Morgunblaðið - 19.12.1973, Page 14

Morgunblaðið - 19.12.1973, Page 14
ÝSINGASTOFANHF Gisti BBiomsson 14 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973 fbúÖ óskast til leigu, 3—4 herbergi, strax eða 15. janúar. Upplýsingar hjá skrifstofustjóra í síma 81 555. Glóbus h/f. Lárus Blöndal, bókavörður: „Hinn hvíti galdur”, r eftir Olaf Tryggvason Nýkomin er út bók eftir Ólaf m.a. með þeim hugleiðslufræó- Trvggvason, sem hann nefnir um, sem hún flytur. „Hinn hvíta galdúr“, bók, sem að Olafur Tryggvason er löngu mfnum dómi á erindi að rækja, þjóðkunnur maður. Er þetta Ofvitinn íslenzkur aöall Frásagnir Ævisaga Arna prófasts Þórarinssonar. Þessi höfuörit Þórbergs Þórðarsonar, samtals um 2000 bls. í fimm bíndum í samstæðri útgáfu eru nú öll fáanleg á mjög hagstæðu verði: Kr. 4.490 ib. í rexin. Kr. 5.680 ib. í skinn. (að viðbættum söluskatti). Mál og menning Laugavegi 18, Reykjavík. Pósthólf 392 Ómissandi handbók ísienskt skáldatal Ritið geymir yfirlit um íslensk skáld, æviágrip og skrá yfir verk þeirra og helstu ritgerðir um þau. Þetta er fyrra bindið. Það er tekið saman af Hannesi Péturssyni og Helga Sæmundssyni og nær frá upphafi íslenskra bókmennta og fram til nútíðar. Verkið er myndskreytt og er 3. bókin í bókaflokknum Alfræði Menningarsjóðs. Bækur til félagsmanna 20% ódýrari. söourít RÓKACTG.AFA MENNIN GARSJÓÐS Saga Hlíðarenda í Fljótshlíð eftir séra Jón Skagan. Mikið rit um hið forna og fræga höfuðból, mannlíf, kirkjuhald þar og búskap frá upphafi vega. Greint er frá 43 ábúendum og kunnum mönnum, sem koma við sögu staðarins, s. s. Þorláki biskupi helga Þórhallssyni, Vísa-Gísla og skáldunum Bjarna Thorarensen og Þorsteini Erlingssyni. Höfundur var lengi prestur á Berg- þórshvoli og hefur unnið að þessu verki árum saman. Sigildar hoims- bókmonntir Kviður Hómers I—II Hér er um að ræða llíonskviðu og Ódys- seifskviðu í hinni frægu þýðingu Svein- bjarnar Egilssonar. Ljósprentun útgáf- unnar frá 1948 og 1949, sem Kristinn heitinn Ármannsson og dr. Jón Gísla- son önnuðust. BÓKAÚTGÁFA MENNINGARSJÓÐS OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS sjötta bókin; sem hann ritar um andlega reynslu sína og lækning- ar, en lækningagáfa hans er vott- uS og viðurkennd af miklum fjölda manna. í bók sinni gerir Ólafur grein fyrir lífsskoðun sinni og segir frá atburðum og fyrirbærum, sem hann hefur lifað og hún er reist á. Fyrir Ólafi eru það hin æðstu sannindi, að kær- leikurinn sé andlegur máttur, sem maðurinn sé gæddur og far- sæld hans bundin við. Fyrir því varði það manninn öllu að ávaxta Olafur Tryggvason með sér anda kærleikans og varð- veitt hjarta sitt hreint. í formála bókar sinnar farast Ólafi svo orð: „Tilgangur bókarinnar og ætl- unarverk er því að vekja menn til umhugsunar um það. hvar þeir eru staddir, hve mikla fegurð og farsæld jarðlífið hefur að bjóða, ef menn ganga að því sem dag- legu skyldustarfi að hreinsa hugarfar sitt. Eg legg áherzlu á, að innri rök tilverunnar eru okkur ekki raun- veruleg sannindi nema þvl að- eins, að við lifum þau í eigin vitund og f eigin verkum, nú og hér. Engin andleg sannindi eru okkur sönn staðreynd, raunveru- legt líf, nema við lifum þau sjálf." „Lffsviðhorf mitt byggi ég á sál- rænum staðreyndum, sem ég hef sannprófað. Og ailar þær niður- stöður samræmast þeim sannind- um, sem konungur sannleikans orðaði svo: Það, sem þér viljið, að mennirnir gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra. Fórnfýsi og samúðarrik þjón- usta við lífið leiðir dýpstu lífsvfs- indi f ljós." Hugleiðsluaðferð Ólafs Tryggvasonar er f raun og veru bænarathöfn, sem á rætur í krist- inni trú og kristinni trúariðkun. Til marks um þetta er það, að Ólafur velur Faðirvorið með helgi sina að inngangsorðum hug- leiðslustunda sinna, en þeim ætl- ar hann það hlutverk að „sameina anda og starf til hagnýtrar úr- lausnar ýmissa vandamála". Hafi Ólafur þökk fyrir bók sína. Ég er þess fullviss, að hún mun verða mörgum manni leiðarhnoða og vísa honum veginn að bænar- þrepum trúar og vonar. Eg get ekki stillt mig um að láta í ljós aðdáun mína á tungutaki hans, svo erfitt sem það hlýtur að vera að rita um þetta efni, sem bók hans fjallar um. STRÆTISVAGN FAUK TIL Á SJÖUNDA timanum á laugar- dagskvöldið varð harður árekstur á Gnoðarvogi, er strætisvagn, sem þar hafði stanzað við biðstöð, feyktist til hliðar í veg fyrir fólks- bifreið, sem kom úr gagnstæðri átt. Skemmdist fólksbifreiðin mikið og ökumaðurinn lilaut einhver meiðsli, þó ekki alvarlegs eðlis. Lýst eftir ökumanni LAST eftir kl. 13 á mánudag var ekið utan í hvíta Ford Taunus- fólksbifrei ð, R-5654 vi ð verzlu nin a Kistufell í Brautarholti og brot- inn hliðarspegill vinstra megin og báðar hurðir rispaðar. Stór blár sendiferðabíll var valdur að þessu og er ökumaður hans beðinn að hafa samband við rannsóknarlög- regluna vegna þessa óhapps.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.