Morgunblaðið - 28.06.1974, Side 1

Morgunblaðið - 28.06.1974, Side 1
40 SIÐUR 109. tbl. 61. árg. FÖSTUDAGUR 28. JUNl 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Þessi mynd, sem Ó1.K.M. tók á útifundinum í gær, sýnir hluta fundarmanna á hinum glæsilega útifundi sjálfstæðismanna, & ' 1 1\ ! i WM riH Jl* m ÉiJ i s I llffllPPi D ~~ IppL®* ifuyibðdLil Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins á geysifjölmennum útifundi á Lækiartorgi: 9 í lok ræðu sinnar á geysifjölmennum útifundi sjálfstæðis- manna, sem haldinn var á Lækjartorgi síðdegis í gær í fögru veðri, sagði Geir Hallgrímsson formaður Sjálfstæðisflokksins: „Sundruð og sundurlaus vinstri öfl ráða ekki við lausn vandans. Reykvíkingar skildu það og sýndu í borgarstjórnar- kosningunum. í alþingiskosningunum munu Reykvíkingar ekki síður ganga á undan öðrum landsmönnum með góðu fordæmi og efla Sjálfstæðisflokkinn. Trúir þeirri arfleifð, sem feður Reykjavíkur hafa skilað borgarbúum og landsmönnum öllum í hendur til varðveizlu og ávöxtunar, munu Reykvíkingar fylkja liði og eiga samleið á sunnudaginn kemur til að tryggja sjálfstæði landsins, frelsi einstaklinganna og lýðræðið í landinu." 4) Hinum glæsilega útifundi sjálfstæðismanna lauk með þessum orðum borgarstjórans í Reykjavík, Birgis ísl Gunnars sonar, sem var fundarstjóri á útifundinum: „Þúsundir Reyk- víkinga hafa safnazt saman hér á Lækjartorgi í dag á þennan útifund Sjálfstæðisflokksins. Það var bjart yfir borginni í dag — og ég finn, að það er hugur í þeim borgarbúum, sem hér eru saman komnir. Við skulum öll, sem hér erum, ungir sem gamlir, karlar og konur, hver á sinum vettvangi leggja allt af mörkum, sem við megum, til að hrinda af okkur vinstri óstjórninni og vinna að glæsilegum sigri Sjálfstæðisflokksins. Það getum við, og ef við leggjumst öll á eitt, þá verður bjart yfir íslandi á mánudag." Hér fer á eftir ræða Geirs Hallgrimssonar á útifundinum: Vi8 erum staddir t stórum fundar sal á kærum stað, þar sem hjarta Reykjavíkur slær. Yfir okkur hvelfist sá himinn og umhverfis er sá fagri fjallahringur, sem fyrsti faðir Reykjavíkur, Ingólfur Arnarson, leit fyrir ellefu hundruð árum. Þeim Vtfli og Karla, sem fundu öndvegissúlurnar, fannst Ittið til bæjarstæðisins koma og sögðu: „Til ills fórum vér um góð hóruð, er vér skulum byggja utnes þetta." En margt er stðan breytt t aldanna rás fyrir kynslóðanna starf. Nú þykir hvort tveggja guðleg for sjón og mannleg forsjálni vel hafa ráðið fyrsta bæjarstæði landsins. Annar faðir Reykjavfkur, Skúli Magnússon fógeti, lagði grundvöll að atvinnulffinu t bænum og barðist fyrir frjálsri verzlun. Það var upphaf þéttbýlismyndunar, fólksfjölgunar og lifskjarabóta. Þriðji faðir Reykjavíkur, Jón Sigurðsson, sem við Íslendingar eig- um stjómarfarslegt sjálfstæði okkar mest að þakka, réð úrslitum um. að Alþingi fslendinga yrði háð hér og staðfesti þannig hlutverk Reykja- vtkur sem höfuðborgar landsins. Nú á 1100 ára afmæli fslands byggðar göngum við til alþingiskosn- inga. Atkvæði okkar getur ráðið úrslit- um um það, hvort tryggt verði I framtíðinni tilkall okkar fslendinga einna til landsins, sem við byggjum t samræmi við arfleifð fyrsta land- námsmannsins. Atkvæði okkar getur ráðið úrslit- um um það, hvort landið verði varið t þeim tilgangi, að stjórnarfarslegu sjálfstæði þess sé borgið í samræmi við hugsjónir Jóns Sigurðssonar. Atkvæði okkar getur ráðið úrslit- um um það, hvort frjáls verzlun og atvinnufrelsi fái notið sfn t samræmi við baráttu Skúla fógeta. Saga Reykjavfkur sýnir, að vöxtur og viðgangur borgarinnar og velltðan borgarbúa byggist á stjórnarfarslegu sjálfstæði þjóðarinnar og atvinnu- frelsi einstaklinganna. Framtak einstaklinganna og félagssamtaka þeirra hefur byggt þessa borg. Sjálfstæðisflokkurinn hefur borið gæfu til að skilja þetta og skapa þau skilyrði. að einstaklingarnir fái notið hæfileika sinna sjálfum sér og heild- inni til hagsbóta samfara þeirri félagslegu samhjálp, sem nauðsyn- leg er öldruðum, öryrkjum og þeim, sem fyrir áföllum verða. Þetta er skýringin á þvi, að Reyk- vtkingar hafa áratugum saman falið sjálfstæðismönnum forsjá sinna mála. Þetta eru rök fyrir þvi, að lands- menn feli Sjálfstæðisflokknum einn- ig forustu f landsstjórn. Verði vinstri stjórn mynduð á ný eftir kosningar verða atvinnufrelsi og frjáls verzlun drepin f dróma. Styrkja- og uppbótakerfi verður inn- leitt með þeirri spillingu. sem þvf er samfara Höft og hömlur verða leidd Framhald á bls. 39

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.