Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
Vignir Guðmundsson.
„Hesturinn þinn,>
Samgöngur
við Neskaup-
stað lamaðar
Ný bók eftir Vigni Guðmundsson
Komin er út bókin „Hesturinn |
þinn“, eftir Vigni Guðmundsson
með frásögnum og samtölum um
hesta og menn. Gunnar Bjarna-
son ritar formála að hókinni og
segir þar m.a.:
„Eg veit að bókin verður vinsæl
og vel þegin, því aðefni hennar á
margra hugi, og auk þess er hún í
letur færðaf manni, sem mætavel
kann til verka. Greinar Vignis í
Morgunblaðinu af „Hestinum
okkar" um hestaferðalög og
hestamennsku vöktu mikla at-
hygli á sínum tíma. Þegar hann
sagði frá gangnaferðum eða lang-
ferðum á öræfum landsins, var
auðfundið, að þar mælti maður
með næma skynjun á þennan
merkilega og menningarsögulega
þátt í þjóðlifi Islendinga, hesta-
mennskuna, bæði sem listræna í-
þrótt og sem hlut af striti og karl-
mennskuraunum þjóðarinnar um
aldir“.
í bókinni eru 15 þættir. Hún er
180 bls. að stærð með yfir 20
heilsíðumyndum. — Utgefandi er
Bókaútgáfan Skjaldborg.
Þessa mynd tók Öl. K.M. f gær frá Tollstöðinni og sézt m.a. hvernig fs er að leggja I Reykjavfkurhöfn, en
hann olli meðal annars erfiðleikum fyrir Akraborgina við að leggjast að bryggju f gær.
sem áttu að ná hingað fyrir jól,
munu enn liggja I haugum f
Reykjavík. Það virðist þvf vera
ríkjandi algjört skipulagsleysi I
samgöngumálum okkar um þess-
ar mundir
UNDANFARIÐ hefur verið unn-
ið að endurskipulagningu og
stækkun Dósagerðarinnar h.f. og
mun hún í framtíðinni geta boðið
f lestar gerðir dósa, sem þörf verð-
ur fyrir í fslenzkum lagmetisiðn-
aði. Þá er ákveðið, að Sölustofnun
lagmetis gerist einnig eignaraðili
að Dósagerðinni. Fyrir því er
heimild í lögum og nú er búið að
gera samning á milli Dósagerðar-
innar og S.L. um, að S. L. kaupi
25% hlutafjár I Dósagerðinni,
þ.e. hlutafé að upphæð 5 millj. kr.
í fréttabréfi Söiustofnunar lag-
metis segir, að eitt af þeim vanda
málum, sem S.L. þurfi að glíma
við, sé að tryggja framleiðendum
hentugar og ódýrar umbúðir. S.L.
muni skipa 2 menn af 5 í stjórn
verksmiðjunnar.
Nú þegar eru S.L. og Dósagerð-
in h.f. með hugmyndir um um-
fangsmikið samstarf. I samningi
þeim, sem undirritaður verður á
næstunni, eru m.a. ákvæði um, að
S.L. fái geymslu- og afgreiðsluað-
stöðu í húsakynnum Dósagerðar-
innar h.f. fyrir innfluttar umbúð-
ir, að fyrirtækin ráði sameiginleg-
an tæknimann, sem annist þjón-
ustu við lagmetisverksmiðjurnar
og að aðildarverksmiðjur S.L.
njóti góðs af þeim tækni- og þjón-
ustusamningi, sem Dósagerðin
h.f. hefur gert við fyrirtækið
Moblikk-Sannem í Noregi.
Neskaupstað 16. desember.
SAMGÖNGUR við Neskaupstað
eru nú alveg lamaðar, og hefur
fólk hvorki komizt frá né til Nes-
kaupstaðar f langan tfma. Að
sjálfsögðu er það sama að segja af
póstmálum, hér hefur póstur ekki
sézt í háa herrans tíð og vörur,
Króaði þjóf
af við
„Steininn”
HVAÐ á lögregluþjónn að
gera, sem er einn á ferð i lög
reglubifreið í miðbænum um
miðja nótt í slæmu vetrarveðri
og sér framundan grunsamleg-
an mann með fangið fullt af
fatnaði?
Kristján Árnason lögreglu-
þjónn varð að svara sjálfum
sér þessari spurningu um kl.
03:20 aðfararnótt þriðjudags-
ins, er hann ók niður Skóla-
vörðustiginn, eftir að hafa ekið
heim nokkrum lögregluþjón-
um, sem voru búnir með sína
næturvakt. Maðurinn með flík-
urnar tók á rás, er bifreiðin
birtist, og ákvað Kristján að
elta hann uppi á bifreiðinni.
Barst eltingaleikurinn um
nokkrar götur, þar til Kristján
náði að króa manninn af með
bifreiðinni uppi við Hegning-
arhúsið á Skólavörðustíg.
Handtók hann manninn og ætl-
aði að aka með hann niður á
lögreglustöð, en á horni
Bankastrætis og Ingólfsstrætis
sá hann, hvar brotizt hafði ver-
ið inn í tízkuverzlunina Casa-
nova. Gekk dæmið þá upp:
Maðurinn var með flíkur að
verðmæti um 76 þús. kr., sem
hann hafði verið að stela þar.
