Morgunblaðið - 28.06.1974, Page 36

Morgunblaðið - 28.06.1974, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. JUNÍ 1974 Rekstrarferð Smásaga eftir Líneyju Jóhannesdóttur Móður og másandi komst ég upp á ásinn. Reksturinn var hvergi sjáanlegur. Guð almáttugur hjálpi okkur, ef hann væri nú týndur. Ég sá systur mína á harðahlaupum, dæmalaust var ég heimskur að senda hana aleina; héðan sá ég yfir allt hennar svæði. Og þarna var hafið langt, langt í burtu, ég gleymdi mér augnablik yfir þessari órafjarlægð. Þá heyrði ég hljóðið. Eins og örskot var ég kominn af stað niður brattann. Systir mín hljóðaði. Hún gat hafa séð drauginn, þennan hættulega, þennan voða- lega. Ég öskraði af öllum kröftum löngu áður en hún gat heyrt, hvað ég sagði. „Stattu kyrr og láttu hann ekki hafa áhrif á þig.“ Hún stóð grafkyrr og háskælandi upp á þúfu, þegar ég kom. Annar fléttungurinn hafði raknað upp og pilsið var allt í leirskellum. Fyrst af öllu varð ég að hugga hana. „Elsku, elsku hættu að skæla, ég skal gefa þér hundrað krónur, ég skal lofa því og sverja, ef þú hættir.“ Áhrifin urðu stórkostlég. Hún steinhætti og starði á mig. „Sástu hann,“ spurði ég skjálfraddaður. „Ég datt, svo ég er ekki alveg viss um, hvað ég sá.“ „Það er gott, að þú ert ekki alveg viss, annars hefði hann verið búinn að villa um fyrir þér. Þú hefðir áreiðanlega elt hann og ég aldrei, aldrei fundið þig.“ „Hversvegna?" spurði hún efablandin. „Hann hefði strax haft áhrif á þig,“ útskýrði ég hátíðlega, svo hún gæti skilið þessa skelfilegu hættu, sem hún hafði verið í. Systir mín jafnaði sig fljótlega og þá stóð ekki á því, — ég varð að sverja með öllum tilburðum og gefa hönd mína upp á loforðið að svíkja aldrei að eilífu, annars var ekkert að marka. Eftir svardagana lögðum við aftur af stað og nú ætluðum við ekki að skilja hvað sem á gengi. Girðingin okkar var miklu f jær en við héldum. Féð hafði rásað upp með henni og eftir langan og harðan eltingarleik komum við því loksins í gegnum hliðið. Nú var bitinn góður, við supum á mjólkurflöskunni til skiptis, en þorðum ekki að hvfla okkur, ef kindurnar skyldu týnast á meðan. Systir mín var komin í sólskinsskap, ég var aftur á móti þögull. Vörðurnar töluðu sínu máli, aðalhálsarnir voru byrjaðir og það hafði líka runnið upp fyrir mér, að hundrað krónur gat ég aldrei eignazt. Þó var ég búinn að lofa og sverja. Ég var ekki einu sinni viss um hvort hún hafði séð drauginn, og þó hún hefði séð hann, var það alveg sama, ég gat ekki eignazt hundrað krónur. Hún hlaut að vita það eins vel og ég. í sparisjóðnum átti ég ekki nema tíu krónur og í mínum helmingi í púltinu okkar var baukurinn minn með þrem fimmeyringum og einum tveggeyring. Hún sjálf átti tvær krónur í álftafætinum sínum, hún var svo heppin að eiga nöfnu á lífi, þessvegna átti hún líka silfurskeið og perlufesti. Hversvegna gat ég ekki lofað henni einhverju öðru? (^Nonni ogcTVIanni eftir Jón Sveinsson Freysteinn Gunnarsson þýddi „Já, ég kom að Möðruvöllum, og ég átti að skila kveðju frá foreldrum ykkar“. „Hvað sagði mamma?“ spurði Manni. „Það skal ég segja ykkur, þegar við förum að borða. En nú verðið þið að fara á fætur“. Við stukkum upp af mosabeðnum og vorum fljót- lega tilbúnir. Síðan fórum við út fyrir hellismunnann og báðumst fyrir. Haraldur kom út líka. Ég var mjög hrærður í huga við þessa bænagerð. Mér fannst eins og við værum nær guði hérna uppi en niðri í dölunum. Og mér fannst, að himneskar ver- ur væru á sveimi allt í kringum mig. Manni baðst fyrir heitt og innilega með barnslegri ákefð. Þegar bænagerðinni var lokið, sagði Haraldur: „Þetta voru fallegar bænir. Biðjið þið alltaf svona?