Morgunblaðið - 28.06.1974, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNt 1974
7
sprang
Eftír
Arna Johnsen
Að efla
tón
r
Islands
Ljóðskáld lásu upp Ijóð sln við
mjög góðar undirtektir og góða
aðsókn á Kjarvalsstöðum. Á
myndinni er Kristinn Reyr að lesa
upp, en Ási í Bæ er til hægri.
ÞEIR fjölmörgu menn úti á lands-
byggðinni, sem ár hvert vinna að
margs konar menningarstarfsemi
og uppbyggingarstarfi i félagsmál-
um og listum eru ekki oft í sviðs-
Ijósinu.
Þetta starf er unnið þannig, að
það er eins og hluti af umhverfinu
á hverjum stað, en svo þegar á
reynir, r!s það eins og gafl úr
mannlífinu og gerir tilefnið að
hátíð. Þetta fólk, sem yfirleitt fell-
ur ekki inn i neina sérhagsmuna-
hópa, stækkar fsland með starfi
sinu og laðar fram eiginlegan tón
okkar menningar.
Oft á tiðum hefur það verið
lenzka hér að hneigja sig fyrir
hvaða erlendum listatilþrífum,
sem sjást hér og gleyma þvi, að
við eigum okkar eigin menningu
til að hlúa að og styrkja með þvi
að veita henni rás i daglegu lifi
þjóðarinnar.
Minna má nú gagn gera en
hossa hverjum útlendingi sem i
garð kemur, bara vegna þess að
hann er útlendingur. Kurteisi er
allt annað og i því efni skulum við
ekki gefa höggstað á okkur, þvi að
auðvitað getum við svo margt lært
af öðrum og við verðum að gæta
þess að nota alla möguleika til að
kynnast því bezta, sem völ er á.
Listahátiðin er gott dæmi um
þetta, en við verðum umfram allt
að gæta þess að efla okkar eigin
menningu, okkar eigin tón. Það
*gerum við bezt með því að sýna
áræði og athafnir, þar sem áherzl-
an er lögð á sérkenni og fas ís-
lenzks þjóðlifs.
Nú á þjóðhátiðarárinu hefur
þessi hljóðláti styrkur okkar kom-
ið vel upp á yfirborðið. Um allt
land er mergð fólks, sem hefur
lagt mikla vinnu i að undirbúa
vegleg hátiðarhöld i tilefni þjóð-
hátiðarársins. Margir hafa haft á
orði. að allt of mikið sé af þessum
hátiðarhöldum, en auðvitað eigum
við að halda hátið þegar tilefni er
til þess. Hátiðir eru nauðsynlegar
öliu fólki og öllum þjóðum. Þá
lyftum við okkur upp úr hvers-
dagsþrasinu og það verkar
hvetjandi á allt venjulegt fólk. Til-
efnið kallar á sköpun á sviði lista
og mannlifs og það verður okkar
gróði á slikum hátíðum. Það er
smiði. sem við megum ekki láta
liggja í láginni þótt við mælum
hana ekki I rúmmetrum eða röð-
um upp í hagskýrslur, þar er um
sál þjóðarinnar að ræða.
Að undanförnu höfum við heyrt
um tilþrif fólks i öllum landshlut-
um og hvarvetna eru fréttir af þvi
að til sóma sé. Þúsundir lands-
manna hafa lagt hönd á plóginn í
söng, íþróttum, dansi, ýmis konar
listasýningum og fleira og fleira.
tg tel mikinn styrk fyrir byggðir
landsins að halda slikar hátiðir á
heimaslóðum, en mér finnst und-
arlegt hvað sumir eru að hrópa, að
ekki sé hægt að halda þær, vegna
þess að það sé svo mikil hætta á
drykkjuskap og skammarlegu at-
hæfi. Hægt er að treysta íslend-
ingum miklu betur en svo. þvl að
þegar vel er vandað til má treysta
þvi, að fólk fer vel með. Þetta
hefur lika sannazt á þeim hátíð-
um, sem þegar hafa verið haldnar.
Þó tel ég mistök að halda ekki
veglegri hátið fyrir allt landið á
Þingvöllum. Tveggja til þriggja
daga vel skipulögð hátið hefði get-
að orðið sú glæsilegasta i sögu
landsins, ef veður hamlaði ekki
um of, en ekki tjáir fyrir okkur að
hætta við slikt vegna þess mögu-
leika.
Fólk á öllum aldri hefur lagt
hönd á plóginn, elztu menn og
þeir yngstu. Til dæmis var mjög
ánægjulegt að hlusta á unga fólk-
ið i Hliðaskóla flytja sina þjóð-
hátiðardagskrá. Ekkert hef ég
heyrt frá yngsta fólkinu, sem sýnir
eins vel hvaða efnivið við eigum I
landinu.
Einnig má nefna nýtt verk,
söngmessu, sem flutt var á presta-
stefnu í Reykjavik, eftir séra Hauk
Ágústsson á Vopnafirði. Verkið
heitir Þjóðin og sagan I 1000 ár.
Tónar og tal voru eftir séra Hauk.
Kór Garðakirkju flutti verkið. en
höfundur lék undir. Var gerður
mjög góður rómur að þessu verki,
sem þykir nýtizkulegt i sniðum.
