Morgunblaðið - 19.12.1973, Side 34

Morgunblaðið - 19.12.1973, Side 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973 ÚRVAL JÓLAGJAFA ALLT TIL LJÓSMYNDUNAR VERZLIÐ I STÆRSTU LJÓSMYNDAVÖRUVERZLUN BORGARINNAR _____ AUSTURSTRÆTI Utgáfubækur Menn- ingarsjóðs og Þjóð- vinafélagsins 1973 Gtgáfustarfsemi Menningar- sjóðs og Þjóðvinafélagsins hefur verið með miklum blóma nú í ár. Eins og áður hefur komið fram hór f hlaðinu fór Menningarsjóð- ur inn á nýjar brautir með útgáfu á hljómplötu með pfanóverkum eftir fslenzk tónskáld. I bókaút- gáfu hefur einnig verið bryddað upp á ferskum hugmyndum, og má f þvf samhandi nefna röð þýð- inga úr heimsbókmenntum, aukna pappfrski Ijuútgáfu, auk þess sem útgáfan sér um dreif- ingu á 20 mfnútna langri litkvik- mvnd um landhelgismálið. Þegar eru komnar þrjár bækur í þýðingaröð heimsbókmennt- anna. Þessar bækur eru Faust eftir Goethe og Kviður Hómers, sem eru gefnar út á þessu ári. í þessari röð eru svo væntanleg 3 leikrit eftir Evripídes, sem dr. Jón Gíslason þýðir og Safn suður- amerískra smásagna í þýðingu Guðbergs Bergssonar. Auk þess hefur Menningarsjóður ráðið Kol- bein Sæmundsson til þess að þýða 19. aldar skáldsögu úr frönsku þ.e. La Oiartrense de Parnce eft- ir Stendhal. Vinnur Kolbeinn við þýðingu I húsnæði Menningar- sjóðs. — Islenzkt skáldatal I eftir Hannes Pétursson og Helga Sæmundsson er nýtt rit í Alfræð- um Menningarsjöðs. Er þetta I þriðja bókin í þessum flokki en áður eru komnar Stjörnufræði eftir Þorstein Sæmundsson og Bókmenntir eftir Ilannes Péturs- son. A næsta ári eru væntanlegar í þessum flokki Skáldatal II, Tónmenntir I og II eftir dr. Hallgrím Helgason, Hag- fræði eftir prófessor Ölaf Björnsson, Læknisfræði eft- ir Guðstein Þengilsson og ís- landssaga eftir Einar Laxness. A þessu ári hófst nýr smábóka- flokkur og komu út tvær fyrstu bækurnar Króksi og Skerðir eftir| Cervantes í þýðingu Guðbergs Bergssonar og Ljóð og sagnamál eftir séra Jón Þorleifsson frá „Vestmannaeyja-1 höfn ein bezta höfn landsins” SAMEIGINLEGUR fundur bæjarstjórnar Vestmannaeyja og hafnarstjórnar Vestmannaeyja | haldinn á skrifstofu bæjarstjóra miðvikudaginn 12. desember 1973 ályktar: „Aðloknu eldgosinu á Heimaey | er Vestmannaeyjahöfn að okkar áliti ein bezta og öruggasta höfn landsins og mun hún hér eftir þjóna hlutverki sínu sem lífhöfn sjómanna við suðurströnd lands- ins enn betur en hingað til. Við álftum nauðsynlegt að bæta aðrar hafnir á suðurströndinni en hörmum, að stjórnvöld landsins skuli hafa notað þá atburði, sem hér hafa orðið, til að afla fjár til annarra hafna án þess að hafa um leið hugað að áframhaldandi upp- byggingu Vestmannaeyjahafnar. Það er okkar álit, að ódýrast yrði fyrir íslenzka þjóðarbúið að full- gera Vestmannaeyjahöfn sem þjónustuhöfn fyrir fiskveiðiflota landsmanna hér við suðurströnd landsins og muni hún um ókomin ár skapa sæfarendum meira ör yggi en nokkur önnur höfn suður strandarinnar.'* Alyktun þessi var samþykkt samhljóða af öllum fundarmönn- um. IHðrðunblöbib fSmnRCFHDRR f mflRKRfl VflflR Ölafsvöllum. Hannes Pétursson ritstýrir Smábókaflokknum. Sögur 1940—1964 er smásagna- safn eftir Jón Óskar, sem er aðal- lega þekktur sem ljóðskáld. Eru hér á ferðinni 22 smásögur eftir hann, sem sumar hverjar hafa ekki birzt í bókaformi fyrr. Saga Hllðarenda I Fljótshlíð eftir séra Jón Skagan er saga hins inu eru þær þrjár bækur, sem þegar eru komnar út f þýðingaröð heimsbókmennta. forna og fræga sunnlenzka höfuð- bóls og færir höfundur rök fyrir því, að þessari jörð beri að halda í ábúð fremur mörgum öðrum sak- ir merkrar sögu. Meðal ábúenda á Hlíðarenda hafa verið margir frægir menn í Islandssögunni, enda garðurinn löngum víðkunn- ur. Raftækni og Ijósorðasafn II bindi er tækniorðasafn, sem Al- þjóðlega raftækninefndin hefur samið, en Orðanefnd Rafmagns verkfræðingadeildar þýddi á fs- lenzku. Þá ber að geta tveggja bóka, sem unnar eru á nýstárlegan hátt i stofnuninni sjálfri á þar til gerða vél en þær koma út í fræði- ritaútgáfunni. Þessar bækur eru Eignarhald og ábúð á jörðum í Suður-Þingeyjarsýslu 1703—1930 eftir Björn Teitsson sagnfræðing, en höfundur dregur hér saman mikinn og athyglisverðan fróðleik um þingeyska sögu seinni tíma og bók séra Jakobs Jónssonar Um Nýja Testamentið. Þrjú tímarit koma út þ.e. And- vari á vegum Þjiiðvinafélagsins undir ritstjórn dr. Finnboga Guð- mundssonar, Acta Botanica Islandica, tímarit um íslenzka grasafræði undir ritstjórn Harðar Kristinssonar og Myndamál Passfusálmanna eftir Helga Skúla Kjartansson, sem er nýtt hefti í flokknum Studia Islandiea, þar sem höfundur gerir stílfræðilegar athuganir á Passfusálmum Hall- gríms Péturssonar, en þeim er ætlað að varpa Ijósi á tilurð sálm- anna og samband þeirra við önn- ur rit. Almanak Hins fslenzka Þjóð- vinafélags kemur út að vanda með sama sniði og verið hefur um langt áraskeið. Ritstjóri þess erdr. Þorsteinn Sæmundsson. Bókaútgáfa Menningarsjóðs sér um dreifingu á kvikmyndinni 240 fiskar fyrir kú, sem gerð er af Magnúsi Jónssyni. Er hér um að ræða 20 mínúta langa litkvik- mynd um landhelgismálið og bar- áttu íslendinga fyrirtilveru sinni. Þess má að lokum geta, að Menntamálaráð tslands hefur tekið upp þann ágæta sið að gefa út ársskýrslu yfir starfsemi sína og mættu fleiri opinberar nefndir og ráð taka sér slfkt til fyrirmynd- ar, svo að almenningur geti fylgst með, hvaða starfsemi fer fram í hinum ýmsu nefndum sem skipaðar eru af hinu opinbera. Formaður Menntamálaráðs er Inga Birna Jónsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.