Morgunblaðið - 28.06.1974, Side 12

Morgunblaðið - 28.06.1974, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNI 1974 Þór Vilhjálmsson, prófessor: í GREIN hér I blaðinu í gær og I fyrradag gerði ég stuttlega grein fyrir því, sem ég tel mikil- vægast varðandi viljayfirlýs- ingu þjððarinnar um varnar- málin, sem kennd er við Varið land. Eins og flestir vita hafa forgöngumenn undirskrifta- söfnunarinnar nú höfðað meið- yrðamál gegn nokkrum mönn- um. Skal hér rætt um fáein atriði, sem þetta snerta. Hvers vegna var farið í meiðyrðamál? 1 Þjóðviljanum, f nokkrum öðrum blöðum og á Alþingi hafa verið gerðar svo harðar árásir á forgöngumenn Varins lands, að einsdæmi er. Þessar árásir hafa verið I þremur aðal- lotum, og stendur sú þriðja og slðasta enn yfir og snýst um, að við skulum hafa dirfst að fara að landslögum og höfða meið- yrðamál. Miðlotan snerist um vinnuna til að tryggja vandað- an frágang áskorunarskjal- anna. Var þá ranglega fullyrt, að við hefðum misfarið með nafnalistana og beitt tölvu á grunsamlegan hátt, svo að ekki sé meira sagt. Fyrsta lotan stóð yfir I janúar, eftir að undir- skriftasöfnunin hófst. Það skiptir meginmáli, að fólk rifji upp þau orð, sem höfð voru um forgöngumenn Varins lands. Það er að vfsu ekki skemmti- legt að taka þau hér upp, en nauðsynlegt er að minna á nokkur verstu skammaryrðin. Forgöngumenn Varins lands voru m.a. kallaðir í Þjóðviljan- um: hundflatur skrælingjalýður, kanamellur, Bandarfkjaleppar, siðvilltur söfnuður, afturhaldsmangarar, menn, sem ekki geta vakið annað en fyrirlitningu og ógeð hjá hverjum sæmilega siðuðum manni. Þetta voru nokkrar af svæsn- ustu skammaryrðunum. Til við- bótar voru heilar setningar með samhnýttum illyrðum (... „svipmótið á fésunum á þeim á myndinni, sem birtist I Morgunblaðinu á miðvikudag, ætti að segja næga sögu um það, hvers konar tegund er hér að ferð“ ...) og gífuryrtar ásak- anir um misnotkun á trúnaði. Hefur verið fullyrt, að við hefð- um afhent stjórnmálaflokkum tölvugögn, og gefið I skyn, að þau hefðu I upphafi verið unn- in að frumkvæði „fagmanna frá Watergate", enda að fullnuðu verki farið I skjalasafn banda- rísku leyniþjónustunnar. Þess- ar ósönnu aðdróttanir eru margorð'ari en svo, að rúm sé til orðréttra tilvitnana. Ef einhver nennir að líta I Þjóðviljann seint í febrúar og síðar er af nógu lesefni I þessum stil að taka. Þegar hópur einstaklinga verður fyrir rógi eins og þess- um, er um þrennt að ræða: Eitt er að þegja og láta allt sem vind um eyru þjóta. Viljið þið, sem þessar lfnur lesið, láta íslenska þjóðfélagið komast á svo lágt stig, að þannig sé að' farið? Það myndi til dæmis leiða til enn frekari rógsher- ferða síðar og þeirrar fullvissu manna, sem þjóna geði sínu með slíkum skrifum, að allt sé í lagi og engin ástæða til að- gæslu. I annan stað mátti svara I blöðum. Þetta var ófull- nægjandi. I fyrsta lagi var ljóst, að ýmis blöð myndu ekki taka efni frá forgöngumönnum Varins lands. Árangurslausar tilraunir til að fá inni I Tíman- um í janúar sýndu þetta. I öðru lagi lætur Þjóðviljinn ekki af ásökunum, þó að bent sé á hið sanna I þessu máli. Það er margbúið að skýra tölvu- notkunina rækilega, en engu að síður var hert á árásunum út af henni. 