Morgunblaðið - 28.06.1974, Side 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNl 1974
SIS selur 60 þús. ullar-
peysur fyrir 60 millj. kr.
SÍÐARSTLIÐINN föstudag undirritaði Samband fsl. samvinnufélaga
samning um sölu á 60 þúsund ullarpeysum til Sovétrlkjanna. Fram-
leiðsluverðmæti samningsins er rúm 61 milljón króna.
Sambandið gerði þennan samning fyrir hönd hinna smærri prjóna-
stofa í landinu. Hér er um að ræða 40 þúsund barnajakka og 20 þúsund
karlmannapeysur, sem eru unnar úr prjónavoð úr Islenzkri ull, og
verða þær seldar I verzlunum samvinnuhreyfingarinnar f Rússlandi.
Harry Fredriksen framkvæmdastjóri iðnaðardeildar undirritaði
samninginn fyrir hönd sambandsins.
Þannig þurfti að aka dráttarvélunum, sem Akraborgin kom með til landsins, út úr skipinu. Stálplata
var sett frá bryggju niður á bflaþilfar skipsins og ekki hægt að aka vélunum út nema þegar flóð var.
Ljósm.Mbl : Öl. K. M.
Engin aðstaða fyrir Akra-
borgina fyrr en 1 haust
HÆTT er við, að Akraborg geti
ekki flutt nema 10 bíla í ferð milli
Akraness og Reykjavíkur fram á
haustið, því að þá fyrst er von til
að hafnaraðstaða verði orðin
þannig á þessum stöðum, að hægt
verði að aka bílum inn og út um
skut og stefni skipsins. Fram-
kvæmdir eru að hefjast á Akra-
nesi, en ekki vitað, hvenær þær
hefjast í Reykjavfk. Þó er talið, að
það geti orðið á næstunni, þvf að
verulegur skriður komst á málið í
samgönguráðuneytinu, nú eftir
að skipið kom til landsins.
Þórður Hjálmarsson fram-
kvæmdastjóri Skallagrfms, sem á
Akraborg, sagði í samtali við
Morgunblaðið f gær, að þrátt fyrir
það, að nýja Akraborgin gæti ekki
flutt nema 10 bíla í ferð fyrst um
sinn, væri hér um mikla aukningu
að ræða frá gömlu Akraborginni,
sem ekki gat flutt nema 5 bíla í
einu.
Ákveðið er, að nýja Akraborgin
hefi reglubundnar ferðir milli
Akraness og Reykjavfkur á
laugardaginn og í fyrstu verða
ferðir með sama hætti og áður,
þ.e. frá Akranesi kl. 8.30, 1.15 og
5. Frá Reykjavík verður farið kl.
10, kl. 3 og kl. 6.30.
Fargjöld með nýja skipinu
verða lægri en með því gamla.
Áður kostaði 750 kr. fyrir bfl og
mann, en nú verður verðið kr.
600. Þá verða tekin upp sérstök
hjónafargjöld, kr. 900 fyrir hjón
með bfl. önnur fargjöld munu
haldast óbreytt.
Sagði Þórður, að til þess að
bjarga fjárhag skipsins fyrst um
sinn hefði verið ákveðið að efna
til kvöld- og helgarferða frá
Reykjavík. Hugmyndin væri að
sigla inn í Hvalf jörð eða um sund-
in og yrði tónlist um borð, þannig
að hægt yrði að dansa á bflaþil-
farinu og einnig yrði reynt að
hafa góðar veitingar f þessum
ferðum.
Vaxandi ferðamanna-
straumur í Axarfirði
Skinnastað 25. júnf.
STRAUMUR ferðafólks hingað norður eftir er greinilega hafinn. Enn
er hann þó mestur um helgar, hófst að ráði um hvítasunnu. Bifreiðar
með hlaðnar toppgrindur og litskrúðug tjöld f skógarlundum er algeng
sjón. Þetta á þó eftir að vaxa mjög um mitt sumar, ef að líkum lætur.
Straumur feröamanna til N-Þingeyjarsýslu hefur farið sívaxandi
undanfarin sumur, enda sveitir hér sumarfagrar og veðursælar og auki
miðnætursól. Mjög vinsælir staðir eru Ásbyrgi, Jökulsárgljúfur og
ýmsir skógarhvammar í Axarfirði.
