Morgunblaðið - 28.06.1974, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 1974
Nixon Bandarfkjafor-
seti og Antonio de Spin-
ola, forseti Portúgal,
ræddu saman á Azóreyj-
um f sfðustu viku, og var
það sfðasti viðkomustað-
ur Nixons áður en hann
hélt heimleiðis úr Mið-
austurlandaferð sinni. Á
milli þeirra forsetanna á
myndinni er túlkur.
Mikill viðbúnaður
á Heathrow
London, 26. júnf AP—NTB
MIKILL viðbúnaöur var á
Heathrow flugvelli við London f
dag vegna orðróms um, að
palestfnskir skæruliðar hefðu
ráðgert árásir á bandarískar,
hollenzkar og fsraelskar flugvél-
ar, sem þar hefðu viðdvöl.
Lögreglumenn og fjöldi víg-
búinna hermanna stöðvuðu
hverja einustu bifreið, sem kom
inn á flugvallarsvæðið, og olli
þetta miklum töfum og erfiðleik-
um í umferðinni. Sömuleiðis um-
kringdu brynvarðar bifreiðar
flugvallarsvæðið og voru til taks
við mikilvægustu staði.
NTB hefur eftir brezkum her-
foringja, að þessi viðbúr.aður hafi
verið umfangsmesta „hernarðar-
aðgerð“ á brezku landi frá strfðs-
lokum.
Minkurinn
ekki af baki
dottinn
Björk, Mývatnssveit, 25. júnf.
SLÁTTUR er hafinn og er gras-
spretta sums staðar orðin allgóð.
Undanfarna daga hefur verið af-
bragðs þurrkur. Sl. sunnudagur
var einn sá heitasti, sem menn
muna og komst hitinn þá f 28 stig
f forsælu. 1 dag hefur verið hér
yfir 20 stiga hiti.
Sl. vetur varð fremur lítið vart
við mink hér við vatnið og voru
margir farnir að vona, að tekizt
hefði að fækka honum verulega.
Sú von hefur nú brugðizt algjör-
lega og nú þegar hafa fundizt 7
greni. Sum þeirra hefur þegar
tekizt að vinna alveg, en önnur
ekki nema að nokkru leyti. Bend-
ir hinn mikli grenjafjöldi nú til
þess, að enn hafi ekki tekizt að
útrýma þessum mikla vágesti hér
í sveitinni. Verður því enn að
herða róðurin og ekkert til spara.
Það er og verður bezta náttúru-
verndin hér við Mývatn ef unnt
reynist að eyða minknum hér
algjörlega.
— Kristján.
Oánægja með
stúdentablaðið
Taylor
o g
Burton
skilin
Gstaad 26. júnl AP-NTB.
□ LEIKARAHJÖNIN frægu,
Elizabeth Taylor og Richard
Burton, eru ekki hjón lengur.
Eftir 10 ára, oft á tfðum storma-
samt hjónaband fengu þau f
dag lögskiinað hjá borgardómi
Iftils sveitaþorps f Sviss. Orsök
skilnaðarins var sögð ósam-
komulag, en þau hafa margoft
skilið að skiptum aðeins til að
taka saman aftur. Elizabeth
Taylor sagði, er þau siitu sam-
búð fyrir ári sfðan: „Kannski
að við höfum elskað hvort
annað of mikið.“
□ Richard Burton var ekki við-
staddur f Sviss, er skilnaðurinn
var tilkynntur, en Elizabeth
mætti, og virtist f nokkru upp-
námi. Lagði lögfræðingur Bur-
tons fram læknisvottorð þar
sem fjarvera hans var skýrð
með „heilsufarsástæðum". Er
Burton sagður vera iðínn mjög
við flöskuna um þessar mundir.
Elizabeth Taylor á að hafa
reiðzt mjög skartgripagjöfum
eiginmanns sfns að undanförnu
til einhverrar ungrar smá-
stjörnu.
Leiðir Taylor og Burton lágu
fyrst alvarlega saman er þau
unnu saman að gerð kvik-
myndarinnar „Kleópötru".
Beinagrind njósnarans
fannst í herbergi hans
London, 26. júnf — AP.
KRUFNING fer fram á morgun
til þess að komast að banameini
Sir Peregrine Hennicker-Heaton,
Varð það upphaf eins frægasta
ástarævintýris í kvikmynda-
heiminum fyrr og síðar. Þá var
Elizabeth gift Eddie Fisher
söngvara og Richard kvæntur
Sybil Williams, og lauk þeim
hjónaböndum fljótlega eftir
það. Aður hafði Elizabeth verið
gift þrisvar, — Conrad Hilton,
Michael Wilding og Mike Todd.
