Morgunblaðið - 16.07.1974, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULÍ 1974
3
Tíu þúsund manns á hesta-
mannamótinu á Vindheimamelum
Kári kominn fyrstur I mark f 800 metra stökki og slær landsmetið. Sörli (sá brúni) var sjónarmun á
eftir en hljóp á sama tfma, 59,7 sek.
LANDSMÓTI hestamanna á
Vindheimamelum lauk á
sunnudag. Mótið tókst mjög
vel, enda aðstaða góð og var
mikið fjölmenni. Á sunnudag
voru u.þ.b. tfu þúsund manns á
mótsstað. Keppni var mjög
spennandi, ekki sfzt f stökki
þar sem öll met fuku.
I 300 metra stökki sigraði Nös
Jóns Ólafssonar með tímann
21,4 sek., sem er undir gildandi
meti. I milliriðli á laugardag
hljóp Nös á 21,3 sek.
Núgildandi met er 21,5 sek. en
þetta met, eins og önnur, sem
sett voru, hefur enn ekki verið
staðfest.
800 metra stökkið var mjög
spennandi. I milliriðlunum á
föstudag hljóp Frúarjarpur
Unnar Eiríksdóttur á 59,9 sek,
en landsmetið er 61,4 sek. Það
met var hins vegar slegið í
úrslitunum af Kára Hreins
Arnasonar og Sörla Reynis
Aðalsteinssonar, sem hlupu
vegalengdina á 59,7 sek. Kári
var sjónarmun á undan og því
dæmt fyrsta sæti. Frúarjarpi
tókst hins vegar verr upp og
lenti f fjórða sæti.
1 1500 metra brokki sigraði
Tumi Marteins Valdemars-
sonar á 3 mín. 15,6 sek.
Fyrir sigur í skeiði voru í
boði hæstu verðlaun, sem veitt
hafa verið á hestamannamóti
hérlendis, 60 þús. kr. Þau
hreppti Óðinn Þorgeirs
Jónssonar og var tími hans, 23,2
sek., einn sá bezti, sem náðst
hefur í langan tíma.
A mótinu voru margir fagrir
gæðingar frá hestamannafélög-
um hvaðanæva af landinu. Er
talið, að hátt á þriðja þúsund
hesta hafi verið á mótsstað.
Aðstaða er mjög góð á Vind-
heimamelum fyrir mót sem
þessi, hvort sem er fyrir fólk
eða hesta, og var aðbúnaður og
skipulagning til mikillar fyrir-
myndar.
Nánar verður sagt frá mótinu
síðar.
4---------------------------------------------------------------
Urslitasprettur f 300 metra stökki. Nös kemur fyrst f mark. Sfðan
koma Loka, óðinn og Sörli. Ljósm. Mbl. Sv. Þorm.
Metaregn
1 stökkinu
Hjón úr Reykjavík
brenndust illa
Varnarliðsvél sótti þau upp að Hvítárvatni
ÞAÐ slys varð við Hvftárvatn
austan Langjökuls á laugar-
daginn, að hjón úr Reykjavfk,
Pétur Ó. Nikulásson og Sigrfður
Guðmundsdóttir, brenndust mik-
ið þegar eldur kom upp f útigrilli,
sem þau notuðu við matseld.
Þetta gerðist rétt fyrir klukkan
18. Haft var samband við Slysa-
varnafélag tslands, sem leitaði
aðstoðar varnarliðsins. Fór Þyrla
varnarliðsins strax á staðinn, og
voru hjónin komin á Landspftal-
ann um klukkan 20. Lfðan þeirra
var eftir atvikum þegar Mbl.
hafði samband við spftalann f
gærkvöldi.
Hjónin voru í landgræðsluferð
með Lionsklúbbnum Baldri úr
Reykjavfk. Þau hjónin voru að
hefja matseld skömmu fyrir
klukkan 18 á laugardaginn þegar
óhappið varð. Svo virðist sem þau
hafi verið að hella spritti í eldinn,
þegar eldurinn náði skyndilega í
sprittflöskuna, svo hún fuðraði
upp á augabragði. Sigríður var í
fötum úr gerviefnum, og urðu
þau þegar aleldá. Brenndist Sig-
ríður mest á lærum, en Pétur
brenndist einnig við að reyna að
slökkva eldinn í fötum konu
sinnar, mest á höndum. Hjálpar-
beiðni barst Slysavarnafélaginu
laust upp úr klukkan 18. og lagði
varnarliðsþyrla strax af stað
uppeftir með lækni og sjúkraliða
innanborðs. Var henni leiðbeint
til lendingar efra með varðeldum.
Kom hún til Reykjavíkur um
klukkan 20 sem fyrr segir, og
voru hjónin þegar flutt á Land-
spítalann. Reyndist Pétur vera
með 2. stigs bruna og Sigrfður
með 3. stigs bruna.
