Morgunblaðið - 28.06.1974, Síða 28

Morgunblaðið - 28.06.1974, Síða 28
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNl 1974 28 Minning: Sigríður Hrefna Björnsdóttir Fædd 8. marz 1936. Dáin 22. júnf 1974. Æskuvinkona mín Hrefna Björnsdóttir lézt 22. júní sl. Hún fæddist 8. marz 1936 á Sauðár- króki. Foreldrar hennar voru Þor- björg Bjarnadóttir og Björn Jó- hannesson, sem lengst af bjuggu á Fjósum, Svartárdal í Austur- Húnavatnssýslu. Hrefna fór að loknu barnaskólanámi í Tóvinnu- skólann á Svalbarði, síðan í Kvennaskólann á Blönduósi. Eftir það lærði hún hjúkrun og starfaði lengi sem hjúkrunarkona, lengst af á Reykjalundi og síðustu árin á Kleppsspítalanum f Reykjavík. Hún giftist árið 1957 Guðmundi B. Guðmundssyni lækni. Þau eignuðust fjórar dætur, sem nú eru á aldrinum þriggja til 16 ára. Minningargreinar fjalla alla. jafna mest um þann, sem skrifar þær. Ýmist eru rifjaðar upp per- sónulegar minningar eða eigin- leikum þess látna lýst, svo að draga megi af þeim ályktanir og lærdóm til leiðbeiningar þeim, sem eftir lifa. Ég ætla mér ekki að brjóta nýtt blað í menningarsögunni. En mér finnst lítið tjóa að varpa fram spurningunni „hvers vegna“ við ' líkbörur þessarar ungu konp. Svo. oft hefur verið spurt, en svárið virðist alltaf jafn fjarri. — Fall- valtleiki Iffsins er okkur öllum kuhnur, að minnsta kosti játum við tilveru hans með vörunnm. Ekki get ég héldur Sagt, að vin- koná nifn hafi með ljfi sínu boðað neina sérstaka heimspeki, sem nú sé hægt að draga fram öðrum til hjálpar. Það, sem þó á erindi til allra, er sú staðreynd, að þegar dauðinn knýr ungt fólk tíl - að skiljást fr-á ástvinum sínum og það berst til hinztu stundar vSð að reyna að sigra hann, ætti það að minna okkur öll hin á, hve lífið er dásamlegt. Amma mín átti mynd af nunnu, sem situr við gluggá og horfir hugsi út. Á borðinu hjá henni eru nokkrir smámunir, sem hún hefur nýverið tekið upp úr skúffu. Þeir virðast minna hana á það, sem einu sinni var. Ég ætla að gera það sama, þegar ég kveð Hrefnu Björnsdóttur. Ég gekk ekki í barnaskólann i sveitinni minni, en þegar prófað var á vorin, gengumst við systkin- in undir próf eins og önnur börn. Það var lfklega, þegar ég var tfu ára, að ég fór fram að Bólstaðar- hlíð til þess að taka próf í fyrsta skipti á ævinni. Ég man vel, að ég sat á lausum bekknum í þinghús- inu og vissi ekki, hvað ég átti til bragðs að taka, þvf að krakkarnir þekktust að því er mér sýndist, enda höfðu þau verið saman í skólanum. Það er mörgutn erfitt að vera utan hópsins og ékki hvað sízt a þessum aldri. 4Þá kom ég. auga á stóra ^telpu, sem sat skamtnt frá mér. Stuttu seinna -færði hún sig til mín og yrti á mig. Þetta var Hrefna Björnsdóttir, þrem árum eldri en ég og þrosk- aðri að öllu leyti. Frá þessari stundu urðum við vinkonur og á æskuárunum urðu samtölin svo löng-oft á tíðum, að aðstandend- um okkar þótti vfst nóg um. Eitt- hvað var á það minnzt, að betur væri tfminn notaður til að sofa «g sfminn vaeri fremur ætlaður fyrir „nauðsynleg" erindi. ' Einhvern tímann seinna, á meðan við þó enn vorum börn, vorum við á ferð milli bæja að vetrarlagi. Það var grimmdarfrost og fjúk. Svellbunkarnir á veginum, sem hékk utan í hlíð- inni, voru svo miklir og hálir, að við skriðum yfir þá á fjórum