Morgunblaðið - 23.05.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAl 1974
7
Bezhnev og Brandt sóla sig á Krímskaga.
Hriktir
í stoðunum
undir utanríkisstefnu Brezhnevs
BROTTFÖR Willy Brandts úr
embætti kanslara Vestur-
Þýzkalands leiddi meðal annars til
þess að Leonid Brezhnev flokks-
leiðtogi stóð frammi fyrir hruni
þeirrar persónulegu utanrfkis-
stefnu, sem hann hefur reynzt sér-
fræðingur i að reka undanfarin ár.
Svo virðist sem óheppnin elti
Brezhnev á þessu sviði: Georges
Pompidou er látinn, Brandt farinn
frá, og hættara við þvi nú en
nokkru sinni fyrr að Nixon forseti
neyðist til að flytja úr Hvita
húsinu.
Ein helzta ástæðan fyrir því hve
mikill árangur hefur náðst í bætt-
um samskiptum rikjanna er su, að
gengið hefur verið framhjá hefð-
bundnum leiðum í millirfkjasamn-
ingum, en málin þess i stað til
lykta leidd á persónulegum
fundum og viðræðum leiðtoganna
við mikinn fögnuð almennings
heima og erlendis.
Þessi persónulegu samskipti í
utanrikismálum hafa af skiljanleg-
um ástæðum fallið i góðan jarð-
veg i Sovétrikjunum. Þar þarf ekki
að leita samþykkis þjóðarinnar
áður en mikilvægar ákvarðanir eru
teknar. Eftir á getur þjóðin látið í
Ijós fögnuð sinn yfir árangrinum,
eða — ef illa fer — reynt að dylja
vonbrigði sín. Af þessu leiðir að
stefnumótendur Sovétríkjanna
telja stirðar og langdregnar samn-
ingaviðræður embættismanna til
þess eins fallnar að tefja fyrir
framgangi mála. Þeim finnst mun
auðveldara að semja beint við við-
komandi forseta eða forsætisráð-
herra og láta hann svo um að
standa fyrir máli sínu þegar heim
er komið.
Þetta er ágætt svo langt sem
það nær, það er að segja meðan
stjórnmálaleiðtogar hinna ríkj-
anna eru fastir i sessi og njóta
nægilegs stuðnings. En það vill
hrikta i undirstöðunum ef einhver
leiðtoganna fellur frá eða
hrökklast frá, og ekki er Ijóst
hvort eftirmaðurinn fylgir áður
markaðri stefnu. Þessu gera
Rússar sér grein fyrir, og hugsan-
legt er að þau áföfl, sem persónu-
samskiptastefnan hefur orðið fyrir
á þessu ári, leiði til þess að þeir
takahana til endurskoðunar.
Viðbrögð sovézku leiðtoganna
við afsögn Brandts og þróun
Watergate-hneykslisins eru
athyglisverð. Að þvi er Brandt
varðar hafa sovézkir fjölmiðlar
þagað yfir aðalástæðu þess að
hann sagði af sér, en hún var sú
að upp komst um austur-þýzkan
njósnara, sem var einn af nánum
samstarfsmönnum kanslarans.
Þess i stað skammast sovézku
A THE OBSERVER
Eftir
Dev Murarka
i
fjölmiðlarnir út í ónefnda fjand-
menn bættrar sambúðar (þótt þær
skammir gætu allt eins beinzt að
leiðtogum Austur-Þýzkalands), og
hugga sig við það að Brandt verði
áfram áhrifamaður i Bonn, og að
eftirmaður hans. Helmut Schimdt,
haldi fast við "Ostpolitik"
Brandts.
Varðandi Nixon forseta halda
sovézku fjölmiðlarnir i vonina um
að hann verði ekki hrakinn frá;
það er skoðun þeirra i Moskvu að
hann verði að halda völdum, þvi
algjörlega er óvist að óþekktur
eftirmaður hans hefði sömu
stefnu gagnvart Sovétrikjunum.
Flokksmálgagnið Pravda er gott
dæmi um það hvernig reynt er að
stinga höfðinu í sandinn þegar
rætt er um vandræði Nixons. í'
stað þess að skýra frá sí-auknum
kröfum um afsögn Nixons eða
brottvikningu, skýrir blaðið frá
fundi forsetans með nokkrum
þingmönnum i Hvita húsinu, þar
sem rætt var um efnahagsmál.
Var látið sem svo að ekkert gæti
komið fyrir Nixon og ekkert mætti
fyrir hann koma. Ef hins vegar
eitthvað kæmi þrátt fyrir allt fyrir
forsetann, hlyti það að vera
óvinum bættrar sambúðar og 'eða
Sovétrikjanna um að kenna.
Ef Nixon verður nú hrakinn frá
eftir afsögn Brandts og fráfall
Pompidous, er hætt við að utan-
ríkisstefna Brezhnevs verði
nokkuð reikul. Ekki er þess þó að
vænta að Moskvuleiðtogarnir snúi
baki við persónulegum sam-
böndum t utanríkismálum, en þeir
þurfa tima til að rækta sam-
böndin við þá leiðtoga, sem við
taka á Vesturlöndum.
Þótt allt sé á huldu um sam-
böndin við Bonn, Parls og Was-
hington, halda leiðtogamir í
Moskvu áfram að leita persónu-
legra sambanda á öðrum slóðum.
Sem stendur beinist athygli þeirra
einna helzt að öldruðum forseta
Argentinu, Juan Domingo Peron.
Itarleg og langorð yfirlýsing var
nýlega birt i öllum blöðum að
lokinni heimsókn José Gelbards,
efnahagsmálaráðherra Perons.
