Morgunblaðið - 16.10.1973, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. OKTÓBER 1973
31
Sandgerðisveg-
urinn slysagildra?
Sandgerði 15. október
Búið er að leggja olíumöl á
Sandgerðisveginn frá Keflavik.
Var vegurinn opnaður umferð
síðastliðinn laugardag. Það eru
verktakafyrirtækin Véltækni h.f.
og Miðfell h.f., sem hafa í sumar
unnið við gerð vegarins, sem er
um 8 km langur og hefur verkið
gengið mjög vel. Því er að vísu
ekki lokið þar eð eftir er að laga
kanta vegarins og jafna meðfram
honum.
Vertakarnir munu í fram-
haldi af þessu einnig leggja olíu-
möl á mikinn hluta Strandgötunn-
ar næstu daga.
En eitt er við þennan veg, sem
menn hér eru ekki sáttir við. Eru
það gatnamótin, þar sem hann
tengist Garðveginum. Þar finnst
mönnum búin til óþarfa óþægindi
og jafnvel slysahætta, sem því er
samfara, að allir sem aka til eða
koma frá Keflavík eða lengra að
skuli þurfa að taka meira en
vinkilbeygju. Trúlega er umferð
þá leiðina vel yfir 90% umferðar
til og frá Sandgerði. Sérstaklega
mun þetta reynast erfitt fyrir all-
an þungaflutning, en hann er
geysimikill á þessari leið.
USA pantar ullar-
og skinnavörur
fyrir 20 millj. kr.
1 aprflmánuði óskuðu 6 af
smærri framleiðendum ullar- og
skinnavara eftir aðstoð
Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins
við sameiginlega söluferð til
Bandaríkjanna. Sérfræðingar
Sameinuðu þjóðanna í markaðs-
könnun, Albert Dalens og Hans
Berggren höfðu komizt að þeirri
niðurstöðu að N-Ameríka væri
einna þýðingarmesti markaður
fýrir íslenzkar iðnaðarvörur og þá
sérstaklega ullar-og skinnavörur.
Tók útflutningsmiðstöðin vel í
erindi framleiðenda og fór
Guðlaugur Björgvinsson, starfs-
maður þar, þessa ferð í maí-
mánuði með Thomasi Holton, for-
stjóra Hildu h.f. Vitað var fyrir-
fram að þeir yrðu nokkuð seint á
ferðinni, þar sem innkaup þar í
landi á vetrarfatnaði eru að
mestu gerð í febrúar og marz.
Engu að síður fengust pantanir,
sem námu rúmlega 20 millj. kr.
Utflutningsmiðstöðin fylgdist
með að vörurnar yrðu fram-
leiddar og afgreiddar á réttan
hátt. og á réttum tíma, Og í dag
eru útskipanir á þessum vörum að
mestu yfirstaðnar og viðbótar-
pantanir farnað að berjast.
Þá má geta þess að í síðast;
mánuði aðstoðaði Útflutningsmið-
stöðin fyrirtækið Álafoss við sölu-
ferð til Bandaríkjanna. Eftir
viðræður við rúmlega 40
innkaupaaðila vfðs vegar um
Bandaríkin kom í ljós, að með
réttum söluaðferðum, geta vörur
frá Álafossi náð mjög góðum
árangri í framtíðinni. Að viðbætt-
um þeim pöntunum er fengust í
þessari ferð var mjög almenrtur
áhugi kaupenda á verulegum við-
skiptum á árinu 1974, segja for-
stöðumenn Útflutningsmið-
stöðvarinnar.
Skugga Sveinn
á Hornafirði
Höfn í Hornafirði
10. október.
Leikfélag Hornafjarðar hefur
hafið æfingar á Skugga Sveini
undir stjórn Kristjáns Jónssonar,
en nú eru liðin 20 ár sfðan Skugga
Sveinn var síðast settur á svið á
Höfn.
Aætlað er, að frumsýning verði
3. nóvember n.k. Með hlutverk
Skugga Sveins fer Asgeir Gunn-
arsson, aðrir, sem fara með stór
hlutverk eru: Gísli Arason, leikur
Sigurð bónda, Sigrún Eiríksdóttir
leikur Guddu, Haukur Þorvalds-
son leikur Harald, Ingibjörg
Gísladóttir, leikur Ástu, Sigurgeir
Benediktsson leikur Ketil, Ámi
Stefánsson leikur Ögmund, Skúli
Isleifsson leikur sýslumanninn.
Kristján Jónsson leikstjóri
hefur áður sett' á svið hjá leik-
félaginu verk eins og Vængstffðir
englar, Tengdapabbi og Gullna
hliðið, sem sett var á svið á 10 ára
afmæli leikfélagsins.
Gunnar.
Færeyskir stúd-
entar í heimsókn
Hér á landi eru nú staddir 26 stúdentar frá Færeyjum, og eru þeir að
kvnna sér ýmsa þætti fslenzkra þjóðmála og arvinnumála. Hitta þeir
f jölmarga aðila hér að á landi og að máli og vinna þannig skipulega
að rannsóknum f vikutfma.
