Morgunblaðið - 16.10.1973, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.10.1973, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1973 „Stœrstu verk- efnin á nœsta ári tengdþjóö- hátíðinni ” Stutt spjall við Birger Olsson framkvstj. Hasselbghallar „TilKant'urinn með heimsókn- inni nú er að endurnýja tengslin við vini oj’ kunninfíja og hitta að máli fulltrúa íslenzkra lista- manna,“ sagði Birger Olsson, f ramk væmdast jóri samnorrænu menninganniðstiSðvarinnar í Hasselby skammt fyrir utan Stokkhólm, í stuttu samtali við Morj'unhlaðið í fyrradag. Olsson kom hin«að til lands ó þriðjudag ásamt oiginkonu sinni Brittu, og halda þau hjón utan i dag. Hásselbyhöllin er, sem kunnugt er rekin sameiginlega af höfuð- horgum Norðurlandanna og Norræna félaginu I Stokkhólmi. Kr kostnaðurinn greiddur i hlut- falli við ihúatölu. Menningannið- stöðin hóf starfsomi sína í maí 1963 og hélt því upp á 10 ára afmæli í vor. A þessum tfma hef- ur starfsemin verið með miklum blóma og alls verið haldnar þar 877 ráðstefnur, sýningar og nám- skeið. 1 Uásselby er aðstaða til að taka á móti dvalargestum í 45 herbergjum, og þar er einnig full- komið mötuneyti. Á þessum 10 árum hafa alls um 98 þúsund gest- ir dvalið í Hásselbyhöll, þar af 1690 lslendingar. Vegna fjar- lægðarinnar frá Islandi greiða Is- lendingar mjög lágt verð fyrir gistingu og fæði, eða um 40 kr sænskar (800 ísl. kr) á dag. Birger segir okkar, að ýmislegt sé á döfinni í Hásselby á næsta ári í sambandi við 1100 ára afmæli Islandsbyggðar og það hafi hann m.a. verið að undirbúa I þessari heimsókn. Þegar hefur verið ákveðið að halda sýningu á Is- lenzkum málverkum og aðra á teikningum og grafiklist. Þá er verið að vinna að því að fá ýmsa íslendinga til að koma og halda fyrirlestra um íslenzk menningar og þjóðfélagsmál. Einnig er í ráði að halda sýningu á úrvali af teikn- ingum íslenzkra skólabarna, i til- efni þjóðhátiðarinnar. Verður fyrsta sýningin væntanlega sett upp í april. Sagði Birgir, að stærstu verkefni þeirra á næsta ári væru þannig tengd tslandi og þjóðhátiðinni. Meðal þeirra, sem Olsson hefur rætt við nú, eru þeir Kristján Davíðsson, Hannes Daviðsson, Jóhann Hjálmarsson og Atli Heimir Sveinsson, en allir þessir menn munu á einhvern hátt vera til aðstoðar við starfsemi Hássel- by vegna þjóðhátíðarinnar. Aðspurður um þátttöku Islend- inea almennt í starfsemi Hasselbv sagði Birger Olsson, að á þessum 10 árum hefðu, eins og fram hefði komið, 1690 Islendingar dvalizt í Hásselby, en Olsson sagðist gjarna vilja, að þeir yrðu fleiri í framtíðinni og að íslenzkir lista- menn tækju virkari þátt í starf- inu, svo og Islendingar almennt. Þau hjónin lýstu mikilli ánægju með þessa heimsókn, þau hittu marga vini og kunningja, ferðuð- ust svolítið, fóru í leikhús til að sjá Kabarett og voru mjög hrifin af sýningunni. — Minning Marteinn Framhald af hls. 22. brjóstsykurspoki, eftir öllum inundi hann og ölltnn vildi hann vel. Ga-tum við afkomendur hans komizt með tærnar þar sem hann liefði hælana, værum við betri inanneskjur á eftir. Kar þú í friði, friður guðs þig blessi, liafðu þökk fyrir allt og alll. Ilann var fieddur að Stafafelli í laini, sonur hjónanna Jóninti Ofeigsdóttur og Þorsteins Marteinssonar bómla að Svinhól- tiin i sömu sveit. /Ettir hans má rekja til presta og annarra merkra nianna og kvenna. Þor- steinn fluttist skömmu siðar að Steinaborg á Berufjarðai’strönd og þarólst Marteinn upp. Ungur fór Marleínn i Búnaðar- skólann i Olafsdal og nant þar kennsln. Þar