Ferðamannaþjónusta fer líka heldur batnandi. Hótel hefur allengi
verið starfrækt á Kópaskeri undir stjórn Kristínar Jónsdóttur, og er
það velþekkt fyrir rausnarlegar veitingar. Þá verður sumargistihús
rekið í félagsheimilinu Skúlagarði í Kelduhverfi svo sem undanfarin
sumur og verða á boðstólum almennar veitingar, gistiherbergi og
svefnpokapláss. Forstöðumaður í sumar verður Jón Sigurðsson frá
Garði.
Þá mun verða rekin veitingastofa í sambandi við hið nýja útibú
Kaupfélags Norður-Þingeyinga í Asbyrgi. Vinna iðnaðarmenn þar af
kappi og munu bæði verzlun og veitingastofa verða opnuð bráðlega. Er
þessi staður f þjóðbraut.
Einnig mun verða byrjað að selja veitingar og gistingu á vegum
Svavars í Hábæ í stórum sfldarbragga á Raufarhöfn, einkum ætlað
veiðimönnum. Allt er þetta við hringveginn nýja, ef farin er nyrzta
leiðin um Þingeyjarsýslu.
Hér voru miklir hitar um helgina, yfir 20 stig og þótti mörgum nóg
um svækjuna. Mesti hiti mældist rúmlega 22 stig á veðurathugunar-
stöðinni í Garði. Sigurvin.
NEMA stofnað á Akureyri
Hinn 6. júnf sl. var haldinn
stofnfundur Nemendasambands
Menntaskólans á Akureyri. Fund-
urinn var haldinn á Hótel Esju f
Reykjavík og var boðað til hans af
hálfu þeirra stúdentaárganga,
sem samkvæmt venju halda
stúdentsafmæli sín hátfðleg á
Akureyri f ár og færa skólanum
gjafir og kveðjur. Þessir árgangar
eru þeir, sem urðu 40, 25 og 10 ára
hinn 17. júní sl„ en svo sem kunn-
Frystihúsaáætlun Framkvæmdastofnunarinnar:
6 milljörðum varið til endurbóta
og uppbyggingar hraðfrystihúsa
GERT er ráð fyrir, að á tfma-
bilinu 1971—1976 muni rúmlega
sex milljörðum króna verða varið
til framkvæmda f endurnýjun og
uppbyggingu hraðfrystiiðn-
aðarins. Er þá miðað við verð-
lag eins og það var á fyrrihluta
1974. Þetta kemur fram f áætlun
um hraðfrystihús, framkvæmdir
þeirra og fjármögnun, sem
áætlanadeild Framkvæmdastofn-
unarinnar hefur gert, og sem
kynnt var fréttamönnum f gær.
t áætluninni, sem er upp á rúm-
lega 200 sfður, er gerð nákvæm
grein fyrir skiptingu fram-
kvæmda og fjármögnunar eftir
landshlutum, tegundum fram-
kvæmda, tilefnum þeirra, helztu
fjármögnunaraðilum og fleiru.
Er gert ráð fyrir, að mestar fram-
kvæmdir hafi verið og verði á
árunum 1973, með 21.6%, og
1974, með 22.2%, en að árs-
áfangar verði að öðru leyti sem
jafnastir.
Mestar framkvæmdir eru á
Reykjanesi, 26.6% af heildarfram-
kvæmdum hjá 27 frystihúsum, og
á Austurlandi 17.8% hjá 14frysti-
húsum, en framkvæmdir 96
frystihúsa falla undir áætlunina.
Mestur hluti hinnar áætluðu
framkvæmdaupphæðar mun
renna til bygginga og umhverfis-
framkvæmda eða 68% en til véla
og tækja 32%. Tilgangur fram-
kvæmda er tvíþættur. Annars
vegar eru þær til að mæta kröfum
Bandarikjamarkaðar um bætta
hollustuhætti, og ' verða 43%
framkvæmda til að mæta þeim
kröfum, og hins vegar eru 57%
framkvæmda vegna stækkunar,
hagræðingar, vélvæðingar og þess
háttar.
Kom það fram á blaðamanna-
fundinum, að á mörgum stöðum
gæti rekstur frystihúsa orðið mun
hagkvæmari en nú er, með minni
rekstrareiningum og meiri sam-
vinnu á milli fyrirtækja á þeim
stöðum þar sem mörg frystihús
togast á um lítinn afla. Niðurstaða
þeirra, sem að áætluninni unnu,
sé sú, að æskilegt væri að frysti-
hús væru færri og er bent á þann
möguleika, að á þeim stöðum þar
NÝR FLYGILLISAM-
KOMIIHÚSIÐ HLÉGARÐ
NtJ 1 vetur hefur farið tram al-
menn söfnun í Mosfells-, Kjalar-
nes- og Kjósarhreppum í þeim til-
gangi að kaupa vandaðan flygil f
samkomuhúsið Hlégarð.
