Morgunblaðið - 19.12.1973, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
Haukur Matthíasson, sálfrœðinemi:
„„Nei," sagði hann við spurn-
ingu, sem fram var borin, „þessir
prófessorar og dulspekingar, sem
stofna vilja til norrænna trúar-
bragða, gera ekki annað en að
þvælast fyrir mér. Af hverju læt
ég þá afskiptalausa? Vegna þess
að þeir stuðla að upplausn, en
upplausn er hið eina, er vér get-
um lagt tii málanna, eins og
stendur. Þeir valda óróa. Og óll
órö hefur skiijtun í för með sér.
Ilún hefur að vísu ekkert gildi i
sjálfu sér, en lofum henni að
skeika að skiipuðu. Þeir -leggja
sitt til ijg. jwestarnir sitt. Vér
niunum neyða þá til að tortíma
sinum eigin trúarbriigðum i kyrr-
þey með því að afklæðast iillum
myndugleik og gera allt að merk-
ingarlausu híalínshjali."
„Vér gefuni henni þriðju gjöf-
ina: heimspeki vora," sagði
Hitler. „Sé nokkur' staður til
undir sólunni, þar sem lýðræði er
fjarstæða og sjálfsmorð, þá er bað
Suður-Ameríka. Vér verðum að
styrkja hina hreinu samvizku
þessarar þj(iðar, svo að hUn verði
þess megnug að varpa bæði frjáls-
lyndi og lýðræði fyrir horð. HUn
skammast sín hlátl áfram fyrir
sinar bezlu hvatir!"
wlleiminum verður aðeins
stjíirnað meðölta.""
„Aðeins á þánn hátt verður
yður (Þjíiðverjum erlendis.
Innsk. mitt) fært aðinna af hiind-
um þau vandasömu verkefni. sem
ég fel yður. Eg verð að treysla
dóingreind yðar um val á ráðum
lil þess að heygja þjíiðtiræður
yðar undir þennan nýja aga. Það
mun ekki ávallt ganga eins og í
siigu.-'Ég met allt eftir árangrin-
um. Aðferðirnar læt ég mig engu
sktþta. En hver sá, sem sýnir yður
mótþróa, þarf einskis að vænla af
þýzka rfkinu framar. Ilann er út-
lægur ger um líma og eilífð."
„Vér sækjumst ekki eftir jafn-
i'étti. lieldur yfirdrottnun."
Ofangreindar lilvitnanir eru úr
liókinni Hitler talar, eftir Her-
mann Rausehning. sem Ut kom f
islenzkri þýðingu MagnUsar
Asgeirssonar árið 1940. Hermann
Rauschning var náinn vinur og
trúnaðarmaður Ihtlers frá upp-
hafi nasislahreyfingarinnar og
ritaði hann niður af mikilli kost-
gæfni allar þær viðræður, sein
fram föru í l*i'mi m þrengsta höpi
nasistaleiðloganna.
Dr. Rauschning snerist síðar
gegn Ilitler og nasistahreyfing-
unni. þegar flokkshræður hans
töku að krefjast þess, að liann
varpaði kaþölskum prestum i
fangelsi og svipti Gyðinga mann-
réttindum o.s.frv.
Asatrúarmenn
Ég geri ráð fyrir, að nær óþarfi
sé að vitna í heimildir eða segja
yfirleitt frá þeirri ógnaröld sem
ríkti f Þýzkalandi, þegar nasism-
inn var upp á sitt „bezta", en það
hefi ég þó gert hér til að leggja
áherzlu á það óréttlæti, sem égtel
biskupinn hafa beitt dr Ilelga
Pjeturss í umsögn þeirri um
umsókn félags ásatrúarmanna til
safnaðrréttinda, er hirtist á 12.
síðu Morgunblaðsins þ. 13. des. 11.
Ultra religionem, non contra.
„Framúr trúarhrögðunum, ekki
gegn þeim," eru einkunnarorð
Nýals, en þau drög til heimsfræði
og líffræði, sem þar eru sett fr.am,
geta á engan hátt talizt stefna í
söntu átt og þær hugmyndir, sem
uppi voru á nefndu skeiði f Þýzka--
landi.
. Ég læt mig ekki varða umsökn
ásalrUarfélagsins og ræði hana
ekki. Ilitt fæ ég ekki skilið,
hvernig dr. Ilelgi kemur því máli
við. Er hin mesta furða, að
hiskupinn skuli tengja óskyld mál
saman á þann hátt, sem fram
kemur í hinni umræddu Morgun-
hlaðsgrein.