1 þriðja lagi er engu að svara nafngiftum eins og þeim, sem taldar eru upp hér á und- an. Þessi leið var því ekki full- nægjandi ein út af fyrir sig. Loks mátti fara I meiðyrðamál. Þessa leið töld- um við, sem beittum okkur fyr- ir undirskriftasöfnun Varins lands, eina fullnægjandi að at- huguðu máli. Þetta er aðferðin, sem landslög heimila og hafa heimilað um margra alda skeið. Þetta er aðferð, sem notuð er I tugum tilvika á ári hverju. Og þetta er aðferð, sem menn úr hópi áköfustu andstæðinga Varins lands hafa sjálfir notað. Að auki mælti það með þessari aðferð, að helst er að vænta, að fyrir dómstólunum komi fram öruggar upplýsingar, sem hnekkja röngum fullyrðingum um misnotkun á undirskrifta- listum og tölvugögnum. Hvers vegna voru málin þing- fest rétt fyrir kosningar? Undirbúningur málssókn- anna tók langan tíma. Hins vegar var óhjákvæmilegt að þingfesta málin fyrir réttarfrí, sem hefst 1. júlí. Astæðan er sú, Málsókn vegna meiðyrða að eftir 29. grein hegningarlag- anna þurfi að höfða mál innan 6 mánaða frá því að hin átöldu ummæli birtust. Hvernig var kröfugerðin ákveðin? Kröfugerð I meiðyrðamálun- um er með venjulegum hætti, en hafa verður I huga fjölda ummælanna og fjölda þeirra manna, sem þau bitnuðu á. Það er hlálegt að telja þessa kröfu- gerð fela I sér „ofsókn". Hvað á hver þeirra 12 manna, sem ekki vilja una nafngiftinni „kana- mella", að fá í miskabætur? Og hvað um allt hitt, móðganir og aðdróttanir? Þessutan er það augljóst, að það eru ekki stefn- endur, sem að lokum dæma um sekt eða sýknu og ákveða sektir og bætur, heldur dómstólarnir. Hvers vegna var ritstjórum Stúdentablaðsins stefnt? í febrúarblaði Stúdentablaðs- ins birtust ummæli, sem há- skólaráð veitti áminningu fyrir. Þessari áminningu var ekki sinnt, heldur var hert á harð- yrðunum. Þvf var og hnýtt við til áhersluauka I blaðinu, að nú kynni að vera tími til kominn að víkja mér og tilteknum starfsbræðrum mfnum frá Há- skólanum. Látum þetta vera. Aðalatriðið er, að vinstri stúdentar eru ekki slík forrétt- ingastétt, að þeir séu undan- þegnir landslögum. Það er einnig fróðlegt að minnast þess, að í sjónvarpsþætti um varnar- málin í vor talaði einn úr þess- um hópi um meiðyrðin um Var- ið land. Virtist hann vilja verja þau á þeim grundvelli, að meið- yrði sem voru óviðkomandi Vörðu landi, en voru um ein- hverja vinstristúdenta hefðu birst f Morgunblaðinu. Auðvit- að skipti þessi vörn engu, en athugum hugsunarganginn að baki henni. Ummælin, sem við var átt, munu vera úr einum Velvakandadálki.Hver voru við- brögð þeirra, sem fyrir þessu urðu? Þeir fóru í meiðyrðamál við Morgunblaðið. Og nú hneykslast Þjóðviljinn á því, að forgöngumenn Varins lands skuli fara í meiðyraðmál, ekki vegna ummæla í lesendadálki í eitt sinn, heldur út af rógsher- ferð sem staðið hefur í margar vikur. Þetta er jafnréttishug- sjón í lagi. Hefur verið ráðizt gegn tjáningarfrelsinu? Það er mitt álit, að það sé illa samrýmanlegt virðingu fyrir tjáningarfrelsi í landinu að ráð- ast gegn undirskriftasöfnun með því ofstæki, sem ráðist hefur verið gegn Vörðu landi í Þjóðviljanum og víðar. Með þvf að kalla menn eftir á til ábyrgð- ar fyrir hlut þeirra í rógsher- ferðinni er ekki verið að vega að tjáningarfrelsinu heldur að halda uppi merki þeirra, sem vilja hafa siðað þjóðfélag á Is- landi. Sýnishorn af kjörseðli við Alþingiskosningar í Reykjavik 30. júní 1974 A B xD F G K N R UkU listi Usti listí listi Hsti lifl listt Alþýðuflokksins Framsóknarflokksins SjálfstæóisflokkKÍns Samtaka frjálslyndra AlþýðubaodalaRsins Kommúnistasamtakanna Lýðræðisflokksins Fylkingarinnar og vinstri manna marxistanna - leninistanna Baráttusamtaka sósialista 1. Gytfl Þ Glslason 1. Þórarinn Þórarlnsson 1. Gcii Hallgrímsson 1. Magnús Torfi ólafsson 1. Magnús KJartansson 1. Gunnar Andrésson 1. Jörgen Ingi Hansen 1. Ragnar Stefánsson 2. Eggcrt G. Þorsteinsson 2. Elnar Ágústsson 2. Gunnar Thoroddsen 2. Kristján Thorlacius 2. Eðvarð Sigurðsson 2. Sigurður Jón OlafsBon 2. Einar