Morgunblaðið - 23.05.1974, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 23. MAÍ 1974
31
hjálpa börnum sínum, til að þeim
liði vel, allt fram til þess slðasta,
þess vegna fór vel á því,
er hún var kölluð burt frá
okkur og lagði upp I hina
löngu för, að hún væri hjá þeim,
sem hún unni mest, og sonur
hennar fylgdi henni hinzta spöl-
inn. ,,Ég minnist þín, um daga og
dimma nætur“, eins og skáldið
kvað, það mun ég áreiðanlega
gera, því að mér þótti svo vænt
um hana Lóu frænku mína.
Að leiðarlokum þakka ég henni
allt, sem hún gaf og gerði fyrir
mig af hjartahlýju sinni, ég geymi
það í hjarta mínu ævinlega i
minningunni um hana.
Algóði Guð, gef þú Birgi, Sonju,
Ölafi litla og Jóa þann styrk og
kjark, sem þau þurfa með núna,
til að harmur þeirra og sorg dvíni
og þau geymi minningu um yndis-
lega móður og dásamlega konu í
hjarta sér og mæti komandi degi
með festu og dugnaði. Þannig veit
ég, að Lóa hefur viljað skilja við
þau. Um leið og ég votta þeim
mina dýpstu samúð, kveð ég mina
elskulegu frænku.
Blessuð sé minning hennar.
V.F.E.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt
og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú
hljóta skalt.
María Guðmunds-
dóttir — Mmningarorð
V. Briem.
Það er torráðin gata og litt skilj-
anleg, hvers vegna kona i blóma
lífsins er svo snöggt kölluð á
braut. Það hefur jafnan verið svo,
að sviptibyljir mannlegrar tilveru
eru utan þess sjónmáls, er þekk-
ing okkar nær til. Oft gleymist
manni hversu lífið er stutt og
bilið tæpt milli fjörs og feigðar,
þessar óræðu leikfléttur lífs og
dauða leita sterkt á huga manns.
María Guðmundsdóttir fæddist
2. desember 1931 að Egilsstöðum,
Ölvesi, Árnessýslu, dóttir hjón-
anna Markúsinu Jónsdóttur og
Guðmundar Steindórssonar, er
þar bjuggu og þar ólst hún upp i
fríðum systkinahópi með 2 systr-
um og bróður. Guðmundur faðir
hennar er látinn fyrir nokkrum
árum, en Markúsína móðir henn-
ar býr enn á Egilsstöðum, ásamt
Steindóri syni sinum.
í april 1958 giftist María Helga
Daníelssyni vélstjóra og var þeim
4ra barna auðið, tveir drengir og
tvær stúlkur, það elsta 14 ára, en
það yngsta 8 ára.
Kynni okkar Maríu hófust fyrir
um það bil 12 árum, þegar ég átti
þvi láni að fagna að vera í sambýli
við þau I Safamýri 63. Ég hefði
vart getað hugsað mér betra sam-
býlisfólk en þau hjón og þegar
María birtist í ibúðinni hjá okkur,
svo glöð og svo kát að vanda, þá
var eins og birta og hlýr ylur
Jóhanna Gunnbjörns-
dóttir — Mumingarorð
kæmu með henni og verður sú
hugljúfa mynd um hana geymd i
hugum okkar.
María var frábær móðir og hús-
móðir, börnin vel uppalin, prúð
og elskuleg i allri framkomu, sem
vænta mátti af slikri ágætiskonu,
sem hún var.
Maria var alltaf boðin og búin
að rétta öðrum hjálparhönd, ef á
þurfti að halda og fæ ég seint
þakkað henni alla þá hjálp og
aðstoð er hún veitti mér við frá-
fall eiginkonu minnar fyrir þrem
árum síðan.
Eg kveð hana með söknuði, en
sárastur verður söknuðurinn hjá
eiginmanni hennar og börnum
svo og aldraðri móður og systkin-
um og bið ég þeim öllum Guðs
blessunar.