Maður, sem fyrirlftur aðra kyn-
þietti göfugmenni?
Biskup segir: „en í Nýal eru því
miður ærnar heimildir um sams
konar órakennda afstöðu til ger-
manskrar fortíðar og gælti i
Þýzkalandi á nefndu skeíði, sam-
fara fyrirlitningu og fordæmingu
á öðrum kynþátlum, einkanlega
„JUðum", en þessi afstaða var
kveikjan að þeirri ásatrúarvakn-
ingu. sem var þar í landi. Þessi
staðreynd getur ekki legið í
þagnargildi þóaðhöfundurNýals
hafi verið göfugmenni og þeir,
sem hér eiga Iilut að máli, séu það
sjálfsagl lika."
Það vill svo til, að ég hefi um
árabil verið í starfshópi, sem
fengizt hefur við það meira og
minna í frístundum að rannsaka
kenningar dr. Ilelga Pjeturss,
þróun þeirra og þröun og niður-
stöður í vísindum síðan dr. Helgi
setti fram sínar kenningar og
rannsóknarniðurslöður.
I starfshópi þeim, er ég nefndi.
sem samanstendur af leikmönn-
um (svo kölluðum), stUdentum og
háskólamennluðum mönnum í
ýmsum greinum. liöfum við ekki
komizt að þeirri niðurstöðu, aðdr.
Ilelgi hafi haft „f.vrirlitningu á"
biskup
og dr.
Helgi Péturss
né „fordæmt aðrakynþætti", hvað
þá að um „órakennda afstöðu, að
germanskrar fortíðar" sé að ræða.
Allra hæst skýtur biskup yfir
markið, þegar hann telur, að
skoðanir dr. Helga hafi verið
„sams konar" að afstöðu til og
gætti á nasistaskeiðinu. Ég skal
ekki mótmæla því, að dr. Helgi
Pjelurss hafi verið göfugmenni,
en að halda þvf fram um leið og
hinu er dálítið furðulegt. Enn-
fremur er það einkennilegt orða-
lag að segja, að „sjálfsagt" séu
þeir, sem hlut eiga að þessu máli,
líka göfugmenni. Satt að segja
eru þessir menn, eftir því sem ég
hezt veil, ekki göfugri en fólk er
flest.
Játning
I bókinni Játningar, sem Ut
kom árið 1948 og Símon Jóhannes
ÁgUstsson sá um útgáfu á, er
grein eftir biskupinn og þar segir
hann, hvernig hann hreifst af
Nýal á menntaskólaárum sínum
og gerðist heiðinn. Síðan snerist
hann til kristinnar trúar aftur og
gegnir nú embætti biskups sem
kunnugt er.
Það er út af fyrir sig ekki neitt
merkilegt, aðunglingar fái brenn-
andi áhuga á hinum ýmsu mál-
efnum stutt skeið og fái svo allt í
einu brennandi áhuga á allt öðru,
slíkt er mjög algengt meðal ungl-
inga og flestir komast yfir þessa
„fanatík", þegar þeir eldast og
þroskast. En ég sé ekki betur en
biskupinn hafi á menntaskóla-
árunum ekki skilið eða lagt
megin áherzlu á aðalatriði Nýals.
enda getur það ekki samrýmzt að
gerast „lærisveinn Ilelga
Pjeturss", eins og biskup segist, í
grein sinni, hafa gerzt, því að
verða heiðinn. Hvort biskup
hefur lesið Nýal síðan hann var í
3. bekk, veit ég ekki en ekki sýn-
ist mér skilningur hans á því
verki hafa aukizt.
1 greininni Framtíð hinnar
hvítu mannættar frá 1925, segir
dr. Helgi frá greinum, sem hinn
heimskunni landfræðingur og rit-
höfundur prófessor Macmiljan
Brown hefur sent honum.
Lætur Brown í ljós áhyggjur af
framtíð hins hvíta kyns vegna
yfirvofandi styrjaldar við Japan
og segir, að hið eina, sem geti
aftrað hruninu, sé ný trú, eða þá
að hin fornu trúarbrögð blossi
upp á nýju. Orðrétt segir dr. Ilelgi
um hugleiðingar Browns: „Þykir
mjer það viturlega mælt, að ekki
mundi það bjarga yfirráðum og
framtíð hinna hvítu manna, þó að
þeir sigruðu hina með vopnum.
En þó tel jeg vfst, að engin trúar-
bragðahreyfing geti hjálpað í
þessum efnum. Hið eina, sem
getur bjargað, er, að vjer í Vestur-
löndum gerum einhverjar þær
uppgötvánir, sem á mjög miklu
stórkostlegri hátt en áður hefir
orðið, miði til að bæta hag mann-
kynsins."