G. Harðarson 2. Haraldur S. Blöndal 3. Björn Jönsson 3. Sverrlr Bergmann 3. Ragnhildur Helgadóttir 3. Baldur óskarsson 3. Svava Jakobsúóttir 3 Ari Guðmundsson 3. Biraa Þórðardóttlr 4. Eyjóifur Slpurösson 4. Kristján Friðriksson 4. Jóhann Hafstein 4 Kristbjörn Arnason 4. Vilborg Harðardóttlr 4. Alda Björk Marinósdóttir 4. Rún&r Sveinbjörasson 5. Helga Einarsdöttlr 5. Hjálmar W. Hannesson 5. Pétur Sigurðsson 5. Rannveig Jónsdóttír 5. Sigurður Magnússon 5. Kristján Guðlaugsson 5. Sveinn R. Hauksson 6. Slguröur Jðnsson 6. Jónas R. Jónsson 6. Ellcrt B Schram 6. Guðmundur Bergsson 6. Þórunn Klemensdóttir Thors 6 Jón Atli Játvarðsson 6. Njáll Gunnarsson 7. Helgi Skúll Kjartanason 7. Guðný l^axdal 7. Albcrt Guðmundsson 7. Njörður P. Njarðvík 7. Sigurður Tómasson 7. Astvaidur Astvaldsson 7. Ólafur Gislason 8 Nanna Jónaadóttir 8. Ásgeir Eyjólfsson 8. Guðmundur H. Garðarsson 8. Þorbjörn Guðmundsson 8. Jón Timóteusson 8. Hnlldóra Gisladóttir 8. Daniel Engllbertsson 9. Björn VUmundaraon 9. Krlstin Karlsdóttir 9 Geirþrúður H. Bernhöft 9 Jón Sigurðsson 9 Rcynir lngibjartsson 9. Gústaf Skúlason 10. VaJborg Böövarsdöttlr 10. HJálmar Vilhjálmsson 10. Gunnar J. Friðriksson 10. Gyða Sigvaldadóttir 10. Stella Stefánsdóttir 10. Konráð Brelðfjörð Pálmason 10. Þröstur Haraldssson 11. Jens SumarliSason 11. Hanna Jónsdóttir 11. Kristján J. Gunnarsson 11. Sigvaldi Hjálmarsson 11. liagnar Geirdal Ingólfsson 11. Hjálmtýr Heiðdal 12 Emilia Samúelsdóttlr 12. Gísli Guðmundsson 12. Aslaug Ragnars 12. Baldur Kristjánsson 12. Ingólfur Ingólfsson 12. Kagnar Lárusson 13. J6n AgúsLsaon 13. Böðvar Steinþórsson 13. Gunnar Snorrnson 13. Pétur Kristinsson 13. Elisabet Gunnarsdóttir 13. Ingibjörg Einarsdóttir 14. Agúat GuAmundsson 14. Fríða Björnsdótttr 14. Þórir Einarsson 14. Sigurður Guðmundssoi. 14. Gunnar Karlsson 14. Jón Carlsson 14. Berglind Gunn&rsdóttlr 15. HörOur öskarason 15. Ingþór Jónsson 15. Halldór Kristinsson 15. Asa Kristín Jóhannsdóttir 15. Guðrún Hailgrímsdóttir 15. Magnús Eiriksson 16. Erla Valdimarsdóttir 16. Jónas Guðmundsson 16. Karl Þórðarson 16. Höskuldur Egilsson 16. Rúnar Backmann 16. Guðrún S. Guðlaugsdóttir 16. öra ölafsson 17. Eggert Knatinsson 17. Jón Snæbjörnsson 17. Bergljót Halldórsdóttir 17. Þorsteinn Henrýsson 17. Ragna ólafsdóttir 17. Sigurður Ingi Andrésson 17. Eiríkur Brynjólfsson 18. Maríaa Sveinsson 18. Friðgeir Sörlason 18. Gunnar S. Björnsson 18. Aðalsteinn Eiríksson 18. Sigurður Rúnar Jónsson 18. Þórarinn ólafsson 19. KArí Ingvarsson 19 Páll A. Pálsson 19. Sigurður Þ. Arnason 19. Gísli Helgason 19. Hildigunnur ólafsdóttir 19. Ólöf Baldursdóttir 19. Pétur Tyrfingmon 20. Bjarnl VilhjAlmsson 20 Pétur Sturluson 20. Sigurður Angantýsson 20. Gunnar Gunnarsson 20. Helgi Arnlaugsson 20. Skúli Waldorff 20. Magnús Elnar Sigurðsson 21. Slguríhir E. Guflmundsson 21. Elnar Bimlr 21. iiagnhciður Guðmundsdóttir 21. Hafdis Hunnesdóttlr 21. Sigurjón Rist 21. Gestur Ásólfsson 21. Vilborg Dagbjartsdóttir 22. Sigfús Bjarnason 22. Jón Helgason 22. Jónas Jónsson 22. Björn Teitsson 22. Guðrún Asmundsdóttir 22 Guðmundur Magnússon 22. Jón Steinsson 23. Jónina M Guðjónsdóttir 23. Krlstlnn Stefánsson 23. Biigir Kjaran 23. Alfrcð Gíslason 23. Björn Bjarnason 23. Eirikur Brynjólfsson 23. Jón ölafsson 24. StefAn J6h. Stefánsson 24 Sólvelg Eyjólfsdóttir 24 Auður Auðuns 24. Margrét Auðunsdóttir 24. Einar Olgeirsson 24. Björn Grímsson 24. Margrét Ottósdóttlr bannig lítur kjörseðillinn út, þegar D-listinn — listi Sjálfstæðisflokksins — hefur v**rið kosinn með því að krossa fyrir framan D.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.