Morgunblaðið - 16.07.1974, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULl 1974
Banaslys i Eyjum:
Ung bandarísk kona
hrapar í Heimakletti
ÞAÐ slys varð I Vestmannaeyjum
á laugardaginn, að ung bandarfsk
kona fékk stein f höfuðið er hún
var að hefja uppgöngu á Heima-
klett. Féll hún við það niður á
jafnsléttu, um 5 metra fall. Var
hún þegar flutt með flugvél til
Reykjavfkur, en lézt á leiðinni
þangað. Konan hét Christine E.
Sturtevant, og var á þrftugsaldri.
Hún var hér f skemmtiferð ásamt
manni sfnum.
Nánari atvik eru þau, að
Christine og maður hennar voru
að hefja uppgöngu á Heimaklett
um klukkan 17,45. Var Christine
kominn um 5 metra upp í neðsta
stigann, en maður hennar stóð
fyrir neðan. Tveir menn voru á
30 punda laxi
landað á aðeins
10 mínútum!
S.L. föstudag setti Kolbeinn
Jóhannsson, endurskoðandi f
Reykjavfk, f stóriax á Breiðu f
Laxá f Aðaldal. Eftir aðeins 10
mfnútna viðureign, ótrúlegt
en satt, lá 30 punda hængur
við fætur veiðimannsins. Skýr-
ingin mun vera sú, að þegar
laxinn tók f spúninn, lokaðist
kjaftur hans. Það mun vera
einsdæmi hve stuttan tfma tók
að landa þessum stórlaxi.
ferð ofar í klettinum, og hrundi
allstór steinn undan fótum þeirra,
og lenti hann á höfði konunnar,
þannig að hún féll niður á jörð-
ina. Var lögreglan þegar kvödd á
staðinn, og var konan meðvitund-
arlaus þegar að var komið. Lækn-
ir kom á staðinn rétt á eftir, og
tók hann þá ákvörðun að flytja
konuna til Reykjavíkur tafar-
laust. A flugvellinum beið tilbúin
flugvél frá Eyjaflugi, og fór hún
með konuna til Reykjavfkur, og
voru læknir og maður konunnar
með í ferðinni. Christine mun
hafa látizt á leiðinni til Reykja-
víkur.
Gott veður var í Vestmannaeyj-
um þennan dag, og þvf töluverðar
mannaferðir í Heimakletti. Hjón-
in voru ein síns liðs, en ekki f
skipulögðum ferðamannahópi.
Pálmi
Eyjólfur
Ellert
Sigrfður
Þorbjörn.
Héraðsmót Sjálfstæðis-
flokksins um næstu helgi
— í Siglufirði, Miðgarði í Skagafirði og á Blönduósi
HÉRAÐSMÓT Sjálfstæðisflokks-
ins halda áfram um næstu helgi
og verða þá haldin þrjú mót sem
hér segir:
Siglufirði. Þar verður héraðs-
mótið föstudaginn 19. júlf og
hefst kl. 21.00. Avörp munu flytja
Eyjólfur Konráð Jónsson,
alþingismaður, og Þorbjörn
Arnáson, lögfræðingur.
Miðgarður f Skagafirði. Héraðs-
mótið í Skagafirði verður haldið
daginn eftir, laugardaginn 20. júlf
og hefst kl. 21.00. Þar munu flytja
ávörp Ellert B. Schram, alþingis-
Meiríhlutí ríkisstjórnar
andvígur vaxtahækkun
Breiðholts-
árásin upplýst
Eins og fram hefur komið f
frétt Mbl. varð maður fyrir
lfkamsárás f Breiðholti aðfarar-
nótt þriðjudagsins 9. júlf sl. Tals-
verðum fjármunum var stolið af
manninum þ.á m. ávfsanahefti en
ávfsanir úr þvf hefti hafa nú Ieitt
til þess, að árásarmaðurinn er
fundinn.