Brúðkaup þeirra Burtons var í
Montreal í marz árið 1964.
Fjárhagsmálum þeirra lauk
með fullu samkomulagi. Heldur
Elizabeth eftir öllum skartgrip-
um sfnum t.d., og er þeirra á
meðal Carterdemanturinn
frægi. Hún fær líka yfirráð yfir
fósturdóttur þeirra.
Um þessar mundir hefur
Elizabeth Taylor mikið sézt
með fyrrverandi bílasala frá
Kaliforníu, Henry Wynberg. Þá
hafa verið sögusagnir uppi um
að Richard Burton hafi verið í
ástarmakki með Sophiu Loren
á meðan á kvikmyndun „The
Voyage“ stóð, en bæði hafa vís-
að þeim fregnum á bug.
brezks njósnaforingja, en beina-
grind hans fannst f einskonar
leyniherbergi í húsi hans f
London á sunnudag. Sir
Peregrine, sem hafð sérhæft sig f
málefnum Miðausturlanda, hvarf
5. október árið 1971, þá 68 ára að
aldri eftir að hafa tilkynnt
fjölskyldu sinni að hann skryppi
út f gönguferð.
Fiskabók
Mbl hefur verið send hand-
bókin „Akvariefisk í Farver“,
sem Politikens forlag gefur út, og
er þar að finna ítarlegar upp-
lýsingar um allar tegundir fiska,
sem fólk hefur sér til skemmt-
unar í fiskabúrum. Segir þar skil-
merkilega frá hverri tegund, ein-
kennum hennar og helztu þörf-
um, og er bókin mjög fræðandi
fyrir áhugamenn á þessu sviði.
Bókin er 232 bls, og þar eru 128
átta heilsíðulitmyndir af
hundruðum fiska, flestum í fullri
stærð. Um texta bókarinnar hefur
séð Jens Meulengracht-Madsen.
Island og
Kúba tefla
Nizza, 26. júní — AP.
OLYMPlUSKAKMÓTIÐ veitti
áhorfendum ærna skemmtan f tf-
undu umferðinni og upphafi
þeirrar elleftu. 1 A flokki var
staðan þessi eftir 10 umferðir:
Sovétrfkin 30, Júgóslavfa 26,
Búlgarfa 25 'A, Bandarfkin 24,
Ungverjaland 22V4, Holland 22V4,
Vestur-Þýzkaland 21V4, Spánn 20,
og aðrar sveitir með færri vinn-
inga.
Urslit skáka í B flokki í 10.
umferð: Kúba — Kanada 1:3,
Skotland—Austurríki 2:1, Noreg-
ur—Portúgal 2Vi: l'A, ítalía—
Frakkland 3:1, Kólumbfa—Túnis
3:1, Pólland—Belgía 2:2, Dan-
mörk—ísrael 1:3, Sviss—Island
1 V4:2V4 (jafntefli hjá Werner Hug
og Friðrik Ólafssyni jafntefli hjá
Andre Lombar og Inga R. Jó-
hannssyni, jafntefli hjá Heinz
Withensohn og Jóni Kristinssyni,
og Roland Ott tapaði fyrir Ingvari
Asmundssyni).
I þeim skákum Islendinga og
Kúbumanna, sem lokið er f 11.
umferð, hafa Kúbumenn 2 vinn-
inga en íslendingar engan.
Tveimur dögum sfðar skýrði
eiginkona hans, Margaret, lög-
reglunni frá þvf, að hann væri
horfinn. Hóf Scotland Yard um-
fangsmikla leit um gjörvallt Bret-
land, og barst hún sfðan til
meginlands Evrópu og Miðaustur-
landa. Sögusagnir voru á kreiki
um, að honum hefði verið rænt
eða hann myrtur af arabfskum
hermdarverkamönnum vegna
starfs hans innan leyniþjónust-
unnar.
Það var sonur Sir Peregrine,
Yvo tvítugur að aldri, sem á
sunnudaginn fann lykil, sem gekk
að herbergi í einum afkima hdss-
ins, sem er í viktoríönskum stíl.
Er hann opnaði herbergið fann
hann beinagrind föður síns, er lá
á rúmstokk, og bar hann kennsl á
brúnu tweed-fötin, sem faðir hans
sást síðast f. Segir fjölskyldan, að
hann hafi stundum dvalið í þessu
herbergi til að reykja og lesa. Við
hlið beinagrindarinnar var tóm
flaska, sem lögreglan telur að
gæti hafa innihaldið töflur, svo og
öskubakki með sígarettustubbum.
