Morgunblaðið - 20.01.1974, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 20.01.1974, Blaðsíða 40
LESIfl |R0mvmMaÍ*i& DflGLEGR JW«r0unt»tat)tJ> RUGIVSinGllR íg.^22480 LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1974 VARNARMALIN: Kommúnistar setja sam- starfsmönnum sínum úrslitakosti KOMMÚNISTAR hafa setl sam- starfsf lokkum sínum i ríkis- stjórninni úrslitakosti varðandi brottför varnarliðsins. A fundi ríkisstjórnarinnar sl. þriðjudag lögðu ráðherrar Alþýðubanda- lagsins fram álvktun þingflokks og framkvæmdastjórnar flokks síns, þar sem þess er krafizt. að ríkisstjórnin leggi fvrir Alþingi tillögu um uppsögn varnar- samningsins ella verði að lita svo á, að forsendum stjórnarsam- starfsins séu brostnar. Ólafur Jóhannesson neitaði að ræða þessa tillögu á síðasta rfkis- stjórnarfundi engera má ráðfyr ir, að hún verði rædd á ráðherra- fundi næstkomandi þriðjudag. Þessi afstaða Alþýðubandalags- ins bendir til þess, að tilraunir sex manna nefndar Framsóknar- flokksins til þess að fá samstöðú í stjórnarflokkunum um mikla fækkun í varnarliðinu hafi farið út um þúfur. I desembermánuði mun þing- flokkur Framsóknarf lokksins hafa skipað nefnd sex manna til þess að móta stefnu flokksins í varnarmálum. I nefndinni eru: Ólafur Jóhannesson, Finar Agústsson, Eysteinn Jónsson, Steingrimur Hermansson, Þórarinn Þórarinsson og Jön Skaftason. Nefnd þessi hefur siðustu vikur unnið að þvi að ná samstöðu i stjórnarflokkunum um gagntil- lögur, sem Einar Ágústsson utan- rikisráðherra gæti lagt fram á næsta viðræðufundi með full- trúum Bandaríkjastjórnar. Á fundi þeim, sem hingað til hafa verið haldnir, hefur utan- ríkisráðherra Islands í raun og veru ekkert getað sagt um afstöðu stjórnar sinnar til ýmiss konar hugmynda Bandaríkjamanna um breytingu á fyrirkomulagi varnanna. I nóvembermánuði var gert ráð fyrir, að næsti viðræðufundur með Bandaríkjastjórn yrði um miðjan desember, en að ósk Einars Ágústssonar var þeim fundi frestað til 7. janúar. Þá óskaði ráðherrann enn eftir frest- un til 14. janúar og aftur óskaði hann eftir fresti til mánaða- mótanna. Þær hugmyndir, sem sex manna nefnd Framsóknarflokks- ins hefur reifað við samstarfs- flokkana, eru i stuttu máli þær. að af 3.300 manna varnarliði, sem nú er í landinu, hverfi 2000 menn á brott á næstu þremur árum en eftir verði um 1300 manna lið. Umskeiðríkti mikilbjartsýni með al framsóknarmanna um það, að samstaða tækist um þessi áform. Því var haldið fram, að Lúðvík Jósepsson, Kagnar Arnalds og Jón as Árnason væru búnir að sam- þykkja þessar tillögur, aðeins víeri eftir að tryggja stuðning Magnúsar Kjartanssonar. Hefði það að sjálfsögðu þýtt grundvallarbreytingu á afstöðu Alþýðubandalagsins til varnar- liðsins þar sem kommúnistar myndu þá í fyrsta skipti sam- þvkkja dvöl bandarísks varnar- Iiðs þótt fámennt væri. Hugsanlegt er, að einnver fótur hafi verið fyrir þessari bjartsýni framsóknarmanna og að þar sé komin skýringin á ítrekuðum kröfum Magnúsar Kjartanssonar um þingrof og kosningar og yfir- lýsingum hans í einkaviðræðum og á lokuðum fundum þess efnis að hann kynní að segja af sér ráðherradómi, yrði ekki fallizt á uppsögn varnarsamningsins. Úi'slítakostir þeir, sem kommúnistar hafa sett i ríkis- stjórninni benda til þess, að