Morgunblaðið - 19.12.1973, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
11
V E R Z LUN IN
GEYSiPP
Eldur 1 hesthúsi
ELDUR kom upp í hesthúsi í
Víðidal við Elliðaár á laugardags-
kvöldið, eftir að menn höfðu ver-
ið að þíða þar vatnsrör með gas
tæki. Margir hestar voru i húsinu,
en flestöllum tókst að bjarga út
fljótlega. Þrir hestar köfnuðu og
nokkrir hlutu revkeitrun, sem
kann aðleiða þá til dauða.
Hólmatindur með
130-140 lestir
Eskifirði, 17. des.
SKUTTOGARINN Hólmatindur
landaði hér í dag 130—40 lestum
af þorski. Mun ætlunin, að skipið
fari eina ferð enn fvrir jól. Hér
hefur snjóað mikið og veður verið
leiðinlegt sfðustu daga.
—Fréttaritari.
Bækur Róberts Fisker í íslenzkri þýðingu
Dansklr
herra- 09
flömu-
inniskór
Einn þekktasti og vinsælasti
barna- og ungiingabókahöfundur
Dana nú, er Róbert Fisker. Eins
og margir höfundar þeirra bók-
menntagreinar, er hann kennari
að menntun.
Mörg ár eru samt síðan hann
hætti kennslu og helgar sig ein-
göngu ritstörfum.
Meðan hann kenndi, voru það
einkum yngri börnin, sem nutu
tilsagnar hans. Það er því engin
tilviljun, að hann hefur skrifað
fjölda bóka um það aldursskeið.
Hann gjörþekkir hugarheim
barnanna og skrifar því bæði um
það, sem þeim er vænlegt til
þroska, og þau hafa gleði og
gaman af.
Þótt Fisker skrifi mikið fyrir
unga lesendur, hefur hann einnig
skrifað bækur fyrir unglinga og
fullorðið fólk, þar hefur honum
ekki tekizt sfður. Kaflar úr bók-
um hans hafa verið teknir í
danskar lestrar- og kennslu-
bækur.
Bækur hans hafa verið þýddar
á mörg tungumál.
Danir búa vel að þeim, sem
skrifa fyrir æskuna, — og taka
það hlutverk sitt alvarlega.
Róbert Fisker er sá danskur höf-
undur, sem mest er lánaður út á
bókasöfnum í heimalandi sínu og
á þar mestan eintakaf jölda.
Hann er Iíka tekjuhæsti danski
höfundurinn. I einu af hinum
mörgu viðtölum, sem danskir
blaðamenn áttu við höfundinn í
sumar, endaði hann mál sitt með
Vandad
og
fjölbreytt
úrval
þvf, að barnabækur ættu að vera
eins og börn hugsuðu og sá
heimur væri, sem þau hrærðust í
— en ekki eins og fullorðna fólkið
vildi að þær væru. Ilann bendirá
nauðsyn þess, að sá, sem skrifi
fyrir þau, gjörþekki þau og um-
hverfi þeirra frá öllum hliðum —
þær kröfur komi einmitt frá þeim
sjálfum — sem lesendum.
Fyrir jólin 1971 komu tvær
barnabækur eftir Fisker út hjá
Víkurútgáfunni í islenzkri þýð-
ingu hins þekkta unglingabóka-
þýðanda, Sigurðar Gunnarssonar
kennara.
Nú fyrir jólin er nýkomin út
bókin Pési pjakkur á ævintýra-
leiðum eftir Fisker — hjá bókaút-
Gunnarssonar.
Það er gleðiefni, að fslenzk börn
eiga nú kost á að kynnast bókum
eftir þennan virta höfund. Og
vonandi, að foreldrar veiti því at-
hygli, að hér er um að ræða bæk-
ur, sem eru hvort tveggja í senn
skemmtilegt og eftirtektarvert
lesefni fyrir börnin.
Jennaog Ilreiðar Stefánsson.
r»IHRRGFRlORR
í mflRKRfl VflOR