Morgunblaðið - 23.05.1974, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 23.05.1974, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAI 1974 Fa jl ItíI.A I.Hlf.4 V tiiAit; LOFTLEIÐIR BILALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 LOFTLEIÐIR tel. 14444 • 25555 mm BlLALEIGA CAR RENTAlI HVER ER SINNAR 'Mmx OAM-mmTAL* Hverfisgötu 18 27060 ÆFU SMIÐUR & SAMVINNUBANKINN BÍLALEIGAN V^IEYSIR CAR RENTAL 24460 í HVERJUM BÍL PIONCEŒR ÚTVARPOG STEREO KASSETTUTÆKI FERDABILAR HF. Bilaleiga — Simi 81260 Fimm manna Citroen G S. station Fimm manna Citroen G.S 8 — 22 manna Mercedes Benz hópferðabílar (m. bílstjór- um). HOPFERÐABILAR . Til leigu i lengri og skemmri ferðir 8 — 50 far- þega bílar Kjartan Ingimarsson Simi 86155 og 32716 Afgreiðsla B.S.Í Simi 22300 Innilega þakka ég öll- um þeim er sýndu mér vinsemd og hlý- hug með heimsókn- um, gjöfum og skeit- um á 85 ára afmæli mínu 6. maí s.l. Guð blessi ykkur öll. Sigurborg Sturlaugsdóttir Tindum, Stykkishólmi Ráðherra viðurkennir Einn er sá ráðherra I ríkis- stjórn Ólafs Jóhannessonar, sem enn hefur ekki getað tamið sér, þrátt fyrir mikla reynslu, að tala endalaust þvert um hug sér, þegar hann fjallar um af- glöp rfkisstjórnarinnar. Hér er átt við Halldór E. Sigurðsson, fjármálaráðherra. Að vísu hefur þessi ráðherra, eins og aðrir I rfkisstjórninni, þrá- sinnis lent I þeirri aðstöðu að þurfa að verja aðgerðir, sem hvert mannsbarn hefur séð, að voru gjörsamlega út I hött. Hann hefur þannig sýnt ágæta hæfileika til að tala þvert um hug sér, sbr. t.d. langar ræður hans til réttlætingar á glap- ræðislegum hækkunum á út- gjöldum rfkisins. Þar hefur sami maður talað, sem á tfmum viðreisnarst jórnarinnar ásak- aði hana fyrir að spenna út- gjöidin upp. Vita þó allir, að stökkbreyting varð f útgjalda- vextinum, eftir að núverandi rfkisstjórn tók við völdum. En nú er Halldóri greinilega nóg boðið, þvf jafnvel hann skortir orð til að réttlæta hin ábyrgðarlausu kosningabrögð rfkisstjórnarinnar, þegar hún stórhækkaði niðurgreiðslur á landbúnaðarafurðum, án þess að króna væri til í rfkiskass- anum til að mæta þessum niðurgreiðslum. 1 sjónvarpi s.l. þriðjudagskvöld var ráðherr- ann kvaddur til að svara spurn- ingu fréttamanns um þessar að- gerðir. Þar viðurkenndi hann, að niðurgreiðslurnar væru langt úr hófi, og væru ekki ætl- aðar til annars en að standa nokkuð fram yfir kosningar. Það er sjaldgæft að heyra stjórnmálamann viðurkenna berum orðum, að aðgerð, sem hann stendur að, sé ekki annað en lágkúrulegt kosningabragð, gert f þeim eina tilgangi að blekkja kjósendur. En þetta gerði Halldór E. Sigurðsson fjármálaráðherra f sjónvarps- þættinum. Sameiningin mikla Ekki lfður nú sá dagur, að ekki séu stofnuð ný stjórnmála- samtök á vinstri væng stjórn- málanna. Nú sfðast fengu landsmenn að heyra um stofn- un samtaka jafnaðarmanna, sem m.a. nokkrir sænskmennt- aðir, sjálfskipaðir menningar- vitar standa að. Nú er svo kom- ið, að fólk er gjörsamlega hætt að gera sér grein fyrir öllum þeim flokksbrotum og brota- brotum, sem undanfarna daga hafa verið að kljúfa sig út úr vinstri flokkunum, sem fyrir voru. Eitt grátbroslegt f þessum annars svo átakanlegu hörm- ungum þeirra vinstri manna er, að allir nýju flokkarnir og sam- tökin eru stofnuð f einum og sama tilganginum. Þeir ætla allir að sameina alla vinstri menn f einum flokki. Nokkur dæmi skulu nefnd: SFV vildi