Hafði Gelbard þá náð samningum
um 250 milljón dollara lántöku í
Sovétrikjunum, og gefið góðar
vonir um að Peron kænti sjálfur i
heimsókn til Sovétrikjanna á
næstunni til að kynnast Brezhnev
persónulega, en þar biða hans
örugglega hlýjar móttökur. Talið
er nauðsynlegt i Moskvu að rækta
persónuleg samskipti við leiðtoga
í Suður-Ameriku einmitt nú þegar
öfgasinnaðir hægrimenn eru að
hasla sér völl í sumum löndum
álfunnar.
GERUM VIÐ kaldavatnskrana og WC-kassa. VATNSVEITA REYKJAVÍKUR, simi 27522. BROTAMÁLMAR Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. Staðgreiðsla. NÓATÚN 27, simi 25891.
NÝ GERO AF VEGGMYNDUM frá Nordiska i Gautaborg. Fljót unnar. Uppsetning fylgir með. Kynnið ykkur nýjungarnar. HANNYRÐAVERZL. ERLA, Snorrabraut. BIRKIPLÖNTUR TIL SÖLU Úrvals birkiplöntur í mörgum verð- flokkum. Opið til kl. 1 0 virka daga og til 6 á sunnudögum. JÓN MAGNÚSSON, Lynghvammi 4, Hafnarfj. Sími 50572.
ÍBÚÐ ÓSKAST TIL LEIGU Fullorðin einhleyp reglusöm kona óskar eftir ibúð. Upplýsingar i sima 42438. MEÐGJÖF — SVEIT Óska eftir að koma 1 1 ára dreng og 1 3 ára telpu á góð sveitaheim- ili í sumar. (Meðgjöf). Vinsamleg- ast hringið í síma 36547.
JAKOBSDALSGARN Anorina Lyx, Mohairgarn, Noppé Bouclé, Tweed garn VERZL. HOF Þingholtsstræti 1 SUMARBÚSTAÐUR 1 MOSFELLSSVEIT nálægt Reykjum til leigu. Simi 16356 kl. 19—22.
CITROEN 2 CV árg. 71 til sölu. — Hagstæður bill. Upplýsingar í sima 27808 og 31070. ÓSKA EFTIR litlu verzlunarhúsnæði, þarf að vera miðsvæðis. Allt kemur til greina. Uppl. í síma 16364 hvenær sem er.
TILSÖLU sumarbústaður i Mosfellssveit. Bústaðurinn er 3 herb., húsgögn fylgja. Tilvalinn fyrir hestamenn. Uppl. i sima 51888 á skrifstofu- tima og 52844 heima. UNGURMAÐUR óskar eftir mikilli vinnu úti á landi. Allt kemur til greina. Vinsamlegast hringið i sima 19547 i dag og á morgun, eftir kl. 5.
TILSÖLU Fiat 124 árg. 1967. Uppl. i sima 37404. ÍBÚÐ 2ja til 4ra herb. í Reykjavík eða á Suðurnesjum óskast til leigu í 3 til 4 mán. Sími 16260 á skrifstofu- tíma.
RÆKJUBÁTAR Getum bætt við okkur i viðskipti 1 til 2 bátum. STRÖND H.F., Kópavogi. Simar 43580, 21296. KJARVALSMÁLVERK Til sölu oliumálverk eftir Kjarval, Hólmatindur á Eskifirðí, Stærð 37x87 cm. Tilb. sendist Mbl. fyrir 30. mai merkt „Kjarval 1469"
RADAR 32 m eða 48 m óskast til kaups. Simi 1 6260 á skrifstofutíma. UNG STÚLKA óskar eftir atvinnu. Hefur unnið við simavörzlu. Kann vélritun. Upplýsingar i sima 24656 eftir kl. 5 i dag og næstu daga.
KEFLAVÍK Til sölu nýtt raðhús ásamt bilskúr. Uppl. i sima 2979 eftir kl. 5. Svalahandrið og önnur létt járnsmíði. Kantlim- ingarpressur kr. aðeins 1 1.195,- STÁLTÆKI s.f. simi 4271 7.
EINHLEYPUR ELDRI MAÐUR óskar eftir herbergi sem fyrst. Upplýsingar i sima 25500 frá kl. 10—16. 22 ÁRA STÚLKA óskar eftir vinnu frá 1. júni. Allt kemur til greina. Uppl. í sima 51474 milli kl. 8 og 9 i kvöld og næstu kvöld.
KEFLAVÍK Til sölu fokheld neðri hæð um 150 fm við Hringbraut. Bílskúrs- réttur fylgir. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, símar 1 263 — 2890. VERKSTJÓRAR í Verkstjórafélagi Reykjavíkur. Sá sem tók frakka í misgripum á aðalfundi félagsins sunnudaginn 19. maí er beðinn að hafa sam- band við skrifstofu V.S.Í. eftir kl. 2 á daginn simi 1 5060.
HÓPFERÐABILL Til sölu 2 5 manna Benz og 8 manna Volswagen (rúgbrauð). Uppl. i sima 31391. JHorgunblatíib f'vmnRCFnuinR 7 mnRKnnvenR
Garðplöntusala
Stjúpur fjölært. Hekkplöntur, runnar og tré, rósastilkar. Mold i stórum
pokum, látið ekki Breiðholtsplönturnar vanta i garðinn.
Sendum um land allt. Uppl. og pantanir í S. 35225.
Gróðrastöðin
Breiðholti.
Ath: aðeins ígróðrastöðinni Breiðholti.