Tillögur ASÍ;
Persónufrádráttur
einstaklings verði
300 þúsund krónur
Eins og fram kemur f frétt á
baksfðu Morgunblaðsins f dag,
komu aðildarfélög ASl sér
saman um kröfugerð í kjara-
samningum þeim, sem eru á
næsta leiti, á ráðstefnu fyrir
helgina. Hér fara á eftir f heild
kröfur verkalýðssamtakanna,
ályktun um skattamál og hluti
samþykktarum húsnæðismál.
KRÖFUR ASl
1. a) Lægstu laun verði kr.
35.000,- á mánuði, sem gerir
40,90% hækkun. Mánaðarlaun
með vísitölu 139,54 (núverandi
laun) allt að kr. 31.000,-, hækki
um sama hundraðshluta. Laun,
sem eru hærri en kr. 31.000,- á
mánuði, hækki um sömu krónu-
tölu og kr. 31.000,- launin.
b) Laun þau, sem um semst,
verði grunnlaun og kaup-
greiðsluvísitala verði sett =
100.
c) Verðlagsuppbætur greiðist
samkv. kaupgreiðsluvísitölu að
fullu á öll Iaun, sem eru kr.
50.000,- á mánuði eða lægri, en
á laun, sem eru hærri en kr.
50.000,- sama krónutala og á
50.000,-.
2. Auk almennra hækkana
kauptaxta komi 15% hækkun á
alla fiskvinnslutaxta.
3. a) Atvinnurekendur tryggi
verkafólki, sem unnið hefur
hjá þeim í 4 vikur föst viku-
laun, sem svari til 40 klst. í
dagvinnu, skv. þeim launa-
taxta, sem viðkomandi vinnur
eftir.
b) Þegar verkafólk hefur
áunnið ser framangreindan
rétt, skal það hafa einar viku
uppsagnarfrest með sömu
kauptryggingu.
c) Verkafólk, sem vinnur að
staðaldri hluta úr degi njóti
hlutfallslega sömu réttinda til
kauptryggingar og sama upp-
sagnarfrest.
d) Verkafólk, sem ráðið er til
vinnu vertíðarbundið á fisk-
vinnslustöðvum, sem fjarri eru
þeirra lögheimilum, njóti þess-
ara réttinda viku eftir að það
mætir til vinnu.
4. Verkalýðsfélögin fái full
umráð yfir lífeyrissjóðunum.
5. 40 klukkustunda vinnuvika
verði unnin á 5 dögum.
6. Tryggingafjárhæð við
dauða og örorku af völdum
slysa breytist þannig, að í stað
kr. 500.00,- við dauðaslys, komi
kr. 1.500.000,- og T stað kr.
750.000,- við varanlega 100%
örorku komi kr. 2.000.000,- og
tryggingarskilmálar endur-
skoðaðir.
7. Launagreiðslum til starfs-
manna í veikindaforföllum
þeirra skal haga þannig:
A fvrsta ári 1 dae fvrir hvern
unninn mánuð, eftir það 60
daga á hverjum 12 mánuðum,
eftir 5 ára starf hjá sama vinnu-
veitanda 120 daga á hverjum 12
mánuðum, og eftir 10 ára starf
hjá sama vennuveitanda 180
daga á hverjum 12 mánuðum.
8. I fræðslusjóði verkalýðs-
félaganna greiði atvinnurek-
endur fjárhæð. sem svarar til
0,25% af launum, reiknað á
sama hátt og gjald til orlofs- og
sjúkrasjóða f élaganna.
9. Athugað verði af aðilum
vinnumarkaðarins, í samráði
við ríkisvaldið, með hvaða
hætti unnt er að verðtryggja
almenna lífeyrissjóði.
SAMÞYKKT UM
SKATTAMAL
Við gerð hverra nýrra kjara-
samninga leitast verkalýðs-
hreyfingin við að tryggja sem
bezt varanleika þeirra kjara,
sem um semst, svo sem kaup-
mátt launa.
Verkalýðshreyfingin hefur
ávallt lýst því yfir og gerir enn,
að hún meti ekki siður en
beinar kauphækkanir hverjar
þær ráðstafanir, er tryggi
kjarabætur eftir öðrum leiðum
og þá sérstaklega ef þær væru
síður verðbólguvaldandi.
Ráðstefna ASl, haldin í Reyk-
holti 27. og 28. ágúst s.l., gerði
kröfu um, að gagnger breyting
yrði gerð á skattlagningu i land-
inu, þannig að af almennum
launatekjum yrðu skattar veru-
lega lækkaðir.
