Morgunblaðið - 23.05.1974, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAI 1974
17
Gráena byltingin
Þessi mynd sýnir vel hvernig fjölmenn hverfi borgarinnar liggja að útivistarsvæðinu í Elliðaárdal.
Breiðholtshverfi (fremst á myndinni) og Árbæjarhverfi hinum megin við dalinn eru alveg þar við, og
stutt f Smáfbúðarhverfið, Blesugróf, Fossvogshverfi, Vogahverfi og Kleppsholt. Ljósm. Ól.K.Mag.
Fjölmennar byggðir
liggja
að Elliðaársvæðinu
ELLIÐAÁRSVÆÐINU eru í
áætlun um umhverfi og útivist
gerð mun nánari skil en öðrum
útivistarsvæðum, enda á einn
hluti þess, Ártúnssvæðið að fá
forgang við framkvæmdir.
Svæðið er lika hið ákjósan-
legasta til útivistar, hvort sem
miðað er við náttúrugæði eða
byggð. Það teygir sig frá sjó og
inn til Heiðmerkur, þar sem
opnast víðáttumikið og óbyggt
land. Og Elliðaárnar renna
eftir því enilöngu.
Ekki er langt síðan Elliðaár-
svæðið var út úr bænum eða
alveg í útjaðri hans. Og því gera
margir sér ekki grein fyrir því
að nú liggja að því mjög fjöl-
mennar byggðir, sem auðveld-
lega má tengja útivistar-
svæðinu. Og verður það þvi
ómetanlegur útivistarstaður
fyrir íbúa þessara stóru hverfa.
Uppi I hæðunum sitt hvorum-
megin liggja Arbæjarhverfi
annars vegar og Breiðholts-
hverfin hins vegar og stutt að
fara niður brekkurnar í þennan
yndislega dal’ Einnig tengjast
þessu svæði Smáíbúðarhverfi,
Blesugróf, Fossvogshverfi,
Vogahverfi og Kleppsholt. Sem
eru innan göngufjarlægðar frá
Elliðaárdal.
Með göngu, og hjólreiða-
stfgum, sem fyrirhugaðir eru,
verður gangandi fólki greiðari
leið út á þetta svæði. Og
ætlunin er að það tengist svo
áfram beint í útivistarsvæðið í
Rauðhólum, I Heiðmörk og Blá-
fjöll og lengra út úr borginni.
Einnig koma göngustígarnir
lengra innan úr bænum þarna.
Vafalaust eiga margir I fram-
tíðinni eftir að öfunda Reykvfk-
inga af því að eiga svona dásam
legt útivistarsvæði inni í miðri
byggð — því borgin er að teygja
sig áfram þar upp fyrir og
þakka þá forsjálni að þetta
svæði var frá tekið og þannig
frá því gengið, að það yrði um
aldur og ævi útivistarsvæði
fyrir borgarbúa í þessum þétt-
býlu hverfum.
Ártúnssvæðið verður tekið
fyrst fyrir og er þegar byrjað að
rýma á bökkum árinnar, t.d. við
Rafstöðina, þar sem fjarlægt er
geymslusvæði og ræktað upp.
En þarna í hvömmunum er
einhver skjólsælasti staðurinn
í borginni og þar er þegar fyrir
trjárækt o.fl. Verður þar gott
að vera á góðviðrisdögum á
sumrin. Og á vetrum er þar
skíðaland gott Breiðholtsmegin
í dalnum er einnig farið að
planta trjám í brekkurnar, en
dalurinn sjálfur mun fá að
halda sér að mestu óbreyttur,
enda náttúruundur hið mesta.
Skólavörðuholtið
fær nægilegt vatn
Gervigras á íþróttavelli var mjög
til umræðu fyrir nokkrum árum,
og var þáð sett á allmarga íþrótta-
velli erlendis í tilraunaskyni.
Þótti það ekki gefa nægilega góóa
raun, og kostnaðurinn við það var
gífurlega mikill.
2. NVR GRASVÖLLUR:
Undirbúningsvinnu við völí þenn-
an er nú að mestu lokið og er
hann að verða tilbúinn til
sáningar. Ef veðrátta verður
hagstæð í sumar, á að vera
unnt að keppa á velli þessum
í haust, en næsta sumar ætti
hann að verða kominn i gott
ástand. Við völl þennan verður
uppsteypt áhorfendasvæði fyrir
um 10 þúsund manns. Velli þess-
um er ætlað að taka álag af
Laugardalsvellinum, og mun
verða notaður þegar að fram-
kræmdum við lagfæringar
Laugardalsvallarins kemur. Völl-
ur þessi er mun stærri en gamli
völlurinn og ætti því að geta nýtzt
betur, þar sem unnt er að færa
mörkin, en við þau er álagið jafn-
an mest og oft myndast þar flög.