Það var ekki fyrr en
ávísanirnar fóru að berast að
rannsóknarlögreglan komst á slóð
árásarmannsins. Tókst að rekja
slóð hans upp á Akranes þar sem
hann var handtekinn á fimmtu-
dagskvöldið sl. Var hann þá búinn
að gefa út allmargar ávísanir úr
heftinu en ekki er vitað að fullu
hversu mikið fé þar er um að
ræða. Er maðurinn var hand-
tekinn voru í fylgd með honum
tveir menn en þeir munu ekki
vera viðriðnir árásina. Maðurinn
hefur nú meðgengið verknað
sinn, en þetta er ungur maður,
fæddur 1949 og hefur ekki áður
komizt undir manna hendur.
ÓLAFUR Jóhannesson, forsætis-
ráðherra, hefur nú greint frá þvf,
að meirihluti rfkisstjórnarinnar
hafi verið andvfgur þeirri hækk-
un vaxta, sem Seðlabankinn til-
kynnti sl. föstudag. Hann sagði
ennfremur, að yfirlýsing Lúðvfks
Jósepssonar um þetta efni væri
útaf fyrir sig rétt. Þá sagði hann,
að Seðlabankinn hefði ekki borið
þessa ákvörðun undir rfkisstjórn-
ina og hún hefði ekki samþykkt
að láta hana afskiptalausa.
Lúðvfk Jósepsson sagði f viðtali
við Þjóðviljann sl. laugardag:
„Þessi ákvörðun um hækkun
vaxta er tekin algjörlega í and-
stöðu við mig sem bankamálaráð-
herra. Ég hef lýst harðri andstöðu
við þessar fyrirætlanir og tel, að
þær séu hið mesta óráð eins og nú
háttar í okkar efnahagsmálum."
Ráðherrann sagði ennfremur f
áðurnefndu viðtali: „Þessi ráð-
stöfun, sem nú er gerð er gerð
gegn mfnum vilja og gegn vilja
ríkisstjórnarinnar og er einhliða
ákvörðun bankaráðs Seðla-
bankans og ég lýsi yfir algerri
andstöðu minni við þessa ákvörð-
un.“
Morgunblaðið bar þessi um-
mæli undir forsætisráðherra, ólaf
Jóhannesson, í gærdag. Hann
sagði, að þau væru út af fyrir sig
rétt. Forsætisráðherra sagði enn-
fremur, að meirihluti ríkis-
stjórnarinnar hefði verið þessari
ákvörðun andvígur. En ekki vildi
hann greina frá því hverjir skip-
uðu þann meirihluta.
Þá var forsætisráðherra spurð-
ur að því, hvort ríkisstjórnin
hefði ekki samþykkt að láta þessa
ákvörðun afskiptalausa eins og
segir í greinargerð Seðlabankans.
Forsætisráðherra sagði, að ríkis-
stjórnin hefði ekki samþykkt það;
málið hefði ekki verið undir hana
borið að þessu sinni.
I greinargerð Seðlabankans
segir m.a. um þetta efni: „Rétt er
að taka það fram, sem reyndar er
þegar kunnugt, að Seðlabankinn
hafði talið tímabært að hækka
vexti mun fyrr, en þeirri ákvörð-
un var slegið á frest vegna óska
rikisstjórnarinnar. Nú er að
bankans dómi ekki verjandi að
fresta þeirri ákvörðun lengur og
hefur fráfarandi rfkisstjórn ekki
talið eðlilegt að hafa afskipti af
málinu við núverandi aðstæður,
enda hefur bankinn lögum sam-
kvæmt ákvörðunarvaldið um
vexti og lánskjör innlánsstofn-
ana.“
Þjóðhátið Eyfirðinga
haldin um næstu helgi
ÞJÓÐHATÍÐ Eyfirðinga verður
haldin f Kjarnalandi dagana 20.
og 21. júlf. Kjarnaland er rétt
innan við Akureyrarkaupstað og
hefur landið verið í umsjá Skóg-
ræktarfélagsins á Akureyrl um
árabil og er kominn myndarlegur
vfsir að skógi f landinu. Þarna
verður f framtfðinni fólkvangur
Eyfirðinga og verður hann form-
lega opnaður almenningi á
þessari hátfð.