Þegar Mbl. hafði tal af Hannesi
Hafstein hjá Slysavarnafélaginu í
gær, vildi hann brýna fyrir fólki
að vera ekki nálægt eldi ef það er
klætt fötum úr gerviefnum, vegna
þess hve eldfim þau eru.
■ y.<\;
Svifflugurnar á Hellu. Ljósm. Páll Gröndal.
Erfið skilyrði á svifflugmótinu
Hellu 15. júlf.
Islandsmeistaramótið f svif-
flugi hófst á Hellu sl. laugardag.
Var það sett af Birni Jónssyni,
formanni Flugmálafélags ts-
lands, að viðstöddum keppend-
um, sem eru 4 og aðstoðarfólki
þeirra. Mót þessi eru haldin
annað hvert ár.
Kristján Torfason flugmaður.
Hver keppnisdagur hefst á því,
að mótsstjórnin aflar sér nýjustu
veðurfrétta og ákveður síðan
hvaða leið skuli fljúga þann dag,
og fer það eftir flugskilyrðum. Á
laugardag var hvöss norðaustan-
átt, og var þvf ekki hægt að leggja
keppnisleið. I gær, sunnudag,
voru skilyrði fremur slæm, hæg
„Tilviljun, aðégvar
svona austarlega”
— sagði flugmaðurinn, sem nauðlenti á vegi
„Það var hálfgerð tilviljun, að
ég var svo austarlega og gat þvf
notað veginn sem flugbraut,"
sagði Kristján Torfason flug-
maður hjá Flugstöðinni f samtali
við Mbl. f gær, en Kristján varð að
nauðlenda vegna vélarbilunar á
Vesturlandsveginum, rétt við af-
leggjarann að Blikastöðum. Þetta
gerðist skömmu eftir hádegi á
laugardaginn.
Kristján var á leiðinni til Mið-
fjarðar með veiðiútbúnað. Hann
var á eins hreyfils Cessna 172
Skyhawk flugvél, sem ber ein-
kennisstafina TF—100.7—8 mfn-
Unnið að viðgerð vélarinnar. Ljósm. Mbl. SH.
utum eftir flugtak, þegar flug-
vélin var enn að hækka flugið,
gerðist það, að útblástursventill
brotnaði og vélin missti við það
kraft, en þó drapst ekki á
mótornum. Við venjuleg skilyrði
hefði Kristján flogið vestur fyrir
Esjuna, en í þetta sinn var
skyggni svo gott, að hann ákvað
að fljúga stytztu leið, yfir Esjuna,
og því var hann svoaustarlegasem
raun var á. Ákvað Kristján að
lenda á steypta veginum við
Korpúlfsstaði, og tókst lendingin
vel. „Það var ekki mikil umferð
um þetta leyti, og ég renndi mér
niður á milli bíla. Þeir voru
heldur betur hissa bílstjórarnir
sýndist mér. Vélin hafði nægi-
legan kraft til að lyfta sér yfir bíl
ef út í það hefði farið, og einnig
hafði ég túnin á nágrenninu sem
hugsanlegan varavöll. Annars má
það alveg koma fram, að þetta er
bezta flugbraut, sem ég hef lent
á,“ sagði Kristján.
Þegar flugvélin var lent, var
hún dregin út af brautinni, og
viðgerðarmenn komu á staðinn.
3—4 tímum seinna kom Kristján
og sótti vélina, og hóf hún sig til
flugs af veginum eins og ekkert
hefði f skorizt. I þetta skipti voru
lögreglumenn til staðar, svo
ekkert færi úrskeiðis.
sunnanátt og skýjað, en hitaupp-
streymi mjög lítið. Keppnisleiðin
var frá Hellu að Stóra-Núpi, Haga
I Holtum og til Hellu. Engum
keppanda tókst að komast alla
leið, en einn þeirra gerði gildan
keppnisdag. Til að keppnisdagur
verði gildur, þarf keppandi að
fljúga a.m.k. 25 kflómetra leið.
í morgun var útlitið mjög gott,
en upp úr hádegi fór að hvessa.
Einn keppandi náði að fljúga 106
kílómetra þríhyrning, Hella —
Búrfell — Hruni — Hella, annar
lenti hjá Hruna en öðrum kepp-
endum gekk verr. Mótið heldur
áfram fram að helgi.
— Jón.
Hnakki
stolið
Hnakki var stolið frá sextán ára
gömlum pilti, sem var þátttak-
andi f sýningunni æskan og hest-
urinn á Landsmóti hestamanna á
Vindheimamelum. Hafði pilt-
urinn, sem heitir Þórður Daði
Jónsson, frá Blönduósi, bundið
hestinn með hnakknum og
brugðið sér frá um stund. Þegar
hann kom aftur var hesturinn
horfinn. Hann fannst þó skömmu
seinna, án hnakksins. Hafi ein-
hver orðið var við hnakkinn, sem
er nýlegur með undirdýnu úr
leðri, er hann vinsamlegast beð-
inn að snúa sér til sfmstöðvar-
innar á Blönduósi.