Morgunblaðið - 16.07.1974, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULl 1974
byggðanna. Samgöngubyltingin á
SkeiSarársandi. sem viS fögnum í
dag, er verk unniS I þágu þjóSar-
innar allrar. ÞaS gerir landiS allt
hægara til búsetu og hvers konar
nytja."
SiSan ræddi samgönguráSherra
um, hve mikla þýðingu vegabótin
myndi hafa á þjóSlifiS i heild og
sagSi, aS engin leiS væri að gera
sér grein fyrir þvi til hlítar fyrir-
fram. Sannfæring sin væri sú, að
engan óraSi fyrir því sumu hverju,
sem reynslan ætti eftir aS leiSa i
Ijós af heilladrjúgum áhrifum
tengingar hringvegarins. Þá sagði
hann, að viðbrigðin og hagurinn af
samgöngubótinni yrðu að sjálf-
sögðu mest fyrir þá sem næst
byggju leiðarendunum tveim, sem
áður voru, Skaftfellinga austan og
vestan sands. Vegarkaflinn nýi
tengdi þær sveitir, sem mátt
hefSu i aldanna rás þola þyngri
áföll og meiri búsifjar en flest ef
ekki öll önnur byggSarlög f land-
inu af völdum náttúruhamfara,
bæði vegna jarðelda og jökul-
hlaupa. Nú væru leiSarendarnir
við Núpsvötn og Skeiðará úr sög-
unni.
„En sá landsfjórSungur, sem
hringvegurinn er dýrmætastur, er
Austurland. Þar verður allt annað
að búa en hingaS til eftir að land-
vegur hefur opnazt sunnan fjalla
fær öllum ökutækjum.
Undir forystu alþingismanna
Austurlands og Suðurlands tók Al-
þingi á hringvegarlagningunni af
festu og stórhug." — Sagði hann,
að allir hefðu tekið höndum sam-
an, sparifjáreigendur. rfkisvald,
bankar og aðrar peningastofnan-
ir og ekki sfzt starfsmenn Vega-
gerðar rfkisins.
1 2 brýr og 61 km veg-
arkafli lagður
Að ræðu samgönguráð-
herra lokinni tók til máls Sigurður
Jóhannsson vegamáfastjóri, sem
lýsti framkvæmdum á sandinum.
Hann sagði. að mesta vandamálið
við jökulárnar á Skeiðarársandi
væru hin geysimiklu jökulhlaup.
sem l þær kæmu. Tveir miklir
vatnsgeymar væru undir jöklinum.
Grænalón, sem væri jaðarlón við
vesturenda Skeiðarárjökuls, en
vatn úr þvi fengi framrás undan
vesturhomi jökulsins i farveg Súlu
og Grimsvötn, sem væru jökullón
nokkuð norðarlega i Vatnajökli og
fengju þaðan framrás viða undan
jöklinum. Meginhluti vatnsins
rynni þó um farveg Skeiðarár, en
einnig færi mikið vatn i farveg
Gigju. Undanfarna áratugi hefðu
þessi jökulhlaup komið með nokk-
uð regiulegu millibili og verið svip-
uð að stærð. Hefði hámarksrennsli
í Skeiðará i hlaupunum verið um
6000—8000 rúmm./sek.
ÁSur fyrr komu jökulhlaup þessi
mun sjaldnar, en voru að sama
skapi stærri. Er áætlað, að há-
marksrennsli í þeim hlaupum hafi
VEGURINN yfir Skeiðarársand var
formlega opnaður kl. 14.oo á
sunnudaginn með þvi að Magnús
Torfi Ólafsson samgönguráðherra
klippti á borSa sem lá þvert yfir
veginn. Viðstödd athöfnina voru
meðal annars forsetahjónin.
nokkrir ráðherranna, fjöldi
alþingismanna og gffurlegur fjöldi
fólks viðsvegar a8 af landinu.
Veður á sandinum var hið bezta,
hlýtt og sól af og til. Ekki gátu þó
viðstaddir séð Vatnajökul jafn
fagran og hann getur verið, þvf að
skýjahulur lágu yfir honum, en við
og við glampaði á hvítan jökulinn.
