Morgunblaðið - 16.07.1974, Side 7

Morgunblaðið - 16.07.1974, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULl 1974 7 ísVurJlorkehneð £ -f-.S -vl ■ LONDON — Rósir, jarðar- ber, cricket: Tákn hins enska sumars eru óbreytt. London er enn London, húsþök og reykháfa ber við himininn, blómasöluvagnar eru á götu- hornum, bjórkrárnar selja pylsur. Þetta er allt traustvekj- andi. En undir niðri er eitt- hvað breytt í Bretlandi. Fólk hefur orð á því, og þeir Is- lendingar, sem eru tíðir gest- ir í Bretlandi finna einhverja breytingu í andrúmsloftinu. Virðing fyrir stofnunum — og traust á þeim, er að glat- ast. Hjá þjóð, sem hefur mót- azt af stöðugleika stofnana, er þetta óheillavænleg breyt- ing. Þessi breyting á almenn- ingsáliti á rætur sínar að rekja til stjórnmálalegra at- burða. í hverjum þessara at- burða voru það hagsmuna- hópar, sem mörkuðu stefn- una, en ekki þingið og ríkis- stjórnin. Það var eins og utanaðkomandi stjórnarafl ýtti hinum opinberu stofnun- um þjóðarinnartil hliðar. Námaverkfallið síðastliðinn vetur var fyrsta dæmið. Kola- námumennirnir voru ákveðn- ir í að fara yfir þau takmörk, sem ríkisstjórnin hafði sett um launahækkanir. Þeim tókst það, og jafnframt felldu þeir ríkisstjórnina. Almenn- ingur stóð með námamönn- um, og var ekki hrifinn af aðgerðum forsætisráðherr- ans, Edwards Heath, en þetta dæmi, sem sýndi, að einn lítill hópur gat haft úr- slitaáhrif, hefur valdið ýms- um áhyggjum. í öðru dæminu var verka- lýðshreyfingin einnig með í spilinu, og í þetta skipti var um að ræða framkvæmd landslaga. Málið snerist um vinnudómstól, sem íhalds- stjórnin hafði komið á fót, verkalýðsfélögin börðust á móti og hin nýja ríkisstjórn Verkamannaflokksins hét að leggja niður. Dómstóllinn dæmdi annað stærsta verka- lýðsfélag landsins, félag verkamanna í tækniiðnaði, í 1 50 000 dollara sekt fyrir að óhlýðnast fyrirskipunum stjórnvalda. Félagið neitaði að greiða sektina og hótaði allsherjarverkfalli á móti. Deilan var leyst með því, að hópur viðskiptajöfra, sem ekki vildu láta nafna sinna getið, greiddi sekt verkalýðs- félagsins. En enn vöknuðu grunsemdir. Forseti dóm- stólsins, Sir John Donaldson, sagði, að verkalýðsforingj- arnir hefðu átt að hugleiða þær afleiðingar, sem ,,hin ólýðræðislega afstaða" þeirra hefði getað haft. ,,Ef verka- lýðsfélagið getur neitað að hlýðnast lögum, sem skfr- skota ekki til þess, hvi skyldu ekki aðrir geta gert hið sama? Þetta leiðir til harðstjórnar og stjórnleysis." Þá skal geta allsherjarverk- falls mótmælenda í Ulster, en það verkfall var stjórn- málalegs eðlis og það koll- steypti hinni nýju stjórnskip- un á Norður-írlandi. Foringjar brezkra verkalýðsfélaga og Verkamannaflokksins halda því fram, að þetta verkfall hafi ekki staðið i neinu sam- bandi við tvö áðurnefnd dæmi; sumir eru þó á annarri skoðun. Mörgum mun finnast sem þessir atburðir beinist gegn stjórnkerfinu, og þá ekki síð- ur aðrir mjög umdeildir at- burðir, þar sem stefnt er i hættu einu af grundvallarat- riðum óskráðrar stjórnarskrár Bretlands: málfrelsinu. Það hefur stöku sinnum hent við bæði brezka og bandaríska háskóla, að stúdentar hafa varnað máls þeim ræðumönnum, sem þeim hefur ekki líkað við. Fyrir tveimur mánuðum sið- an gerði brezka stúdenta- sambandið þennan óþverra- skap að fastri reglu. Það samþykkti að mæla með þvi, að ofbeldi væri beitt til þess að hindra „félaga í samtök- um fasista og þeirra, sem berjast fyrir kynþáttamis- rétti", í að tala á yfirráða- svæðum háskóla. í anda þessarar samþykktar hefur hægrisinnuðum stjórnmála- mönnum, jafnvel þingmönn- um, verið varnað máls. Nokkrir af hinum hófsam- ari meðlimum Verkamanna- flokksins hafa tekið höndum saman við