Morgunblaðið - 28.06.1974, Side 22

Morgunblaðið - 28.06.1974, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNl 1974 YNGSTI frambjóðandinn til alþingsiskosninganna 30. júnf er án efa Guðfinna Helgadðttir, sem skipar sjötta sætið á lista Sjálf- stæðisflokksins f Reykja- neskjördæmi. Hún fæddist í Reykjavfk 1954, er þvf rétt liðlega tvftug. Foreldr- ar hennar eru Helgi Hallvarðsson skipherra hjá Landheígisgæzlunni og Erla Erlingsdðttir Páls- sonar, yfirlögregluþjðns. segir Guöfinna Helgadóttir, yngsti frqmbjóðandinn^j;ir iskosningar „Ég ólst upp í Reykjavík þar til ég varð 13 ára og bjó þá á Bjargi við Sundlaugar, — 1 húsi afa míns,“ segir Guðfinna. „Þá flutti ég f Kópavoginn, en var þar aðeins tvo vetur í skóla, — varð að flyja á náðir Reykjavfkur vegna sþess, hversu skólinn var slakur. Nú héfur hins vegar skólunum fjölgað í Kópavogi og námsaðstað- an batnað til muna, en þó held ég, að við eigum enn nokkuð í land að hún verði góð. Sjálf er ég núna í Verzlunarskólanum og stefni að því að ljúka stúdentsprófi þaðan næsta vetur." Guðfinna lætur vel af Verzlunarskólanum. „Þar er farið inn á nokkuð aðrar brautir en f menntaskólunum, og mikil áherzla lögð á bókfærslu og hag- fræði, sem ég hef töluverðan áhuga á,“ segir Guðfinna enn fremur. Hún er ákveðin í því að hálda áfram námi að loknu stúdentsprófi, „en það er með mig eins og fleiri, að ég get ekki alveg gert upp við mig, í hvað ég eigi að fara í Háskólanum. Félagsmálin heilla mig mest, en mér skilst, að Guðfinna fyrir framan Eimskipafélagshúsið, þar sem hún starfar f sumar. þeim sé sniðinn heldur þröngur stakkur innan Háskólans. Við- skiptafræðin kemur varla til greina, þar eð feikilega margir eru við nám í þeirri deild, svo, að það jaðrar við offramboð á við- skiptafræðingum hérlendis." Guðfinna er heldur enginn ætt- leri á sviði íþróttannar iðkaði mikið sund fram eftir öllum aldri og lagði stund á fimleika. Síðustu árin hafa þó íþróttirnar orðið að þoka eftir því sem Guðfinna tók meiri þátt í félagsstarfinu innan Verzlunarskólans og nú upp á sfð- Iractirtá stiörnmálasviðinu. „Já, það bar snemma á þvf, að ég þætti pólitfsk," segir Guðfinna og brosir. „Það var haft á orði strax þegar ég var lftil telpa í sveit, fólkinu þótti undarlegt, hversu vel ég fylgdist með út- varpsfréttum og fréttum í blöðun- um. Sama varð upp á teningnum fljótlega f skólanum, ég lenti f útistöðum við kommana þar, og þar sem ég þótti hafa munninn fyrir neðan nefið (sem þótti óvenjulegt af stúlku að vera á þeim tíma) var strax farið að troða mér upp í pontuna. Allt þetta varð til þess, að ég var æ pólitfskari og þess vegna gekk ég f Heimdall strax og ég mátti — sama daginn og ég varð 16 ára að mig minnir. Síðar gekk ég í Tý — félag ungra sjálfstæðismanna hér í Kópavogi og varð fljótlega vara- formaður þess. Upp úr því fór ég að sitja landsfundi Sjálfstæðis- flokksins og er núna orðin sæmi- lega kunnug flokksstarfinu að ég held.“ Við síðustu bæjarstjórnarkosn- ingar f Kópavogi skipaði Guð- finna 13. sætið á lista Sjálfstæðis- flokksins. Þrettán hefur reynzt henni happatala, því að nú mánuði sfðar skipar hún 6. sætið til alþingiskosninganna á Reykja- nesi, eins og að framan er getið. „Ég hoppaði hátt,“ segir Guð- finna. „Jú, auðvitað varð ég mjög undrandi, þegar komið var að máli við mig og mér boðið þetta sæti. Eg tók mér svolítinn um- hugsunarfrest, — fannst ég verða að hugsa minn gang, ekki sfzt vegna þess, að ég kem til með að verða varaþingmaður og ekki ólíklegt, að ég þurfi að sitja eitt- hvað á þingi. En að öllu athuguðu ákvað ég að slá til. Ég kvíði ekki þingmennskunni, ef af verður. Ég geri mér hins vegar grein fyrir því, að ég verð að undirbúa mig og kynna mér störf Alþingis eins og mér er framast unnt. Ég hef ekki hugsað mér að taka þingset- una eins og hvern annan leik, sitja þar eins og brúða og gera ekki neitt. Ég tel mig búa yfir nægilegri ábyrgðartilfinningu til — Sjómennirnir Framhald af bls. 21 sem háir okkur aðallega er skort- ur á vinnuafli. Hér vantar alltaf menn til allra hluta, og það sem verst er, að það verður æ erfiðara að ráða menn á bátana. Ástæðan fyrir þessu er fyrst og fremst sú, að sjómennirnir bera ekki nóg úr býtum. Menn hafa meira í landi fyrir alls konar fokk. Sem dæmi get ég tekið, að Geirfuglinn, sem var aflahæsti báturinn á vertíð- inni hér í vetur, gefur í háseta- hlut tæpar 100 þúsund á mánuði. Ég geri ráð fyrir að margir verka- menn í landi leiki sér að þvf að taka inn 100 þús. krónur á mán- uði, og til hvers er þá að vera að veltast út á sjó í