fót- um. Oft hefur mér verið kalt um ævina, en aldrei eins og þá. Við rifjuðum það oft upp seinna, hvernig við vöfðum vasaklút- unum utan um hendurnar til þess, að þær kæli ekki og hvernig okkur fannst við vera að krókna, þegar við loks sáum ljós og vissum, að við mundum þrátt fyrir allt komast heim að Ból- staðarhlíð. Auðvitað vorum við börn, — en þá voru börn ekki annað en lítið fólk á leið að verða fullorðið. Ennþá seinna, sumarið eftir að ég fluttist til Reykjavíkur með foreldrum mínum, var ég f kaupa- vinnu hjá vinafólki mínu í Ból- staðarhlíð. Þá var ég 14 ára og Hrefna 17. Þá var stutt á milli - Fjósa og Bólstaðarhlíðar, einkum á kvöldin og um helgar. Þá um haustið komu menn norðan úr Skagafirði á leigubíl til að bjóða mér á ball. Húsbændur mfnir, sem yoru eins og beztu foreldrar, sögðust ekki vilja, að ég færi. Þetta væri glæfralegt uppátæki. Ég hringdi f Hrefnu og við fórum norður, þrátt fyrir mótmæli hús- bænda minna og við litla hrifn- ingu foreldra hennar, býst ég við. En mikið fannst okkur gaman. Ég hef víða farið sfðan þetta var og margoft komið á skemmtanir, en ennþá hef ég ekki farið ævintýra- legri ferð en þessa. Þetta eru munir úr skúffunni minni. Það er undarlegt með æskuna. Það er eins og það, sem þá gerist, marki svo djúp spor. Það, sem síðar hendir, hverfur fremur, þegar fram í sækir. Þetta er reyndar ekki svo undarlegt, þegar að er gætt. Sporin sjást vel í ný- föllnum snjó, — en hverfa á hjarnínu. t Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR frá Kampholti l Flóa, verður jarðsett frá Selfosskirkju laugardaginn 29. júní kl. 2 e,h Dætur, tengdasynir og barna- börn. t Eiginkona mín, SIGURBJÖRG GUÐLAUGSDÓTTIR, Símonarhúsi, Stokkseyri. verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju laugardaginn 29. júní kl 10 30 Guðni Guðnason. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og útför, ÞURÍÐAR ÁRNADÓTTUR, Kaðlastöðum, Stokkseyri. Einnig þökkum við læknum og hjúkrdnarfólki sem annaðist hana á Landspítalanum og sjúkrahúsi Suðurlands. Viktorfa Ketilsdóttir og fjölskylda. I Reykjavfk eignaðist ég nýjar góðar vinkonur, sem Hrefna kynntist líka, þegar hún kom suður til þess að fara f Hjúkrunar- skólann. En hún fékk brátt um margt annað að hugsa, því að hún gifti sig og eignaðist litla telpu. Sannarlega fannst mér það ævin- týralegt, þegar hún átti kærasta og ennþá merkilegra að eiga mann og barn, en leiðirnar skild- ust þá að nokkru, því að það gerir gæfumuninn á þessum árum, hvernig staðan er í þeim málum. Hrefna var með allan hugann við litlu stelpuna sína og manninn, sem var í námi. Hún vann mikið til þess að þetta gæti allt gengið vel. Þau bjuggu lengi í sama húsi og tengdamóðir hennar, frú Anna Guðmundsdóttir. Ég fann, hve mikils Hrefna mat tengd.amóður sína, en Hrefna átti að þvf er mér fannst einstaklega gott með að umgangast hvern sem var. Hún var ævinlega svo hress í bragði og vildi hrista af sér erfiðleikana ef einhverjir voru með dugnaði og vilja. Þannig vildi hún jafnvel hrista af sér sjúkdóminn, sem þó varð henni sterkari nú. Þetta við- mót og afstaða til hlutanna og þá ekki hvað sízt til sjúkdóma er reyndar eins konar stefna, sem margt fólk þarna heima í sveit- inni tileinkaði sér. Kannski er þessari stefnu líka fylgt í öðrum sveitum. Þar