þá, sem mótmæla vilja þessu nýja afbrigði rit- skoðunar, en engu að síður virðast færri en vænta mátti hafa gert sér grein fyrir þeirri ógnun við persónufrelsið, sem felst í samþykktinni. Roy Edgeley, prófessor í heimspeki við háskólann í Sussex, benti á, að málfrelsi ætti ekki að þýða „frelsi til að útbreiða lygaþvætting". Auð- vitað hlýtur það þó að gera það. „Frelsi til þess að út- breiða þær hugsanir, sem við hötum," sagði Holmes dóm- ari. Maður hlýtur að velta því fyrir sér, hvort Edgeley hafi nokkru sinni lesið rit Johns Stuart Mill. Kannski er árásin á mál- frelsið aðeins heimskupar af hálfu stúdentanna og hinna miður gefnu úr hópi prófess- ora þeirra. Engu að síður minntist maður hennar um daginn þegar stúdent beið bana í átökum hægri og vinstri sinnaðra mótmælenda og Lundúnalögreglunnar. Öfgamenn virðast vera farnir að skapa andrúmsloftið og skyggja á þann anda hófsemi og umburðarlyndis, sem Bretar hafa alltaf verið dáðir fyrir. Neðst á lista þjóðfélags- spennunnar er írland. Ef hægt er að nefna það siðast, er það ekki vegna neins ann- ars en hins algjöra vonleysis, sem virðist einkenna vanda- málin þar í landi. Ríkisstjórnir Bretlands hafa reynzt ófærar um að koma á sáttum á með- al íra, en þær hafa flestar vonazt til þess, að þeim tæk- ist að minnsta kosti að koma í veg fyrir óeirðir í landinu. Ömurlegasta dæmi þessa eru skemmdirnar, sem tíma- sprengja olli í Westminster Hall, í hinum glæsta sal, þar sem brezka þingið átti upp- haf sitt fyrir mörgum öldum. Engunn skyldi þó spá of illa f/rir Bretum. Menn hafa lönjum ritað um erfiðleika þeirra, en alltaf hefur menn- ing og ánægja sigrað þar I landi. En um þessar mundir hef- ur dregið úr lífsgleði Breta, og spennan aukizt að sama skapi. Ný efnahagsvandamál eru komin upp. Þau þarf að ræða sérstaklega og þau áuka enn á áhyggjurnar, sem menn hafa vegna hnignunar ýmissa hefðbundinna stotn- ana. (þýð: J.Þ.Þ.) Keflavík Til sölu litið einbýlishús við Smáratún. Losnar fljótlega. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavik, simi 1420. Sandgerði Til sölu 4ra herb. ibúð með góð- um greiðslukjörum. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Vatnsnesvegi 20, Keflavik simar 1 263 og 2890. Innri-Njarðvík Til sölu gott einbýlishús ásamt stórum bílskúr. Fasteignasalan Hafnargötu 27, Keflavík, sími 1420. Ytri-Njarðvik Til sölu ný 4ra herb. ibúð. Útborg- un má greiða á einu ári. Fasteignasala Vilhjálms og Guðfinns, Vatnsnesvegi 20, Keglavik, simar 1 263 og 2890. Meinatæknir — ibúð Meinatæknir óskar að taka á leigu litla ibúð. Upplýsingar i sima 26031. Brotamálmur Kaupum allan brotamálm lang- hæsta verði. Staðgreiðsla. Nóatún 27, simi 25891, Óskum að ráða offsetprentara (pressumann). Prentsmiðja Guðjóns Ó, Langholtsveg 111. mRRGFRLDRR mÖGULEIKR VÐRR Aðalfundur Berklavarnar í Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 16. júlí í félags- heimili Kópavogs kl. 8.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. YOGA Þór Þóroddsson, fræðari, frá Kaliforniu, flytur erindi I Iðnskólanum þriðjudaginn 1 6. júlí kl. 20.30 (gengið inn frá Vitastig). Yogakerfi og heimspeki Dr. Dingle, upprunnið i Tibet. Aðferðir meðvitandi framþróunar. Réttur skilningur. Aðgangur 1 50.00 kr. Nýheimsfrasðin simi 35057. Hveragerði Nýr umboðsmaður hefur tekið við umboði Morgunblaðsins í Hveragerði Margrét Aðal- steinsdóttir, Grænumörk 7. við fyrstu kynni. Biðjið um Shell flugnastaukinn. Fæst á afgreiðslustöðvum okkar um allt land. Shelltox OlíufélagiÖ Skeljungur hf Shell Flugur falla fyrir honum, unnvörpum, allt sumarið. Flandhægur staukur, sem stilla má hvar sem er, þegar flugurnar angra. I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.