Morgunblaðið - 28.06.1974, Page 13

Morgunblaðið - 28.06.1974, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNI 1974 13 Jakob V. Hafstein: Hreinn meirihluti þióðarnauðsyn Einhverjar hinar þýðingar- mestu kosningar til Alþingis, sem efnt hefur verið til f rúmlega 40 ár, standa nú fyrir dyrum. Hinn 30. júnf næstkomandi geta kjðsendur falið einum flokki — og aðeins einum flokki — Sjálf- stæðisflokknum — að fara með hreint meirihlutavald á Alþingi næsta kjörtfmabil — og þar með varpað fyrir borð þeim hvimleiða þjóðarósið hrossakaupa rfkis- stjórna, sem rfkt hefur hér á landi f rúmlega 4 áratugi, og valdið hefur okkar fámennu þjóð ólýsanlegu tjóni. Nýafstaðnar sveitarstjórnar- kosningar benda ótvírætt f þá átt, að svo muni að öllum líkindum fara. Kjósendur hafa á mjög sann- færandi hátt fordæmt þá spillingu, svika- og klofningsstarf- semi, sem ríkir innan hinna svo- nefndu vinstri flokka f landinu og fyrrverandi stjórnarflokka, sem sökkt hafa landi og þjóð niður f ómælanlegt fen stjórnleysis og fjármálaspillingar, þar sem kommúnistar hafa ráðið ferð- inni og notað duglitla forystu- menn Framsóknarflokksins f þessari óbeinu byltingarstarfsemi sinni. Stefnuleysið og úrræðaleysið blasir við f varnar- og sjálfstæðis- málum þjóðarinnar; efnahags- málin eru í dýpsta öngþveiti; málefni vinnandi stétta á barmi glötunar; landhelgismálið óleyst; hnútukastið, svikin og launmorðs- iðjan f algleymingi innan vinstri flokkanna, sem hrökkluðust frá völdum áður en kjörtímabili lauk af framangreindum orsökum. Enginn sannur Islendingur og ættjarðarvinur getur með góðri samvizku ljáð atkvæði sitt til þess, að hin sundurþykku, óþjóðlegu og ólýðræðislegu öfl flokksbrotanna til vinstri fái fótfestu og stjórnar- aðstöðu á Alþingi íslendinga í framtíðinni. Hugarfarsbreyting hjá fólkinu í landinu er greinileg, til að bæja frá landi og þjóð hinum geigvæn- lega vinstri voða. Sú alda, sem risin er, mun ná hámarki hinn 30. júnf næstkom- andi og þrátt fyrir stórgallaða kjördæmaskipan og rangláta i fyllsta máta, eru samt augljósir og mjög svo líklegir möguleikar á því, að kjósendur geti nú veitt Sjálfstæðisflokknum hreint meirihluta umboð á Alþingi til að stjórna landinu af festu og með ábyrgðartilfinningu næsta kjör- tímabil. Þessu marki er auðvelt að ná á eftirfarandi hátt: 1. Með því að fella utanrfkisráð- herra f Reykjavík, sem í varnar- og sjálfstæðismálum þjóðarinnar hefur sýnt meira ráðleysi og stefnuleysi en dæmi eru til og þjónkað kommúnistum í þeim efnum á hinn ógeðfelldasta og ósmekk- legasta hátt, sem hugsazt getur. 2. Með því að fella „bræðings- mann“ smáflokkanna til vinstri í Vestfjarðarkjör- dæmi, manninn, sem við stjórnaruppgjöfina á Alþingi veittist sem harðast að forystusauði Frjálslyndra og vinstri nú — Magnúsi Torfa — sem enga möguleika hefur til að ná kosningu í Reykjavík — manninn, sem síðar skreið undir pilsfald Magnúsar og Möðruvellinga með Helga Sæm & Co sem blóm í hnappa- gatinu. 3. Með því að útiloka kosningu smáflokkabrotanna og full- trúa þeirra á Alþingi, og forða þar með því, að uppbótarþing- sætin komi þeim að notum. 4. Með því að berjast öflugri og harðsnúinni baráttu gegn kommúnistum, sem í íslenzk- um stjórnmálum dylja sig með nafni Alþýðubandalags- ins og segja þeim þar með í eitt skipti fyrir öll: Kommúnistar aldrei f rfkis- stjðrn tslands. Það er skylda hvers hugsandi kjósanda og þess manns eða konu, sem nefnast vilja sannir ís- lendingar, að fara þannig með at- kvæði sitt á kjördegi, að það verði til gagns, þeim til sóma og landinu til heilla. Hvert atkvæði, sem á kommúnista og fylgifiska þeirra fellur, ætti að verða ónýtt atkvæði. Jafnframt skyldu menn hafa það í huga, að maddama Fram- sókn mænir vonaraugum enn til þessara stjórnenda sinna — það sýndi hún nýlega með myndun meirihluta aðstöðunnar í bæjar- stjórn Akureyrar. Þess vegna þarf Framsókn að fá þá ráðningu við kjörborðið hinn 