I jakkavasanum var miði til eigin-
konu hans þar sem stóð, að hann
•gæti ekki haldið þessu áfram og
skyldi hún hafa sem minnst fyrir
jarðarförinni.
Talið er, að Scotland Yard sé
hálfvandræðaleg vegna þessa
fundar, þar eð ekki var leitað í
herbergi þessu meðan á rann-
sókn málsins stóð á sfnum tfma. Á
fjölskyldan að hafa fullvissað lög-
regluna um, að hún væri búin að
leita um allt húsið. Bráðabirgða-
krufning í gær gat ekki skorið úr
um dánarorsök, en talið er, að
lögreglan sé nokkuð viss um, að
um sjálfsmorð hafi verið að ræða.
Eitt af því, sem hvað furðuleg-
ast er talið við þetta óvenjulega
mál, er, að hvorki hundarnir
á heimilinu né leigjandi sá, sem
bjó í næsta herbergi við það, sem
beinagrindin fannst í, urðu varir
við nályktina, sem hlýtur að hafa
lagt af lfkinu.
1 sfðari heimsstyrjöldinni vann
Sir Peregrine fyrir leyniþjónustu
Breta erlendis, M16, og að henni
lokinni var hann yfirmaður lög-
reglu brezka flughersins í
Palestínu til ársins 1948. Á þeim
tfma var bifreið hans þrívegis
sprengd í loft upp af hermdar-
verkamönnum. Hann lét af störf-
um árið 1958, en var eftir sem
áður viðriðin Miðausturlönd, og
átti m.a. sæti í ráði ensk-arabíska
sambandsins.
Aukinnar óánægju gætir nú á
meðal stúdenta með Stúdenta-
blaðið, en það er gefið út af
Stúdentaráði. Hafa einstakir
stúdentar jafnvel skrifað Há-
skólaráði og óskað eftir að vera
ieystir frá að greiða þær 320 kr„
sem rennur til Stúdentablaðsins
af hluta Stúdentaráðs af inn-
ritunargjöldum. Benda þeir á, að
meirihluti Stúdentaráðs, sem
skipaður er vinstrimönnum hefur
ekki fallizt á, að blaðið eigi að
vera hlutlaus vettvangur allra
stúdenta.
Oánægjan á einkum rætur sínar
að rekja til þess, að á fundi sfnum
26. apríl sl. felldi Stúdentaráð eft-
irfarandi tillögu: „Stúdentaráð
telur, að greina beri á milli frétta
og skoðanaskipta f Stúdentablað-
inu og beinir þeim tilmælum til
ritstjóra Stúdentablaðsins, að
fyllsta hlutleysis sé gætt í frétta-
skrifum blaðsins." Þeirri rök-
semd hefur verið beitt, að
Stúdentablaðið sé málgagn og
vettvangur allra stúdenta og á
þeim forsendum rétt að skylda
alla stúdenta til kaupa á því. En
þar sem fyrir liggur, að vinstri-
menn í Stúdentaráði telja ekki, að
blaðið eigi að vera hlutlaust f
fréttaskrifum, er það skoðun
margra stúdenta, að brostinn sé
grundvöllur undan þvf að greiða
til blaðsins af innritunargjöldum.
Þá hefur og vakið óánægju,
hversu dýrt Stúdentablaðið er í
rekstri, en kostnaður við það
skiptir milljónum. Vegna alls
þessa hafa einstakir stúdentar nú
ritað Háskólaráði og óskað eftir
að vera leystir frá að greiða til
blaðsins. Háskólaráð mun
ákvarða innritunargjöld og skipt-
ingu þeirra nk. miðvikudag.
Sérkennilegt mál í Bretlandi:
Varizt vinstri slysin — X-D
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNI 1974
15
Hátíðarmessa á Hól-
um á Þjóðhátíðinni
I framhaldi af fréttum, sem bor-
izt hafa frá Þjóðhátfðinni á Hól-
um í Hjaltadal sl. sunnudag, skal
þess getið, að fram fór hátíðar-
guðsþjónusta á vegum Hólafélags-
ins f Hóladómkirkju, er hófst með
Þvf, að klukkum dómkirkjunnar
var hringt. Prestar gengu í skrúð-
göngu til kirkju, þar sem sr. Árni
Sigurðsson, formaður Hólafélags-
ins prédikaði. Prestarnir sr.
