Morgunblaðið - 28.06.1974, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 28.06.1974, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 1974 3 Frambjóðendur Framsókn- ar hér vilja óvarið land — segir Ingólfur Jónsson í sam- tali um kosn- ingabaráttuna í Suðurlands- kjördæmi 1 STUTTU samtali við Morgun- blaðið um hádegisbilið I gærdag sagði Ingólfur Jónsson, að greini- legt væri, að fólkið f Suðurlands- kjördæmi hefði þungar áhyggjur af þjóðmálum, glundroða I efna- hagsmálum og fyrirhyggjuleysi og ábyrgðarleysi rfkisstórnarinn- ar í varnarmálum. Fólkið vill at- vinnuöryggi. Til þess þarf trausta stjórn og fólkið veit, að Sjálf- stæðisflokkurinn einn getur veitt hana eins og sakir standa. — Þegar við inntum Ingólf eft- ir þvf, hvernig kosningabaráttan hefði gengið fyrir sig í Suður- landskjördæmi sagði hann: — Jú þessi kosningabarátta hefur farið fram með hefðbundn- um hætti. Við höfum haldið fundi eins og venjulega og þeir hafa verið ágætlega sóttir og fólk hef- ur einnig fylgzt með útvarpi frá þessum fundum. Kjósendur hér hafa greinilega þungar áhyggjur af þjóðmálum, glundroðanum og óstjórn efna- hagsmála og ekki sízt fyrirhyggju- leysi og ábyrgðaleysi ríkis- stjórnarinnar í varnarmálum. — Hvaða afstöðu hafa fram- bjóðendur Framsóknar á Suður- landi til varnarmálanna? — Þrír efstu menn á lista Fram- sóknarflokksins hafa allir lýst þeim vilja sínum, að landið verði óvarið. Þeir vilja varnarliðið burt og segja, að nú sé svo ákaflega friðvænlegt í heiminum. — Er landhelgismálið mikið rætt f rótgrðnum landbúnaðar- byggðum á Suðurlandi? — Jú, það hefur verið talsvert rætt. Sjálfstæðisflokkurinn hefur einn markað skýra stefnu að þvf er varðar 200 sjómílna fiskveiði- lögsögu. Á hafréttarráðstefnunni eru 50 sjómílurnar ekki til um- ræðu. Þar er rætt um 200 sjó- mflna efnahagslögsögu. — Unga fólkið virðist vera óánægt með rfkisstjórnina. Verð- ur þú var við þessa óánægju I þfnu kjördæmi? — Já, hún fer ekki framhjá neinum. Unga fólkið, sem er að koma þaki yfir höfuð sér þarf ekki einungis að bíða eftir útborg un lána mánuðum saman, heldur fær það nú hlutfallslega miklum mun minna lánað en í tíð við- reisnarstjórnarinnar. Og nú hafa lánskjörin verið þyngd til muna. Síðustu ákvarðanir rfkisstjórnar- innar í þeim efnum þýða að raun- verulegir vextir af húsnæðismála- stjórnarlánum verða 17 til 20%, ef verðlagsþróunin heldur áfram eins og verið hefur. Lán úr Stofnlánadeild landbún- aðarins hafa einnig dregizt saman og lánskjör versnað vegna vísi- tölutryggingar. Ungir bændur eiga þvf erfiðara um vik að hefja búskap og reisa ný hús en áður var. — Ölafur forsætisráðherra nýt- ur þá ekki almenns trausts á Suðurlandi? — Nei, ég held að það sé af og frá. Fólkið gerir sér fyllilega grein fyrir, að hann hefur misst öll tök á stjórn efnahagsmálanna. Hann lét ekki ljúka fyrstu um- ræðu um frumvarpið um viðnám gegn verðbólgu. Hann vissi ein- faldlega, að um það var ekki sam- staða innan ríkisstjórnarinnar, og í raun réttri var þar alls ekki gripið á vandanum af þeirri festu, sem nauðsynleg er. Þetta vildi hann ekki, að kjósendur fengju að vita. Þess vegna valdi hann þann kost að rjúfa þing. Fólkið sér í gegnum svona vinnubrögð. — Telur þú, að Sjálfstæðis- flokkurinn vinni á f kjördæminu? — Ég