Morgunblaðið - 28.06.1974, Page 17

Morgunblaðið - 28.06.1974, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNl 1974 2 Grimsby-togar- ar stórskemmdir eftir árekstur TOGARINN Via Ova frá Grimsby sigldi á mikilli ferð á annan Grimsbytogara, Black Watch, á miðvikudagskvöldið, þar sem þeir voru á veiðum úti fyrir Vestfjörðum. Báðir togararnir skemmdust gffurlega mikið og þykir næsta ótrúlegt, að þeir skyldu haldast á floti til tsafjarðar. Reynt verður að gera við togarana til bráðabirgða á tsafirði svo að hægt verði að koma þeim f slipp á Akureyri eða f Reykjavfk. Togararnir voru báðir á veiðum 25—30 sjómflur úti af Straum- nesi, en þar fá brezkir togarar að veiða mest allt árið. Báðir voru með vörpuna úti og togað var á mesta vélarafli. Einhverra hluta vegna mun enginn hafa verið í brúnni á Via Ova og skipti engum togum, að stefni togarans lenti á bakborðshlið Black Watch, rétt aftan við forgálgann. Við áreksturinn gekk stefni Via Ova marga metra aftur og tveggja metra löng rifa kom á Black Watch, nær hún eina tvo metra niður fyrir sjólfnu. * Lestar togaranna fylltust að mestu af sjó, en vatnsþétt hólf héldu þeim ofansjávar. Brezka eftirlitsskipið Hausa kom togur- unum til aðstoðar og hjálpaði þeim til tsafjarðar. Ekki er hægt að taka togarana í slipp á ísafirði og þvf var tekið til bragðs að reyna að steypa í götin á togurunum til þess að unnt væri að'sigla þeim til Reykjavíkur eða Akureyrar, en þar er hægt að taka þá í slipp. Hringvegur opnast í lofti vélunum milli Akureyrar og Isafjarðar og sunnudaginn 30. júnf hefjast flugferðir milii Egilsstaða og Hornafjarðar, en með þcssum nýju flugleiðum gefst landsmönnum og öðrum, sem nýta vilja tfmann til dvalar og skoðunarferða frá mörgum stöðum á landinu og um leið að sjá landið úr lofti, tækifæri til að fara hringferð um landið. Möguleikar eru á að fara austur um með viðkomu á Hornafirði eða vestur um með viðkomu á ísafirði. Ennfremur er hægt að hefja hringinn á hvaða viðkomustað hringleiðar- innar sem er, en þeir eru, sé farið frá Reykjavík vestur um ísafjörður, Akureyri, Egilsstað- ir og Hornafjörður og Reykja- vík. Ennfremur er möguleiki á minni hringferð og er þá ísa- firði sleppt. Á öllum þessum stöðum eru möguleikar á skoð- unarferðum og einnig eru þar möguleikar á að leigja bíl. Á öllum þessum stöðum eru hótel og önnur gistiaðstaða. Verði ferðanna hefur verið stillt mjög í hóf og venjulegir afslættir gilda á öllum leiðum. Fargjald á hringleiðinni kostar, með söluskatti, fyrir einstakl- ing kr. 7.630,- fyrir hjón kr. 11.445,-. Fyrir hjón með eitt barn 2 til 18 ára kr. 15.260,-. Fyrir hjón með tvö börn 2 til 18 ára 19.075,-. Fyrir unglinga, að frádregnum unglingaafslætti, og fyrir roskið fólk yfir 67 ára kostar hringurinn 6.490,-. Minni hringurinn kostar hins vegar fyrir einstaklinginn kr. 6.080.-. Fiskveiðilögsagan 20 míl- ur, en ekki 50 við Vestfirði FLESTIR landsmenn munu vafalaust halda, að landhelgisút- færslan við landið sé 1 raun 50 mflur. Þvf miður er svo ekki, því að úti fyrir Vestfjörðum er fiskveiðilögsagan aðeins 20 mílur 10 mánuði ársins. Hina 2 er fiskveiðilögsagan 50 mflur. Samningur sá, sem íslenzka ríkisstjórnin gerði við þá brezku um veiðiheimildir brezkra togara við landið, er að mörgu leyti einkennilegur. Stjórnarherrarnir segja, að Bretar fái á vissum árstímum að veiða í litlum „hólfum“, — en er hægt að kalla hafsvæði úti fyrir heilum