Ágúst Sigurðsson, Mælifelli, sr.
Sigfús J. Árnason, Miklabæ, og sr.
Pétur Sigurgeirsson vfgslubiskup
Átta finnskir borgarfulltrúar eru nú á íslandi í boði
Reykjavíkurborgar, komu á mánudagskvöld og fara
á föstudagsmorgun. Þeir hafa notað tímann til að
skoða Reykjavík og farið í ferð um Suðurland. Þarna
eru þeir í kvöldverðarboði hjá Birgi Isl. Gunnarssyni
borgarstjóra og frú Sonju í Höfða. Gestirnir eru
Keijo Liinamaa, forseti borgarstjórnar í Helsinki, og
frú, Gustaf Laurent, varaforseti, Loinaranta, borgar-
ritari, og borgarfulltrúarnir Veikko Aalto, Arne
Berber, frö Anna Liisa Hyvönin, frú Ritva Laurila
og Yrjo Salo.
kosninga
sjóður
Kosningar eru ný afstaðnar. Nýjar
kosningar eru framundan. Sjálf-
stæðisflokkurinn þarf á miklu fé að
halda til að standa straum af kostn-
aði við kosningarnar. Því leitar flokk-
urinn til stuðningsfólks síns um fjár-
framlög til baráttunnar. Þeir sem vilja
leggja eitthvað af mörkum, eru vin-
samlega beðnir að snúa sér til skrif-
stofu flokksins, Laufásvegi 46, sími
17100, en þar er framlögum veitt
móttaka.
J
Félaaslíf
þjónuðu fyrir altari. Kirkjukór
Sauðárkróks söng undir stjórn
Jóns Björnssonar, söngstjóra. Að
guðsþjónustunni lokinni fór fram
afhjúpun styttu Guðmundar góða
Hólabiskups. Frú Emma Hansen
prófastfrú á Hólum afhjúpaði
minnisvarðann og flutti kvæði sitt
um Guðmund góða. Sr. Pétur
Sigurgeirsson vígslubiskup flutti
ávarp, en Guðmundur Jónsson
garðyrkjumaður, sem var frum-
kvöðull þess að styttan var reist,
flutti þakkarorð.
28. —30. júní
ferð á Eiriksjökul^
29. —30. júní ferð i Þórs-
mörk.
Upplýsingar á skrifstofunni alla
daga frá kl. 1—5 og 8 —10 á
kvöldin, simi 24950.
Farfuglar.
Föstudagskvöld
kl. 20.
1. Þórsmörk,
2. Landmannalaugar,
3. Gönguferð á Heklu.
Farmiðar seldir á skrifstofunni.
Ferðafélag íslands. Öldugötu 3,
simar: 1 9533 og 1 1 798.
SUNNUDAGSGANGA
1. Bláfjöll kl. 9.30. Verð 600 kr
2. Vifilsfell, kl. 13. Verð 400 kr
Farmiðarvið bilinn.
Ferðafélag (slands.
Veiðileyfi
ELDVATN-SOG
Nokkur veiðileyfi I Eldvatni og Sogi eru til sölu.
Skrifstofa félagsins er opin kl. 18 — 19
daglega. Sími 52976.
Stangaveiðifélag Hafnarfjarðar
Reykjavíkurvegi 1.
Útgerðarfyrirtæki
til sölu.
Á mjög góðum stað á Suðvesturlandi er til sölu
fiskverkunarhús, ásamt 4200 fm lóð, svo og
1 50 tonna bátur ásamt veiðarfærum o.fl.
Tilboð merkt „Útgerðarfyrirtæki — 1020"
sendist Mbl. fyrir miðvikudagskvöld n.k.
STEIKARAPOTTAR
úr eldföstum leir 2 stærðir
Bækur með 400 uppskriftum
★ Grill í botninn
★ Svampar til að hreinsa með
★ Sendum í póstkröfu um allt land
BOSAHÖLD
¥
Simi
12527
Laugcrv. 22 - Hcdnarmt. 1 - BankasL 11 - Raykjarlk
GLERVORUR
LOKAÐ A LAUGARDÖGUM
Samkvæmt síðustu kjarasamningum undirritaðra aðila, verða
verzlanir lokaðar á laugardögum frá og með 20. júní.
Kaupmannasamtök íslands,
Vinnuveitersdasamband íslands,
Vinnumálasamband Samvinnufélaga,
Kaupfélag Reykjavíkur og nágrennis,
Verzlunarmannafélag Reykjavikur