þetta mat á stöðu Alþýðubandalagsins hafi ekki reynzt rétt. Að auki herma fregnir úr Framsóknar- flokknum, að þar sé heldur engin samstaða um þessar hugmyndir um stórfellda fækkun varnarliðs- ins og Samtök frjálslyndra og vinstri manna hafa enga afstöðu tekið til þess. Menn greinir á um það i stjórnarflokkunum hvort Alþýðu- bandalagsmönnum sé alvara að þessu sinni að fara úr ríkisstjórn- inni verði varnarliðið ekki látið hverfa af landi brott. Liklegt má telja, að um það riki ágreiningúr í Alþýðubandalaginu en ljóst er, að til úrslíta mun draga innan ríkis- stjórnarinnar í varnarmálunum á næstunni og að kommúnistar munu halda þar stíft fram kröfu sinní um uppsögn, ella hverfi þeir úr stjtírninni, hvort sem þeir láta svo verða af þeirri hótun eða ekki. Hann sprangar um í þæf- ingnum og virðir fyrir sér borg og bæ. Hann kann að búa sig í niuggunni enda lif- að tímana tvenna og veit hvað það gildir aö búa sig út. Ljósmynd Mbl. Brynjólfur Helgason. Frystihús fyrir laus- frystingu í Þorlákshöfn HLUTAFÉLAG hefur verið stofn- að um lausfrystingu á fiski og öðru í Þorlákshöfn og verið er að ganga frá vélum og húsnæði hins nýja frystihúss. Samkvæmt upp- lýsingum Sigmunds Jóharlnsson- ar frá Vestmannaeyjum er reikn- að með, að frysting hefjist innan skamms. Tækni sú, sem notuð er við lausfrystíngu, byggist á því, að hráefnið fer í gegn um sérstök írystigöng í stað þess að vera pressað í pönnum. Þessi frystiað- ferð er mjög að í-yðja sér til rúms í heiminum og er notuð við margs konar hráefni, svo sem grænmeti, V E RÐLAG SRAÐ sj á varút vegsin s sat á fundi f allan gærdag um loðnumjölsverðið og lauk fundin- um ekki fyrr en um kl. 2 aðfarar- nótt laugardagsins. Samkomulag náðist ekki innan ráðsins, og því vísað til yfirnefndar. Þar var boð- aður fundur kl. 4 í gær Hótel Vestmannaeyjar: Nærri fullbókað í sumar— Lundinn verður merki hótelsins fuglakjöt og ýmis önnur matvæli, sem geymd eru fryst. aikosl frystitækja nýja hússins eru '/i—1 tonn á klukkustund. UNNIÐ er af miklum krafti við lagfæringar og uppbvggingu höt- els f Vestmannaeyjum og hefur verið ákveðið að það heiti Hótel Vestmannaeyjar. í þvf verða 30 herbergi og gistiaðstaða f.vrir 70 manns. Núverandi eigendur hót- elsins er Birgir Viðar Halldórs son, læröur kokkur og þjónn, og Konráð Halldórsson þjónn. Þeir eru báðir þrautreyndir hótel- menn. Húsið hefur verið tekið all kyrfilega,f gegn, en áður var þar Varið land Fundur á Hótel Sögu kl. 17,30 á morgun Á MORGUN, mánudag, verður fundur í Súlnasal Hótel Sögy á vegum þeirra, sem standa að und- irskriftasöfnuninni til að mót- mæla uppsögn varnarsamnings- ins og brottvísun varnarliðsins. Fundurinn hefst kl. 17.30 (hálf sex). Verða þar ílutt stutt ávörp, lagðir fram undirskriftalistar og slíkir listar afhentir, ef fundar- menn vilja taka að sér að fá fólk til að standa að ávarpinu um Var- ið land. Hótel HB. Másegja, að húsið hafi verið góðlega fokhelt, þegar þeir bræður byrjuðu að bvggja upp aftur. Þann 23. janúar verður hótelið opnað að hluta, 15 herbergi og matsala, auk kaffistofu með mjög nýtízkulegum útbúnaði og fjöl- breytilegum matseðli. Merki hót- elsins verður lundi og verður mynd af lundanum brennd í diska hótelsins og annan búnað, þar sem slíkt heyrir til. 15 manna