Morgunblaðið - 19.12.1973, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. DESEMBER 1973
43
Aarhus KFUM
tapaði
LIÐ Bjarna Jónssonar, Aar-
hus KFUM, tapaði níunda
leik sínum í dönsku 1. deild-
ar keppninni í handknatt-
leik, en mótherji þeirra þá
var Fredericia KFUM. Urðu
leikslok 18—13 fyrir Freder-
icia, sem einnig hafði for-
ystu i hálfleik 9—7. Bjarni
Jónsson skoraði 3 mörk i
leiknum.
Þrátt fyrir tapið hefur
-Aarhus KFUM enn forystu í
1. deild og er með 14 stig
eftir leikina 9. Helsingör er
komið í annað sætið með
jafnmörg stig, en þar hefur
Jörgen Petersen átt hvern
stórleikinn af öðrum. Skor-
aði hann t.d. 12 mörk er
Helsingör vann Stadion
20—19 í 9. umferðinni.
Deyna kjörinn
KAZIMIERZ Deyna hefur
verið kjörinn knattspyrnu-
maður ársins í Póllandi. Það
er knattspyrnutímarit þar-
lent, sem gengst fyrir kjöri
þessu, en þeir, sem kjósa,
eru iþróttafréttamenn dag-
blaðanna og fulltrúar frá öll-
um liðunum, sem leika í 1.
deild í Póllandi. Deyna er
leikmaður Legia Varsjá en
það lið lék hér á landi f fyrra
gegn Víkingi í Evrópu-
keppni bikarhafa.
— Jólabókasalan
Framhald af bls. 2.
Hjá Bókabúð Matthíasar
Bjarnasonar á tsafirði fengum við
þær upplýsingar, að Ragnheiður
Brynjólfsdóttir seldist vel og
Guðrún A. seldist þar strax upp.
Þá er þar einnig hreifingá Mönn-
unum í brúnni, Lögbókinni og
Þrautgóðum á raunastund, en
einnig þar töldu sölumennirnir,
að langmesta salan væri eftir, því
að þetta hefði verið dræmt hingað
til.
Hjá Bókaverzlun Snæbjarnar í
Reykjavík töldu þeir, að mest
hreyfing væri á bók Emils Jón^-
sonar, Milli Moskva og Washing-
ton, Vestmannaeyjabókunum og
bók Gylfa Þ. Gíslasonar.
Hjá Bókabúð Böðvars Sigurðs-
sonar i Hafnarfirði sögu þeir,
mest hefði selzt af Emil siðustu
daga, enda væri hann heimamað-
ur i Firðinum, en að öðru leyti
væri mikil sala vítt og breitt, Lög-
bókina mætti nefna, Eyjabækurn-
ar, Mannlega náttúru, Þrautgóða
á raunastund, Mennina í brúnni
og Sýður á keipum, síðustu daga
hefði einnig verið mikil sala í
bókinni Ioo Hafnfirðingar.
Hjá bókaverzlun Stefáns
Stefánssonar í Reykjavfk sögðu
þeir mesta sölu vera á bókinni um
Ragnheiði biskupsdóttur, bók
Emils Jónssonar, bókinni Vest-
mannaeýjar, byggð og eldgos og
ýmsum ævisögum.
Og hjá Bókabúð Braga Bryn-
jólfssonar í Reykjavfk fengum
við þær upplýsingar.aðeinnaimest
hreyfing væri á bók Emils Jóns-
sonar eftir að Guðrún A. Símonar
seldist upp, éinnig bók Tómasar
og Sverris, sem heitir Gullnir
strengir og bókinni Af lífi og sál,
þar sem Andrés Kristjánsson ræð-
ir við Ásgeir Bjarnþórsson. Einn-
ig mætti nefna Lögbókina,
Fischer og Spassky og Vefara
keisarans eftirGuðmund Daníels-
son.
Finnar
spara
Helsinki, 18. des., AP.