Hátíðahöldin í Kjarnaskógi
hefjast laugardaginn 20. júlf kl.
21.00 með kvöldvöku. Verður á
henni fjölbreytt skemmtiefni við
hæfi ungra og aldinna. Þá verður
einnig dansleikur í íþróttaskemm-
Veðurguðirnir léku við Vestfirðinga:
10-12 þúsund manns á
landnámshátíð þeirra
Landnámshátfð Vestfirðinga var
haldin f Vatnsfirði um helgina,
og þótti hún takast með afbrigð-
um vei. Glampandi sól var allan
tfmann, og er talið, að 10—12
þúsund manns hafi verið á hátfð-
inni þegar mest var, að sögn
fréttaritara Mbl. á tsafirði.
Fólk fór að streyma til Vatns-
fjarðar strax á föstudagskvöldið,
en hátfðahöldin hófust ekki fyrr
en á laugardaginn, nema hvað
tónlist var leikin á föstudagskvöld
til afþreyingar fólki, sem þá var
komið á staðinn. Dagskráin hófst
á laugardagsmorgun með lúðra-
blæsti, en sfðan kom það atriði,
sem mönnum þótti tilkomumest á
hátfðinni, sigling vikingaskips
inn Vatnsdalsvatn. Fékk skipið
góðan byr inn vatnið. Stóð
Hrafna-Flóki þar fremstur, og
sleppti hann hrafnsunga skömmu
fyrir landtöku, en hann hafði
verið taminn til þessa atriðis.
Flaug hann lágt yfir mannfjöld-
ann. Um klukkan 11 steig Hrafna-
Flóki og hans fólk á land, klætt
fornmannabúningum. Var geysi-
legur mannfjöldi samankominn
við bryggjuna.
Eftir þetta var gert hlé, en sam-
felld dagskrá byrjaði eftir hádeg-
ið. Marfas Þ. Guðmundsson, for-
maður Þjóðhátfðarnefndar Vest-
fjarða setti hátfðina, síðan sungU
kórar; Guðmundur G. Hagalfn
flutti hátíðarræðuna og um kvöld-
ið var dansað á tveimur pöllum.
Dagskrá sunnudagsins hófst með
guðsþjónustu, og tóku allir prest-
ar á Vestf jörðum þátt í henni. Við
guðsþjónustuna söng um 100
manna kór úr kirkjukórum Vest-
fjarða. Eftir hádegið hélt dag-
skráin áfram, sr. Gunnar Björns-
son í Bolungarvik lék á selló,
undirleik annaðist ólafur
Kristjánsson, Bryndís Schram
flutti hátíðarkvæði, Litli leik-
flokkurinn á Isafirði flutti þátt
fyrir börn, og síðar um daginn
flutti hann leikritið Pilt og
stúlku. Ómar Ragnarsson
skemmti, og dansað var fram eftir
kvöldi. Voru menn á einu máli
um, að hátfðin hefði tekizt með
afbrigðum vel, og var allur brag-
ur hennar eins og bezt verður á
kosið.
maður, og! frú Sigriður Guðvarðs-
dóttir frá Sauðárkróki.
Blönduós. Sfðasta héraðsmót
helgarinnar verður haldið á
Blönduósi. sunnudaginn 21. júlí
og hefst það kl. 21.00. Avörp á því
móti munu flytja Pálmi Jónsson,
alþingismaður, og Ellert B.
Schram, alþingismaður.