sameina. Sá flokkur er nú margklofinn. Alþýðuflokk- urinn vill sameina. Hann klofn- aði nú með stofnun hinna nýju samtaka. Möðruvellingar vilja sameina. Þeir eru nú klofnir endanlega út úr Framsókn. Bjarni Guðnason vildi sameina. Hann klauf sig út úr samein- ingarflokki Hannibals. Svona mætti lengi halda áfram, eink- um ef tekin er með f reikningin hin mismunandi staða eftir byggðalögum. Staðreyndir málsins eru hins vegar þær, að þessir menn hafa engan áhuga á sameiningu. Og þeir gefa ekk- ert fyrir þann sameiginlega málefnagrundvöll, sem á að vera grundvöllur sameiningar þeirra. Það eina, sem þeir hugsa um, er að koma sinni eigin persónu áfram f stjórn- málum. Þeir vilja sameina fs- lenzka vinstri menn utan um sfna eigin merkilegu persónu, hver f sfnu lagi. Svona mönnum verður aldrei treyst fyrir nein- um málefnum. Borgarstjórí svarar... Til kjördags svarar borgarstjórinn í Reykjavík fyrirspurn- um borgarbúa um mál- efni Reykjavíkur. Lesendur Mbl. eru hvattir til að hringja í síma 10100 kl. 10-11 fyrir hádegi. Lóðaúthlutun í Selási Guðmundur M. Sigurðsson Háaleitisbr. 115, spyr: Hvenær er áætlað að hefja lóðaúthlutun í Selásnum í framhaldi af Ár- bæjarhverfinu, — einbýlishús eða fyrir raðhús. I öðru lagi, hvenær komi til lóðaúthlutunar í iandi Korpúlfsstaða? Borgarstjóri svarar: Um eiginlega lóðaúthlutun verður ekki að ræða í Selás- hverfi, þar sem hér er um eignariand að ræða. Samningar milli landeigenda og borgarinn- ar eru þannig, að reiknað er með því að unnið verði að gatna- og holræsagerð í hverf- inu á árunum 1975—1977, en þá á gatnagerð að ljúka. Varðandi lóðaúthlutun i landi Korpúlfsstaða liggur ekki ljóst fyrir nú, hvenær að því kemur, en aðalskipulag nýrra byggðasvæða er nú í undirbún- ingi og þarf að samþykkjast á þessu ári. Gangstétt við Arnarbakka Áslaug E. Jónsdóttir, Blöndu- bakka 6 spyr: Hvenær má vænta þess, að gangstétt verði lögð meðfram Arnarbakka? Borgarstjóri svarar: Gangstéttagerð borgarinnar í Breiðholti I á skv. áætlun að ljúka á þessu sumri. Barnaverndarmál Carl Eirfksson, Rauðalæk 3, Reykjavík, spyr: „Munu borgarfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins vilja styðja það, að upp verði teknir aðrir starfs- hættir en verið hafa á fram- kvæmd barnaverndarmála þar sem á undanförnum árum hef- ur ekki verið unnið að þeim málum með velferð barnanna fyrst og fremst í huga, eins og borgarstjóri veit nú?“ Borgarstjóri svarar: Borgarfulltrúar Sjálfstæðis- flokksins munu stuðla að því, að framkvæmd barnaverndar- mála, að svo miklu leyti sem það heyrir undir borgaryfir- völd, verði fyrst og fremst með velferð barnanna í huga. Ég tel reyndar, að það hafi verið ieiðarijós barnaverndaryfir- valda til þessa, þótt mat manna kunni að vera misjafnt, þegar um svo viðkvæm mál er að ræða. Framtíð lóðar Edda Kjartansdóttir, Álfta- mýri 56, spvr: „Hvert verður framtíðar- skipulag lóðarinnar milli Miklubrautar og Álftamýrar 54—58?" Borgarstjóri svarar: Þetta er frátekin spilda vegna gatnamóta Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar. Autt svæði Asdís Bjarnadóttir, Rauða- læk 71, spyr: „Hver á að sjá um frágang auða svæðisins vestan við Dal- braut, milli Kleppsvegar og Rauðalækjar? Hvenær má bú- ast við að gengið verði frá svæð- inu? Hvað hefur tafið fram- kvæmdir þarna fram að þessu?" Borgarstjóri svarar: Svæði þetta er borgarland og verður tekið til ræktunar á þessu