Morgunblaðið - 23.05.1974, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAl 1974
Labradortogarar Lúðvíks í höfn
I GÆR komu til hafnar í Reykjavík tveir austur-þýzkir skuttogarar, Erich Stenfurth og Werner
Knobe, báðir frá Rostock. Báðir þessir togarar tilheyra ryksuguflota þeim, sem hefur að
undanförnu verið á veiðum við djúpkantinn útaf Vestfjörðum, 80—85 mílur frá landi. Fékk
flotinn að hafa áhafnaskipti hér í Reykjavfk fyrir tilstilli Lúðvíks Jósepssonar sjávarútvegsráð-
herra, eins og mönnum er í fersku minni.
SlS er umboðsaðili togaranna, og hjá því fyrirtæki fékk Mbl. þær upplýsingar í gær, að annað
skipið hefði sett tveggja tonna mótor í land og hitt skipið síðan tekið um borð þennan sama mótor.
Það óhapp vildi til, að kraninn, sem hífði mótorinn valt á hliðina, og fór mótorinn því í sjóinn eins
og myndin ber með sér. (Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.)
„Dýrkeypt mistök við er-
lendu samningagerðina”
— segir Þráinn Guðmundsson varaforseti Skáksambandsins
TALSVERÐ biaðaskrif hafa orðið
vegna reikninga Skáksambands
tslands og þá einkum hvað snert-
ir heimsmeistaraeinvígið í skák.
Morgunblaðið ræddi nýlega við
Þráin Guðmundsson núverandi
varaforseta Skáksambandsins og
fvrrverandi ritara þess og sagði
hann m.a., að fjárhagsleg afkoma
einvígisins í heild hefði verið eft-
ir vonum, en hins vegar væri því
ekki að neita, að vissir þættir,
sem miklar vonir voru bundnar
við I upphafi, hefðu algerlega
brugðizt. Er þar einkum átt við þá
samninga, sem gerðir voru við
erlenda aðila. Um þá sagði Guð-
mundur G. Þórarinsson fyrrum
forseti sambandsins í Mbl. 18.
maí: „Flestir voru þessir samn-
ingar nokkuð djarft fvrirtæki, en
það torveldaði mjög alla samn-
inga, hversu framkvæmd einvíg-
isins var í lausu lofti og margir
þeirrar skoðunar. að ekkert vrði
úr því.“
I tilefni þessara ummæla og
ummæla Gunnars Gunnarssonar
forseta Skákssambandsons í Mbl.
16. maí þess efnis, að ýmsar
skuggahliðar á heimsmeistaraein-
víginu í skák væru nú komnar í
ljós, ræddi Mbl. við Þráin, en
hann átti eins og áður sagði sæti í
fráfarandi stjórn Skáksambands-
ins og er nú varaforseti þess.
Þráinn sagði:
..Framkvæmd og undirbúning-
ur einvígisins reyndist á þeim
stutta tíma sem til stefnu var,
mjög víðtækt starf og komst því
veruleg verkaskipting á hjá
stjórnarmönnum Skáksambands-
ins og öðrum starfsmönnum ein-
vígisins. Hlutverk forseta S. L,
Guðmundar G. Þórarinssonar,
reyndist fyrst og fremst að koma
fram út á við og annast samskipti
við erlenda aðila. Hið fyrrnefnda
leysti hann vel af hendi, enda
Guðmundur sannfærandi og snill-
ingur í áróðri. En því miður urðu
dýrkeypt mistök víð alla erlenda
samningagerð. Það vandamál að
tryggja, að einvígið færi fram hér
á landi með því að Bobby Fischer
sætti síg við aðstæður hér, hefur
aldrei verið skilgreint og skýrt
fvllilega nema frá einni hlið og
eftir á að hyggja tel ég, að við
höfum átt okkar þátt í þeim mis-
skilningi og þeirri misklíð, sem
upp kom. Það kom í Ijós, að Fisch-
er undi sínum hag hér vel, eftir
að hann eignaðist einlægan vin,
sem hann gat treyst. Hefur mörg-
um eflaust þótt súrt í broti, að
myndarlegt tilboð frá brezkum
auðkýfingi skyldi verða til þess að
höggva á hnútinn og tryggja ís-
lendingum einvígið.“
„Hvað um samningagerð?"
