Morgunblaðið - 19.12.1973, Síða 12
12
Kjólarnir eru léttir og leikandi. Hér er síður
organdykjóll með hlírum. Brjóstlínan er flöt,
en rós prýðir kjólinn.
Tveir skyrtukjólar, sem bæði eru til svartir
og hvítir. Þeir eru úr „georgette“-krep-
efni meðinnlögðum blúndum. Meðþeim eru
notaðir stráhattar með tjull-slöri og rauðum
rósum
Kvöldkjóll, ber í bakið, úr gulu mússulíns-
efni meðhvítum dílum.
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
Parísar-
ttzkan 1974
Hið fræga franska tízkuhús Nínu Ricci, sem
löngum hefur haft mikil áhrif á tízkuna í
heiminum, hefur nýlega sent frá sér tízku-
fatnað sinn fyrir árið 1974. Til að gefa hug-
mynd um stílinn, sem Nína Ricci leggur til að
verði á kvenkjólum á næsta ári, birtum við
hér nokkrar mvndir.
Nína Ricci er farin aö teikna alls Konar
smáskraut, þar á meðal skemmtileg úr.
Ullarfrakki með beintölum. Undir er notað
samlitt pils og skyrtublússa úr þunnu kína-
krepi. Filthattur notaður með.
Síðdegiskjóll úr drapplitu krepefni með
hvítu mynztri. Pilsið saumað fast við blúss-
una á mjöðmunum.
Jakki með stuttum ermum og blómaútsaum
notaður utan yfir hvítan organdy-kjól með
felldu pilsi. Hatturinn er líka úr hvítu or-
gandy-efni.