Morgunblaðið - 20.01.1974, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 20. JANUAR 1974
15
Ef mennirnir syngju í stað
þess að tala, væri ekki
heimurinn allur annar?
NÝLEGA heí'ur hafið göngu sína í útvarpinu þátturinn Kristallar
í umsjá Magnúsar Þrándar Þórðarsonar og Sigurjóns Sighvats-
sonar. Þættinum er ætlað að vera ívaf tónlistar og hugleiðinga um
allt milli himins og jarðar. Sérstök athygli skal vakin á þættinum
í dag, en þar er viðtal við enska gitarleikarann John McLaughlin,
höfuðpaur hljómsveitarinnar Mahavishnu Orchertra, sem stadd-
ur var hér á landi ekki alls fyrir löngu. Að sögn Sigurjóns
Sighvatssonar hafa þeir félagar valið þessum sérstaka þætti
\ einkunnarorðin: „Ef mennirnir syngju í stað þess að tala, væri þá
i ekki heimurinn allur annar?“ en þetta eru lokaorð McLaughlins í
i þættinum
EMERSON,
iLAKE OG
PALMER
til Islands
í sumar?
EINS og fram koin í frétt
Morgunhlaðsins í gær, standa
vonir til, að hin heiinsfræga
hljómsveit EMERSON. LAKE OG
PALMER koini fram á listahátíð-
inni í júní á þessu ári.
Aðdragandi málsins, að sögn
Jóns Steinars Gunnlaugssonar
framkvæmdastjóra listahátíðar-
innar, er sá, að í haust fór Magnús
Þrándur Þórðarson utan til að
kanna möguleika á komu hljóm-
sveitarinnar hingað. Þá var ljóst,
að félagarnir í hljómsveitinni
höfðu áhuga á að koma. Siðan
hefur Jasper Fai-rott umboðsmað-
ur Viadimir Ashkenazys haft
milligöngu fyrir hönd listahátíðar
urn að afla upplýsinga um kostnað
og tímasetningu, en gert er ráð
fyrir, að hljómleikahaldið verði
Um miðjan júnímánuð. Sagði Jón
Steinai', að um mánaðamótin jan-
febr. ætti að liggja ljóst fyrir,
hvort af komu hljómsveitarinnar
yrði.
Seint á árinu 1969 fóru þeir
Keith Emerson, sem þá var
organisti og píanóleikari hljóm-
sveitarinnar Nice, og Greg Lake
söngvari og bassaleikari King
Grimson, aðræða þann möguleika
að mynda saman hljómsveit.
Trommuleikara fundu þeir, þar
sem Carl Palmer var. Palmer
hafði þá, frá 16 ára aldri, leikið í
ýmsum þekktum hljómsveitum
svo sem Chris Farlowe's
Thunderbirds, Arthur Brown og
síðast Atomic Rooster.
Trióið ELP kom fyrst fram á
popp-hátíð á eyjunni Isle of
Wight árið 1970, og var þá öllum
ljóst, að hér var komin fram á
sjónarsviðið einhver frábærasta
hijómsveit i sögu popptónlistar-
innar. Það álit hefur ekkert
breytzt síðan. Hljómsveitin virðist
gædd öllum þeim kostum, sem
þarf að hafa til að komast á æðri
svið i popp-tónlist, og fer þar allt
saman — frábærir tónlistarhæfi-
leikar, háþróuð tækni, æsandi
sviðsframkoma ásamt þröttmikl-
um og vönduðum flutningi, hvort
heldúr sem er á hljómleikum eða
hljómplötum. Koma þeirra yrði
þvi einhver hinn stærsti viðburð-
ur i íslenzku popp-tónlistarlífi
hangaðtil.
Haukar gera
hreint fyrir
sínum dyrum:
Það var hress hópur og „hauk-
fránn“, sem ruddist inn á rit-
stjórnarskrifstofur Morgunblaðs-
ins í síðustu viku. Hér voru á
ferðinni liðsmenn hljómsveitar-
innar HAUKA ásamt Engilbert
Jensen fyrrverandi Hauki og
Rúnari Georgssyni, sem nú er í
þann veginn að yfirgefa hljöm-
sveitina. Tilgangurinn var að leið-
rétta misskilning, sem virðist
hafa sprottið upp vegna ummæla
Rúnars í Alþýðubiaðinu 12. þ.in.
Töldu Haukar, að heldur hefði
andað köldu til hljómsveitarinn-
ar í umra-ddri grein og lögðu
fram athugasemdáJ liöum.
1. Brottför Rúnars stafar fyrst
og fremst af ólíkum venjum og
vinnubrögðum í sambandi vð tón-
listarflutning, en ekki af því að
annar aðilinn telji hinn ekki full-
nægja ákveðnum gæðakröfum.
Haukar eru vanir að æfa og flytja
tónlist sína eftir eyranu, en Rún-
ar er hins vegar vanur skrifuðum
útsetningum. Af þessuní sökum
kom fljótlega upp misræmi, sem
leiddi til þess, að þeir náðu ekki
saman sem skyldi, þ.e. Rúnar féll
ekki almennilega inn í hin frjáls-
legu vinnubrögð Hauka
2. Haukar telja, að í umræddri
grein hafi verið vegið að hljóm-
sveitinni og gæði hennar dregin í
efa, þótt taka hefði mátt ummæli
Rúnars á tvennan hátt. Kom þetta
því flatt upp á þá, því sízt höfðu
M
r 'Jm
Ekki verður annað séð að vel fari á með sumum. T.f.v. Rabbi, Gulli,
Sven, Jensen, Helgi og Rúnar.
