úrtölur | annarra ekki hafa áhrif á þig f mikilvægu máli.
1 rA 1 Nautið 20. aprfl — 20. maí Þú ert seinþreytt(ur) til vandræða, en vitanlega getur farið svo, að mælirinn fyllíst. Reyndu samt að hafa hemil á skapsmunum þfnum efþúreiðist.
» I Tvfburamir 21. maf — 20. júní Þú hefur oftast lag á þvf að komast hjá óþægindum, og þessi eiginleíki kemur f góðar þarfir f dag. Með lagni ætti þér að takast að \ fá vil ja þínum framgengt í samskiptum við yfirboðara á vinnustað.
1 Krabbinn 21. júnf — 22. júlí Farðu varlega f umferðinni f dag. Reyndu að koma þvf svo fyrir, að W þú sért sem minnst á ferli, vegna utanaðkomandi hættu, sem að þér steðjar.
1 1 m 1 Ljónið 23. júlf — 22. ágúst I Þú ættir að temja þér hógværð, og reyna að leiða hugann frá þinni 1 eigin persónu. Enda þótt þú hafir sjálf(ur) mikinn áhuga á henni skaltu hafa það hugfast, að fátt getur orðið eins þreytandi og það að 1 þurfa að umgangast fólk, sem er með sjálft sig á heilanum.
a \ Mærin 23. ágúst — 22. september Áreiðanleiki þinn og trúmennska f starfi gerir það að verkum, að 1 yfirmenn þínir hafa augastað á þér til ábyrgðarstarfa. Láttu með- fæddá hlédrægni ekki koma f veg fyrir þann frama, sem þér kann að ‘ bjóðast.
W * 1» ■ Vogin 23. september — 22. október ^ 1 f 1 ■ Skoðaðu hug þinn vel áður en þú tekur mikilvæga ákvörðun. Láttu * ekki taka af þér ráðin í málefnum heimilisins. Dagurinn heppilegur Br , til áætlunargerðar, sérstaklega hvað snertir heimilis- og fjölskyldu- W/á k v 4 mál.
| Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember Þú munt komast f snertingu við persónuleg vandamál utanaðkom- andi aðila. Sennilegt, að óskað verði eftir ráðleggingum þfnum, en varaðu þig á þvf að láta blanda þér inn f slfk mál, vegna þess að það ■ mun aðeins hafa þveröfug áhrif.
Bogamaðurinn 22. nóvember — 21. desember
Nú þarft þú heldur betur að fara að koma reglu á f járreiður þfnar,
þvf að annars kann ilja að fara. Ráðlegt er að gera upp reikningana
og gera sfðan fjárhagsáætlun f samræmi við útkomuna.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar
Þér verður ekki nógu mikið úr þeim tíma, sem þú hefur til umráða,
enda margt, sem glepur fyrir þér um þessar mundir. Þú verður að
reyna að skipuleggja verkefni þfn betur.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar
Nú er mikilsvert, að þú takir frumkvæði f máli, sem á sér langan
aðdraganda. Það er um að gera að haga nú seglum eftir vindi —
þannig ætti að nást undraverður árangur.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz
Þú situr svo sannarlega ekki á neinum friðarstóli f dag. Það ersvo
sem ágætt að fá útrás stöku sinnum, en enginn tekur mark á fólki,
sem ekki er hægt að rökræða við. Betra er að þegja en tala til þess
eins að tala.
áfg^ TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
®jp KARNABÆR
LÆKJARGÖTU 2 LAUGAVEGI 20A LAUGAVEGI 66
vicf höldum áfram ad
fylla verzlanir okkar af
nýjum glæsilegum vörum
MEÐ
TAKIÐ SÉRSTAKLEGA EFTIR:
HERRA OG DÖMUPEYSUM í STÓRKOSTLEGU ÚRVALI
KULDAJÖKKUM DÖMU OG HERRA. — GÓÐ VERÐ.
GEYSILEGA FALLEGAR HERRASKYRTUR. FÖT
VESTI — NÝSNIÐ.
FALLEG EFNI — GOTTVERÐ.
LEÐURJÖKKUM HEHRA (VIÐ HÖFUM ALDREI ÁTT SVQNA
GOTT ÚRVAL)
OKKAR VINSÆLU „BAGGY-BUXUM" ÚR DENIM —
FLAUELI — TERELYNE OG ULL.
TÍZKUVERZLUN UNGA FÓLKSINS
feKARNABÆR
ymJ* LÆKJARGÖTU 2 LAUGAVEGI 20A LAUGAVEGI 66