STJÓRN Finnlands hefur ákveð-
ið að gera ýmsar ráðstafanir til
þess að spara eldsneyti, að því er
upplýst var f dag. Gerir hún ráð
fyrir, að hámarkshraði verði
hundinn við 80 km á klst., hitastig
í skrifstofum og fbúðum við 20
stig, ljósaauglýsingar verða bann-
aðar svo og lýsing búðarglugga
eftir lokunartfma. Með þessu
móti telur stjórnin unnt aðdraga
úr eldsneytisnotkun, sem nemur
10%.
Allgóður árangur
ALLGÓÐUR árangur náðist í
innanfélagsmóti Ármanns og
UMSK i frjálsum íþróttum, sem
fram fór í Baldurshaga fyrir
nokkru, einkum þó f kvennagrein-
um, en þar var einnig um jafna og
skemmtilega keppni að ræða.
Helztu úrslití mótinu urðuþessi:
Hástökk kvenna: metr.
Lára Sveinsd. Á 1,54
Hrafnhildur Valbjörnsd., Á 1,50
Hulda Arnliótsd.. Á 1,45
Guðrún Gunnsteinsd., UMSK 1,45
Salvör Gunnarsd., UMSK 1,30
Langstökk karla: metr.
Helgi Haukss., UMSK 6,05
Hafsteinn Jóhanness., UMSK 6,04
Ágúst Schram, Á 5,70
Langstökk kvenna: metr.
Hafdís Ingimarsd., UMSK 5,04
Ása Halldórsd., Á 5,04
Björk Kristjánsd., UMSK 4,89
Sigrún Sveinsd., Á 4,81
Guðrún Gunnsteinsd., UMSK 4,67
50 metra hlaup kvenna: sek.
Lára Sveinsd., Á 6,8
Erna Guðmundsd., Á 6,8
Ásta B. Gunnlaugsd., IR 6,9
Ása Halidórsd., Á 7,0
Sigrún Sveinsd., Á 7,0
Hafdís Ingimarsd., UMSK 7,0
50 metra hlaup karla: sek.
Karl West Fredriksen, UMSK 6,1
Guðmundur Jóhanness.,
UMSK 6,3
Ásbjörn Sveinss., UMSK 6,5
Helgi Hauksson, UMSK 6,6
Hafsteinn Jóhanness., UMSK 6,6
Nastase og
Court bezt
TENNISLEIKARAR ársins
1973 voru kosin þau Ilie
Nastase frá Rúmeniu og
Margaret Court frá Ástralíu.
Að kjöri þessu stóðu íþrótta-
fréttamenn, sem eru sér-
fræðingar í tennisíþróttinni.
Voru þeir frá flestum lönd-
um heims. Röð tennisleikar-
anna i kosningunni varð
þessi: Karlar: Ilie Nastase,
John Newcombe, Stan Smith
Jim Connors, Tom Okker,
Ród Laver, Arthur Ashe og
Manuel Orantes. Konur:
Margaret Court, Chris Ev-
ert, Billie Jean King, Ev-
onne Goolagong, Virginia
Wade, Kerry Melville, Rose-
mary Casals, Helga Mast-
hoff, Nancy Gunther og Olga
Morozova.
Búlgarar
í úrslit HM
ÞÓ SVO að Norðmenn ynnu
Búlgara með 17 mörkum
gegn 13 i Ósló á sunnudag-
inn dugði það Norðmönnum
skammt, staða þeirra var
orðin vonlaus og það verða
Búlgarar, sem komast áfram
úr undanriðlinum i úrslit
Heimsmeistarakeppninnar i
handknattleik. Til að komast
áfram þurftu Norðmenn að
vinna leikinn með 10 marka
mun, en búlgarska liðið var
hreinlega of gott til að Norð-
menn gætu gert sér vonir
um slíkan stórsigur.
Lokastaðan f riðlinum varð
þessi:
Búlagaria 4 30 1 81:51 6
Noregur 4 3 0 1 69:50 6
Finnland 4 004 43:92 0
LÆKJARGÖTU 2 SIMI 21800
Hrelnt alveg ðlrúlegl vðruúrvalll