drakk hann í sig áhrif hins hiigmyndastóra fram- lara- og ágætismanns Torfa skóla- stjóra. Ahrifin frá Torfa í Olalsdal kveiktu i hinuiii gáfaða unglingi athafnaþrá og stórhug, sem entust honutn til loka. llann gerðist bariiakennari i Berunes- hreppi, <‘ii varð jafnframt for- maður á árabát og stundaði eftir það útgerð i 50 ár. Arið 1920 stofnaði hann fyrir- Itekið Martein Þorsteinsson Uo. á Eáskrúðsfírði, ásamt mági sinum lljörgvin Þorsteinssyni, er varð áhrifarikt og athafnasamt at- vinnufyrirtieki, allt þar til Marteinn fluttist til Reykjavikur 1951. Þann 4. jiiní 1905 kvauitist Marteinn Rósu Þorsteinsdóttur. si'iii hann lifði með i farsadu hjónahiindi, þar til lnin lézt 14. ágúst 1956. Marteinn vnr fremur hlédra'gur og sóttist ekki eftir frama, en mannkostir hans urðu þess valdandi, að hann var kosinn i hreppsnefnd Káskniðsfjarðar- hrepps, aftur og aftur, formaður Búnaðarfélagsins, gjaldkeri Sparisjóðs Eáskrúðsfjarðar, inoðan hans naut við á staðnum, áluigaiuiiður uin málefni k'iski- félngs Islands, og sat á fiskiþingi. llann var gla'silegur drengskaparinaður, hrókur alls fagnaðar, þar sem það átti við, orðvar en skemmtilegur og fróður. Mörg hin siðari ár fékkst hiinn við ættfra'ðisöfnun. og íni! n u eftir hann liggja eftir- tektarverð söfn i þeim efmun og fleira, er snertir Suð-Austurlnnd. Marteinn Þorstoinsson var góð- ur inaður og sanng.tarn. sem naut trausts og vírðingar iiitinnlaiids og utan. l.öngu og inerku ævistart'i er lokið. Kg votta aðstandendiim hans hliittekningu Eirfkur Bjarnason Að kvöldi 6. október andaðist að heimili sinu, Laugarnesvegi 108, einn af máttarstólpum atvinnulífs á Austfjörðum fyrra hluta 20. aldar, Marteinn Þorsteinsson, kaupmaður og útgerðarmaður á Eáskrúðsfirði, sem stýrði fleytu sinni farsællega gegnum atvinnu- leysis- og kreppuár á fyrstu ára- tugum aldarinnar, eftir að sildin hvarf frá Austfjörðum og veru- lega tók að syrta í álinn fyrir útgerðarmönnum eystra, að minnsta kosti móts við það, sem áður var. Marteinn fæddist á Stafafelli í lzíni í Austur-Skaftafellssýslu 23. april 1877. Eoreldrar hans voru Jóhanna Ofeigsdóttir, bónda að Svinhóluin og Þorsteinn Marteinsson, Erlendssonar, Arnasonar bónda á Könibum i Stöðvarfirði. Þegar Marteinn fæddist voru foreldrar hans í vinnumennsku á Stafafelli, en fluttust tveim áruni síðar að Steinaborg á. Beru- fjarðarslrönd. Aður hafði faðir hans dvalið á ýmsuin bæjuni í Ixíni, m.a. Valskógsnesi og Hlíð í lxíni hjá Stórbóndanum Jóni Markússyni, kom þangað 18 ára gamall. Þaðan fór hann eftir 5 ár að Stafafelli og dvaldi þar til þrítugsaldurs, að hann kaupir Steinaborg af Antoniusi Eiríks- s.vni, er fór til Ameriku, cftir sölu Steinaborgar. Það, sent hvatti föður hans að fara frá Stafafelii, var hihn langi gangur inn Ejöllin, þar sein venja var að hafa féð á beit, en þangað er stífur kklukku- tima gangur frá Stafafelli. Hann er ekki sá eini, sem flúið hefur þessa fjárgæzlu. Þaðer mér kunn- ugt um, sem rita þessar línur. Marteinn stundaði fjárgæzlu (lij ásetu) fyrir foreldra sína f ram til 12 ára aldurs. Þá varð hann að ganga að heyskap nteð fullorðna fólkinu. Tveim árum síðar, þegar Marteinn var 14 ára, var hann ráðinn til að stunda sjó hjá Lúð- víki bónda Lúðvíkssyni á Karls- stöðum. Með Lúðvíki stundaði hann sjó i þrjú sumur og sjóaðist þá nokkuð, þótt ekki væri far- kosturinn til stórræða. Eftir það, árið 1895, fór hann til Eáskrúðs- fjarðar, gerðist fyrst háseti um tinia. Keypti síðan skektu. flutti hana suður til Steinaborgar og