Blessuð sé minning hennar.
Emil Helgason.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Hvers vegna skyldi ég eyða tímanum í það að lesa Bibliuna,
tvö þúsund ára gamla bók? Vel má vera, að hún hafi flokkast
undir heitið „góóar bókmenntir". En ætti ungur maður ekki
fremur að hyggja að því, sem nær er nútímanum?
Menn, sem eru eldri og skynsamari en þú, hafa
haft mikinn hag af því að lesa bók bókanna. Davíð
segir: „Ég geymi orð þín i hjarta mínu, til þess að ég
skuli ekki syndga gegn þér“.
Job talar um, að hann meti orðin af munni Guðs
meira en líkamsfæðuna. En menn á seinni tímum
hafa komizt að sömu niðurstöðu og hlotið sömu
uppörvunar í Bibliunni.
Thomas Carlyle sagði: „I aumasta hreysi er bók
nokkur, þar sem andi mannsins hefur árþúsundum
saman fundið Ijós og næringu og svar og skilning á
því, sem hrærist í dýpstu fylgsnum hans.“
Daniel Webster komst svo að orði: „Biblian er bók
trúar og bók kenningar, bók siðgæðis, bók um átrún-
að, sérstök opinberun frá Guði. En hún er einnig
bók, sem fræðir manninn um ábyrgð einstaklingsins,
um tign hans og um að hann sé jafn náunga sínum.“
Of gömul? Margföldunartaflan er ævagömul. Hef-
ur aldurinn dregið úr gagnsemi hennar eða áreiðan'-
leika? Hafa árin svipt Hómer, Shakespeare og Síseró
glæsileik þeirra? Það, sem er gamalt þarf ekki að
vera gamaldags. „Himinn og jörð munu líða undir
lok, en orð mín munu alls ekki undir lok liða.“ segir
Biblían.
F.4.11.1938. D.24.4.1974.
ÞANN 3. maí var jarðsungin frá
Fossvogskapellu Jóhanna Gunn-
björnsdóttir. Hún var fædd á
Akureyri, dóttir hjónanna Odd-
rúnar Jóhannsdóttur og Gunn-
björns Egilssonar. Ölst upp hjá
foreldrum sfnum og lauk stúd-
entsprófi frá Menntaskólanum í
Reykjavfk 15. júní 1958.
Hinn 17. júnf giftist Jóhanna
eftirlifandi manni sínum Jakob
Jabobssyni fiskifræðing og
bjuggu þau alla tíð að Nökkvavogi
41, þar sem fyrir voru foreldrar
Jóhönnu. Börn þeirra eru: Sól-
veig 15 ára, Oddur Sigurður 13
ára og Auðbjörg 7 ára.
Allir dagar eiga kvöld, það
verður ekki umflúið. En helfregn-
inni um Jóhönnu var næsta erfitt
að trúa. Þegar vinir og ástvinir
eru kallaðir burt í blóma lífsins,
— þá erum við sjaldnast viðbúin.
Við efumst um réttlætið en
verðum samt að lúta þeim dómi,
sem upp er kveðinn. Við hin eldri
erum lengi að sætta okkur við
þann dóm, hvað þá blessuð
börnin. Þeirra harmur, eigin-
mannsins og hinna öldnu for-
eldra, er sár. Móðirin, eiginkonan,
allt I einu tekin burt og gömlu
hjónin sjá á bak seinna barni
sfnu, sem var þvf einkar hjart-
fólgið. Samhjálpin milii dóttur og
foreldra var mjög til fyrirmyndar.