þekki ég ekki til. Hrefna var að mínum dómi óvenju náttúrugreind manneskja. Hún ólst ekki upp við þær aðstæð- ur, að langskólanám lægi beint við, en hún notaði greindina til að taka vel eftir öllu f kringum sig, draga ályktanir af því, sem hún sá og heyrði. Þegar við vorum stelpur hafði hún gaman af ljóðum. Það var uppgerðarlaust gaman, enda eng- inn hagnaður af því fyrir hana að kunna þau og lesa. Hún var yfirleitt tilgerðarlaus manneskja í öllum hlutum. Það er haft fyrir satt, að hinn sanni aðalsmaður sé blátt áfram og geti talað við hvern, sem er án þess að umsnúast og lenda f vandræðum með sjálfan sig. Hrefna var aldrei ólík sjálfri sér svo ég sæi til og alls staðar þar sem hún kom var hún jafn hispurslaus og þægileg í framkomu. Ég sagði það áðan, að í æskunni markast jþau spor, sem lengst vara. Þegar ég frétti, að hún væri alvarlega veik fannst mér ég verða að fara til hennar strax, þótt við hefðum þá ekki hitzt nema með höppum og glöppum síðustu árin. Mér fannst hún ekki hissa að sjá mig og við héldumst í hendur á sjúkrasænginni hennar eins og á svellinu forðum og leit- uðum að einhverju ljósi framund- an. Hún trúði meir á annað líf en ég og kannski er það til? En hún vildi þó fyrst og fremst lifa hjá börnunum sínum og manninum, sem áreiðánlega var bezti vinur hennar. Hún vildi halda áfram að lifa, vera móður sinni aðstoð seinna meir og fylgjast með yngri • systkinum sínum öllum. Éf það er eins og Hrefna von- aði, að líf er eftir þetta líf og guð, sem öllu ræður, — þá bið ég hann að blessa þau öll og styrkja. En fyrst og fremst ætti dauði hennar að minna okkur öll á lífið, sem er dásamlegasta tækifæri hvers og eins. Hún lifði og hún gladdist oft. Þegar ég stóð við banabeð hennar fyrir nokkrum dögum og sá, að hún svaf svo djúpum svefni, að dauðjnn yrði næstá skrefið, minntist ég orða Jóhanns Sigurjónssónar í Sonnettu: Fá- tæka líf, að þínum knjám ég krýp! Með þeirri hugsun kvaddi ég' hana. Hólmfrfður G^unnarsdóttir. Hrefna var ein af þessúm fá- gætu manneskjum, sem alltaf eru gefendur f lífinu. Hún átti þann allsnægta auð f sálinni, semdiún gat ausið af handa vinum sínum. Hún gerði þetta óafvitandi og af eðnshvöt, þannig að þiggjandinn varð ekki auðmýktur af heldur eið vel f návist hennar. Kæti og lifsgleði fylgdu gjarnan með og stundum lét hún fjúka eina og eina stöku, en Hrefna unni Ijóð- um og kunni vel með að fara. Þí*u ár, sem Hrefna og Guð- mundur bjuggu á Reykjalundi og t Eíginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, FRIÐRIK V. GUOMUNDSSON, fyrrverandi tollvörður, frá Höfða, lézt að heimili sínu Kafavogi 52 miðvikudaginn 26. júní. Guðrfður B. Hjaltested, börn, tengdabörn og barnabörn. Systir okkar t DROPLAUG JÓHANNSDÓTTIR CONNEY andaðist að heimili sínu 14 Ipswich Roadv Bournemouth, 12. þessa mánaðar Útför hennar hefur farið fram. F:h systkina "Már Jóhannsson. t Þokkum inmlega samúð og vinarhug, við andlát og útför móður minnar og tengdamóður, ÁSTRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR Stórholti 19, Sérstakar þakkir færum við læknura og hjúkrunarfólki, Sólvangi Hafnarfirði sem önnuðust hana af alúð og'hlýhug. Fyrir hönd fjölskýld-’ unnar. Guðjóna Eyjólfsdóttir, Ólafur Þórðarson. t Þökkum auðsýnda jsamúð við andlát og jarðarför föður