Morgunblaðið - 20.01.1974, Page 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDiAGUR 20. JANUAR 1974
Hlynur Sverrisson —
Fæddur2. marz 1969
I)áinn 5. jan. 1974.
Mig langar til að kveðja með
örfáum orðum, lítinn vin, sem svo
skynilega er horfinn frá okkur,
lítinn dreng, sem var svo ríkur af
hamingju og gleði og gaf okkur j)á
gleði með sér.
Nú, þegar við eigum ekki leng-
ur von á honum í heimsókn, koma
minningarnar upp í hugann og
þær eru allar svo bjartar og ljúfar
eins og hann var sjálfur.
Það er mikil huggun fyrir for-
eldra hans systurnar og aðra ást-
vini, sem sjá á bak þessu elsulega
barni, að líf hans var samfelldur
hamingjudagur, hjá þeim naut
hann svo mikillar ástar og um-
hyggju.
Hlynur litli var svo einlægt og
heilbrigt baim og alltaf var samí
fögnuðurinn, þegar þau hittust
börnin tvö, sem voru svo sam-
rýmd og undu sér svo einstaklega
vel saman.
Það er gott að vera lítill og
skilja ekki til fulls hvað hefur
gerzt.
Ég bið góðan Guð að milda ykk-
ar miklu sorg, Alla mín, Sverrir,
Hrönn og Hlín. Eg veit, að minn-
ingin um litla sólargeíslánn, ykk-
ar gerir hana léttbærari.
Edda Laufey Pálsdóttir
Við höfum nýlega kvatt gamla
árið, en á því ári átti margur um
sárt að binda. Og enn byrjar nýtt
ár með hækkandi sól og það sá til
sólar þann dag, er snögglega syrti
að — er ég frétti andlát litla bróð-
ursonar mins, Hlyns, sem var
skyndilega hrifinn frá ástvinum
sinum, er hann var tæplega fimm
ára.
Það er mikill harmur kveðinn
að systrum hans og foreldrum, en
hann var yngstur þriggja barna
þeirra. Hann var mikill sólargeisli
á því ástríka heimili, sem hann
naut þó alitof stutt, en þar vai
hann vafinn umhyggju og ástúð.
Honum leið alitaf svo vel og undi
sér ætíð hvar sem hann var. Hann
var skýr og einlægur drengur og
þau eiga yndislegar minningar
um lítinn, góðan dreng.
Hann dvaldi á heimili okkar,
hjóna tvisvar, viku í senn, en þá
kynntist ég einlægni hans og ljúf-
mennsku og ég þakka honum þær
góðu samverustundir.
Megi Guð varðveita hann.
Eg færi foreldrum hans og
t
Eiginkona mín og móðir okkar
ÓLAFÍA RAGNA MAGNÚSDÓTTIR
Laugateig 1 6
andaðisl I Landakotsspítala föstudaginn 18 janúar
Ari Agnarsson og synir.
t
Eiginmaður minn,
BJARNI GUÐMUNDSSON,
Framnesvegi 13
andaðist á Landakotsspítala þann 1 8 þ.m.
Fyrir mína hönd og barna hans,
María Jónsdóttir
t
PÁLL INGVAR GUÐMUNDSSON,
Stórholti 21,
sem andaðist á Vifilsstaðasjúkrahúsi 1 2 janúar verður jarðsettur frá
Fossvogskirkju mánudaginn 2 1 janúar kl. 15
Hannes Pétursson.
t
SIGURÐUR G. NORÐDAHL
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 22. .þ.m. kl. 1.30
e.h.
Sigríður Arnlaugsdóttir,
systkini og dætur.
Útför móður okkar
JÓNÍNU G. ÓLAFSDÓTTUR
frá Flatey,
sem andaðist 13 janúar s I fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn
22. janúar kl 1 5 00 .
Ingólfur Viktorsson,
Ottó Svavar Viktorsson.
t
Konan mín
BJÖRG MARÍA ELÍSABET JÓNSDÓTTIR,
Eiði,
verður jarðsungin frá Neskirkju þnðjudaginn 22 þ m kl 1,30e h
F.h barna og annarra aðstandenda,
Meyvant Sigurðsson
Minning
syrtrum hjartanlegar sámúðar-
kveðjur, einnig ömmum hans og
afa og öllum örðum ástvin-
um hans.