3. MALBIKAÐUR VÖLLUR:
Framkvæmdum við völl þennan
er að mestu lokið. Hann er ætlað-
ur fyrir handknattleik og körfu-
knattleik, og einnig er mögulegt
að koma þar upp tennisvöllum.
4. LAUGARDALSHÖLLIN:
Austan við Laugardalshöllina,
þ.e. vinstra megin við hana á
myndinni, er ákveðið að koma
upp véifrystu skautasvelli. Búið
er að bjóða það verk út og verða
tilboð opnuð í byrjun júní. Við
svellið verður komið upp búnings-
herbergi og við gerð svæðisins
verður tekið tillit til þeirra fram-
tíðaráforma, að byggt verði yfir
það.
5. MALARVÖLLUR: Vinnsla
vallar þessa er nú langt komin.
Við hann verða uppsteypt áhorf-
endasvæði, og umhverfis hann
verður hlaupabraut. Völlur þessi
verður notaður ef aðstæður á hin-
um völlunum eru þannig, að ekki
er unnt að keppa þar,t.d. snemma
á vorin og seinni hluta sumars eða
á haustin.
6. BUNINGHUS: Við austurhluta
Laugardalsvallarins hefur nú
verið hafin fyrsti hluti fýrir-
hugaðra byggingaframkvæmda.
Er þar nú tilbúin söluaðstaða og
snyrting. Hús þetta verður síðan
byggt áfram til norðurs, og verður
þar rými fyrir búningsherbergi
og böð, sem m.a. eiga að þjóna
malarvellinum. Hús þessi eiga að
falla inn í fyrirhugaða stúkubygg-
ingu vió austurhluta vallarins.
7. INNGANGSHLIÐ: Við norður-
enda Laugardalsvallarins er nú
lokið byggingu tveggja húsa og
tengsli þeirra eru ætluð til þess
að koma þar fyrir tilkynninga-
töflu. í húsum þessum er geymsla
íþróttasvæðisins fyrir tæki og
búnað og auk þess aðstaða fyrir
starfsmenn vallanna. Hlið þetta
verður notað t.d. við íþróttahátíð-
ir, og ef mikið er um að vera á
vellinum.
8. KASTSVÆÐI: Undirbúnings-
vinnu við svæði þetta er nú að
mestu lokið og verður sáð í það á
næstunni. Svæðið er fyrirhugað
til æfinga frjálsíþróttamanna,
sérstaklega þeirra er iðka köst,
t.d. spjótkast, kringlukast og
sleggjukast, en aðstaða þessara
íþróttamanna hefur ekki verið
góð til þessa.
9. ÆFINGAVÖLLUR: Völlur
þessi er nú frágenginn og var sáð
í hann í fyrrahaust. Hefur hann
nú tekiið á sig grænan lit og lítur
vel út. Völlur þessi verður notað-
ur til æfinga og upphitunar fyrir
lið, sem þurfa á undirbúningi að
halda vegna leikja á aðalvellin-
um.
10. LAUGARDALSSUNDLAUG-
IN: Nauðsyn ber til þess að bæta
búnings- og baðstöðu við Laugar-
dalssundlaugina, sem sennilega
er fjölsóttasta íþróttamannvirki
landsins. Er fyrirhugað að byggja
nýtt hús fyrir þetta við vestur-
enda laugarinnar, en hins vegar
ekki ákveðið hvenær í fram-
kvæmdir verður ráðizt.
FRAMKVÆMDIR VIÐ SUND-
LAUG VESTURBÆJAR
Miklar framkvæmdir standa nú
yfir við Sundlaug Vesturbæjar,
en þar er verið að byggja nýtt hús
fyrir búnings- og baðaóstöðu. Var
orðin á því brýn þörf, þar sem
aðsókn að sundlauginni er gífur-
lega mikil. Þessar framkvæmd
verður lokið næsta vetur.
IÞRÖTTAHUS við haga-
SKÓLA.
Unnið er að byggingu íþrótta-
húss við Hagaskólann. I húsi
þessu verður 18x33 metra völlur,
og áhorfendastæði fyrir 500—600
manns. Verður því í húsinu
keppnisaðstaða t.d. fyrir körfu-
knattleik og blak. Um hús þetta
mun gilda hið sama og um önnur
íþróttahús við skólana í Reykja-
vfk. Þegar skólastarfinu Iýkur fá
íþróttafélög þaðtil nota.
FRAMKVÆMDIR
I BREIÐHOLTI
í Breiðholti er fyrirhugað að
annað helzta íþróttasvæði Reykja-
víkurborgar rísi í framtíðinni, í
hinni svonefndu Mjódd. Þar á að
gera stóran útikeppnisvöll með
tilheyrandi æfingavöllum og þar
er einnig fyrirhugað að reisa
fyrstu ,,stór-íþróttahöll“ landsins.
