Morgunblaðið - 23.05.1974, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAl 1974
Danir vilja gagnkvæman
lendingarrétt hérlendis
Annars fær Air Viking ekki að lenda í Danmörku
A þessari mynd eru 14 af 18 frambjóðendum Sjálfstæðisflokksins til bæjarstjórnarkósninganna í
Neskaupstað. Fremst á myndinni eru þrír efstu menn listans, talið frá vinstri: Reynir Zoega, Gylfi
Gunnarsson og Ásgeir Lárusson. í aftari röð, talið frá vinstri, eru Elísabet Guðnadóttir, Dagmar
Þorbergsdóttir, Stella Steinþórsdóttir, Sigurður Jónsson, Björn Björnsson, Elfnborg Eyþórsdóttir,
Herbert Benjamfnsson, Stefán Pálmason, Hörður Stefánsson, Agúst Th. Blöndal og Einar Þor-
valdsson. Á myndina vantar Brynjar Júlíusson, Sigurjón Valdimarsson, Bjarka Þórlindsson og
Guðna H. Sigurðsson.
Sameinast tveir lýðræðisflokkar?
ÍSLENZK stjórnviild hafa sent
dönskum f lugmálayf irvöldum
beiðni um lendingalevfi í l)an-
miirku fvrir Air Viking og Ferda-
skrifstofuna Sunnu. Svör danskra
yfirvalda hal'a verið neikvæð
nema á möti komi gagnkva'in
lendingaréttindi lyrir diinsk
leiguflugfélög á Íslandi. Slíkum
skilmálum hal'a íslenzk stjórn-
viild ekki viljað hlíta vegna hættu
á, að erlendu leiguf lugfélögin
undirbjóði íslenzku flugfélögin.
Er málið þannig komið í sjálf-
heldu.
Að sögn Brynjóifs Ingólfssonar
ráðuneytisstjóra sóttu íslenzk
flugmálayfirvöld um lendinga-
leyfi í Danmörku fyrir Air Viking
vegna ákveðinna ferða Sunnu til
Danmerkur. Fyrir fáum dögum
fékkst leyfi fyrir eina lendingu
Air Viking í Danmörku, en síðan
var sótt um leyfi fyrir aðra ferð
Sunnu, en þá bárust ofangreind
svör danskra flugmálayfirvalda.
Við það situr enn. Brynjólfur
sagði, að alls hefðu verið fyrir-
Kökubasar í
Arbæjarsókn
KVENFÉLAG Arbæjarsöknar
gengst í dag, uppstigningardag,
fyrir kökubasar í anddyri Arbæj-
arskóla (Rofabæjarmegin) og
hefst basarinn klukkan 14. Basar-
ar kvenfélagsins i Árbæjarsókn
hafa á undanförnum árum notið
vinsælda og hafa kökurnar jafnan
flogið út á skammri stundu.
Hljómskálinn:
Konsert og
kökubasar
LUÐRASVEIT Reykjavíkur held-
ur hljómleika á þaki Hljómskál-
ans við Tjörnina í dag, uppstign-
ingardag, og hefjast þeir kl. 15.
Á sama tíma munu eiginkonur
hljómsveitarmanna hafa kökubas-
ar í Hljómskálanum.
Þar sem margir Reykvikingar
hafa aldrei komið inn í þetta sér-
stæða hús verður það opið öllum
til sýnis á sama tíma.
Yfirlýsing
Hafnarfiðri, 21. maí 1974.
Hr. ritstjóri.
Vegna ummæla, sem fram
komu i sjónvarpsþætti um bæjar-
rriál Hafnarfjarðar s.l. laugardag
um ungtemplarafélagið hér i
bænum, óska ég undirritaður að
eftirfarandi yfirlýsing verði birt í
næsta tölublaði blaðsyðar:
Stofnun Ungtemplarafélagsins
Depils í Hafnarfirði var undirbú-
in og framkvæmd af útbreiðslu-
ráði íslenskra ungtemplara. Full-
trúi I.U.T. við það starf var
Matthías Viktorsson. Hann hefur
síðan verið trúnaðarmaður félags-
ins og hjálparhella okkar í starfi.
Ég óska þess, að Ungtemplara-
félagið Depill verði ekki notað i
pólitískum tilgangi, því tilgangur
félagsins er allur annar, sem sé:
Bindindi—bræðralag—þjóðarheill
Virðingarfyllst,
Guðmundur Þórðarson,
formaður Uft. Depils.
hugaðar 10—12 ferðir á vegum
Sunnu í sumar til Danmerkur.
