Morgunblaðið - 20.01.1974, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.01.1974, Blaðsíða 6
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANUAR 1974 6 DACBÖK I dag er sunnudagurinn 20. janúar, 20. dagur ársins 1974. Eftir lifa 345 dagar. BræSramessa Árdegisháflæði er kl. 04.45, síðdegisháflæði kl. 17.07. Og á þriðja degi var haldið brúðkaup í Kana í Galíleu. Og móðir Jesú var þar, en Jesús var og boðið til hrúðkaups og lærisveinum hans. Og er vín þraut, segir móðir Jesú við hann: Þeir hafa ekki vín. Og Jesús segir við hana: Kona, hvað viltu mér? Minn tími er enn ekki kominn. ÁRIMAO HEIL.LA \ 75 ára er f dag Bergur Bjarna- son frá Þingeyri við Dýrafjörð. Hann er nú staddur að heimili sonar sins írabakka 10, Reykjavfk 70 ára er f dag Jón Bjarnason, Norðurbraut 27 B, Hafnarfirði. bann 8. desember gaf séra Olaf- ur Skúlason saman í hjónaband i Bústaðakirkiu LÍlj’J SígUróardótt- ir og Ásgeir S. Ingvarsson. Heimili þeirra verður aðÆsufelli 2, Reykjavík. (Ljósmyndast. Sunnars Ingimars- s.) Þann 9. desember gaf séra Ólaf- ur Skúlason saman í hjónaband í Bústaðakirkju Kristrúnu Stefáns- dóttur og Garðar Árnason. Heimilí þeirra verður að Klappar- stíg 8, Keflavík. (Ljósmyndast. Gunnars Ingi- marss.) Læknastofur eru lokaðar á laugardögum og helgidögum, en læknir er til viðtals i göngudeild Landspítalans í sima 21230. Almennar upplýsingar um lækna- og lyfjabúðaþjónustu í Reykjavík eru gefnar í sfmsvara : 18888. | Mænusóttarbólusetning fyrir fullorðna fer fram í Heilsuvernd- arstöðinni á mánudögum kl. 17.00—18.00. Vaktmaður hjá Kópavogsbæ — bilanasími 41575 (símsvari). Móðir hans segir við þjónana: Hvað sem hann segir yður, skuluð þér gjöra. En þar voru sett sex vatnsker úr steini, samkvæmt hreisunarsið- um G.vðinga, og tók hvert þeirra tvo eða þrjá mæla. Jesús segir við þá: Fyllið nú kerin vatni; og þeir fylltu þau á barma. Þá segir hann við þá: Ausið nú upp og færir kæmeistaranum, og þeir færðu honum. En er kæmeistarinn bergði á vatiii því, er að víni var orðið, og vissi ekki hvaðan það var — en þjónarnir, sem vatnið höfðu ausið, vissu það — kallar kæmeistarinn á brúðgumann og segir við hann: Hver maður setur fyrst góða vínið frain, en þegar menn eru orðnir ölvaðir, hið lakara;þú hefur geymt góða vínið þangað til nú. Þetta sitt fyrsta tákn gjörði Jesús f Kana í Galíleu, og opinberaði dýrð sína; og lærisveinar hans trúðu á hann. (Jóhannes, 2.1-11). Þessi hópur, sem er önniun kafinn við leik og lærdðm, var á dagheimilinu Vesturborg, en húsið skemmdist svo í eldi fyrir stuttu, að það er nú ónothæft. Þess vegna voru góð ráð dýr, en fundust samt — kjallari Neskirkju stóð þeim opinn. Þegar gosið fræga hófst fyrir tæpu ári, var þetta sama húsnæði notað fyrir gæzlu á börnum frá Vestmannaeyjum. Börnunum líður áreiðanlega vel undir helgidómnum — en ætli nokkur börn séu annars eins falleg og þau íslenzku? (Ljósm Sv.Þorm.) IKROSSGÁTA Lárétt: 1. Kroppa 6. forfaðjr jurt B ssrhjóðar 10: vesalingur 12. klukka 13. gort 14. óðagot 15. þjóta Lóðrétt: 1. tæp 2. skot 3. þverslá 4. ert 5. kvoðu 8. drulla 9. beita 11. veiðarfæra 14. titill Lausn á síðustu krossgátu Láréttv 2. óku 5. er 7. fá 8. sarp 10. AA 11. skapinu 13. UU 14. nýtt 15. Nr. 16. au 17. ana Lóðrétt: 1. sessuna 3. Keppnin . grautur 6. rakur 7. fanta 9. ál 12. TY FRÉTTIR 1 Kvennadeild Slysavarnafélags- ins í Reykjavík heldur fund að Hötel Borg mánudaginn 21. janú- ar. Spiluð verður félagsvist, og hefst fundurinn kl. 20.30. Leiðrétting Þau mistök urðu þegar sagt var frá sextugs afmæli Þórarins Sig- urbjörnssonar, fiskmatsmanns, í föstudagsblaði, að hann var sagð- ur sjötugur. Er Þórarinn beðinn velvirðingar á mistökum þessum. | SÁ IMÆSTBESTI [ — Ekki getið þér víst