Fengu fálkaorðuna
FORSETI Islands hefur i dag
sæmt Ólaf Helgason bankastjóra,
Pál Zóphoníasson bæjartækni-
fræðing og Svein Eiríksson
slökkviliðsstjóra riddarakrossi
hinnar íslenzku fálkaorðu fyrir
framlag þeirra til björgunarstarfa
í sambandi við jarðelda í Vest-
mannaeyjum.
í fyrra gekk snjóbfll yfir Odds-
skarð og var af því mikil sam-
göngubót, en þessar ferðir hafa
legið niðri f vetur.
Ef veður batna, eiga samgöngur
væntanlega eftir að lagast aftur,
því að Flugfélag íslands hefur
flogið hingað tvisvar í viku í vet-
ur, en að sjálfsögðu hafa þessar
ferðir legið niðri síðan flugfreyju-
verkfallið hófst.
Nokkrir Norðfirðingar, sem
voru í Reykjavík í fyrradag, komu
með leiguflugvél til Egilsstaða þá
um kvöldið. Ekki lá fyrir þeim að
komast til Neskaupstaðar sama
dag. og eru þeir ekki komnir enn.
Þeir þyrftu fyrst að brjótast með
snjóbíl tímunum saman yfir
Fjarðarheiði til Seyðisfjarðar. Á
Seyðisfirði beið eftir þeim varð-
skip, sem átti að koma með þá
hingað i kvöld. Menn eru því ekki
alltaf komnir heim, þó að þeir séu
komnir austur í Egilsstaði.
Jólafundur
Ægisbúa
SKÁTAFÉLAGIÐ Ægisbúar
heldur sinn árlega jólafund f Nes-
kirkju klukkan 20.00 I kvöld.
Ljósálfar og ylfingar mæti f fé-
lagsheimiii Neskirkju klukkan
19.00. Eftir helgistund koma skát-
arnir saman í félagsheimilinu.
Foreldrar og velunnarar skáta í
Vesturbænum eru boðnir vel-
komnir á samkomuna.
h. SM
i mynd var tekfn f ger i KefUvfkurriugvelll, þegar LoftleiSavél kom þangaS frí Luxemburg mefl öryggfsverSi, sem hðftu borlt fram
mat og gegnt ötrum störfum flugfreyja á flugleltinnf. Konurnar á myndinni eru flugfreyjur, . sem mættu f flughöfnfnni I gaer. tóku á möti
„öryggisvörtunum" og afhentu hverjum þeirra plasthlóm. Það er „öryggisvörtur", sem gengur fyrlr myndavélina, en svipur flugfreyjanna
Italar f stað orta.
Jólabókasalan fer
seint af stað
ovenju
MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær
samband við nokkrar bókaverzl-
anir I Reykjavfk og úti á lands-
byggðinni og innti fráétta af sölu
bóka og hvaða bækur væru mest
eftirspurðar. Það kom fram, að
bókasala fram að þessu hefur ver-
ið mun minni en sl. ár og kenndu
menn um slæmu veðri að undan-
förnu. Bjuggust flestir við, að að-
alsalan væri eftir. Þá kom einnig
fram, að mjög fáar bækur eru
sérlega mikið eftirspurðar, en
margar ganga nokkuð jafnt f sölu,
og töldu sumir bóksölumenn, að
óvenjumargar bækur væru jafnar
í talsverðri sölu.
Fara héy á eftir upplýsingar frá
bókaverzlununum, sem við höfð-
um samband við.
Hjá Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar í Reykjavík fengum
við þær upplýsingar, að talsverð
hreyfing væri á bók Emils Jóns-
sonar, Milli Moskva og Washing-
ton, bók Guðmundar Hagalin,
Stóð ég úti í tunglsljósi, Vest-
mannaeyjabókunum, og þá sér-
staklega bók Áma Johnsen, Eldar
í Heimaey. Þá nefndu þeir einnig
Skákbók Freysteins og Friðriks
og þjóðsagnabók Sigurðar Nor-
dals.
Hjá Bókahúðinni Huld á Ákur-
eyri fengum við þær upplýsingar,
að í mörg ár hefði ekki verið eins
dræm sala á bókum, enda væri
veðrið skelfilegt og skammtað raf-
magn. „Örfáar hræður voga sér
út,“ sögðu þau í Huld, „og hinir
Sölustofnun lagmetis eignast
25% hlutafjár í Dósagerðinni
gæta þess, að vatnið frjósi ekki
hjá þeirn." Annars sögðu þau, að
meðal bóka, sem seldust vel, væri
Mannleg náttúra Þórðar á Dag-
verðará og Lofts Guðmundssonar.
Mætti segja, að hún geystist á-
fram og sama væri að segja um
bókina um jómfrú Ragnheiði, en
hins vegar kváðust þau vona, að
veðrið lagaðist og það hlypi svolít-
ið fjör í þetta.
Hjá Bókabúð Lárusar Blöndal f
Reykjavík var okkur sagt, að jól-
bókasalan væri óvenju jöfn og
færi mun hægara í gang en venju-
lega, líklega vegna kuldanna. Þar
hefur mikil hreyfing á verið á
jómfrú Ragnheiði og svo Guðrúnu
Á. Símonar, sem seldist upp, þá er
mest hreyfing á bók Emils Jóns-
sonar í flokki ævisagna, svo og
Huldufólki Áma Óla og Mann-
legri náttúru Þórðar á Dagverðará
svoeitthvað sénefnt.
Framhald á bls. 4 3