Vegna frétta af þessu máli hef-
ur Morgunblaðinu siðan borizt
eftirfarandi fréttatilkynning f-ú
(iuðna Þörðarsyni forstjóra
Sunnu og Air Viking.
Leyfi íslenzkra stjörnvalda f.vr-
ir flug Air Viking milli Islands og
Danmerkur eru fyrir héndi. Air
Viking eða Sunnu hefur aldrei
verið neitað um lendingaleyfi í
Kaupmannahöfn, heldur hafa
diinsk flugmálayfirvöld tilkvnnt,
að leyfi verði veitt strax og ís-
lenzk flugmálayfirviild hafa stað-
fest, að Islendingar fallist á að
siimu gagnkvæmnisreglur um
flugréttindi varðandi leiguflug
gildi milli Islands og Danmerkur
og gilt hafa milli Norðurlanda og
annarra Evrópulanda og milli
allra hinna Norðurlandanna inn-
byrðis. F.vrr en þetta sé staðfest
fái engir íslenzkir aðilar le.vfi til
leiguflugs milli landanna og á það
jafnt við um alla þá aðila, sem
hafa levfi til millilandaflugs með
farþega, Flugfélag Islands, Loft-
leiðir og Air Viking. Hafa dönsk
yfirvöld tjáð okkur, að þetta gildi
um flug milli Islands og Dan-
merkur og ef til vill síöar milli
Islands og Færeyja og Islands og
Grænlands, ef ekki fæst umbedin
staðfesting.
Fyrr en þetta mál hefur verið
Ieiðrétt verður því ekkert leigu-
Frainhald á bls. 43
Gestaboð
Skagfirðinga
I DAG efna Skagfirðingafélögin
til samkomu fyrir alla eldri Skag-
firðinga á svæði Stór-Reykjavikur
í Lindarbæ kl. 2,30 e.h. — Sr.
Þórir Stephensen ávarpar gesti
og félagar úr Skagfirzku söng-
sveitinni syngja. Ennfremur flyt-
ur Jörundur skemmtiefni.
FYRR í þessari viku var stofn-
aður nýr stjórnmálaflokkur á Ak-
urevri, Lýðræðisflokkurinn.
Helzti hvatamaður að stofnun
flokksins er Trvggvi Helgason
flugmaður á Akurevri. Flokkur
þessi vill beita sér fvrir auknu
valdi forseta tslands og þjóðarat-
kvæðagreiðslum um helztu mál-
efni. Þá vill flokkurinn, að tsland
verði áfram í varnarsamtökum
vestrænna þjóða.
t Reykjavík var einnig nýlega
stofnaður nýr stjórnmálaflokkur,
sem her heitið Lýðræðisflokkur-
inn. Forvstumenn hans eru Björn
Baldursson og Jörgen Ingi Han-
sen. Framhaldsstofnfundur þess-
ara samtaka verður í Tjarnarbúð
I dag, fimmtudag. Flokkur þessi
vill berjast fyrir, að ríkisbáknið
verði minnkað og stuðla að því, að
dregið verði úr miðstjórnarvaldi,
einfalda að mun almannatrygg-
ingakerfið, fella niður söluskatt
af matvöru og hætta niðurgreiðsi-
um. Þá viil flokkurinn, að meiri-
háttar málefni þjóðarinnar verði
lögð f dóm kjósenda í þjóðarat-
kvæðagreiðslu.
Upplýsingafulltrúj Lýðræðis-
flokksins á Akureyri, Sverrir
Runólfsson. sat í gær fund með
landskjörstjórn til að reyna að fá
úr því skorið, hvor flokkanna
gæti tileinkað sér listabókstafinn
L, sem báðir flokkarnir hafa
áhuga á. Sagði Sverrir Morgun-
blaðinu að fundinum loknum, að
hann hvgðist nú revna að beita
sér fvrir sameiningu þessara
tveggja flokka. enda hefðu þeir
báðir á stefnuskrá sinni þjóðarat-
kvæðagreiðslu um helztu málefni,
en það væri sitt helzta baráttu-
mál.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við Vilhjálm Jónsson í
landskjörstjórn og spurði hann
um niðurstöðu fundarins með
Sverri. Sagði Vilhjálmur. að hlut-
verk landskjörstjórnar væri að
samræma merkingar lista um
land allt, en það væri ekki urint
fvrr en framboðsfrestur væri út-
runninn og allir listar komnir
fram til yfirkjörstjórna í hverju
kjördæmi. Kæmi málið því ekki
til kasta landskjörstjórnar fyrr en
í f.vrsta lagi 30. maí.