Verkalýðshreyfingin Itrekar
nú þessa kröfu og telur nauð-
synlegt:
a) AÐ persónufrádráttur til
skatts fyrir einstakling verði
ekki lægri en kr. 300.000,-
Fjárhæð þessi er miðuð við nú-
verandi kaupgjald og vísitölu,
en breytist síðan í samræmi við
almennar kaupbreytingar og
framfærsluvísitölu. Sama hlut-
fall haldist milli persónufrá-
dráttar einstaklings og hjóna,
eins og nú er. Auk þessa fái
verkafólk, er vinnur við fisk-
vinnslu sérstakan skattfrá-
drátt, þannig að þeir, er vinna í
allt að 20 vikur á ári fái 9% og
þeir, er siarfa 20 vikur á ári eða
lengur 18%.
b) Að á viðbótartekjur
umfram persónufrádrátt, allt
að hálfum persónufrádrætti,
verði skatthlutfall stór lækkað.
c) Að fyrirframinnheimta op-
inberra gjalda verði miðuð við
skattvísitölu, er fylgi fram-
f ærsluvísitölu, og að við útborg-
un launa verði aldrei meira
frádregið til greiðslu beinna op-
inberra gjalda hvers árs en
rtemi 2/5 hlutum launa.
d) að heimildarákvæði um
lækkun og/eða niðurfellingu
fasteignaskatts, sem nú nær til
elli- og örorkulifeyrisþega, nái
einnig til ekkna, ekkla, ein-
stæðra foreldra og þeirra, sem
búa við langvarandi veikindi,
eða verða f yrir slysum.
e) Húsaleiga af íbúðarhús-
næði verði að hluta frádráttar-
bær til skatts.
f) Tannlækningakostnaður
verði frádráttarbær til skatts.
g) Að vaxtafrádráttur til
skatts verði takmarkaður við
ákveðið hámark.
h) Að heimildarákvæði í 52.
gr. laga um tekju- og eignaskatt
verði rýmkuð.
i) Hraðað verði undirbúningi
að því að taka upp staðgreiðslu-
kerfi skatta.
Heildarinnheimta opinberra
aðila verði ákveðin af meiri til-
litssemi til þegnanna en gert
hefur verið, og að framkvæmd-
ir og starfsemi hins opinbera
verði aðhæft eðlilegri tekju-
öflun.
Jafnframt lýsir verkalýðs-
hreyfingin yfir fyllsta stuðn-
ingi við hverjar þær ráðstaf-
anir, sem gerðar væru til að
koma f veg fyrir skattsvik.
SAMÞYKKT UM
HUSNÆÐISMAL
Til úrbóta á vanda húsnæðis-
málanna leggja verkalýðssam-
tökin megin áherzlu áeftirtalin
atriði:
I. Gerðar verði þegar í stað
ráðstafanir til þess að bæta úr
fjármagnsvöntun byggingar-
sjóðs á yfirstandandi ári.
II. Byggingarsjóði rfkisins
verði fengnir nýir tekjustofnar,
sem geri unnt að standa undir
skuldbindingum sjóðsins.
Tekjur af launaskatti gangi
óskiptartil sjóðsins.
III. Gerð verði athugun um
land allt, á árlegri íbúðaþörf
launafólks og í framhaldi af
því, framkvæmdááætlun til t.d.
4ra ára um íbúðabyggingar á
þeim stöðum, þar sem vöntun
er á íbúðum, hvort sem er
vegna endurnýjunar eða eðli-
legrar aukningar.
IV. Gildandi löggjöf um hús-
næðismál verði endurskoðuð i
nánu samráði við verkalýðs-
hreyfinguna, með það fyrir
augum sérstaklega, að félagsleg
byggingastarfsemi verði skilin
frá hinu almenna lánakerfi og
stuðningur hins opinbera við
íbúðabyggingu á félagslegum
grundvelli stór aukinn frá því,
sem nú er.
Oddsskarðsgöng tilbúin
til umferðar næsta haust
,,Við eigum aðeins eftir að
sprengja um 100 metra af göngun-
um, og ætlum okkur að verða
komnir í gegn sfðari hluta nóvem-
bermánaðar," sagði Ólafur Gísla-
son verkfræðingur, þegar við
spurðum hann um gerð Odds-
skarðsganganna f gær.
Ólafur sagði, að gerð ganganna
hefði gengið vel í sumar, og hefði
bergið verið sæmilegt viðureignar
i seinni tíð, og vonuðust menn til.
að svo yrði áfram. Göngin sjálf
verða 450 metrar.
A næsta sumri verða byggðir
tveir miklir skálar út frá gang-
munnanum. Norðfjarðarmegin
verður byggður 120 metra langur
skáli, en Eskifjarðarmegin verður
skálinn 60 metrar. Verða þvf
göngin, fullkláruð, samtals um
600 metrar. Skálana tvo verður að
byggja vegna mikilla snjóþyngsla
þar sem gangopin eru.
I vetur verður unnið við göngin
þar til sprengingum lýkur. Næsta
vor verður hafizt handa við
byggingu sjálanna sem verða
klæddir stálgrindarbogar. Um
leið verður hafizt handa við að
fullgera veginn eftir göngunum,
en sjálf eiga göngin að verða til-
búin til umferðar næsta haust.
Jafnfallinn snjór var á Odds-
skarði í gær og 7 stiga frost. Fyrir
10 dögum var þar sól og sumar og
hitinn 17 stig. Tuttugu manns
vinna nú við gangagerðina og
vinna mennirnir á tviskiptum
vöktum.