okkar, téngda- föður og afa JÓNS BJARNA ÓLAFSSONAR, frá Hvammeyri, Tálknafirði. Halldóra Jónsdóttir, Eínar Einarsson, Kristfh Jónsdóttir, Gunnar Smári Þorsteinsson, Ragnar J. Jónsson, Óláfúr B. Jónsson. og barnabörn. við umgengumst daglega, eru okkur mikils virði. Nú er hún horfin, en eftir lifir minningin um hlýju, tryggð og reisn. Hún kom úr norðlenzkri sveit og tók þaðan með sér allt það bezta og vandaðasta, sem finnst í fari fslenzkrar konu. Sé til fs- lenzkur aðall er það fólk eins og Hrefna Björnsdóttir. Anna Sigríður Gunnarsdóttir. Nú ert þú leidd, mfn Ijúfa, lystigarð Drottins í, þar áttu hvíld að hafa hörmunga og rauna frí, við Guð þú mátt nú mæla, miklu fegri en sól unan og eilíf sæla er þfn hjá Lambsins stól. H.P. Nú er hún horfin sjónum okkar langt um aldur fram. Vilja Drottins getur enginn mannlegur máttur ráðið. — Hvernig má þetta vera? Hún, sem alltaf var full af lífsþrótti. Alltaf hafði hún nægan tíma til að fórna sér fyrir aðra. Hún fór frá sínu stóra heimili til hjálpar ef þess var þörf. Aldrei gat maður full- þakkað henni og heimilisfólki hennar, hve fórnin var mikil, er hún dvaldist vikum saman frá heimili sfnu okkur til hjálpar, þegar við áttum f miklu stríði. Sjúkdómur hennar var þess eðlis, að ekki var mikil von um varan- Iegan bata. — Er þá ekki svefninn langi kærkomnastur, þegar öllu öðru er lokið? — En erfitt er að sætta sig við það, er kallið kemur. Ég er Guði þakklát fyrir að hafa kynnzt Hrefnu svo náið. Ég bið algóðan Guð að varðveita sál hennar og gefa eiginmanni hennar, Guðmundi B. Guðmunds- syni lækni, og fjórum dætrum þeirra hugrekki til að standast þessa raun. Vinkona. Hún Hrefna mfn er dáin. Það er erfitt að sætta sig við, að svo tápmikil og góð kona á bezta aldri sé kölluð frá eiginmanni, börnum, ættingjum og vinum. Við áttum samleið á Reykja- lundi á árunum 1963—’64 og betri konu hef ég varla kynnzt. Hún stjórnaði heimili sínu og vinnu með mestu prýði, þótt stundum væri það erfitt meðan maður hennar Guðmundur B. Guð- mundsson læknir var að ljúka námi sínu. Hrefna var dóttir hjónanna Þorbjargar G. Bjarnadóttur og Björns Jóhanns Jóhannessonar bónda að Fjósum f Svartárdal f A-Húnavatnssýslu. Hrefna var vel menntuð, hún var í Tóvinnuskólanum á Sval- barði 1951—1952, sfðan í Kvenna- skólanum á Blönduósi og námi lauk hún frá Hjúkrunarkvenna- skólanum árið 1960. Hún var við hjúkrunarstörf f Hafnarfirði á St. Jósepsspitalanum, á Reykjalundi og við Kleppsspftalann. Þessi fátæklegu orð verða ekki fleiri, en ég votta eiginmanni hennar og börnum, svo og ætt- ingjum öllum innilega samúð. Guð blessi ykkur öll. Sólveig Axelsdóttir. „Ómur af Iögum og brot úr brögum, bergmál frá æfinnar liðnu dögum, af hljómgrunni hugans vaknar.“ E. Ben. Þessar ljóðlínur skáldsins komu mér ósjálfrátt f huga á laugar- dagsmorguninn var, þegar mér barst fregnin um, að Hrefna vin- kona mfn væri öll. — Ótal minningar vöknuðu og varð einna fyrst fyrir minningin um okkar fyrstu samfundi. Ég sá fyrir mér unga og glæsilega heimasætu framan úr Svartárdal koma inn úr dyrunum hjá mér á Blönduósi haustið 1953. Erindið var að sækja um kvennaskólann næsta vetur. Var það auðsótt mál. Tafði hún hjá mér stundarkorn og eins og mér er tamt spurðist ég fyrir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.