“ „Já“, svöruðum við. „Hún mamma kenndi okkur það“. „Þið eigið líka góða móður. Hún bað mig fyrir margt gott handa ykkur. Og komið þið nú inn að borða“. Við gengum inn og tókum til matar. Nú var miklu fleira og betra á borð borið en kvöldið áður. Þetta var hátíðamatur. Þar var kjöt, harðfiskur, smurt brauð og tveir bollar af súkkulaði handa hverjum. Á meðan við vorum að gæða okkur á þessu, sagði Haraldur frá ferð sinni heim til Möðruvalla. „Á leiðinni niður mætti ég kunningja ykkar, honum bola“, sagði hann. „En hann var ekki eins mannýgur og þið haldið“. „Ekki það?“ tók Manni fram í. „Það hefur þá verið af því, að Nonni rak gat á nefið á honum“. „Já, þú heldur nú það. kunningi. En ég hugsa nú samt, að það hafi verið af því, að ég var ekki í rauðri peysu eins og þú. Veiztu það ekki, að nautin verða vitlaus, ef þau sjá rauða flík?“ Páll V. Daníels- son skrifar frá Hafnarfirði Hvað viljum við? VIÐ viljum frelsi lands og þjóðar og tryggja það sem bezt í sam- starfi við vinaþjóðir, sem virða okkar rétt og sjálfstaeði og eiga við okkur samstarf á jafnréttis- grundvelli, þrátt fyrir það, að við erum svo fámenn þjóð, að við getum ekki varið okkur með valdi. Við viljum frelsi einstaklings- ins til orðs og athafna og tryggja honum það þjóðfélag, sem bezt laðar fram hæfileika hans og starfsorku til nytsemi og fram- fara fyrir þjóð okkar. Við viljum ganga hart fram í þvf að dreifa valdinu frá ríkinu til sveitarfélaga og einstaklinga þar sem það er eina raunhæfa leiðin til bættrar og ódýrari stjórnunar og raunhæfrar skattalækkunar. Við viljum tryggja stöðu krón- unnar og víkja frá verðbólgu- stefnunni, sem ávallt hefur reynzt þeim erfiðust, sem minnst hafa handa á milli. Við viljum byggja upp traust atvinnulíf svo að allir þeir, sem geta unnið, fái starf við sitt hæfi og ekki þurfi að koma til atvinnu- leysis út af tímabundnum erfið- leikum sveiflukenndra atvinnu- greina. Við viljum skapa unglingum, öldruðum og fólki, sem hefur skerta starfsgetu, starfsaðstöðu við sitt hæfi, svo að það geti verið virkir þátttakendur í framleiðslu- störfunum og verið þannig með í framgangi daglegs lífs. Við viljum tryggja raunhæfa menntun í landinu og koma henni úr höndum hins dýra og dauða miðstýringarkerfis til lifandi stjórnar og framkvæmdar þeirra, sem mestan áhuga hafa á að vel takist í þeim efnum, þ.e. foreldranna sjálfra. Við viljum á öllum sviðum rétta vanheilum hjálparhönd og skapa þeim sem hamingjusamast líf með þvf að hjálpa þeim til að hjálpa sér sjálfir. Við viljum umfram allt fá að vera við sjálf, fá að lifa og starfa án þess að opinberir að- ilar séu alltaf að segja okkur hvað rétt er og rangt. Þeirra mat verður alltaf hópmat, sem smækkar einstakling- inn og gerir hann kærulausan og óhamingjusaman með öllu því óláni, upplausn, tortryggni, ábyrgðarleysi, afbrotum, óreglu o.fl., sem þvf fylgir. Við viljum heilbrigt líf, traust þjóðfélag, traust sveitarélag, traust heimili, og traustan ein- stakling. Allt þetta felst í stefnu Sjálfstæðisflokksins, þess vegna minnumst við D-listans á sunnu- daginn kemur. x D.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.