starfslið verður í hót- elinu, þaulæft hótelfólk sem hef- ur unnið 1—15 ár við hótelþjón- ustu. Flest er það úr Reykjavik, en mun flytja til Eyja ásamt eig- endum Hótels Vestmannaeyja. Hótelið verður mjög vandlega búið að tækjum og búnaðí, allt nýtt f herbergjum og sölum og ráðstefnu- og veizlusalur, ásamt diskóteki verður í þvf. 1 neðri sal, þar sem dans verður, er rúm fyrir 100 manns, en í efri sal, matsal, er rúm fyrir 80 gesti í sæti. Þá hefur hótelið sótt um leyfi til vínveitinga. Í mötuneyti verður fljótlega hægt að afgreiða um 150—200 manns ef þörf krefur, en það leys- ir brýna þörf. Hótelið verður rek- ið sem fyrsta flokks hótel, en ekkí Aldursflokkarnir fylgjast að til Eyja GAMLA FOLKINU HEFUR ÞÓ EKKI VERIÐ SINNT I LJÖS heíur komið við könnun, sem gerð var í Vestmannaeyjum um miðjan janúar, að flestir Vest- mannaeyingar á aldrinum 20—24 ára eru komnir heim aftur eða alls 235, en það er 50%. Fæstir eru komnir á aldrinum 75—80 ára eða 14 talsins, sem er 21% af þeim fjölda sein var á sama tíma í fyrra, en þess er að gæta að engin aðstaða er fyrir gamla fólkið enn- þá í Eyjum. Annars er hlutfallið milli aldursflokka mjög jafnt, en milli 40 og 50% fólksins er komið aftur heim og fer dagfjölgandi. Þó líður að því, að húsnæðiskost- urinn verði algjörlega fullnýttur og meira en það, en hægt gengur í framkvæmdum við uppbyggingu og fyrirgreiðslu opinberra aðila í Eyjum. 1 rauninni hefur lítið ver- ið gert þar af hinu opinbera í framkvæmdum fyrir almenna borgara Eyjanna, síðan hreins- uninni lauk í sumar. Um miðjan mánuðinn voru um 2200 manns komnir til Eyja aftur, en voru á sama tíma í fyrra 5300( I janúarlok er útlit fyrir, að um 3000 manns verði í Eyjum með sjómönnum á Eyjaflotanum. á neinn hátt í verbúðarformi. Frá áramótum hafa um 15 iðn- aðarmenn unnið feikimikið starf við innréttingu hússins. Þeir bræður kváðust þakklátir öllum, sem þeir hefðu þurft að leita til, því hvarvetna hefðu þeir fengið góða fyrirgreiðslu, en mest kváð- ust þeir ánægðir með að fá að taka þátt í uppbyggingu Vest- mannaeyja, en báðir eru þeir ætt- aðir frá Eyjum. Nú þegar eru komnar miklar bókanir á hótelið í sumar m.a. allt til okóberloka. I október eru t.d. liðlega 200 manns búnir að láta bóka sig og allt miðsumarið júní, júlí ágúst er allt að því fúllbókað. I vor verður Hótel Vestmanna- eyjar málað að utan. Hótel Vest- mannaeyjar er þegar komið í sam- band við ýmsar ferðaskrifstofur, en þeir bræður sögðust telja, að aðstaða fyrir golf í Eyjum, fugla- skoðun og sjóstangaveiði myndu auka mjög ferðamannastraum til Eyja með tilkomu nýrrar skipa- ferju fyrir Vestmannaeyjar. Þýzk útgáfa af Gúlag til lands- ins eftir mánuð MORGUNBLAÐIÐ leitaði upplýs- inga hjá Bókaverzlun Snæbjarnar um hvort pantanir hefðu verið gerðar á síðustu skáldsögu Solzh- enitsyn — Eyjahafinu Gúlag. Fékk blaðið þau svör, að fyrir utan frönsku útgáfuna væri bókin aðeins komin út á þýzku og yrðu gerðar ráðstafanir til að fá hingað fáein eintök af þeirri útgáfu. Bækurnar yrðu þó naumast komnar hingað fyrr en eftir um mánaðartíma. Hins vegar er skáldsagan enn ekki komin út í enskri eða danskri þýðingu, og því allt á huldu enn hvernær þær útgáfur muni koma til landsins.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.