sumri. Slík „sár“ hafa orðið eftir víða um borgina, en áætlun um „umhverfi og úti- vist“, sem borgarstjórn hefur samþykkt, gerir ráð fyrir, að nú verði farið í þessi svæði og frá þeim gengið. Skuld ríkis við borg Árni Stefánsson, Goðheimum 21, spyr: Hve mikið skuldar ríkis- sjóður Reykjavíkurborg nú af lögákveðnum framlögum til ýmissa málaflokka og hvernig sundurliðast sú upphæð? Borgarstjóri svarar: Samkvæmt uppgjöri borgar- bókhalds, sem gert var i april- mánuði, nemur skuld ríkissjóðs við borgarsjóð pr. 31.12. 1973 samtais kr. 173.595.669.- og sundurliðast þannig: Stofnkostnaður skóla kr. 32.434.722,- Stofnkostnaður Borgarspitala kr. 59.019.083,- Söluskattur af skýrsluvélavinnu kr. 3.637.820.- Vegna heilsugæzlu I skólum o.fl., þ.m.t. skólatann- lækningar kr. 6.202.333,- Skólaheimili við Bústaðaveg kr. 92.607,- Iþróttasjóður kr. 72.209.104,- Rétt er að taka fram, að borgarsjóður hefur lagt út stofnkostnað skóla, en skuld ríkissjóðs erógjaldfallin. Þá hefur verið gerður sér- stakur greiðslusamningur um skuld vegna íþróttasjóðs. Þar sem uppgjöri borgarsjóðs er ekki að fullu lokið verður að hafa fyrirvara um einstakar fjárhæðir. Hljðmplðtur EFTIR HAUK INGIBERGSSON Pónik — Bíllinn minn og ég/Óskalagió þitt — Mono — Á.Á.-records. Þetta er frekar hlutlaus plata. Þó er hún afskaplega snyrtilega spiluð og langt er síðan jafn þokkalegur blástur hefur heyrst á plötu með ts- lenskri hljómsveit. Hljóð- ritunin er einnig ágæt, þótt í mono sé sem og söngurinn, sem þeir Þorvaldur Halldórsson og Erlendur Svavarsson skipta á milli sín. Samt vantar eitthvað á til þess að platan geti talist upplffgandi. Þar gæti verið um að kenna útsetningunum, sem eru sáraeinfaldar jafnframt því, sem lögin hefðu bæði mátt vera spiluð ögn hraðar. Það vantar t.d. allan suðrænan kraft i “Bíllinn minn og ég“, sem er spánskt að uppruna. Þá eru textarnir efnislitið sull. Einhverjar fleiri plötur munu vera á leiðinni með Pónik og verður þar væntanlega áhuga- verðara efni en hér er boðið upp á. Stuðmenn — Hone.v, will you marry me/Whoops- scoobie-doobie — Stereo — Á.Á.-records. Það hefur hvflt mikil leynd yfir þessari plötu, þar sem engin hljómsveit er starfandi hér undir þessu nafni og því hafa verið nokkrar getgátur um hverjir feli sig bak við þetta nafn, Stuðmenn. Vitað er, að Jakob Magnússon, sem eitt sínn var í hljómsveitinni Rifsberja, hefur stjórnað hljóðritun plöt- unnar, en hann hefur dvalið f Englandi undanfarið ár. Gæti þetta bent til þess, að platan hafi verið tekin upp ytra og að Stuðmenn séu ekki Islend- ingar. Einnig má heyra á upp- tökunni, að hún er tæplega hljóðrituð hér á landi. Platan er þegar komin í fyrsta sæti „Tfu á toppnum" þannig að eitthvað ætti að vera spunnið í tónlist- ina. Það er þó umdeilanlegt, Tónlistin er gamaldags í takti og stíl og þess vegna gæti þetta eins verið 10 ára gömul plata. Aðállagið er afskaplega einfalt og auðlært og það er trúlega ástæðan fyrir velgengni plöt- unnar á vinsældalistanum. Af þessu má draga þá ályktun að . fjöldi fólks viðurkenni aðeins þau lög, sem það lærir á andar- taki og getur dansað og sungið með. Eða eins og Ámundi Ámundason, útgefandi þess- arar plötu, segir: „Fyrst þessar starfandi hljómsveitir eru of góðar til að spila tónlist, sem fólki finnst gaman að, verð ég að skapa mínar eigin hljóm- sveitir, sem geta þetta.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.