er hvorki bjartsýnn né svartsýnn, og ég spái aldrei um úrslit kosninga. Það fer bezt á því að láta atkvæðin tala, þegar þar að kemur. Andstæðingarnir eru sundraðir innbyrðis, en þeir eru sameinaðir í baráttunni gegn Sjálfstæðisflokknum. Við treyst- um hins vegar dómgreind fólks- ins. Kjósendur eru ekki jafn flokksbundnir og oft áður. Fjöld- inn gerir sér grein fyrir því, að nú verður að skipta um stjórn. Fólkið vill atvinnuöryggi. Til þess þarf trausta stjórn og mönnum er ljóst, að Sjálfstæðisflokkurinn einn getur veitt hana eins og sakir standa. Ingólfur Jónsson: Fólkið veit, að Sjálfstæðisflokkurinn einn getur veitt sterka stjórn eins og sakir standa. Hvernig Þjóðviljinn talar virV nnga fólkifl Asta Briem, nemi: Ég veit ekki, þaö er erfitt að spá. En ég vona aft þaft verfti vinstri stjórn. Og ég tek fram, aft ég vil alls ekki stjórn Framsóknar og Sjálfstæftis- flokksins. — Heldur Sjálfstæftisflokk- urinn fylginu frá bæjár- og sveitarstjórnarkosningunum? — Nei, þaft er af og frá. Og ég held aft augu fólks opnist m.a. vegna hinna fáránlegu ofsókna vl-manna. Úrklippan hér að ofan birtist á 1 3. slðu Þjóðviljans I gær I myndskreytt- um uppsláttarramma með „viðtöl- um" við ungt fólk. Ásta Briem, sem er nemandi I MR, hafði samband við Morgun- blaðið i gærmorgun og óskaði að koma eftirfarandi á framfæri: Ásta Briem Á miðvikudaginn var hitti ég niðri á Laugavegi skólafélaga minn, Gunnar Stein Pálsson, sem mun starfa við Ijósmyndun á Þjóðvilj- anum Hann var þar I fylgd með manni, sem ég þekki ekki. Við Gunnar tókum tal saman, og meðal annars, sem á góma bar I þvt sam- tali, voru kosningarnar á sunnudag- inn. Þegar ég bjóst til að halda áfram ferðinni, sagði fylgdarmaður Gunnars við hann: „Taktu mynd af henni", en ég sagði, að hann skyldi ekkert vera að þvl, vegna þess að hann gæti hvort sem er ekki haft neitt gagn af mér I Þjóðviljanum, — ég væri hægri manneskja og vildi endilega fá hægri stjórn eftir kosn- ingar. Ég vil, að það komi skýrt fram, að það eina, sem er sannleikanum sam- kvæmt I Þjóðvilja-klausunni erfyrsta setningin, þar sem ég segi. að erfitt sé að spá Hvert einasta orð af þvl, sem mér hefur verið lagt I munn þarna I Þjóðviljanum er hreinn upp- spuni og ósannindi." Síðan sagði Ásta: „Það er kannski ágætt að geta þess I leiðinni, að þvl miður hef ég ekki enn öðlast kosningarétt, en ef ég hefði tækifæri til þá myndi ég hiklaust Ijá Sjálfstæðisflokknum fylgi mitt, og ég er raunar sannfærð um, að hann sigrar I þessum kosn- ingum. Vinstri öflin hafa verið býsna iðin við að halda þvi fram, að þorri ungs fólks sé vinstrisinnað, en það tel ég vera fjarstæðu. Það getur verið fróðlegt að sjá, hvernig vinnubrögð Þjóðviljans eru þegar kosningaáróðurinn er annars vegar, og hér hefur þeim aldeilis orðið á I messunni," sagði Ásta að lokum. Vinstri samvinna í verki Lúðvfk Jósepsson: Samþykkti „úrslitakosti“ Breta gegn þvf, að Ólafur og Einar féllust endanlega á kröfuna um. brott- vfsun varnarliðsins. FORMAÐUR þingflokks Fram- sóknarflokksins upplýsti fyrir skömmu, að ráðherrar Alþýðu- bandalagsins hefðu fyrst og fremst notað landhelgisút- færsluna til þess að ala á úlfúð f garð Atlantshafsbandalagsins og plægja með þvf móti jarð- veginn fyrir brottför varnar- liðsins. Lúðvík: