Morgunblaðið - 19.12.1973, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
15
Gleymda fólkið
ÞÓTT við lifuin í velferðarþjóð-
félagi vantar ýmislegt hérna
uppi á Islandi, sem rná telja til
eðlilegrar þjónustu. Þaðheyrist
oft kvartað undan skorti á
barnaheiniilum, sjúkrarúmum,
geðveilustofnunum og dr.vkkju
mannahælum. Kannski heyrist
oftast talað um skort á barna-
heimilum vegna þess, að það er
svo víðtækt, daglegt vandamál.
Hins vegar minnist ég þess ekki
að hafaoft heyrttalað um skort
á dvalarheimilum f.vrir aldrað
fólk, hvernig sem nú á því
stendur. Kannski er það vegna
þess, að gamla fólkið er ekki
mjög hávært, það hefur engin
hagsmunasamtök og það hefur
sætt sig við — og finnst ósköp
notalegt — að á kosningadög-
um sé allt í einu munað, að það
er til og þá sé keppzt um að
senda finar límúsínur til að aka
því á kjörstað.
í skýrslu, sem heilbrigðis- og
tryggingamálaráðumeytið lét
gera á þessu ári segir meðal
annars, að vistunarrými á
dvalarheimilum fyrir aldraða
sé mun minna en áætluð þörf.
Það skorti ein 230 vistunarrými
svo þörfinni sé fullnægt.
En hvað felst nú i þessurn
umrædda skorti? Það er auð-
vitað ósköp slæmt að vera
veikur, en það er þó nokkur
huggun að vita, að ef maður
verður svo fárveikur, að lifið
liggur við þá er alltaf hægt að
fá inni á sjúkrahúsi.
Það er ekki jafn auðyelt að
vera gamall og vanta samastað,
sérstaklega ef maður er fá-
tækur, nærri blindur og utan-
garðs, þekkir engan. Fyrir
nokkrum dögum fór ég með
Gisla Sigurbjörnssyni forstjóra
Elliheimilisins Grundar í heim-
sókn í greni, þar sem U'eir
gamlir menn búa, því að þeir
hafa ekki í annað hús að venda.
Það er nokkuð fyrir utan mið-
borgin'a.
Annar þeirra hefur tn'úð þar í
tiu ár, hinn miklu skemur, en
hann álti mun erfiðara því að
hann var nær blindur. Her-
bergið, sem sá blindi hafði,
hefur einhvern tima verið litið
eldhús, enda var ekki rúm þar
f.vrir miklu meira en divan-
ræksnið. Málningin var flögnuð
af hrörlegum veggjunum, sem
voru óhugnanlega skitugir.
Blindir menn sjá ekki til að
halda hreinu. Ofninn var pínu-
lítill.og útilokað, að hann gæti
haldið þessu hrófatildri heilu,
enda voru gluggarnir isaðir að
innan. Ofan á divaninum lá
skítugur koddi, nokkur slitin
teppi og pokaræksni, sem ein-
hvern tima hefur geymt korn
eða áburðeða eitthvað slikt.
Þarna hafa þeir haldið sin
kiildu jöl giimlu mennirnir.
þraukað vetur og sumar án þess
að þeirra hufi verið vitjað.
Kannski hefur þeim þó verið
ekið á kjörstað.
Það er alveg satt, að ýmislegt
vantar og margt þarf að gera.
Það er svo margt, sem þarf að
gera við peningana. En samt er
ekki hægt aðfinna neina afsiik-
un fyrir því, að þetta skuli gela
gerzt. Það er alveg útilokað.
Gísli er búinn að senda
blinda manninn að Asi f Ilvera-
gerði. Það var ekki pláss fyrir
hann þar, en honum var ein-
hvern veginn troðið þangað
inn. Ilann ætlar að reyna að
koma hinum fyrir líka, þegar
mögulegt er. En þangað til
verður hann bara að biða þarna
i hreysinu. Og halda sín köldu
jól einn.
— 01 i Tynes.
Ingimar Erlendur Sigurðsson
Ort á öxi
Ný ljóðabók Ingi
mars Erlends
ÚT er komin hjá bókaútgáfunni
Kili Ijóðabókin Ort á öxi eftir
Ingimar Erlend Sigurðsson.
Bókin geymir 30 Ijóð og eru mörg
þeirra myndskreytt af höfundi
sjálfum. Kápumynd gerði hins
vegar Gunnar S. Magnússon.
Þetta er önnur Ijóðabók
Ingimars Erlends. Fyrsta ljóða-
bók hans kom út árið 1959 og bar
titiiinn Sunnanhólmar. Síðan
fylgdi smásagnasafnið Hveiti-
brauðsdagar og þá tvær skáld-
sögur — Borgarlíf og íslandsvísa,
sem kom út 1967. Eru því sex ár
liðin frá síðustu bók Ingimars.
Ort á öxi er alls 85 bls. og er hún
prentuð hjá Leiftri s/f.
hjaltTlitli
GEFINN ÚT í
ÞRIÐJA SKIPTI
ISAFOLDAR PR ENTS MIÐJA
hefur sent frá sér Söguna hans
Hjalta litla eftir Stefán Jónsson,
og er þetta f þriðja skiptið, sem
hún gefur út þessa hugljúfu
barnasögu.
Fyrsta útgáfa bókarinnar var
fyrir réttum aldarfjórðungi.
Annar hluti sögunnar, Mamma
skilur allt, kemur út nú samtímis,
en þriðji og síðasti hluti verksins,
Iljalti kemur heim, er væntan-
legur á næsta ári.
Sagan hans Hjalta litla er þriðja
bindið í heildarútgáfu Isafoldar á
barna- og unglingabókum Stefáns
Jónssonar, en í fyrra komu út
skáldsögurnar Vinir vorsins og
Skóladagar.
Hjaltabækurnar eru óefað vin-
sælustu bækur Stefáns, og af
mörgum taldar eitt bezta skáldrit,
sem samið hefur verið fyrir böm
og ungiinga á íslandi og þótt víðar
væri leitað. Einnig hefur Sagan
hans Iljalta litla áunnið sér vin-
sældir erlendis, og því fer fjarri
að hún eigi aðeins erindi við
æskuna, heldur fullnægir hún
ströngustu kröfum hvers
þroskaðs lesanda til góðs Iista-
verks.
í bókinni eru 25 myndir eftir
listamanninn Ores Vereiskí, og
voru þær upphaflega gerðar
vegna útgáfu Hjaltabókanna á
rússnesku.
Hagkvæmt verðx
Elna Lotus kr. 19.110.-
Elna Zig Zag kr. 23.835.-
Elna SP kr. 26.100.-
Elna Supermatic kr. 29.210.-
Trúlega skilar vélin andvirði
sínu áður en afborgunum
Námskeið innifalið í verði.
• Frábær svissnesk gæði.
• Fimm ára ábyrgð.
• Fulikomin viðgerðarþjónusta.
• Nýjungar, ít.d. hinn frægi
Elna Rya kambur)» passa
jafht í eldri sem yngri sauma-
vélar, þannig að Elna verður
aldrei urelt.
AUSTURSTRÆTI SÍM114376