Söfnun þessi fór fram á vegum
listunnandi samtaka og hefur nú
borið þann árangur, að keyptur
hefur verið Bösendorfer-flygill
frá Austurríki. Kostnaður er llA
milljón króna, en söfnunarféð
nemur nú 1 milljón króna.
Flygill verður tekinn f notkun
laugardaginn 29. júní kl. 15 (kl.
3.00).
Fytjendur verða þau: Halldór
Haraldsson, Sigríður E. Magnús-
dóttir, Ólafur Jónsson og Ólafur
Vignir Albertsson.
öllum þeim, sem hafa lagt
þessu máli lið, héraðsbúum og
öðrum, er boðið á tónleika. Á tón-
leikunum mun liggja frammi bók
með nöfnum allra þeirra, sem
hafa stutt þetta mál.
sem fleiri en eitt frystihús starfa
mætti auka hagkvæmni f einu á
meðan hinu væri breytt t.d. í salt-
fiskverkunarstöð. Með áætlun-
inni er hins vegar ekkert
ákvarðað, heldur er hlutverk
hennar fyrst og fremst ráð-
gefandi.
Varðandi fjármögnun er gert
ráð fyrir, að Fiskveiðasjóður láni
tæp 40% af áætlunarfjárhæðinni
og véla- og tækjalán verði 16,7%
en einnig kemur til álita, að tæp-
lega 10% fjárþarfar verði leyst
með lánum úr Byggðasjóði og At-
vinnuleysistryggingasjóði. Eigin
fjármögnun frystihúsa verður þá
um þriðjungur eða 33.7%. Lán úr
stofnsjóðum hljóta þó að vera háð
ríkjandi ástandi í efnahagsmálum
og á fjármagnsmarkaði.
Þetta mun vera umfangsmesta
áætlun, sem gerð hefur verið af
innlendum sérfræðingum, en hún
var eitt af fyrstu verkefnum, sem
Framkvæmdastofnuninni var
falið. Var áætlunin unnin í nánu
samráði við frystihúsin sjálf og
hinar ýmsu stofnanir og samtök
sjávarútvegsins og þá sérstaklega
við Fiskveiðisjóð og þær banka-
stofnanir, sem að stjórn hans
standa.
ugt er heldur Menntaskólinn á
Akureyri ennþá í heiðri þann
gamla og góða sið að brautskrá
stúdenta sfna 17. júnf.
Á stofnfundi nemendasam-
bandsins var mikill fjöldi fyrr-
verandi nemenda skólans eða um
100 manns og var þar rfkjandi
mikill áhugi um stofnun sam-
bandsins. Markmið þess er að
treysta eftir föngum tengsl brott-
skráðra nemenda við sinn gamla
skóla, stuðla að auknum kynnum
„norðanmanna“ og bæta aðstöðu
nemenda í Menntaskólanum á
Akureyri til félags- og tómstunda-
starfa með gjöfum og fjárframlög-
um.
Fundarstjóri á stofnfundinum
var Vilhjálmur G. Skúlason
prófessor og fundarritari Páll
Þórðarson lögfræðingur.
I fyrstu stjórn sambandsins
voru kjörnir: Runólfur Þórarins-
son stjórnarráðsfulltrúi, formað-
ur, Gunnar Eydal lögfræðingur,
ritari, Vilhjálmur G. Skúlason
prófessor, gjaldkeri, Ragna
Jónsdóttir kennari og Jakob Haf-
stein framkvæmdastjóri. Vara-
menn f stjórn voru kjörnir
Sverrir Páll Erlendsson stúdent,
Björn Þ. Guðmundsson borgar-
dómari og Auður Torfadóttir full-
trúi.
Fjórða bindi af
listasögu dansa
Mbl. hefur borizt 4. bindi af
„Dansk Kunsthistorie" sem Poli-
tikens Forlag gefur út. Undirtitill
þessa bindis er „Friluftsstudie og
Virkelighedsskildring ca
1850—1900.“ Þessi bók er 416 bls.
að stærð og hana prýða 384 mynd-
ir og skreytingar í svarthvítu svo
og 25 litmyndir.
Verður þetta næst sfðasta bindi
listasögu dana, en hið sfðasta
kemur út í byrjun næsta árs. Það
er forstjóri Skagens Museeum dr.
phil Knud Voss listfræðingur,
sem hefur séð um útgáfu þessa 4.
bindis og koma hinir frægu
Skagens-málarar mjög við sögu í
því.