„Um samningagerð um sölu
einkaréttar af ýmsu tagi er það að
segja, að eftir fyrstu ferð Guð-
mundar G. Þórarinssonar til
London og New York var sam-
kvæmt skýrslu, sem hann gaf okk-
ur stjórnarmönnum, um stórkost-
lega möguleika að ræða til tekju-
öflunar fyrir Skáksamband ts-
lands. Að þessu sinni er ekki tóm
til að fara nánar út í það, enda
voru allir þessir möguleikar ræki-
lega tíundaðir í fjölmiðlum á sín-
um tíma. Fyrir seinni ferð Guð-
mundar G. Þórarinssonar var
honum gefin heimild til þess að
ganga frá samningum á grund-
velli fyrri upplýsinga. Að vísu
kom upp nokkur ágreiningur um
það, hvort S.í. ætti að taka þátt í
áhættu vegna samninganna eða
óska eftir endanlegri fjárhæð fyr-
ir hvern samning. Að lokum varð
fyrra sjónarmiðið ofan á.“
„Hvaða samningar voru gerðir í
þesari ferð?“
„Þeir voru í fyrsta lagi samn-
ingur um einkarétt til kvik-
myndatöku til 99 ára við Fox,
samningur um Ijósmyndatöku í
Laugardalshöll, einníg við Fox, og
samningur við World Chess Net-
work um mjög Wðtækan einka-
rétt, m.a. til fréttaflutnings á
leikjum skákanna beint. Fjórði
samningurinn, sem Guðmundur
G. Þórarinsson gekk frá í þessari
ferð, en sem stjórn S. I. tókst að
stöðva staðfestingu á síðustu
stundu, var um rándýra prentun á
mótsskránni erlendis. Sá samn-
ingur hefði í raun þýtt, að S. í.
hefði endanlega tapað möguleik-
unum á auglýsingatekjum hér
heima, án þess að nokkuð kæmi í
staðinn. I þessari ferð gufuðu
endanlega upp hugmyndir um
hótelskip, en mikil vinna hafði þá
þegar verið lögð í undirbúning
vegna þeirra. Þá rann og út í
sandinn svokallaður klukkusamn-
ingur."
„Klukkusamningur — um hvað
var hann?“
„Forsaga hans var sú, að Skák-
sambandinu stóð til boða, að sögn
Guðmundar, að selja einkarétt til
að utvega skákklukku til notkun-
ar í einvígirtu. Viðkomandi fyrir-
tæki vildi greiða um eina milljón
króna fyrir vikið og vildu sumir
stjórnarmanna taka því boði. For-
seti S. í. vildi hins vegar meira fé
fyrir slíka auglýsingu og var hans
ráði fylgt. Það var þvi niðurlútur
maður, sem daginn fyrir einvígið
labbaði út í bókabúð hér i borg til
að kaupa skákklukku til að nota í
einvígihu. Hún kostaði S. í. 3000
krónur. Síðasti samningur S. i.
við erlenda fjármálamenn var um
opinbera bókarútgáfu S. Í. um
einvigið í Bandaríkjunum. Enn á
ný sigraði sannfæringarkraftur
Guðmundar G. Þórarinssonar um
stórkostlega tekjumöguleika
ýmsa efablandna stjórnarmenn i
atkvæðagreiðslu um þann samn-
ing. Tillögu um, að Íslendingur
yfirfæri handritið erlendis var
ekki sinnt og því fór sem fór, að
hin opinbera útgáfa S. Í. er okkur
vægast sagt ekki til sóma. — i
öilum þeim samningum, sem ég
hef hér minnzt á, voru ákvæði um
framlagningu uppgjörs og hlut-
fallslegan ágóðahlut Skáksam-
bands Islands. Slík uppgjör, sem
mark er á takandi, hafa aldrei
verið lögð fram á stjórnarfundi
hjá S. 1. og er því ágóðahlutur
Skáksambandsins enginn. Eina
fyrirframgreiðslan, sem barst,
þ.e. 5.000,— dollarar frá World
Chess Network er nú bitbein i
flóknum málaferlum, en í ljós
hefur komið, að lögfræðingur og
trúnaðarmaður S. Í. erlendis er
jafnframt lögfræðingur World
Chess Network, svo ótrúlegt sem
það nú er. Tap Skáksambands Ís-
lands af hinum stórkostlegu
samningum aldarinnar nemur nú
hátt á þriðju milljón króna. Verst
eru þó glötuð tækifæri, glötuð
réttindi og margs konar álits-
hnekkir. T.d. koma út bækur með
yfirskrift Fischer — Spassky —
Framhald á bls. 43
Sjónvarpsfólk ítrekar
pólitíska óhlutdrægni
í YFIRLÝSINGU frá fréttamönn-
um og fréttaþulum sjónvarpsins
segir, að þeir f.vlgi undan-
tekningalaust þeirri reglu að
koma ekki fram f.vrir hönd póli-
tískra samtaka og telji eðlilegast,
að þessi regla sé einnig í heiðri
höfð hjá sambærilegum starfs-
mönnum útvarpsins. I því sam-
handi má benda á, að tveir þulir
útvarpsins taka þátt í kosninga-
hátfð Alþýðubandalagsins, þau
Jón Múli Arnason og Kristín
Ólafsdóttir.
Yfirlýsing sjónvarpsmanna fer
hér á eftir:
„Að marggefnu tilefni viljum
við undirritaðir fréttamenn og
fréttaþulir Ríkisútvarpsins
sjónvarps taka fram eftirfarandi:
Við viljum ítreka, að frétta-
menn og íréttaþulir sjónvarps
fylgja undantekningalaust þeirri
reglu að koma ekki fram fyrir
hönd pólitískra samtaka, hvorki í
kosningabaráttu né þar fyrir
utan. Þá hafa fréttamenn og
fréttaþulir sjónvarps aldrei lesið
texta með sjónvarpsauglýsingum
né komið fram í slíkum auglýsing-
um. Teljum við ofangreint ekki
samrýmast störfum fréttamanna
og fréttaþula við ríkisfjölmiðil,
sem lögum samkvæmt skal gæta
fylistu óhlutdrægni gagnvart
mönnum og málefnum, og teidum
eðlilegast að þessi regla væri
einnig í heiðri höfð hjá sambæri-
legum starfsmönnum útvarpsins.