Vinnan fer fram á sviðinu
þeir búizt við rógi af hendi Rún-
ars, enda hefur hann síðan sagt,
að slíkt hafi verið mjög fjarri sér.
Lagði Rúnar mikla áherzlu á það,
að ummæli sin í Alþýðublaðinu
væru byggð á misskilningi og
rangri túlkun.
3. Í sambandi við klausuna
„leggja meira í músikina" vilja
Haukar leggja áherzlu á það, að
megnið af þeirri vinnu, sem þeir
leggja fram í sambandi við tón-
listarflutning sinn, sé á sviðinu
sjálfu, meðan á dansleik stendur,
en ekki í æfingarherbergjum úti i
bæ, enda hafi slik vinnutilhögun
reynzt hijómveitinni mjög vel
fram að þessu.
Haukar munu halda áfram fjór-
ir, eins og ekkert hafi i skorizt,
þar til á fjörur þeirra rekur
mann, sem getur og vill starfa á
þeim grundvelli, sem hljómsveit-
ín hefur starfað á undanfarin 4
ár. Stendur þvi 5. staðan opin
þeim manni, — toppmanni að
sjálfsögðu —, sem gerir sér grein
fyrir markmiði hljómsveitarinnar
og mikilvægi þess, að halda góðu
samandi við fólkið.
Að lokum gátu Haukar þess, að
ásetningur þeirra væri að gefa út
plötu, — góða plötu, en í slíkar
framkvæmdir yrði ekki ráðist
fyrr en í fyllingu tímans, þégar
þróun mála gæfi ástæðu til þ.ess.
„SLAGSÍÐAN”
MORGUNBLAÐIÐ
PÓSTHÓLF 200
REYKJAVÍK
DAGLEGA rignir bréfunum
yfir SLAGSÍÐUNA — allt frá
þremur og upp í tiu. Nánast
hvert einasta hefur að geyma
spurningar, sem beðið er um
svör við, og umsjónarmenn
SLAGSÍÐUNNAR eru komnir
með blaðahrúgur upp fyrir
haus i leit að svörunum. Þess
vegna er aí'ar hressandi að fá
bréf, sem hafa að geyma
skoðanir á málunum eða upp-
lýsingar — og við byrjum á að
birta tvö slik, auk þess, sem
því þriðja er gert nokkru
■liærra undir höfði og birt sér,
annars staðar á síðunni.
Putty á Akranesi skrifar:
Ég undirrituð varð fyrir því
óhappi (!) að lesa Slagsiðuna
og rak augun í spurningu um
það, hvort Marc Bolan væri
kvæntur og hvort hann ætti
barn, og verð ég að segja, að ég
varð meira en litið undrandi,
þegar þessu var svarað
neitandi. Ég verð að segja, að
sá, sem svaraði þessum
spurningum, ætti að leiða það
hjá sér að svara því, sem hann
eða hún ekki veit, þvi Marc
Bolan er kvæntur, var það
síðast þegar ég vissi og að því
er ég bezt veit er hann ekki
skilinn, enda er hjónaband
hans mjög gott. Og konan hans
heitir June. Þar liafið þið það
og ég vona. að þið leiðréttið
það strax og þið táið þetta
bréf.
Svar: SLAGSIÐAN þakkar
bréfið og upplýsingarnar. Að
sjálfsögðu vill hún hafa það,
sem sannara reynist, og því
eru vel þegin öil bréf. sem
hafa að geyma leiðréttingar
eða endurbætur á þeim svör-
um, sem birt eru hér. Að sjálf-
sögðu er ekki hægt að búast
við því, að SLAGSÍÐAN hafi
svör á reíðum höndum við öll-
um spurningum og þá sizt
spurningum um einkalif popp-
stjarnanna, s'vo sem hjóna-
band, barneignir og eitthvað
enn nánara. Heimilisföng er
einnig erfitt fyrir SLAGSÍÐ-
UNA að grafa upp, því að
poppstjörnurnar reyna eftir
megni að halda þeim leyndum.
Hins vegar er næsta algengt,
að erlend blöð birti heimilis-
föng aðdáendaklúbba stjarn-
anna eða hljómplötufyrir-
tækjanna, sem gefa út plöturn-
ar þeirra. og í mörgum tilvik-
um getur SLAGSÍÐAN birt
þau. En ef svo fer, að
umsjónarmenn SLAGSIÐ-
UNNAR finna ekki umbeðin
svör i blaðafjalli sinu, neyðast
þeir til að leita aðstoðar
lesenda. Margir lesendur
SLAGSÍÐUNNAR lesa að
staðaldri erlend blöð og halda
saman upplýsingum um
uppáhaldslistamenn sina.
Þessir lesendur ættu því að
geta aðstoðað okkur við að
fin-na svör við spurningum
hinna, sem ekki vita. Nóg um
það, næsta bréf, gjörið þið svo
vel (klapp, klapp. klapp,
klapp. .. ):
Áslaug Karlsdóttir,
Dunhaga 18. Re.vkjavík,
spyr:
Hvar búa félagarnir i
Osibisa og hvað hafa þeir gefið
út margar plötur?
Svar: Þeir munu halda til í
Bretlandi. Síðast þegar Slag-
síðan vissi höfðu Osibisa gefið
út eftirfarandi stórar plötur:
Osibisa (1971), Woyaya
(1972), Heads (1972) og Super
Fly T.N.T. (1973). Sem sagt
fjórar.
■***9&WÍ&1Í0 Ý-A-’