Hallir þessar eru jafnan um 50x70
metrar og rúma því t.d. þrjá hand-
knattleiksvelli, og góð æfingaað-
staða er þar fyrir frjálsíþrótta-
menn. í Mjóddinni er einnig
fyrirhugað að gera stóra útisund-
laug. Sennilega verður ekki ráðizt
í framkvæmdir þessar á næst-
unni.
En um þessar mundir er unnið
að íþróttamannvirkjum í Breið-
holti. Þar er verið að vinna við 1.
áfanga að íþróttavelli, sem verður
með uppsteyptu áhorfendasvæði,
og íþróttahús með 18x33 metra
velli verður tilbúið í haust við
Fellaskólann. Sundlaugarbygging
verður boðin út á næstunni ásamt
búningsálmu, sem einnig á að
þjóna nýju íþróttahúsi, sem þarna
á að reisa. Verður það með 22x44
metra sal, og áhorfendasvæði
fyrir um 1000 manns. Er nú búið
að vinna teikningar að því húsi.
BLÁFJALLASVÆÐIÐ
Að undanförnu hefur mikil
vinna og fjármagn verið lagt í
Bláfjallasvæðið, en þar er nú
þegar orðió aðalskíðaland Reykja-
víkur og nágrannabyggðanna.
Leitað hefur verið eftir tilboðum í
skíðalyftur, og ákveðið að fjölga
þeim a.m.k. um tvær í haust.
Einnig er fyrirhugaó að bæta
veginn upp í Bláfjöll, en gífurleg
umferð þangað upp eftir er að
verða á hverjum góðviðrisdegi
yfir vetrarmánuðina og reyndar
langt fram á vor.
STUÐNINGUR VIÐ
ÍÞRÓTTAFÉLÖGIN
Sem kunnugt er styður Reykja-
vfkurborg íþróttafélögin við bygg-
ingu þeirra mannvirkja, sem þau
ráðast í. Hefur framlag Reykja-
vfkurborgar verið hækkað úr
30% í 40%, og nú hefur verið
samþykkt að veita þeim félögum,
sem standa í framkvæmdum, sér-
stakan stuðning til þess að ljúka
við svæði sín. Nemur þessi upp-
hæð 21 milljón króna á þessu ári.
Kartöflulag-
erinn þraut
AÐ UNDANFÖRNU hefur
nokkuð borið á skorti á ákveðnum
vöruflokkum í verzlunum. Er
þetta afleiðing hins langa far-
skipaverkfalls. Til dæmis þraut
kartöflulager Grænmetisverzl-
unarinnar fyrir helgi, en kartöfl-
ur eru væntanlegar I búðir I dag,
eða f sfðasta lagi á morgun.
Jóhann Jónasson, forstjóri
Grænmetisverzlunarinnar, tjáði
Mbl. í gær, að kartöflulager fyrir-
tækisins hefði alveg klárazt fyrir
helgi. Selá kom með 100 tonn af
hellenzkum kartöflum á laugar-
daginn, en ekki fékkst nægur
mannskapur til að skipa því
magni á land fyrir helgi. Átti að
skipa kartöflunum upp f gær. Þá
kemur leiguskip Eimskipafélags-
ins með 700 tonn af pólskum
kartöflum til landsins í dag.
Pólsku kartöflurnar eru svo litl-
ar, að þær fara í 2. flokk, en
hollenzku kartöflurnar fara f 1.
flokk.
A HÁANNATlMUM Vatnsveit-
unnar, þegar vertíð stendur sem
hæst og frystihúsin nota mikið
vatn, hefur borið á vatnsskorti i
fbúðum á Skólavörðuholtinu.
Stafar það bæði af lélegu dreifi-
kerfi á svæðinu og svo því, hve
hátt það stendur.
LEITARMENN
Vegna misskilnings, sem gætti f
frétt blaðsins laugardaginn 18.
þ.m. er skýrt var frá leit að flug-
manninum á frönsku flugvélinni,
sem fórst hér, skal tekið fram, að
af leitarmönnum, sem voru 330
alls, voru 170 frá Slysavarna-
félaginu og Björgunarsveitinni
Stakk í Keflavík, 100 frá Hjálpar-
sveit skáta og 60 frá Flug-
björgunarsveitinni.
Nú fer að sjá fyrir endann á
þessum vandræðum íbúanna á
Skólavörðuholti því að i sumar
verður sett upp vatnsdæla við
Eiriksgötu og mun hún sjá svæð-
inu fyrir nægu vatni i framtíð-
inni.
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
S.l. mánudag var ekið á
Volkswagenbifreiðina R 7355. þar
sem hún stóð á bifreiðastæði
gegnt aðalumboði Háskólahapp-
drættisins. Urðu miklar
skemmdir á afturbretti. Þeir sem
gætu gefið upplýsingar um
þennan atburð eru vinsamlega
beðnir að láta lögregluna vita.