Guð veiti ykkur öllum styrk og
1 blessun.
Katrín Sigurjónsdóttir
Guð komi sjálfur nú með náð
Nú sjái Guð mitt efni og ráð
Nú er mér, Jesú, þörf á þér
Þér hef ég treyst f heimi hér.
Þessar ljóðllnur Hallgríms Pét-
urssonar vildi ég tileinka ykkur
kæru hjón i tilefni þeirrar stóru
sorgar við missi ykkar elskulega
sonar. Langar mig til að votta
ykkur mína innilegustu samúð.
Ég veit, að það þarf mikinn sálar-
þroska til að standa slíka raun, en
séra Matthías segir: „Aldrei er
svo bjart yfir öðlings manni
(barni) að eigi geti syrt eins fljót-
lega og nú, en aldrei er svo svart
yfir sorgarranni að eigi geti birt
fyrir eilífa trú.“
Þessar ljóðlínur þjóðskáldsins
okkar skulum við öll í huga hafa.
Til hins unga vinar mins vildi ég
segja þetta, við verðum að telja
það guðsgjöf að fá að kynnast
Páll Ingvar Guð-
mundsson — Minning
Fæddur: 16.8 1898
Dáinn: 12.1. 1974
Páll Ingvar Guðmundsson
fæddist í Borgarfirði eystri þann
16. ágúst 1898. Foreldrar hans
voru þau Ragnhildur Hjörleifs-
dóttir og Guðmundur Pálsson,
sem þá bjuggu í Litlu-Vík í
Desjarmýrarprestakalli.
Um æskuár Páls er mér næsta
fátt kunnugt. Faðir hans gerðist
bóndi í Breiðuvík i Alftavík, en
þar er að sögn lítið undirlendi og
erf'itt um búskaparhætti. Faðir
Páls andaðist á Seyðisfjarðarspít-
ala þegar Páll var 5—6 ára, og var
jarðsettur þar. Páll fór síðan f
fóstur í Litlu-Vik til afa síns og
ömmu I föðurætt. Hann gekk í
barnaskóla og einn vetur I ung-
lingaskóla. Páll hefur eflaust ver-
ið námfús.og m.a. tileinkaði hann
sér á nokkrum árum einkar fall-
ega rithönd, sem bar af öðrum
jafnvel á seinni æviárum.
öll venjuleg sveitastörf, m.a. torf-
ristu og sléttingu túna. Fljótlega
fór hann þó að stunda sjóinn og
næstu árin var hann við sjósókn
mest á opnum bátum, víðs vegar
af landinu, svo sem á Skálum á
Langanesi, í Vestmannaeyjum, á
Seyðisfirði og Reýðarfirði.
Árið 1934 hætti Páll á sjónum
og fluttist til Reykjavikur. Þá
voru hér erfiðir tímar og oft litla
vinnu á fá. Páll vann alla al-
menna verkamannavinnu, sem til
féll, og var um tima hjá Kol og
salt og um nokkurra ára skeið við
bræðslu hjá Lýsi h.f. — A sjötta
áratugnum hóf hann svo störf hjá
Eimskipafélagi Islands og gerðist
fljötlega skrifari í vörúgeymslu-
húsum félagsins, og starfði sem
slikur nær óslitið til dauðadags.
Kunningsskapur og vinátta okk-
ar Páls varð fyrir þá tilviljun, að
við bjuggum í sama húsi hálfan
þriðja áratug. Á þessum árum
skapaðist mjög náin vinátta milli
A uppvaxtarárunum vann Páll Páls og fjölskyldu minnar.
t
Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við fráfall og útför
eiginmanns míns,
EINARS JENS HAFBERG
frá Flateyri.
Kristbjörg Hafberg,
börn, tengdabörn, og barnabörn.
t
Hjartans þakkir til allra, sem vottuðu okkur samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför móður okkar,
INGIBJARGAR ÞORSTEINSDÓTTUR
frá Strönd.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Þökkum innijega auðsýnda samúð við andlát og útför elskulegs sonar
okkar, .
