Morgunblaðið - 16.07.1974, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 16.07.1974, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULl 1974 Sólin hellti sér LANDSMÖT skáta 1974 var sett að (Jlfljðtsvatni á sunnudag að viðstöddum nær 2.000 skátum. Er þetta fjölmennasta skátamót, sem haldið hefur verið á tslandi. — Veðrið lék við skátana á sunnudaginn og í gær og jók mönnum mjög Iffskraft, enda var þátt- taka f leikjum og störfum, námi og ferðum geysi- mikil. Blaðamaður Morgunblaðsins heimsótti skát- ana og dvaldist með þeim á sunnudag og mánudag og birtast hér og í næstu blöðum myndir og frásagn- ir af þvf, sem fyrir augu bar. Mótssetning Rétt fyrir kl. 2 á sunnudag gengu skátarnir fylktu liði til hátíðarsvæðisins til mótssetn- ingar. Hófst hún með því að skátastúlka flutti Landnáms- þulu, en síðan steig fram skáti í fornmannabúningi og kallaði upp nöfn allra þeirra félaga og þjóðlanda, sem fulltrúa eiga á mótinu. Um leið gengu fram skjaldberar félaganna og röðuðu einkennisskjöldunum upp beggja vegna hátfðarpalls- ins. Pallurinn er skreyttur eins og víkingaskip. Því næst flutti mótsstjórinn, Bergur Jónsson, setningarræðu (mynd), og að henni lokinni voru mótsfáninn og þjóðfánar allra þátttöku- landa dregnir að húni, víkinga- skip lagði út á Úlfljótsvatn og frá því var skotið flugeldum, kveiktur var eldur á stórri vörðu, sem hlaðin hafði verið á Ulfljótsvatnsfelli, og þar var einnig skotið á loft flugeldum. Síðan var dregið upp segl með mótsmerkinu á hátíðarpallin- um og lauk með því setningar- athöfninni. félagið Erni árið 1925,“ segir Hörður, „en þá voru félögin tvö, Ernir og Væringjar. Ég var slðan félagsforingi í örnum 1 fimm ár, til 1938, er félögin tvö voru sameinuð í Skátafélag Reykjavíkur. Þar var ég foringi frá 1950 til 1961, að ég fór utan til Bandarikjanna. Það var dálftið skrítið, eftir að ég hafði starfað svona lengi 1 skáta- hreyfingunni, hvað ég slitnaði gjörsamlega úr tengslum við hana eftir utanferðina. Það er vart hægt að segja, að ég hafi heimsótt skátana aftur fyrr en nú.“ Hörður sagði það mjög skemmtilegt að heimsækja mót sem þetta. Hann var spurður, hvort skátastarfið hefði breytzt mikið frá því er hann var ung- ur: „Undirstaðan er alltaf sú sama, en rígurinn sem var þá milli Reykjavíkurfélaganna er horfinn núna og meira bræðra- lag er ríkjandi." Hér sjáum við einn hópinn með kenniorðið LANDNÁM: (Frá vinstri) Björn Refson, Noregi, Lilja Ásgeirsdóttir, Reykjavfk, Agústa Öladóttir, Reykjavík, Pálmi Jónsson, lsa- firði, John Martin Olsen, Fær- eyjum, Marfa Elíasdóttir, Kópa- vogi, og Erna Gfsladóttir, Hornafirði. Gamall foringi í heimsókn A LANDSMÖTINU hitti blm. Mbl. gamlan skátaforingja úr Reykjavík, Hörð Jóhannesson, sem var lengi félagsforingi f örnum og sfðar Skátafélagi Reykjavíkur. „Ég gekk f skáta- in hver hjá öðrum. Var svo mynduð röð, þannig að lesa Kynn ingarleikur mótssöngur kenndur og radd- saman í einn (mynd). Var WM ÉWm m ÆllHlaij HH Wk Hl' ts' #1« um- '1 ÍLh-S Að mótssetningunni lokinni hófst kynningarleikur með þátttöku allra skátanna. Hver skáti fékk eitt spjald með bókstaf og var fyrsta verkefnið að finna 6 aðra skáta, sem höfðu hina bókstafina f kenni- orðinu LANDNÁM. Sfðan skrif- uðu skátarnir nöfn sín á spjöld- mætti kenniorðið af spjöldun- um, og fulltrúum dagskrár- stjórnarinnar sýndur árangur- inn. Fengu hóparnir að launum nýtt verkefni, að svara ýmsum spurningum um landsmótið, að telja upp á þremur á a.m.k. fimm tungumálum og leysa dá- litla flatarmálsreikningsþraut. Varðeldur Að kvöldi fyrsta mótsdagsins var haldinn sameiginlegur varðeldur fyrir alla þátttakend- ur, svonefndur langeldur. Var hann að mestu helgaður söng- listinni; rifjaðir voru upp gaml- ir skátasöngvar, nýsaminn böndin liðkuð. Dagskráin hófst með stuttum þætti um land- vættirnar fjórar; lesin var frá- sögnin af sendimanni Noregs- konungs og viðureign hans við vættirnar og skátar í forn- mannabúningum fluttu ljóð um þetta efni og röðuðu sfðan fjór- um hlutum skjaldarmerkisins atriðið í heild sérlega vel gert og skemmtilegt. Af öðru efni dagskrárinnar við varðeldinn má nefna Indíánadans banda- rískra skáta, þjóðlagasöng svissneskra og þýzkra skáta, Ieikþætti Siglfirðinga og Hafn- firðinga og gamansöngva Garð- búa og Dalbúa frá Reykjavfk.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.