NATO styður Breta Eftir flotaíhlutun Breta f fslenzka fiskveiðiiögsögu f maf 1973 hélt Lúðvfk Jósepsson þvf fram, að Atlantshafsbandalagið styddi við bakið á Bretum f aðgerðum þeirra. I framhaldi af þvf var krafizt tafarlausrar brottvfsunar varnarliðsins. Einar: NATO styður ísland Einar Agústsson svaraði Lúð- vík 7. júnf 1973: „Ég hef ekki viljað halda uppi gagnrýni á NATO-ráðið enn þá, vegna þess að ég veit, að þeir hafa verið að reyna að fá Bretana til þess að fara með herskipin út fyrir.“ Hannibal: Ráð Lúðvíks eru ógæfa t lok júnfmánaðar 1973 sagði Hannihal: „Það væri ógæfa ts- lendinga, ef landhelgismálinu og afstöðunni til NATO væri blandað saman.“ Ólafur: Ráð Lúð- víks ekki lausnin A afmælisdegi rfkisstjórnar- innar sagði Ólafur Jóhannes- son: „Ursögn úr Atlantshafs- bandalaginu greiðir ekki fyrir brottför flotans." Lúðvík: NATO hernaðaríhlutun t júlf sagði Lúðvfk Jóseps- son: „Brezku herskipin eru hér með þegjandi samkomulagi annarra NATO rfkja.“ Ólafur: Tökum ekki við sjúkum og særðum Þegar komið var fram í september 1973, sagði forsætis- ráðherra: „Nú verður þvf að- eins tekið á móti sjúkum og særðum brezkum sjómönnum, að skip það, sem viðkomandi er skrásettur á, flytji hann til lands.“ Björn: Tökum við sjúkum og særðum Björn Jónsson svaraði for- sætisráðherra: „Það er skoðun ráðherra SFV, að það eigi án allra skilyrða að aðstoða sjúka menn og slasaða.... Við stöndum ekki f strfði við brezka sjómenn.“ Lúðvík: NATO fordæmir ekki í september sendi Alþýðu- bandalagið bréf til Luns: „Stofnanir Atlantshafsbanda- lagsins hafa ekki einu sinni séð ástæðu til að fordæma hernaðaraðgerðir Breta.“ Ólafur: NATO fordæmir Ólafur svaraði ráðherra sfnum um hæl: „Við vitum af þvf, að framkvæmdastjóri NATO og önnur rfki þar hafa sýnt mikinn áhuga á þvf undan- farna daga að fá Breta til þess að draga herskipin út fyrir 50 mflurnar." Magnús: Semjum við Breta ef herinn fer I nóvember 1973 hafnaði þingflokkur Alþýðubandalags- ins samningsdrögum við Breta sem óaðgengilegum úrslita- kostum. Kommúnistar létu þó undan, þegar á hólminn var komið. Skýringin kom fram f fréttabréfi Alþýðubandalags- ins mánuði sfðar: „Eftir að Framsóknarflokkurinn hefur á þennan hátt þvingað fram samninga við Breta gegn hörð- um mótmælum Alþýðubanda- lagsins, ætti forsætisráðherra að vera ljóst, að ekki þýðir að bjóða samning við Bandarfkja- menn, sem ekki uppfyllir ákvæði stjórnarsáttmálans um brottför hersins.“ Ólafur og Einar: Herinn fer Framsóknarflokkurinn gekk að kröfu kommúnista gegn stuðningi þeirra við Iandhelgis- samningana. Mánuði eftir að fréttabréf Alþýðubandalagsins Einar Ágústsson féllst á kröfur Magnúsar og Lúðvfks um brott- för varnarliðsins gegn þvf, að þeir samþykktu landhelgis- samninginn við Breta. kom út sagði Steingrfmur Her- mannsson: „£g vil leysa þetta mál á þann hátt, að herinn farí og núverandi rfkisstjórn sitji.“ Eftir sfðustu áramót lagði Einar svo fram tillögur um brottför varnarliðsins, sem kommúnistar gengu að. Þannig tókst ráðherrum Alþýðubandalagsins að nota landhelgismálið og veiklund- aða forystu Framsóknarflokks- ins til þess að knýja fram kröf- una um brottför varnarliðsins. — Þetta er vinstra samstarf f verki.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.