Morgunblaðið - 28.06.1974, Side 19

Morgunblaðið - 28.06.1974, Side 19
19 ........|1,., i i .Ifi ■ „ 4 .i-l . , .... MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JÚNl 1974 í hringiöu kosn- ingamálanna Á undanförnum árum hefur fólksf jölgunin hvergi verið meiri en í Reykjaneskjördæmi og kjósendum hefur þar f jölgað um rúmlega helming frá þvf að núgildandi kjördæmaskipan var ákveðin árið 1959. Reyknesingum var þá úthlutað fimm þingsætum og við það situr enn, þrátt fyrir að Reykjaneskjördæmi hafi nú vaxið öllum öðrum kjördæmum landsins yfir höfuð — að undanskilinni Reykjavík. Af þessum fimm þingmönnum kjördæmisins hafa sjálfstæðismenn átt tvo og einn uppbótarþingmann að auki. Hin öra fjölgun íbúa í Reykjaneskjördæmi hefur eðlilega haft í för með sér mikla uppbyggingu í kjördæminu jafnframt því sem hún skapar margvísleg vandamál, sem stöðugt þarf að vinna að að leysa. Kjördæmið spannar öll svið íslenzks atvinnulífs og nú — þegar stöðvun atvinnuveganna blasir við, eiga því fáir landsmenn meira undir því komið, að^vel takist til um myndun nýrrar og traustrar ríkisstjórnar en eínmitt Reyknesingar. Ekki má heldur gleyma Keflavíkurflugvelli og varnarliðinu þar — hinu mikla hitamáli þjóðarinnar þessa stundina. Reyknesingar eru þannig mitt f hringiðu stórmálanna í baráttunni fyrir alþingiskosning- arnar á sunnudag. Á öllu þessu verður stiklað í þessum f jórblöðungi og öðrum til, sem út kemur á morgun, þar sem frambjóðendur Sjálfstæðisflokks- ins og almennir kjósendur í þessu mikilvæga kjördæmi lýsa viðhorfum sfnum til málefna kjördæmisins og landsmála. Ráðstafanir stjórn- valda hafa veruleg áhrif á heilbrigði og Á Reykjanesi hefur orðið hlut- fallslega mesta fólksfjölgun á öllu landinu. Fjölgun á kjörskrá sfðustu fjögur árin er þar um 3500 manns á sama tfma og f jölg- unin f Reykjavfk er um 4 þúsund manns. Fyrsta spurningin, er við leggjum fyrir Odd Ólafsson er þvf, hvaða ástæður hann telji iiggja að baki þessu aðstreymi fólksf Revkjaneskiördæmi. „Ástæðurnar hygg ég vera einkum tvær“, svarar Oddur, „annars vegar sú staðreynd, að kjördæmið umlykur höfuðstaðinn og hins vegar fjölbreyttir og traustir atvinnuhættir innan kjör dæmisins. Ef við lftum á einstaka hluta kjördæmisins ber okkur fyrst niður á Suðurnesjum, þar sem sjávarútvegurinn hefur frá alda öðli verið undirstöðuatvinnu- grein, enda mikil og auðug fiski- mið þar undan ströndum. Þar er eitt mesta framleiðslusvæði landsins, þvf að um 20—30% af verðmæti sjávaraflans mun vera komið frá verstöðunum þar. í öðru lagi getum við litið á upp- sveitir kjördæmisins, þar sem áður voru ágæt landbúnaðar- héruð, en nú er víða vaxandi iðn- rekstur samfara nýtingu einnar mestu auðlyndar landsins — heita vatnsins, sem nú yljar mest- um hluta Faxaflóasvæðisins. I Þriðja lagi mætti svo nefna Kefla- víkurflugvöll, eina millilanda- flugvöll landsins, sem veitir mörgum trygga atvinnu, og í efstu sveitum kjördæmisins er enn rek- lnn blómlegur landbúnaður. Kjör- dæmið spannar þannig öll svið atvinnulffsins, auk þess sem það býr við einar hinar beztu sam- göngur á landinu. Þetta hygg ég, að eigi stærsta þátt- inn f því, að fólk sækist frem- ur eftir búsetu á Reykja- nesi en annars staðar á land- <nu. Eins er vert að hafa í huga f þessu sambandi, að at- rinnureksturinn á Reykjanesi einkennist af einstaklingsfram- takinu og fyrirtækin þar eru lítil en á margra höndum. Hins vegar ma ekki gleyma álverinu í btraumsvík, þar sem fer stærsta stóriðjufyrjrtaeiú landsins, og nú tullar undir annað stóriðjufyrir- tæki — saltverksmiðju, sem reist Rætt við Odd Olafsson, annan mann á lista Sjálf- stœðis- flokksins verður í tengslum við jarðhitann á Reykjanesi. Allt miðar þetta að því að ná fram nauðsynlegri fjöl- | breyttni í atvinnulífi kjördæmis- | ins.