Dr. Helgi hefur sagt um aðra
kynþætti, að forysta þeirra dugi
ekki til að beina mannkyninu inn
á aðrar brautir þ.e. frá helstefnu
til lifstefnu. Hann taldi, að hann
hefði fyrstur orðið til þess að upp-
götva, að framvindustefnurnar
eru tvær.
Það, sem biskupinn hnýtur um,
eru kaflar, þar sem dr. Helgi
bendir á, að t.d. hafi hin gyðing-
lega forysta ekki dugað til að
koma mannkyninu á rétta fram-
farabraut. Og getur nokkur sá, er
vitandi er vits, lokað augunum
fyrir þeim hörmungum, sem
herja þennan blett okkar f al-
heiminum, sem jörðin er?
Þegar dr. Helgi talar um, að
norrænnar forystu þurfi við, er
ekki hægt að skilja það á annan
Opið bréf
til Guðrúnar A. Sím-
onar óperusöngkonu
Sigurður Demetz Franzson og
GuðrUn A. Símonar í Tosca.
lleiðraða starfss.vstir!
ÉG vona. aðþútakír mérþaðekki
illa upp. þó að ég ávarpi þig svo,
og listaheiður þinn skerðist ekki
við það að neinu marki, þar sem
hér á landi nægir að syngja einu
sinni i öperu til að mega kalla sig
óperusöngvara. en ég hef gert það
a.m.k. tvisvar, hvað svo sem líður
siingferli mfnum i öðrum löndum,
svo sem víð Scala í Mflanö. í stór-
um óperulnisum víðar á ítalíu. á
Spáni og víðar. en ég veit ekki.
hversu kunnug þú ert á þessuni
slóðum. svo aðég sleppi því.
Þá ætla ég að segja þér það i
fréttum, að ég varð fullur til-
hlökkunar, þegar ég frétti. að
bókin þín ætti að koma út. enda
var ég fyrsti maðurinn. sem fékk
hana aðláni á Amtsbökasafninu.
En mér brá illa í brún, þegar ég
fór að fletta henni og sá myndina
af mér, sem þú hefur valið til
birtingar þar. Þessi mynd
var tekin að lokinni sýn-
ingu á „Syngjandi pásk-
um“. þegar þeir, sem höfðu
tekið þátt í sýningunum, brugðu
á leik og gerðu sér glað-
an dag. Þá var sungið og
ýmislegt fleira gert til gam-
ans í okkar hópi. M.a. fór
ég með hjálp þinni að líkja eftir
jazz-söngvara, og þá var smellt af.
Hins vegar var myndatakan og
mvndin algert einkamál, og grun-
aði mig aldrei, aðhún æti eftir að
birtast, allra sízt í jafnfrægri og
stórmerkri bök og nú er komið á
daginn. Eg er náttúrulega ekki
viss um, i hvaða tilgangi þú birtir
myndina eða hvaða augum þú lít-
ur liana. en hitt get ég sagt þér f
fullri hreinskilni. að ég tel birt-
ingu hennar stórlega niðrandi
fyrir mig, sbr. orðtak, þekkt i
mörgum tungumálum. sem á
dönsku heitir „at tage en ved næs-
en". Ég veit heldur ekki, hvaða
hugmyndír þú hefur um dreng-
skaparsk.vldu gagnvart starfs-
félögum og kollegum. en ég tel
það ódrengilegt af þér og stórlega
ámælisvert að birta þessa mynd,
sem á engan hátt var opinber.
heldur einkamál, án minnar vit-
undar og án míns samþykkis.
Ég vissi ekki. að ég ætti þessa
lítillækkandi og móðgandi með-
ferð skilið af hendi íslenzks koll-
ega, það sem ég hef allt-
af reynt að styðja og
efla íslenzk söngmál og is-
lenzka söngvara. Eg var t.d.
einu sinni fenginn til að taka
að mér fyrirvaralaust hlutverk í
Rigoletto í Austurbæjarbíó til að
bjarga sýningu þeirra. En þú get-
ur náttúrulega sem „first lady"
leyft þéraðgagnrýna, kasta rýrð
á og jafnvel smána kollega þína
að vild og þá líka annað söngfólk
eins og félaga f kirkjukórum, sem
ég ber rnikla virðingu fyrir. Þetta
fólk er lil taks við allar messur,
við jarðarfarir og á hátíðum fyrir
lítla þóknun og gegnir hráðnauð-
synlegu hlutverki. Þetta er fólk,
sem þarf að aðstoða og létta undir
með, en ekki hnjöða í. Þú ættir
fremur að fara og þjálfa þessa
kirkjukóra, svo að þeir geti á eftir
sungið eins og þú vilt láta þá
s.vngja.