séð af nokkrum krónum, svo ég geti komizt í dýragarðinn, sagði lubba- legt hippaeintak við virðulegan eldri herra. — I hvaða búr? spurði maður- inn. | IMVIR BORGARAR Á Fæðingarheimili Reykjavík- ur fæddist: Auði Ántonsdóttur og Ándrési Sigurðssyni, Einarsnesi 28, Reykjavík, dóttir þann 11. janúar kl. 03.45. Hún vó 14 merkur og var 49 sm að lengd. LSiiíeyu Éinarsdóttur og Ilann- esi Ólafssyni, Vesturbergi 122, R^ykjavik, sonur þann 10. janúar kl. 20.55. Hann vó 14H mörk og var 51 sm að lengd. Iðunni Reykdal og Þorgeiri Örlygssyni, Móbergi, Garða- hreppi, sonur þann 11. janúar kl. 19.25. Hann vó rúmar 11 merkur og var 48 sm að lengd. Arndísi Björnsdóttur og Pétri Einarssyni, Hjallabrekku 25, Kópavogi, dóttir þann 12. janúar kl 17.00. Hún vó 12!4 mörk og var 50 sm að lengd. Margréti Stefánsdöttur og Eiríki Beek, Kópabogsbraut 92, Kópavogi, sonur þann 12. janúar kl. 10.37. Hann vó tæpar 15 merk- ur og var 50 sm að lengd. Margréti Halldórsdóttur og Erni Ingólfssyni, Gröf, Dalasýslu, sonur þann 13. janúar kl. 22.40. Hann vó 14 merkur og var 52 sm að lengd. Minning Eins og greint hefur verið frá hér í hlaðinu lézt Frederick Ouinn, annar sendiráðsritari í ameríska sendiráðinu hér, ný- lega i sjúkrahúsi í Washing- ton. Skv. ósk aðstandenda hans, er þeim, sem vildu minnast hans, bent á að láta Landspít- alann njóta þess. Varið land Undirskriftasöfnun gegn uppsögn varnar- samningsins og brott- vísun varnarliðsins. Skrifstofan í Miðbæ v íð- — öásteiíi Suraut e r opin alla daga kl. 14—19. Sími 36031, pósthólf 97. Skrifstofan að Strand- götu 11, Hafnarl'irði, er opin alla virka daga kl. 10—17 laugardag og Komið, ritið nöfn ykkar, og skið lista til undirskriftasöfnunar. PEINIIMAVIIMin | England Irena Ison Romany Cottage 148 — 154 St. James Lane Willenhall Coventry, CV3 3FU England. Irene er spá kona, sem er að safna efm í bók um spádóma. Hana langar til að komast í sam- band við fólk, sem kann eitthvað fyrir sér í þessum efnum eða get- ur miðlað upplýsingum um hvers konar spádóma og spádómsút- gáfu. ísland Þrítugur fangi á vinnuhæli að Litla-Hrauni óskar eftir að kom- ast I bréfasamband við stúlkur á öllum aidri. Hann hefur mörg áhugamál og mun svara öllum bréfum. Utanáskriftin er: U-2, Vinnuhælinu, Eyrarbakka. ást er . . . . . að heilsa henni með kossi, áður en þú spyrð hvað sé í matinn tM Reg U S Pat Off - All rights reterved ,C 1973 by loi Angelet Times 1 BRIDC3E Eftirfarandi spil er frá leiknum milli Póllands og Austurrikis í Evrópumótinu 1973. Norður S. 6-4-3 H. Á-10-2 T. G-10-6-5 L. Á-G-9 Vestur S. K-D-G-10 II. G-7 T. 9-8-7-2 L. 8-5-3 Suður S. 9-8-5 H. K-8-6 Austur S. Á-7-2 II. D-9-5-4-3 T. — L. D-10-7-4-2 T. Á-k-D-4-3 L. K-6 Við annað borðið var lokasögn- in 3 spaðar hjá pólsku spilurun- um, sem sátu A-V, og doblaði aust- ur þá sögn. I byrjun var látið út tromp, og þegar varnarspilararnir komust inn létu þeir aftur tromp og þetta varð til þess, að sagnhafi fékk aðeins 5 slagi. Við hitt borðið sátu pólsku spil- ararnir N-S og þar gengu þannig:^ sagnir N A S V P P 1 t P 2 t D R d 2 s P P 3 t P 3 s D P P 4 t P P P A-V tóku fyrstu 3 slagina á spaða, síðan lét austur út hjarta 3, sagnhafi drap með ási. lét úr laufa gosa, austur drap með drottningu og drepið var með kóngi. Nú tók sagnhafi 5 slagi á tígul og austur var í vandræðum, hann gat ekki valdað bæði hjarta og lauf og þannig vannst spilið. 1 SOFIMIIM ~ Kjarvalsstaðir Sýning á listaverkum í eigu Reykjavíkurborgar er opin þriðjudaga til föstudaga kl. 16—22, og laugardaga og sunnudaga kl. 14—22. Sýningin stendur til 27. janúar. 'WM MARG H® MAR6I mrn FALBAR iWB FALBAR IfflH ilffl fflSH MARG fflfflffi ffllffli FALOAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.