Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
25
Yngri l>örnin una sér vel f leik á nýja staðnum
Vænta árásar
skæruliða
Saigon, 17. des., NTB—AP.
Haft er eftirstjórnarheimildum
f Saigon, aðkomið hafi til harðra
átaka um helgina í námunda við
bæina Cai Lay og Cai Be um 80
km suðvestur af Saigon. Gerast
átök í S-Vietnam æ tíðari svo og í
Kambódfu, þar sem herstjórnin
hefur fyrirskipað íbúum Phnom
Penh að grafa skurði við hús sín
til að nota sem hæli, ef og þegar
skæruliðar hefja árás þá, sem
búizt er við, þegar þurrkatímar
hefjast.
Regntíminn er nú að enda í
Kambódíu og hefur stjórnin gert
ýmiss konar ráðstafanir til varnar
gegn hugsanlegri árás. Vopnaðir
verðir eru við allar opinberar
byggingar í borginni og útgöngu-
bann milli kl. 21.00 að kvöldi lil
sólarupprásar. Jafnframt hefur
verið innleidd ströng ritsktrðun.
Góðar jólagjafir
Pierpont dömu- og herraúr
í miklu úrvali.
Barna-
heimilið
brann —
Börnin í
Neskirkju
VESTURBORG, eitt af elztu
barnaheimilunum í Reykjavík,
brann nýlega. Það gerðist á
laugardegi. Og nú voru góð ráð
dýr. 29 börn yrðu vegalaus á
mánudeginum, þvf foreldrar fara
f vinnu og nám og gert er ráð
fyrir að börnin eigi sér vfsan
samastuð á barnaheimilinu. For-
ráðamenn Sumargjafar og for-
stöðukona Vesturborgar, Ingi-
björg Kristjánsdöttir, brugðu
skjótt við og létu alla vita. Tvö
önnur barnaheimili ætluðu að
taka við börnunum fyrstu 1—2
dagana.
Vesturborg var í gömlu húsi,
sem er ónýtt eftir brunann. Mest
af því, sem þar var inni, m.a. alls
konar dót fyrir börnin, eyðilagð-
ist. Hæsta'lagi að hægt sé að
bjarga einhverjum bókum, að því
er Ingibjörg sagði okkur.
En eftir fyrstu dagana var búið
að útvega heimilinu samastað
til bráðabirgða — í félagsheitn-
ilirrfj í kjallara Neskirkju. þar
sem Vestmannaeyjabörnin fengu
sitt dagheimili eftir gosið í
Eyjum. Sýndi sóknarnefndin mik-
inn velvilja og skilning með þvf
að lána húsnæðið.
Þegar fréttamaður Mbl. og ljós-
myndari litu inn í „Vesturborg" í
Neskirkju virtust allir hinir
ánægðustu. Yngri börnin voru að
leika sér með það dót, sem dregið
hafði verið saman fyrir þau f
fremra herberginu og eldri börn-
in hlustuðu á fóstruna Sigríði
Einarsdóttur lesa þulu. Þau sögð-
ust kunna ýmsar jólavísur, svo
sem jólasveinar ganga um gólf og
fleira.
Þegar börnin geta verið úti, þarf
að fara með þau á leikvöllinn í
Hagaborg. — Þetta er ágæt lausn
til að byrja með sagði Ingibjörg
Kristjánsdóttir forstöðukona. En
ég vona að rætist úr og við fáum
aftur hentugt húsnæði áður en
langt um líður.
MORGUNBLADSHÚSINU