“ — Af þessu má ljóst vera, Odd- ur, að það hiýtur að vera helzta verkefni þingmanna Reykjanes- kjördæmis á Alþingi að gæta þess, að atvinnuvegírnir hafi jafnan og tryggan rekstrargrund- völl? „Já, það er alveg rétt, svo mjög, að meira að segja menn, sem fyrst og fremst hafa látið félags- og | heilbrigðismál til sfn taka, komast ekki hjá því að hafa einhverja yfirsýn yfir atvinnumálin, þvf að við verðum að minnast þess, að undirstaða allra framkvæmda í félags- og heilbrigðismálum eru öruggir og traustir atvinnuvegir. Þeir leggja til fjármagnið til að koma hinum þáttunum í höfn. At- vinnuhættir Suðurnesja eru hins vegar afar viðkvæmir fyrir verð- breytingum. Útvegurinn er undir- stöðuatvinnuvegur Reykjaness, en verðbólgan er skæðasti ógn- valdur þessa helzta útflutningsat- vinnuvegar okkar. Örugg efna- hagsstjórn í landinu er þannig einnig forsenda framfara á sviði félags- og heilbrigðismála." — Þú nefndir, að sjávarútveg- urinn væri undirstöðuatvinnu- vegur Reykjaness. Hefur þó ekki verið gert meira til þess að auka fjölbreytni atvinnulffsins f Reykjaneskjördæmi en vfðast hvar annars staðar? „Jú, við Reyknesingar höfum mikinn áhuga á þvf að koma á meiri breidd í atvinnulffinu til að þurfa ekki um of að treysta á eina atvinnugrein. Þarna er hins vegar við svolítið ramman reip að draga, þvf að eins og kom fram í viðtali við einn frambjóðanda stærsta stjórnarflokksins nýlega í sjón- varpinu, er Reykjanes jafnan tal- ið með höfuðborginni en ekki dreifbýlinu og á þvf ekki eins greiðan aðgang t.d. að Byggða- sjóði eins og ýmiss önnur héruð landsins. Þetta hefur valdið nokkrum skorti á lánsfjármagni og lýsir sér t.d. í því, að meðalald- ur bátaflotans á Suðurnesjum er u.þ.b. tvöfalt hærri en víðast hvar ODDUR Ólafsson, sem skipar annað sæti á lista Sjálfstæðisflokksins f Reykjaneskjördæmi, er bor- inn og barnfæddur Suðurnesjamaður, nánar tiltekið að Kalmanstjörn f Höfnum, þar sem forfeður hans stunduðu búskap og útveg frá alda öðli. Oddur hefur einnig helgað Reyknesingum starfskrafta sína. Hann var fyrst vistmaður og læknir að Vffilsstöðum, en varð sfðar yfirlæknir vinnuheimilisins að Reykjalundi. Hann átti sæti á Alþingi sfðasta kjör- tfmabil fyrir Reyknesinga og hefur þar látið félags- og heilbrigðismál mikið til sfn taka. í meðfylgjandi viðtali lýsir hann viðhorfum sfnum til þeirra mála svo og hagsmunamála Reyknesinga almennt. þrif fólksins annars staðar á landinu. Endur- nýjunin á þessum mikilvægu framleiðslutækjum okkar Reyk- nesinga er alltof lítil fyrir bragð- ið. Þá hefur einnig reynzt örðugt að fá fjármagn til iðnaðarreksturs í kjördæminu og kemur það sér afar illa, þar sem verið er að reyna að auka á fjölbreytni at- ' vinnulífsins." — En ef við nú vfkjum að heil- brigðisþjónustunni — hvernig er málum hennar háttað á Reykja- nesi? „Ég hygg mér sé óhætt að full- yrða, að heilbrigðisþjónustan sé óvíða betri en einmitt á Reykja- nesi, þegar á heildina er litið. Þar ber tvennt til — nálægðin við Reykjavík með aðgangi þar að helztu sjúkrahúsum landsins, og í öðru Iagi er naumast hægt að tala um læknaskort hjá okkur; læknar vilja ekki síður setjast að á Reykjanesi en menn úr öðrum starfsgreinum. Ég vík kannski betur að heilbrigðismálunum hér á eftir. — En veldur ekki hin öra upp- bygging f Reykjaneskjördæmi ásamt tilkomu stóriðjufyrirtækja þvf, að umhverfismál verða tölu- vert f brennidepli á næstunni? „Jú vissulega, en þegar rætt er um umhverfisvernd hef ég þó til- hneigingu tií að beina augum mínum fyrst að sjðnum. Friðun fiskimiða og verndun fiskstofn- anna er áhugamál allra Reyknes- inga, enda eigum við afkomu okk- ar undir þessum þáttum komna. Vel friðuðlandhelgirísþví hæst allra umhverfismála í kjördæmi með langri strandlengju og f jölda viðkvæmra fiskimiða þar undan. Til lands er þó einnig margs að gæta. Auðvitað hefur hinn öri vöxtur byggðar f kjördæminu sett svip sinn á gróður þess og nátt- úru. Víða hefur orðið óeðlilegt umrót og náttúruspjöll unnin, jafnvel svo að heil fjöll, er voru höfuðprýði byggðarlangsins, hafa verið flutt á brott. Má kannski orða þetta á þann veg, að fegurðin sé á flótta. Þvf undanhaldi þurf- um við að snúa í sókn, og eitt er vfst — mikil þörf er á því að taka náttúruverndarmál, — útivistar- svæði og gróðuraukningu til ræki- legrar endurskoðunar og væri það að mfnu viti verðugt verkefni næsta kjörtímabils að hefjast handa um aðgerðir í þessu skyni. Hér er viðfangsefni, sem hefur gildi fyrir kjördæmið allt.“ — En ef við tökum þá til við félagsmálin almennt, sem hafa verið höfuðvettvangur þinn. Nú á tfmum allrar félagshyggjunnar á vinstri væng stjórnmálanna, hvað kannt þú að segja okkur af stefnu Sjálfstæðisflokksins f félagsmál- um og um viðhorf þfn til þeirra mála? Framhald á bls. 20

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.