Eiður Guðnason
Ölafur Ragnarsson
Svala Thorlaeíus
Songja Diego
Sigurjón Fjeldsted
Ómar Þ. Ragnarsson.
Guðjón Einarsson.
Jön H. Magnússon.
Bláa bókin
BLAU bókinni hefur verið dreift
í Reykjavík síðustu dagana. Þeir,
sem ekki hafa fengið hana, geta
nálgazt hana á einhverjum
hverfaskrifstofa Sjálfstæðis-
flokksins í borginni.
Seðlabankabyggingin:
Atylla í pólitísk-
um loddaraleik
í ÞJÓÐVILJANUM í gær eru
dregnar pólitískar ályktanir af
því, að Morgunblaðið hafi ekki
sent mann á blaðamannafund
áhugamanna gegn Seðlabanka-
byggingunni.
Hið rétta í þessu máli er, að
talsmaður áhugamannanna, Þor-
steinn Ö. Stephensen leiklistar-
stjóri, hringdi til blaðsins um kl.
13.30 og skýrði viðkomandi blaða-
manni frá því, að „fréttamanna-
fundur verði í útvarpinu kl. 3."
Einn blaðamanna Morgunblaðs-
ins fór á tilskildum tíma í út-
varpshúsið til að sitja frétta-
mannafundinn, en hann fyrir-
fannst ekki í húsinu þrátt fyrir
allmikla leit. Enginn var í skrif-
stofu Þorsteins Ö„ enginn í fund-
arsal útvarpsins, í upplýsinga-
stúku hússins kannaðist enginn
við blaðamannafundinn þrátt fyr-
ir hringingar um húsið og loks
kannaðist aðstoðarfréttastjóri út-
varpsins ekki við þennan fund, er
blaðamaður Morgunblaðsins innti
hann eftir því.
Síðar um daginn reyndi blaða-
maðurinn að ná sambandi við
Þorstein Ö. símleiðis, en það
tókst ekki.
Þetta bendir ekki til þess, að
forráðamenn mótmæla gegn
Seðlabankabyggingunni hafi haft
mikinn áhuga á því, að Morgun-
blaðið skýrði frá niðurstöðum
undirskriftasöfnunar þeirra.
Enda má Ijóslega merkja af frá-
sögn Þjóðviljans af málinu, að
þeir hafi haft miklu meiri áhuga á
að notfæra sér málið til pólitískra
árása í sambandi við borgar-
stjórnarkosningarnar en að mót-
ntæla nýbyggingu Seðlabankans.
Hún er aðeins átylla í pólitískúm
loddaraleik.
Fréttastjóri Morgunblaðsins.
Jafnt gegn Skotum
ISLENZKA unglingalandsliðið í
knattspyrnu gerði jafntefli við
Skota í Svíþjóð í gærkveldi, 1-1.
Skotarnir gerðu fyrsta mark
leiksins, en Arni Sveinsson, ÍA,
jafnaði á 30. mínútu. Leikurinn
var fyrsti leikur tslands í úrslit-
um heimsmeistarakeppni ungl-
ingalandsliða.
Drætti ekki frestað
NU ERU síðustu forvöð að gera
skil í kosningahappdrætti Sjálf-
stæðisflokksins, því að dregið
verður á morgun, föstudag, og
drætti verður ekki frestað. Sími
skrifstofunnar í Reykjavík er
17100 og geta menn látið senda
eftir greiðslum og einnig er hægt
að fá miða heimsenda. Þeir, sem
hafa fengið miða úti á landi, eru
beðnir að gera skil til umboðs-
manna þar strax. Glæsileg fólks-
bifreið og fjölmargar utanlands-
ferðir eru i verðlaun. Takið þátt í
baráttunni um leið og miði er
möguleiki. Myndin var tekin í
skrifstofu happdrættisins í gær.
Bifreiðir og sjálf-
boðaliðar á kjördegi
D-LISTANN vantar fjölda bifreiða til aksturs frá hinum ýmsu
bifreiðastöðvum D-listans á kjördag. Frambjóðendur heita á
stuðningsmenn listans að bregðast vel við og leggja listanum lið m.a.
með því að skrá sig til aksturs á kjördag26. maí næstkomandi.
Einnig vantar fólk til margvislegra sjálfboðastarfa á kjördag.
Sérstaklega vantar fólk til starfa sem fulltrúar listans í kjördeildum
auks margvíslegra annarra starfa.
Vinsamlegast hringlð i sima 84794.
Skráning bifreiða og sjálfboðaliða fer einnig fram á skrifstofum
hverfafélaganna.