.Mady Mespié.
Sinfóníuhljómsveitin:
-
Operusöngur á
lokatónleikum
Sinfóníuhljómsveit íslands lýk-
ur þessu starfsári með óperutön-
leikum. sem haldnir verða i
Háskólabíói á uppstigningardag
og hefjast kl. 20.30. Stjórnandi er
KARSTEN ANDERSEN og ein-
söngvari franska óperusöngkonan
MADY MESPLE. Flutt verða
þessi verk:
Forleikur að „Töfraflautunni"
eftir VV.A. Mozart.
Aria Súsönnu .Deh vieni" úr
„Brúðkaupi Figaros" eftir
Mozart.
Aría Rosínu „Una voce poco fa"
úr „Rakaranum frá Sevilla" eftir
G. Rossini.
Bacchanale úr „Samson og
Dalilu" eftir C. Saint-Saéns.
Forleikur að „Valdi örlaganna"
eftir Verdi.
Klukknaarían úr „Lakmé" eftir
L. Delibes.
Forleikur aö „Tannháuser" eft-
ir R. Wagner.
MADY MESPLE er fastráðin
við óperuna í París. en hefur
komið frant sem gestur i óperum
og tónleikasölum víða um heim og
hefur einnig náð vinsældum sem
túlkandi nútímatónlistar.
Gísli Jónsson menntaskólakennari:
r
Eg er bjartsýnn, en
alls ekki sigurviss
MORGUNBLAÐIÐ sneri sér I
gær til Gísla Jónssonar niennta-
skólakennara á Akureyri, sem
skipar efsta sætið á lista Sjálf-
stæðisflokksins f bæjarstjórn-
arkosningunum á sunnudag-
inn, og innti eftir áliti hans á
kosningahorfum á Akureyri.
Gfsli Jónsson sagði:
„Ég er bjartsýnn, en alls ekki
sigurviss. Eg held, að þetta
verði mjög spennandi og tví-
sýnt, stáðan er þannig: Sameig-
inlegt framboð Alþýðuflokks-
ins og samtaka vinstri manna
nýtir atkvæðamagn þeirra þeim
mun betur en siðast, að þeir
eiga að geta bætt við sig manni,
ef þeir bíða ekki hreinlega af-
hroð. Spurningin er, taka þeir
hann frá okkur eða Framsókn?
Alþýðubandalagið heldur vænt-
anlega sínum eina f ulltrúa.
Við verðum því að gera ráð
fyrir því að fara framúrFram-
sóknarflokknum í atkvæðatölu
til þess að ná því marki að fá 4
fulltrúa kjörna og geta þannig
haft forystu og úrslitaáhrif um
myndum meirihluta eftir kosn-
ingarnar. Bjartsýni mín um, að
það takist, byggist á eftirfar-
andi:
1. Eg tel, að málefnalega höf-
urn við sterka aðstöðu.
2. Það er létt að fá fólk til að
vinna með okkur. Fjöldi fólks
leggur fram ómetanlegt sjálf-
boðaliðastarf, sem ég þakka af
alhug, og okkur hafa bætzt nýir
liðsmenn, sem áður unnu fyrir
aðra flokka.
3. Við, einir flokka hér, höfð-
um prófkjör og skipuðum þann-
ig listann i samræmi við vilja
kjósenda og á baráttusæti á
lista okkar er þrautreyndur
maður, sem nýtur trausts og
vinsælda langt út fyrir raðir
flokks okkar.
4. Ríkisstjórnarflokkarnir
hafa bakað sér ærnar óvinsæld-
ir, bæði þeir, sem enn lafa í
stjórn, og sá, sem hljóp úr sam-
starfinu á elleftu stundu. Full-
trúar þessara flokka eru á öll-
um framboðslistum hér, nema
okkar. Andúð á ríkisstjórnar-
flokkunum verður hér aðeins
látin skýrt i ljós með því að
kjósa D-Iistann.
5. Sundrungin og upplausnin
á vinstra jaðri stjórnmálanna
er orðin slik, að fólk, sem ætlað
hefur að kjósa vinstri flokkana,
veit raunar ekki, hvað það þá
kýs yfir sig. Þessir flokkar
klofna eða sameinast næstum
daglega. Fólk skynjar æ betur,
að þá festu, einingu og sam-
heldni, sem þarf til að koma
góðum málum fram, finnur það
aðeins hjá Sjálfstæðisflokkn-
um.“
KJOSUM PAL GISLASON
í BORGARSTJÓRN — X-D