stundaði unt tínia sjó á henni, ásamt uppeldisbróður sínum, Þor- steini ögmundssyni. Marteinn lýsti nánti sínu á barnsárunum á þann veg, að til foreldra sinna hefði kontið ntaður að nafni Baldvin Sveinbjamar- son, sem að viðurnefni var kall- aður Baldvin skáldi, enda var hann urýðilega hagmælt- ur. Ljóðmæli hans, sem öll eru í handskrift, eru nú komin á Landsbókasafnið. Baldvin hafði óskað eftir því við for- eldra Marteins, að mega hafa heimilisfang á Steinaborg, enda urðu menn á þeim tíma að hafa einhvers staðar fast lög- heimili, lögum samkvæmt. Baldvin lagði með sér fyrir heimilisvist og tók að sér að fræða Martein. Jafnaldri Mareins, Gisli Sigurðsson í Krossgerði, fékk einnig að njóta tilsagnar hans og ef til vill fleiri. Auk þess naut hann lftilsháttar tilsagnar í almennum fræðum umfram fermingarundirbúning. Prestur- inn, sem fermdi hann var séra Benedikt Eyjólfsson í Berufirði. Sú tilsögn, sem Marteinn hafði þannig notið, varð til þess, að hann, ásamt tveim drengjum á líku reki, hóf að gefa út hand- skrifað sveitablað, sem gekk um Berufjarðarströnd. Annar þess- ara pilta var Halldór Halldórsson á Krossi, siðar nefndur Halldór skáldi, enda var móðir hans, Anna Björg, vel hagmælt. — Mér er minnisstætt, að þegar ég var 6—7 ára gamall, komu þeir Marteinn og Gfsli í Krossgerði iðulega á heimili foreldra minna, sögðu mér til í reikningi og skrifuðu upp dæmi, sem ég átti að vera búinn að reikna, næst þegar þeir kæmu. Þetta þótti mér mikill fengur, því ég hafði mjög gaman af að glíma við að leysa reiknings- dæmin. — Gísli var síðan um langt skeið barnakennari í Beru- nessókn. Þegar Marteinn er orðinn 22 ára, finnur hann sárt til þess að hafa ekki hlotið nægilega mennt- un, fannst honum hann ekki hafa fengið nóga menntun hjá sr. Benedikt. Margra kosta var ekki völ. Ymsir kunningjar hans voru farnir til náms í Möðruvallaskóla, en honum fannst hann vera orðinn heldur gamall til að fara þangað.enda hafði hann þá kom- ízt að þeirri niðurstöðu, að búskapur hentaði sér bezt. Eftir miklar vangaveltur og heilabrot sótti hann um skólavist hjá Torfa i Olafsdal Bjarnasyni, enda hafði hann heyrt vel af þeirn skóla látið og að Torfi væri framfaramaður mikill. Hann fékk jákvætt svar við umsókn sinni, og til farar með honum vestur réðst nágranni hans, Jón Sigurðsson í Kross- gerði, bróðir Gfsla, sem áður er minnzt á. Eftir tveggja ára nám þar hurfu þeir aftur austur. Síðar gerðist Jón skrifari hjá Jóni Magnússyni bæjarfógeta i Re.vkjavík og síðar skrifstofu- stjóri hjá Knud Zimsen borgar- stjóra, en Marteinn hugðist nota þá þekkingu, sem hann hafði aflað sér í Ólafsdal, en það reynd- ist torsótt til lífsviðurværis — og þar með var sá draumur búinn. — Arið 1902 bauðst honum starf hjá verzlun örum & Wulff á Fáskrúðsfirði. Þetta starf þáði Marteinn og stundaði verzlunar- störf hjá öðrum nokkuð á annan áratug. Árið 1920 stofnsetti hann á Búðum, ásamt mági sínum Björg- vin Þorsteinssyni, fyrirtækið Martein Þorsteinsson & Co., sem bæði var verzlunar- og útgerðar- fyrirtæki, sem hann rak óslitið til ársins 1951, en seldi Björgvin það þá í hendur og fluttist til Reykjavfkur, alfarinn af Austurlandi. Eftir að hann kom til Reykjavíkur, rak hann þar verzlun um þriggja ára skeið. Hætti þá verzlunarstörfum, en gerðist skrifstofumaður. Samhliða verzlunarstörfum eystra, gerðist hann bóksali frá 1912. Var hann einn af fáum sem gerðu ávallt skil fyrir janúar- lok og greiddu hverjum útgef- anda það, sem honum bar. Reglu- semin virtist þar vera í