Morgunblaðið - 23.05.1974, Síða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAl 1974
Stórvirki í framkvæmdum
við íþróttamannvirki
Unnið er nú við mörg íþrótta-
mannvirki í Reykjavík. Laugar-
dalsframkvæmdirnar eru nú vel á
veg komnar, en auk þess stendur
yfir bygging búningsherbergja og
baða við Sundlaug Vesturbæjar,
bygging íþróttahúss við Haga-
skóla, bygging iþróttahúss og
íþróttavallar í Breiðholti, fram-
kvæmdir við skfðasvæðið í Blá-
fjöllum og fl.
Mestu framkvæmdirnar eru við
Laugardalssvæðið, en þar má
segja að sé íþróttamiðstöð Reykja-
vikur og muni þjóna hinum ýmsu
íþróttagreinum. Auk þess er
stjórnstöð íþróttasamtakanna í
Laugardalnum og er nú langt
komið viðbót þeirrar byggingar.
Á meðfylgjandi mynd, sem
Ólafur K. Magnússon tók af
Laugardalssvæðinu nýlega, má
greina framkvæmdirnar þar.
Verður hér á eftir vikið að ein-
stökum þáttum þeirra:
I. LAUGARDALSVÖLLURINN:
Honum er ætlað að verða
enn um sinn aðalkeppnisvöllur-
inn í Reykjavík. Sem kunnugt er
hefur gras vallarins farið illa
vegna hinna miklu notkunar, sem
á vellinum hefur verið. Ætlunin
er að vinna að miklum lagfæring-
um á vellinum, og ákveðið hefur
verið að setja í hann hitakerfi,
sem mundi væntanlega gera það
að verkum, að unnt væri að nýta
hann lengur á hverju ári. Hefur
verið ákveðið, að hönnun þess
verks hefjist á næstunni. Hug-
myndir hafa verið uppi um að
setja gervigras á völlinn, en horf-
ið hefur verið frá því, a.m.k. í bili.
'tmwM
nhhm
SÍ2s|Lsí«Sí!5ÉS
ÍéIet:
1 *&*,_ *■■ x': U^
|r- asás!