Jafnframt heimilisstörfum og
ágætri umönnun barna sinna
stundaði Jóhanna nám við Há-
skóla Islands. Jóhanna tók nám
sitt alvarlega enda sóttist það með
eindæmum vel. Hún hafði lokið
B.A. prófi f tungumálum og bjó
sig undir kennslustörf. Enga slika
hæfileika hef ég þekkt fyrr. Af-
burða námsgáfur en jafnframt
ótrúleg lægni og þolinmæði við
kennslu. Þessa nutu hennar eigin
börn sem annarra, enda var gleði
hennar mikil, er börnin komu
heim við ágæta vitnisburði. Já,
það er mikið, sem eiginmaðurinn
og börnin hafa nú misst og erfitt
að skilja hversvegna mamma dó
svo ung. Hún hafði búið börnin
sin sem bezt hún mátti undir lffið
og stutt eiginmann sinn dyggilega
f ábyrgðarmiklu starfi hans. Nú
kemur það sér vel. Öll störf Jó-
hönnu voru markviss. Umhyggja
og næmur skilningur varð til
þess, að börnin sýndu henni ein-
stakt trúnaðartraust.
Jóhanna var fögur kona. Fyrir
eiginmanninn var hún ekki
aðeins vel menntaður lifsföru-
nautur, heldur hin glæsilegasta
kona, ætíð vel klædd og svo
íignarleg í framkomu og á velli,
að flestir tóku eftir, hvar sem hún
fór. Ferðir þeirra hjóna lágu vfða
um heim. Aldrei lét Jóhanna á því
bera, sem hún hlaut að vita, hvað
hún hafði fram yfir marga aðra.
Það var alltaf jafn ánægjulegt
að eiga tal við Jóhönnu. Það skipti
engu hvort rætt var um alvarleg
efni eða gamanmál. Henni var
það enginn vandi að finna hugs-
unum sínum búning, hvort sem
notuð var íslenzka eða erlend
tunga, — með hinu ágætasta mál-
fari. Kostir þessarar indælu konu
verða seint taldir, — hún vildi
öllum gott gera.
Við höfðum rætt um það að eiga
saman næstu jól með fjölskyldum
okkar. Þar verður nú skarð fyrir
skildi. Tengslin og kynnin milli
fjölskyldnanna hafa verið okkur
hjónum ómetanleg.
Þeir, sem guðirnir elska, deyja
ungir. — Bjartari tímar eru nú
aftur í hönd farandi. Við vitum,
að Jóhönnu líður nú vel. Hún átti
enga heitari ósk en að börnum
sínum mætti vegna vel. Eftir
bestu getu munt þú uppfylla þá
ósk Jakob minn. Við ættingjar
þínir og vinir, sem viljum sýna
samúð okkar og veita aðstoð, finn-
um svo átakanlega til vanmáttar-
ins.
Blessuð sé minning Jóhönnu
Gunnbjörnsdóttur.
Jóhann Klausen.
Timburhús til sölu
Viljum selja timburhús 9x36 ferm. Húsið er vel byggt hentugt sem
sumarbústaður o.fl.
Húsið stendur við verksmiðju okkar við Sundahöfn, og er til sýnis hjá
verkstjóra.
Óskum eftir tilboði í húsið.
Mjólkurfélag Reykjavíkur.
Stór-rýmingarsala
I. VEFNAÐARVÖRUR
Sumarkjólaefni verð frá kr. 250.-
Jersey efni verð frá kr. 200 - pr.m.
ULLAREFNI, verð frá kr. 350 -
II. VEGGKLÆÐNINGAR
Hessian, margir litir, verð kr. 1 70 ferm.
Allskonar veggklæðningar, þykkar og þunnar. Verð
kr. 1 00.—— 200.- pr. ferm. eftir gerðum.
íiT"peysur"ö".fl7
Dömupeysur frá kr. 100. — Dömuvesti kr. 600.-.
— Barnaúlpur frá kr. 1500.-. — Dömujakkar kr.
1 500.-. — Pils kr. 800.-. — Síðbuxur kr. 950.-.
Sérstakur 10% afsláttur af sængum,
koddum og sængurfatnaði
■v1
M
Vörumarkaðurinnhf.
ÁRMÚLA 1A, SÍMI 861H REYKJAVÍK.