hvernig veðri sem er. Nýju skuttogararnir taka lfka mikinn hluta sjómanna frá bátunum og ofan á bætist, að sjó- mönnum fer fækkandi. Hér er um mjög alvarlegt mál að ræða, sem ég tel Iffsnauðsynlegt fyrir þjóð- ina að ráða bót á. — En hvernig hefur afkoma manna f landi verið að undan- förnu? — Afkoma manna hér hefur verið góð gegnum árin, enda hef- ur fiskazt vel. Þorskvertfðin var þó með Iélegra móti í ár. En hér hafa verið miklir uppgangstímar, i — fólki fer fjölgandi og hér er mikið byggt. Bæjarfélagið hefur ekki undan að útvega það sem til þarf. — Hvaða framkvæmdir eru helztar framundan hjá bsjar- félaginu,? — Hitaveitan er að sjálfsögðu mál málanna hjá okkur um þessar mundir. Númer tvö er gatnagerð en f þeim efnum erum við mjög aftarlega á merinni. Þá má nefna auknar hafnarframkvæmdir en f þeim efnum hefur mikið verið gert á þessu ári. En í þær fram- kvæmdir hefði ekki verið ráðizt á þessari öld, hefði Vestmannaeyja- gosið ekki komið til. En betur rná ef duga skal, og við eigum rnargt eftir ógert í hafnarmálunum. Þá er okkur Grindvfkingum mikið áhugamál, að hér verði byggð bræðsla og mér skilst að stjórn Rfkisverksmiðjanna hafi sýnt því máli áhuga, en það er Alþingis að taka ákvörðun um það. — Hvemig horfir með afkomu útgerðarinnar á þessu ári? — Ef svo fer fram sem horfir, mun rekstur útgerðarinnar stöðv- ast með öllu, áður en langt um líður. Utgerðin er komin niður á neðstu mörk vegna verulegrar aukningar viðhalds- og viðgerðar- kostnaðar. Ofan á þetta bætast örðugleikarnir við að ráða menn á bátana eins og ég nefndi áðan. Það er alltaf verið að tala um, að fiskveiðar séu undirstöðu at- vinnugrein okkar, en svo er þess- ari grein ekki séð fyrir viðunandi starfsgrundvelli. Það þarf hærra kaup fyrir sjómennina til þess að þeir fáist á bátana, en útgerðin er þannig stödd núna að það er ekki hægt að taka neitt af henni. I þessu sambandi vil ég svo bæta við, að ég tel brýna þörf á stórauk- inni friðun landgrunnsins, ef þetta á ekki að enda með skelf- ingu. Það er ekki allra meina bót, þótt Bretanum hafi verið ýtt út fyrir 50 mflur. íslendingar verða að líta í eigin barm og með fullri virðingu fyrir skuttogaraútgerð verð ég þó að segja, að sú veiði sem þeir stunda oft á tfðum, er ekki til hagsbóta fyrir neinn. 80% af afla þessara skipa er ófull- þroska smáfiskur, og ég er hrædd- ur um, að þeir eigi sinn stóra þátt í því að skafa allt upp hérna fyrir utan. Togaramenn kenna netun- um um og ég er samþykkur þvf, að það má setja einhverjar höml- ur á þær veiðar. En f netin flækist bara fullvaxinn fiskur, og í því liggur munurinn. Mín skoðun er því sú, að stóraukin friðun land- grunnsins sé eitt brýnasta hags- munamál þjóðarinnar. Vandamál útgerðarinnar eru að sjálfsögðu f nánum tengslum við efnahags- vandann, og þótt oft hafi það ver- ið svart, held ég að það hafi aldrei verið eins svakalegt og núna. Það má segja, að engin stjórn hafi haft fullkomin tök á efnahagsmál- um, en um leið má fullyrða, að engin stjórn hefur misst efna- hagsmálin eins gjörsamlega út úr höndunum á sér og þessi, sem nú situr viðvöld. að gera mér grein fyrir, að það er krafizt annars og meira af kjörn- um fulltrúum þjóðarinnar á Al- þingi.“ Guðfinna á enn eftir að hljóta eldskfrn sfna í kappræðum stjórn- málanna. „Að vfsu hef ég einu sinni komið fram á framboðs- fundi, það var á kynningu á ung- um frambjóðendum nú fyrir bæjarstjórnarkosningarnar, en auk þess hef ég setið og fylgzt með framboðsfundum. Mér hafa þótt þeir*mjög athyglisverðir sér- staklega allar umræður um félagsmálin. Nei, ég fyllist ekki neinni minnimáttarkennd, þó að ég þurfi kannski að etja kappi við mér reyndari stjórnmálamenn. Maður er búin að semja ræðu sfna, áður en maður stfgur í pont- una og þá er vandalaust að flytja hana. Auðvitað á ég eftir að öðlast reynslu f ræðumennsku en ég er þó komin af þvf stigi að skjálfa á beinunum f ræðustólnum." Guðfinna er bjartsýn á fram- vindu alþingiskosninganna, segist ekki trúa öðru en fólk leggi Sjálf- stæðisflokknum lið í þessum kosningum, ef það aðeins lftur f kringum sig og sér f hvaða ógöng- ur efnahagsmál landsins eru kom- in. „Nú, og það verður ekki síður kosið um varnarmálin á sunnu- daginn. I þvf máli eiga landsmenn raunverulega aðeins tvo valkosti, — Alþýðubandalagið, sem vill varnarlaust land og Sjálfstæðis- flokkinn, sem vill standa vörð um öryggi landsins, og fólk verður að gera upp við sig, hvorum flokkin- um það vill fylgja. Ég fyrir mitt leyti kvíði ekki þeim úrslitum."

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.