bezta lagi, svo mun og einnig hafa verið á öðrum sviðum. Árið 1905, 4. júní, meðan Marteinn var við verzlunarstörf i Búðakaupstað á Fáskrúðsfirði, kvæntist hann unnustu sinni Rösu Þorsteinsdóttur. Foreldrar hennar voru Gróa Þorvarðsdóttir frá Núpi á Berufjarðarströnd og Þorsteinn Jónsson, Hóli Stöðvar- firði. Gróa var hálfsystir Sigurðar hreppstjóra í Krossgerði og systkina hans. Börn þeirra Rósu og Marteins eru: Jóna, gift Elís Þórðarsyni skip stjóra, sem nú er dáinn. Jóhanna, gift Jóhannesi Þórðar- syni, vélstjóra. Steinþór, kvæntur Unni Ármann. Sigurbjörg, gift Sigursteini Guðjónssyni, húsverði. Auk þessa áttu þau tvær upp- eldisdætur. Þær eru: Jóhanna Björnsdóttir, sem nú er hjúkrunarkona á Landspftal- anum, og Rósa Sigursteinsdóttir, sem gift er Jóni Friðsteinssyni banka- manni. Auk þess að sinna verzlunar- störfum, hóf Marteinn Búskap árið 1907 á Hóli í Stöðvartr. ði. Ekki mun hann þó hafa rekið búskap þar lengur en þrjú ár, því þá hvarf hann aftur að verzlunar- störfum, enda voru honum þá greidd betri laun en áður. Eigendur verzlunarinnar töldu það sinn hag að fá hann aftur til starfa við verzlunina. Marteinn hlaut i fyllsta mæli traust samborgara sinna, sem bezt sést á því, að hann var kosinn til margs konar starfa. Má því til sönnunar m.a. nefna, að í 15 ár var hann í hreppsnefnd, ýmist formaður eða gjaldkeri búnaðar- félags frá 1904, í stjórn Spari- sjóðs Fáskrúðsfjarðar frá stofnun og ætlð verið gjaldkeri. Enn- fremur var hann einn af stofn- endum Slysavarnafélags Islands og sölusambands íslenzkra fisk- framleiðenda. Alla ævi var Marteinn mjög gefinn fyrir ættfræði, enda afar fróður á því sviði. Skráði hann mikið hjá sér af þeim fræðum, bæði um skyldmenni og vanda- lausa. Þeim, sem kynnu að vilja fræðast nánar um ýmsa þætti úr ævi Marteins og frásagnargleði hans og ritlist, vil ég benda á grein í Lesbók Morgunblaðsins 12. og 19 apríl 1970, eftir Ásgeir Jakobsson. Ennfremur bókina Gengin spor, sem flytur sagna- þætti eftir Þorstein Matthíasson kennara. Bókin kom út árið 1969. Frásögnin heitir: „Frá liðnum dögum“ og hefst á bls. 69. Þegar Marteinn var i búnaðar- skólanum í Ölafsdal, var þar gefið út skrifað skólablað, sem Máni nefndist. Það flutti m.a. palla- dóma um ýmsa skólapilta. Ég Ieyfi mér að birta hér með glefsur úr palladómi um Martein, áður en hann kvaddi skólann: „Hann er Iaglegur, heldur hörundsbjartur, snar og liðlegur i lund og talhreifur, og þar af leið- andi oft skemmtinn, enda ör- gerður og fáanlegur til að taka þátt í umræðum, hvers efnis sem þær eru . . . Félagsmaður er hann ágætur, enda góður til að vera flokksforingi. Hneigður er hann jafnt fyrir landbúnað sem siávarútveg og til hvors þess vel fær. Á fundum talar hann vel, ber ræður sínar fram með áhuga og festu, enda stefnufastur og skoðanagóður og tekst vel að verja sitt mál.“ Loks skal þess getið, að á árunum 1956—1962, hefur hann skrifað minningar sínar, sem hann nefnir Dægradvöl og til- einkar syni sínum. Þetta er handskrifað verk i tveim bindum, alls um 600 skrifaðar siður í kvartbroti. Þetta snertir að mestu menn og málefni á Austfjörðum allt frá árinu 1880. Kennir þar margra grasa. Geymir ritverk þetta fjölþættan fróðleik um alhliða búskap og atvinnuhætti, framfarir og baráttuvilja um nærri heillar aldar skeið. Ég og kona mín þökkum Marteini fyrir ánægjulega samfylgd og viðkynningu á jarð vistarsviðinu. Sendum ástvinum hans okkar innilegustu samúðarkveðjur. Jón Þórðarson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.