DAVIÐS PÉTURSSONAR.
Guð blessi ykkur öll.
Jóhanna Daviðsdóttir,
Pétur H. Ólafsson.
Fellsmúla 22.
t
Þökkum innilega sýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns,
sonar og föður okkar,
INDRIÐA KRISTINSSONAR,
Kelduhvammi 7,
Sérstakar þakkir til sambýlisfólks. Guð blessi ykkur 611.
Kristín Guðjónsdóttir,
Sigrún Jóhannesdóttir, Sigríður Indriðadóttir,
Guðjón Indriðason, Særún Magnúsdóttir.
elskulegu barni eins og góðum
manni, og ekki síður. Kynni okkar
voru ekki mikil og því síður löng.
Ég kom á heimili foreldra hans og
þar fann ég strax, að þar var ekki
einungis að mæta elskulegu við-
móti foreldra hans, heldur líka
lítils drengs, sem tók hug minn
allan í gegnum barnslegt samtak.
Nú fyrir jólin kom hann til
heimilis míns ásamt foreldrum að
heimsækja ömmu sína. Þegar
hann kom inn í stofuna niína þá
átti ég við hann samtal, sem mig
undraði gagnvart skilningi hjá
barni á fimmta aldursári. Blessuð
veri minning þessa elskulega,
litla, góða drengs með hjartans
þökk.
Þér, ástvinir, eyðið
nú hörmum,
og afþerrið tárin á hvörmum,
Við endalok útlégðar nauða
Hið algjörlega líf
vinnst i dauða.
Með hjartans samúðarkveðju.
Jón Guðmundsson. Reykjavík
Páll var duglegur starfsmaður
og lagði mikla rækt við þau störf,
sem hann vann hverju sinni og
samvizkusamur með afbrigðum.
Hann hafði mikinn áhuga á ýmiss
konar fróðleík og stórum hluta
frítíma síns vai’ði hann til ritunar
á fróðleiksmolum, gátum, vísum
o.þ.h., og fylla þessi skrif þúsund-
ir blaðsíðna.
Páll var og góður spilamaður og
spilaði lengi vel Bridge með félög-
um sinum vikulega. Hann hafði
ennfremur ánægju af að ferðast
og fór nokkrum sinnum erlendis.
A seinni árum ferðuðumst við
Páll dálítið innanlands og komum
m.a. á æskustöðvar Páls í Borgar-
firði eystri en þangað hafði hann
þá ekki komið i rúm 30 ár.
Páll hafði um árabil langvinnan
lungnasjúkdóm, sem háði honuin
æ meir ef.tir því sem á leið. Hann
vistaðist nokkrum sinnum á Víf-
ilsstaðaspitala og hlaut þar ein-
staka umhyggju og skilning hjá
starfsliðinu og vil ég þakka það
sérstaklega.
Ættingjum Páls og vinum vott-
um við samúð okkar.
Hannes Pétursson.
- Aðeins ein jörð
Framhald af bls. 21
magnið til viðbótarræktunar í
Suður-Rússlandi. En veður-
fræðingar um allan heim mót-
mæltu því, sögðu að það mundi
breyta loftslaginu við norður-
heimsskautið, gæti haft áhrif á
þykkt íshellunnar og um leið
veðurfarslegt mýnztur alls
hnattarins. Síðustu fréttir
herma, að búið sé að leggja
áætlunina til hliðar. Og síðan
1972 nota Rússar fóðurvörur
frá Bandaríkjúnum til að auka
kjötframleiðslu sína.
Það er ekki ætlun mín að fara
að rannsaka takmörk vaxtar á
ýmsum sviðum, þó að ég nefni
þessi dæmi, heldur aðeins að
leggja áherzlu á, að jafnvel nú-
verandi mannfjöldí og efna-
hagslegar aðgerðir eru farin að
reka sig á sumar af takmörkun-
um jarðarinnar. Nokkrar af
þeim afleiðingum, sem spáð var
í skýrslunni í framtíðinni, eru
þegar farnar að sýna sig.
______________________— E.Pá.
SKILTI Á GRAFREITI
OG KROSSA
Flosprent s.f.
Nýlendugötu 1 4,
sími 1 6480.