Höldum þessari stefnu. leggjum
umfram allt áherzlu á að þroska
islenzka tjáningu og islenzkan tón
I menningu og þjóðlifi lands vors.
Ýtum undir, að fólk í þéttbýli sem
strjálbýli leggi sitt af mörkum.
Maður á yztu annesjum getur skil-
að meira en heil rikisstofnun ef
þvi er að skipta. það er ekki spurn-
ing um magn heldur gæði.
Víða um land eru sýningar á listaverkum í tilefni þjóðhátfðarárs. Þessi mynd var tekin á Kjarvalsstöð-
um.
Keflavik Til sölu rúmgóð 4ra herb. ibúð ásamt bilskúr, sérinngangur. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavik, simi 1420. Ytri Njarðvík Til sölu nýtt einbýlishús að mestu fullgert. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavík, simi 1420.
Barnakojur (hlaðrúm) til sölu. Drif ósamansett úr Volkswagen árg. 67 til sölu á sama stað. Upplýsingar í síma 92-6585, eftir kl. 7. Hagstætt verð Bilaloftnet (Fiber með gormi) Töskur og hylki fyrir átta rása spólur. Póstsendi. F. Björnsson Radioverslun Bergþórugötu 2 simi 23889.
Ytri Njarðvik Til sölu 3ja herb. einbýlishús við Borgarveg, laust strax. Hagstæðir greiðsluskilmálar. Fasteignasalan Hafnargötu 2 7 Keflavik, simi 1420. Útihandrið og önnur létt járnsmíðavinna. Fljót afgreiðsla. Stáltæki s.f., Sími 42717.
Vanur bifvélavirki óskar eftir góðri atvinnu sem fyrst. Tilboð sendist Mbl. fyrir miðvikud. 3. júlí merkt „101 9". Bátur til sölu Til sölu er 2,8 tonna opinn bátur með 8 —10 ha dieselvél. I bátn- um er línuspil. Upplýsingar gefur Jón Stefáns- son, Fáskrúðsfirði.
Reiðhjól Ný og notuð reiðhjól til sölu. Reiðhjólaverkstæðið, Norðurveri, Hátúni 4 A. Keflavík Til sölu ódýr 2ja herb. ibúð, sér- inngangur. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavik, simi 1420.
íbúðir óskast. Tveir starfsmenn Æskulýðsráðs Reykjavikur óska að taka 2. ibúðir á leigu. Upp. i sima 1 5937. Til leigu 3ja til 4ra herb. íbúð í Vesturbæn- um. Nafn og símanúmer leggist inn á afgr. Mbl. fyrir hádegi á laugardag merkt: Laus íbúð 5235.
Til sölu Fiat 127 árg. 1973, ekinn ca 29 þús. km. Eldhúsborð og 4 kollar. Upplýs- ingar í síma 1 9847 e. hl. 20.00. Hjólhýsi til sölu. Uppl. i sima 42780.
Ungur maður óskar eftir rúmgóðu herbergi. Upplýsingar i sima 21 673. Ung hjón með eitt barn óska eftir 2ja—3ja herb. ibúð í Kópav. eða Reykjav. Upplýsingar í síma 41 264.
10 lesta bátur til sölu. Útbúinn á dragnót eða rækjutroll. Upplýsingar i sima 96- 71165 eftirkl. 8. Sköfum og hreinsum hurðir Sími 85043 frá kl. 6—8 e.h.
íbúð til leigu í Blikahólum (4 herb.) frá 1. júli. Tilb., sem tilgreini mánaðarleigu o.fl., sendist Mbl., merkt: „1 455". Marks blöðin 52, 55, 61 og 64 m.a.. með uppskriftum af gluggaskrauti. All- ar stærðir af hringjum. Úrval lita af heklugarni. Póstsendum. Hannyrðaverzlunin Erla, Snorrabraut.
Puntuhandklæðin komin aftur gömlu góðu munstrin og tilheyr- andi hillur. Setjum upp flauels- púða. Úrvals Vestur-þýzkt flauel. Póstsendum. Hannyrðaverzlunin Erla FSmnRCFHlDRR I mflRKHfl VDHR
Auglýsing til lyfjaverzlana, sjúkrahúsa og héraðslækna Frá og með 1. júlí 1 974 mun LYF sf. Síðumúla 33 Reykjavík taka við einkumboði á sölu lyfja frá UPJOHN S.A. Belgíu. Frá sama tíma verða lyf frá UPJHN S.A. aðeins afgreidd frá LYF sf. SímÍ 81011 LYF sf Síðumúla 33 Reykjavík Sími 81011.
LOFTPRESSUR GBÖFVR
Leigjum út traktorsgröfur, pressubíla. vélsópara,
traktorsgröfu, og Bröit X 2 gröfu.
Tökum að okkur að grafa grúnna, fjarlægja
uppgröft o.fl. Einnig hverskonar múrbrot, fleyga-
borvinnu og sprengingar.
Kappkostum að veita góða þjónustu, með
góðum tækjum og vönum mönnum.
UERKFRM1U HF
Verktakar — Vélaleiga.
Skeifunni 5 9 86030 og 85085.