landsfjórðungi „hólf“. Brezku togararnir mega stunda veiðar úti fyrir Vestfjörðum á svæðinu 20—50 mflur frá grunnlfnupunktum 10 mánuði ársins eins og fyrr segir. Aðeins mánuðina september og október er þeim meinað að veiða á þessu svæði og það þegar vestfirzkir bátar stunda almennt ekki róðra. Sjómenn og útvegsmenn á Vestfjörð- um fóru fram á það á sínum tíma, þegar ljóst var, hvemig samningurinn við Breta átti að vera, að Bretum yrði meinað veiði á þessu svæði í nóvember og desember. A það var ekki hlustað, en þessa tvo mánuði stunda Vestfirðingar mikið lfnuveiðar. Þess vegna segir fólk á Vestfjörðum með réttu: Hér var landhelgin aðeins færð út um 8 sjómílur, en ekki 38, því að hér er 20 mflna fiskveiðilögsaga 10 mánuði ársins. j».Ö. ÞAÐ ER ekki nóg með að hringvegurinn margumtalaði opnist f sumar, heldur opnast nú einnig hringleið um landið f lofti. Flugfélag Islands er nú að opna þessa leið landsmönnum. Hófst þetta með þvf hinn 7. júnf s.l., að Flugfélagið hóf flug með Fokker Friendship LÝST EFTIR SJÓNARV0TTUM MÁNUDAGINN 24. júní sl. kl. rúmlega hálf eitt varð gamall maður fyrir bifreið á Háaleitis- braut við Ármúla. Fyrir mis- skilning var bifreiðinni ekið á brott áður en lögreglan kom á staðinn. Sjónarvottar að þessu slysi eru beðnir að hafa sam- band við rannsóknarlögregluna sem fyrst. Sæmilegar sölur í Danmörku FJÖGUR fslenzk sfldveiðiskip seldu afla f Hirtshals f Dan- mörku f gær og fengu yfirleitt sæmilegt verð fyrir aflann. Bjarni Ólafsson Ak seldi 1822 kassa fyrir 2,4 millj. kr., Óskar Halldórsson RE seldi 1147 kassa fyrir 1,5 millj. kr., Þor- steinn RE seldi 2016 kassa fyrir 2,7 millj. kr. og Gísli Arni RE seldi 256 kassa fyrir 102 þús. kr. 17 Nixon forseti og Brezhnev leiðtogi sovézka kommúnistaflokksins kanna heiðursvörð á Vnukovo-flugvelli við Moskvu í gær eftir komu Nixons þangað. Hann mun þinga með leiðtogum i Sovét í eina viku. Nixon forseta vel fagnað 1 Moskvu Moskvu, 27. júnf — AP. NTB. NIXON Bandarfkj aforseti fékk hlýjar móttökur við komu sfna til Moskvu á fimmtudag. Þetta er f annað sinn, sem hann kemur þangað sem forseti. Móttökurnar virðast undirstrika persónulegan stuðning Sovétleiðtoganna við Nixon, og allur viðbúnaður fyrir þennan þriðja fund hans og Brezhnevs styrkir þá skoðun. Tito semur um stríðsbætur Hamborg 27. júní---NTB. TITO forseti Júgóslavfu flaug heim á fimmtudag eftir opinbera heimsókn til Vestur-Þýzkalands, sýnilega ánægður með þann hátt, sem Þjóðverjar hyggjast hafa á við greiðslur strfðsskaðabóta til Júgóslavfu. 1 sameiginlegri yfirlýsingu hans og Helmut Schmidt kanslara segir, að bæði lönd séu ánægð með samningana sem gerðir voru 1973, þó að þeir hafi þá verið kallaðir „eitt af hinum óleystu vandamálum fortíðarinnar". Sam- kvæmt samningunum veita Þjóð- verjar Júgóslövum 700 milljóna marka lán á mjög hagstæðum kjörum. Skal fénu varið til upp- byggingar í Júgóslavíu. önnur mál á dagskrá leiðtoganna tveggja voru óskir Júgóslava um fjárfestingar þýzkra fyrirtækja í Júgóslavíu og bætt lffskjör til handa júgóslavnesku verkafólki í Vestur-Þýzkalandi, sem mun vera um 600 þúsund manns. Brezhnev flokksritari mætti sjálfur á Vnukovo-flugvöII til að bjóða Nixon velkominn og braut þar með allar diplómatareglur með þvf að koma fram sem þjóð- höfðingi. Podgorni forseti og Kosygin forsætisráðherra stóðu hins vegar f skugganum. Brezh- nev hefur margoft ráðizt harðlega á gagnrýnendur Nixons og vísað