En hvað um það, fyrrnefnd
m.vndbirting og framkoma þín f
því sambandi er þeim mun tor-
skildari, sem þú varst gestur okk-
ar hjónanna á heimili okkar í vor
og hefðir þá sem hægast getað
fært þetta f tal, en það léztu ógert.
Einnig hefðir þú þá eða síðar get-
að fengið aðrar m.vndir að velja
Ur lil birtingar, svo sem af okkur
tveimur í hlutverkum í Tosca. þar
sem ég söng á móti þér í Þióðleik-
Inisinu á 5 eða (5 sýningum, elleg-
ar mynd af mér með marga kettl-
hátt en þann, að slík forysta yrði
mannkyninu öllu til blessunar.
Dr. Helgi á ekki við, að norræn
forysta stefni að því að kúga,
drottna eða lítilsvirða aðra kyn-
þætti, hún stefnir í hina áttina, í
áttina til hjálpar öðrum kynstofn-
um og öllu lífi jarðar vorrar og
alls lffs í alheimi, hvorki meira né
minna.
Fleiri tilvitnanir er ekki vert að
prenta hér, því Nýall stendur öll-
um til boða, biskupnum líka. Ég
vona, aðherra Sigurbjörn Einars-
son skilji, hvers vegna égtek tíma
frá próflestri til að skrifa þetta.
Um Ieið og ég minni á, að dr.
Helgi Pjeturss er einn af fáum
eða sá eini, sem hefur komið með
vísindalegar kenningar, sem
skýra, hvernig JesUs gat gert
kraftaverk, tek égþessa tilvitnun
Ur Nýal (útg. 1955 s. 65) til um-
hugsunar biskupnum, mér og
lesandanum:
„Oss má nú ljóst vera, að JesU
frá Nazaret var sjerstaklega fag-
urt dæmi þeirrar manntegundar,
sem á íslensku er nefnd goði eða
goðorðsmaður. Heimsfræðin, sem
hann kennir, er að vísu fátækleg
hjá indverskri, grískri eða
persneskri heimsfræði. En
líferniskenning hans er svo
merkileg, þessi boðorð hans, sem
öllum eru kunn og enginn lifir
eftir."
33,3% rangt mál
Það, sem að framan greinir,
vona ég að nægi til að sýna, að
ummæli biskups um Nýal eru
ómakleg.
Um ásatrúarfélagið og umsókn
þess hef ég, eins og áður er fram
komið, ekkert að segja enda er
það á engan hátt mér viðkomandi,
en eitt get ég þó ekki stillt mig um
að minnast á (aðallega af stráks-
skap), því þaðersvo sjaldan hægt
að reikna í prósentum það, sem
rangt er með farið. í erindi
biskups segir: „undirskrifendur
umrædds erindis (þ.e. umsókn
ásatrúarmanna. Innsk. mitt) hafa
hingað til talið sig Nýalssinna".
Einn af þrem undirskrifendum er
Jón frá Pálmholti og samkvæmt
símtali, er ég átti við hann þ. 13.
desember sl., hefur hann aldrei
talið sig Nýalssinna. Það er því
grjóthörð staðreynd, (byggð á
bjargi traustu) að hér er farið
með rangt mál að nokkru leyti og
jafnvel vafasamt, að þessi fullyrð-
ing sé rétt um hina tvo.
En þó að biskupin yfir Islandi,
herra Sigurbjörn Einarsson, sé
hér með orðinn uppvís að a.m.k.
33,3% ósannsögli er hann sjálf-
sagt gotugmenni.
Hripað í alltof miklum flýti þ. 16.
12. 73.
Haukur Matthíasson.
Með fangið fullt af kettlingum
inga i fanginu, þar sem þér þ.vkir.
eins og allir vita, mjög vænt um
ketti. Þö getur verið, að þessir
hafi ekki verið af nógu göfugu
kyni til að fá m.vnd af sér birta í
liinni stórmerku bók.
Mér þykir nefnilega, alveg eins
og þér, afar vænt um ketti og
önnur dýr. Eg get líka alveg tekið
undir með frægum manni, sem
sagði einu sinni eitthvað á þá leið,
að eftir því sem hann k.vnntist
mönnunum betur, því vænna
þætti sér um hundinn sinn.
Með söngkveðju.
Akureyri, 15. desember 1973
Sigurður Demetz Franzson