Fjölbreytt skemmtiatriði á
héraðsmótunum annast hljóm-
sveit Ólafs Gauks ásamt Svölu
Nielsen, Svanhildi, Jörundi
Guðmundssyni og Agústi Atla-
syni. Hljómsveitina skipa: Ólafur
Gaukur, Svanhildur, Ágúst Atla-
son, Benedikt Pálsson og Carl
Möller.
Að loknu hverju héraðsmóti
verður sfðan haldinn dansleikur
þar sem hljómsveit ólafs Gauks
leikur fyrir dansi.
Seldi
í Skagen
Helga 2. frá Reykjavfk seldi 908
kassa af sfld f Skagen f Danmörku
f gær fyrir 812 þús kr. fsl. Meðal-
verðið var um 23 kr.
unni á Akureyri á vegum félaga-
samtaka í sýslu og bæ.
A íþróttavellinum á Akureyri
verður knattspyrnuleikur í 1.
deild og frjálsar íþróttir kl. 14.00
á laugardag og kl. 17.00 verður
afhjúpað í garðinum við
Þórunnarstræti Iistaverk As-
mundar Sveinssonar „Harpa
bænarinnar", sem hjónin Marta
Sveinsdóttir og Guðmundur
Jörundsson útgerðarmaður gefa
Akureyrarkaupstað.
Kl. 11.00 á sunnudag verður
hátfðarguðsþjónusta í Akureyrar
kirkju, en aðalhátíðarhöldin
hefjast í Kjarnaskógi kl. 13.30.
Þar koma fram 3 kórar úr hérað-
inu. Steindór Steindórsson fyrrv.
skólameistari flytur hátíðarræðu.
Avörp verða flutt og skemmtidag-
skrá með fjölbreyttu efni að lok-
inni hátfðardagskrá. Hátfðinni
lýkur síðdegis á sunnudag.
Framhald á bls. 35
Flugvél sleit
rafmagnsvír
LITLU munaði að flugslys yrði f
Laxárdal f Dölum um helgina.
Tveggja hreyfla Twin Otter flug-
vél frá Vængjum var þar á flugi
með útbúnað til laxveiðimanna,
en einnig voru nokkrir farþegar
með vélinni.
Vélin flaug mjög lágt yfir veiði-
kofa f dalnum, og mun flug-
maðurinn ekki hafa áttað sig á
rafmagnsvír, sem var strengdur
yfir dalinn. Flaug vélin undir
vírinn, og snerti hann með
stélinu. Fór vfrinn í sundur, en
skemmdir urðu litlar á vélinni.
Loftferðaeftirlitið fór á staðinn.
Ekki er gott að vita hverjar
afleiðingarnar hefðu orðið ef
vélin hefði flogið nokkru ofar og
vfrinn lent á henni miðri.
Guðbrandur
Magnússon
látinn
LATINN er f Reykjavfk
Guðbrandur Magnússon, fyrrver-
andi forstjóri Afengisverzlunar
rfkisins, 87 ára að aldri. Hann lézt
á laugardaginn. Guðbrandur var
einn af þekktustu borgurum
Reykjavfkur.
Guðbrandur var fæddur að
Hömrum á Mýrum 15. febrúar
1887, sonur Magnúsar Sigurðs-
sonar bónda og konu hans Hall-
fríðar Brandsdóttur. Hann lauk
prófi í prentiðn á Seyðisfirði
1904, og stundaði margvísleg störf
á næstu árum, vann við prentun,
var kennari og bóndi um tfma!
Hluta árs 1917 var hann ritstjóri
Tímans. Ritari í stjórnarráði var
hann 1918—’20, en þá tók hann
við kaupfélagsstjórastarfi á Hell-
geirsey, A-Landeyjum, og gegndi
því starfi til ársins 1928, er hann
tók við starfi forstjóra Afengis-
verzlunarinnar, en því starfi
gegndi hann um langa hrfð. Guð-
brandur starfaði mikið að félags-
málum.
Kona Guðbrands, Matthildur
Kjartansdóttir, lifir mann sinn.
Þeim varð 5 barna auðið.