á bug allri svartsýni um árangur funda þeirra tveggja, og þessu hefur verið fylgt eftir í Pravda málgagni stjórnarinnar. Á fimmtudag sagði blaðið, að Nixon nyti virðingar f Sovétríkjunum fyrir þá stefnu sfna að draga úr spennu á milli Bandaríkjanna og Sovétríkjanna. Mikill mannfjöldi var á flug- vellinum við komu Nixons og meðfram þeim götum, sem hann ók um, en mikið bar á lögreglu, sem reyndi að halda fólkinu í Samkomulag um fundarsköp Caracas, 27. júní — NTB SAMKOMULAG náðist á fimmtudag um meginatriði fundarskapa, sem um hefur verið deilt og er þar með hægt að hefja almennar umræður á föstudag. Sendimenn hinna 148 þátt- tökurfkja á þessari stærstu ráðstefnu, sem haldin hefur verið, munu þá gera grein fyr- ir afstöðu og óskum hvers lands fyrir sig. Danir á móti 200 mílum sem almennri reglu fjarlægð og koma í veg fyrir, að það kallaði kveðjur til forsetans. Auk viðræðna um hið almenna stjórnmálaástand í heiminum munu leiðtogarnir ræða takmörk- un á fjölda eldflauga, sem bera marga kjarnaodda, bann við kjarnorkutilraunum neðanjarðar og viðskipti landanna. Mig^3 til Sýrlands Washington, 27. júnf — NTB. SCHLESINGER varnarmálaráð- herra Bandarfkjanna sagði f gær, að Sovétrfkin hefðu látið Sýrlend- inga hafa nýjustu gerðina af Mig- 23 orustuflugvélum. Sagði hann, að alls hefðu Sýr- lendingar fengið 79 flugvélar, en auk Mig-23 voru þar á meðal þot- ur af gerðunum Mig-21 og Su-7. Mig-23 er ein fullkomnasta orustuþota Sovétmanna, en Schlesinger sagði ekki, hvað margar hinna 79 flugvéla hefðu verið af þeirri gerð. Enn skotið á Líbanon Beirút, 27. júní — NTB. ISRAELSKT stórskotalið skaut á fimmtudag á útjaðra margra smá- bæja í suð-austurhluta Líbanons, að því er sjónarvottar segja. Eng- ar upplýsingar liggja fyrir um mannfall. Yfirmaður herafla Israels sagði á fimmtudag, að hætt væri við því, að Líbanon yrði að vígvelli ef Egyptar sendu þangað deild úr flugher sínum, en Sadat Egypta- landsforseti hefur látið að því liggja. Caracas, 27. júnf —NTB. DANIR hafa tekið sömu afstöðu og Svfar á hafréttarráðstefnunni og munu leggjast gegn 200 mflna efnahagslögsögu handa strand- rfkjum sem almennri reglu. Norðurlöndin verða þvf klofin, þegar hafréttarráðstefnan tekur til meðferðar tillöguna um efna- hagslögsögu, sem er eitt mikil- vægasta mál ráðstefnunnar. Norð- menn styðja hins vegar tillöguna. Eins og Svíar vilja Danir, að Norðursjórinn verði sameign landa, sem að honum liggja, og Norður-Atlantshafsnefndin ákveði veiðikvótasvæði fyrir ein- stök lönd. Talsmaður danska utanríkisráðuneytisins, Per Fergo, skýrði frá þessu. Sagði hann, að 200 mflna efnahagslög- saga leysti engin vandamál Dana, þvert á móti myndi hún útiloka þá frá sínum beztu miðum. Aftur á móti geta Danir fallizt á, að þróunarlöndin og þjóðir, sem búa á „einangruðum svæð- um“, helgi sér 200 mflna efna- hagslögsögu og munu þvf styðja slfka lögsögu við ísland, Fær- eyjar, Grænland og Norður- Noreg. Sadat heitið aðstoð Vín, 27. júní —NTB SADAT, forseti Egyptalands kom á fimmtudag f opinbera heim- sókn til Rúmenfu og var vel fagn- að af Ceausescu forseta. Hét Ceausescu Sadat strax við komu hans stjórnmálalegum og efna- hagslegum stuðningi. Sadat er mikið f mun að halda góðum samskiptum við lönd Aust- ur-Evrópu til jafnvægis við vin- samlegri og nánari tengsl Egypta við Bandarfkin. Rúmensk blöð fögnuðu Sadat mjög vel.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.