30. júní, að hún verði dæmd fyrir villu síns vegar í sambræðslunni við kommúnista. Kjósendur munu sjá til þess. Líf er á öðrum stjörnum heitir lítil og snotur bók, sem komin er út fyrir skömmu, og er Þorsteinn Guðjónsson höfundur hennar. Ég hefi vfst oftar en einu sinni komizt svo að orði varðandi Nýal dr. Helga Pjeturss, að hann hafi komið mér sem sólarupprás. Sú útsýn og sú birta, sem mér bar fyrir sjónir, er ég fyrst las upp- hafshefti hans, ritgerðina „Hið mikla samband", eru mér ógleym- anleg, og hefði ég þá líklega ekki veriö fús til að trúa því, að líða niundi meir en hálf öld svo, að þau sannindi, sem þar eru borin fram, yrðu ekki þegin. En þó varð raunin sú. Reyndin varð því mið- ur sú, sem dr. Helgi sagði, að jafnan yrði, þegar mikilsverð sannindi eru ekki þegin um leið og þau eru borin fram, að öldin snerist til slysa. í stað þess að njóta útsýnisins, sem með Nýal veitist, í stað þess að verða sam- taka um að færa sér í nyt boðskap hans um hjálp frá lengra komnum fbúum annarra hnatta, var stofnað til þeirrar ferlegustu styrjaldar, sem nokkru sinni hafði átt sér stað á þessari jörð, og mun öllum nú vera kunnugt um það framhald hennar, sem er ofurkapp framleiðslu slíkra drápstækja, að nægja mundi mörgum sinnum til að þurrka héð an burt allt líf. En þó að sú litla og snotra bók, sem hér ræðir um, láti ekki mikið yfir sér eða beri ekki annað með sér en það að vera lftil og snotur bók, þá þykir mér út- koma hennar nokkrum tíðindum sæta. Nokkuð lfkt því að Nýall kom mér forðum sem sólarupp- rás, kemur mér nú þessi litla bók sem boðberi þess, að ekki sé þess nú langt að bíða, að kenningar Nýals verði þegnar. Þó að margt hafi á þessari öld farið verr en menn varði f upphafi hennar og að margt stefni enn ranglega, einnig í vísindum, þá hefir þó nokkuð áunnizt á þann veg að gera sér aukna grein fyrir raun- veruleikanum, og er nú einmitt í Þessari litlu bók verið að sýna fram á slfkt. Eða nákvæmar sagt. í bók þessari er á ljósan og örugg- an hátt verið að sýna fram á það, að þrátt fyrir allt hafi vísindin á hinum síðustu árum færzt veru- *ega f Nýalsátt. Er þar ekki sízt um að ræða fyrirburðafræðina eða sambandssálfræðina, og vil ég þar benda á sem dæmi, að nú alveg nýlega las ég í blaði nokkru, að þekktur amerískur læknir og sálkönnuður geri ráð fyrir, að krafta- og furðuverk hér á jörðu stafi frá lengra komnum fbúum annarra hnatta, og má þá segja, að farið sé verulega að nálgast þær niðurstöður, sem dr. Helgi hafði þegar komizt að fyrir um það bil 60 árum. Var þarna f blaðinu í þessu sambandi talað um ísraels- manninn, Uri Geller, sem beygir og brýtur hluti með þvf einu að horfa á þá eða snerta lítillega, og ættu nú allir að geta séð, að þar muni vera nokkurn veginn um hið sama að ræða og ofurkrafta Reynis hins Islenzka. Bók þessi skiptist í 12 aðalkafla, og eru fyrirsagnir þeirra svo sem hér segir: Dr. Helgi Pjeturss, fs- lenzkur náttúrufræðingur, — Hnettir himingeimsins eru heim- kynni lffsins, — Hugsamband er orkugeislun, — Draumur eins er vökulff annars, — Síðari drauma- rannsóknir styðja sambandskenn- inguna, — Lífgeislun er sönnuð, — Sönnun lífgeislans sannar möguleika framlífsins, — Stilli- áhrifin eru þáttur í sérhverju sambandsfyrirbæri, — Frumlíf — framlíf — samstilling, — Á miðilsfundum. Nýalsstefna og spíritismi, — önnur fyrirbæri, aðrar hugmyndir, — Líf er á öðrum stjörnum. Auk myndar af dr. Helga eru í bókinni nokkrar myndir til skýr- ingar sumum atriðum. 18. 3. ’74. Þorsteinn Jónsson á Dlfsstöðum. Góð veiði í Laxá r í Asum I GÆR höfðu milli 170—180 laxar veiðzt í Laxá í Ásum að sögn Arn- grfms ísberg í veiðihúsinu við ána. Laxinn hefur allur veiðzt á tvær stangir, en veiðitfminn í ánni hóst 1. júní. Er Iaxinn stór og góður, svipaður og í fyrra. Nýtt símanúmer 84800 OLAFUR GÍSLASON & CO. HF., Sundaborg, Klettagörðum 3, - Sími 84800

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.