Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
Myndir og minn-
ingabrot
Ingveldar
Gísladóttur
Komin er dt bðkin „Mvndir
og minningabrot" eftir Ing-
veldi Gfsladóttur. Höfundur
gefur bókina út í litlu upplagi
og helgar hana hundrað ára
minningu ntóður sinnar, Guð-
rúnar Þorleifsdóttur, 10. októ-
ber 1973.
Á titilblaði bókarinnar segir
höfundur:
„Myndir og minningabrof.
Sendibréf, ritað á þorra 1971,
til móður minnar, Guðrúnar
Þorleifsdóttur frá Vatnsholti f
Flóa, sem fædd var 10. október
1873 í Rútsstaðasuðurhjáleigu,
Flóa og dó f Reykjavík 26.
janúar 1961.
Bókin er 88 lesmálssíður og
auk þess 13 myndasíður með 19
myndum, en þar á meðal er
mynd af skólaspjaldi frá Flens-
borgarskólanum í Hafnarfirði
vetuiinn 1899—1900. Nöfn nær
allra á myndinni eru þar. í bók-
inni kemur fram, meðal annars,
frásögn höfundar af hinum
mikla húsbruna í Hafnarfirði
25. febrúar 1931, er Siglfirð-
ingahúsið brann. en svo sem
þar kemur fram, var hún ein
þeirra, sem sluppu nauðulega
úr þeim eldsvoða, þá 17 ára að
aldri.
„Myndir og minningabrot" er
önnur bók Ingveldar Gfsladótt-
ur, fyrri bók hennar „Lækning-
in", sem rnargir munu kannast
við, kom út sfðla árs 1951.
Breiðholtsbúar - Breiðholtsbúar
Höfum opnaÖ málningarvörudeiEd aÓ Leirubakka 36,
i húsi MatvörumiÓstöÓvarinnar. — Opið til kl. 23:00 á laugardag.
— ViÖ leiÓbeinum meÖ val lita. —
LeitiÖ ekki langt yfir skammt.
Verzlið í ykkar eigin hverfi.
Byggingarvðruverzlun Breiðholls,
Leirubakka 36 - Slmí 72160.