— Það mun vera samdóma álit
allra. sem til þekkja, að vega-
gerðin yfir Skeiðarársand sé viða-
mesta framkvæmd. sem ráðizt
hefur verið i á íslandi og búast
sumir við, að nokkur tími geti liðið
þar til aftur verði ráðizt í svo mikla
framkvæmd. Tilkoma vegarins
hefur nú stækkað island og landið
verður annað land. En vegurinn
mun samt koma Austfirðingum að
mestum notum og enginn vafi
þykir nú leika á þvi, að nú fyrst
fari náttúruauðæfi Austurlands að
njóta sin með þeirri miklu fegurð.
sem þar er, og Austfirðingar muni
taka stórt stökk fram á við og
sækja á þá landsmenn, sem
standa þeim framar I atvinnu-
uppbyggingu.
Það var í býti á sunnudagsmorg-
un, sem opinberir gestir sam-
gönguráðuneytisins fóru austur á
Fagurhólsmýri með Fokker
Friendshipvéf Flugfélags íslands.
Blaðamenn fóru stuttu seinna
með vél frá Vængjum og þvi miður
er ekki hægt að segja, að vel hafði
verið hugsað um, að fóðra fjöl-
miðlana á upplýsingum, jafnmikið
og þeir hafa þó sagt frá fram-
kvæmdum á sandinum. Sömu
sögu er að segja af öllum viður-
gjörningi.
Frá Fagurhólsmýri var haldið
rakleiðis að Skaftafelli og yfir nýju
brúna, sem stendur nokkuð fyrir
neðan Skaftafeilsbrekkur á sand-
inum. Þar voru teknir nokkrir
gestir og síðan haldið til baka og
grjótnámið í Hafrafelli skoðað. —
Góð sneið er nú horfin úr fjallinu
og efnið, sem þaðan hefur verið
tekið, er komið I varnargarðana
miklu á sandinum. Nokkrir gest-
anna gátu ekki setið á sér og
hlupu upp á Svlnafellsjökul. sem
skrlður meðfram eystri hlið Hafra-
fells. Gekk sú ferð vel. þótt sumir
ættu erfitt með að fóta sig á jökl-
inum, enda á nælonsólum. Úr
grjótnáminu var haldið að Skafta-
felisbrekkum, en þar var gengið
upp I skóginn og nesti etið I skóg-
arrjóðri við nið Þjófafoss. Er menn
höfðu lokið úr nestispökkum sln
um var haldið niður á sandinn, þar
sem aðalhátlðarhöldin fóru fram.
Þar var samankominn mikill fjöldi
fólks.
Dagskráin hófst skömmu eftir
hádegi með þvl að Skólahljóm-
sveit Kópavogs lék nokkur
ættjarðarlög. Slðan flutti settur
sýslumaður Skaftfellinga, Þorleif-
ur Pálsson. ræðu. Hann sagði
m.a., að tilkoma hringvegarins
markaði tlmamót I sögu landsins.
Þessi ógnar sandur hefði ávalll
verið hinn mesti farartálmi og ofi
á tiðum hefðu árnar oltið niðui
sandinn með miklum hamförum
Viðbrigðin fyrir Skaftfellinga báð
um meginn við sandinn hlytu aí
verða mest. Þessar nágrannasveit
ir hefðu fram til þessa verið I
einangrun hvor frá annarri, en nú
væri sú ttð liðin.
ísland orðið
betra land
Á eftir sýslumanni talaði
Magnús Torfi Ólafsson samgöngu-
ráðherra og I ræðu sinni sagði
hann m.a.: „Lok þessa verks, sem
starfsmenn Vegagerðar ríkisins
hafa unnið hér á Skeiðarársandi
undanfarin 21 mánuð. valda þvl,
að ársins 1974 verður minnzt um
ókomin ár fyrir þann atburð I sam-
göngusögu landsins, sem ég hika
ekki við að kalla merkastan allra,
sem varða samgöngur á landi.
Siðasta haftinu, sem hamlaði
greiðari för með byggðum hring-
inn I kringum landið, hefur verið
rutt úr vegi og þar með er island
orðið annað land og enn betra en
það hefur verið fram til þessa.
Samgöngur um okkar viðáttu-
mikla og strjálbýla land eru lifæð
% Brúin á Skeiðarársandi er 904 metrar að lengd. Hér sést hluti hennar. 1
baksýn er Skaftafellsjökull. Ljósm. Mbl.: Ól. K. Mag.
3000
manns
viðstadd-
ir opnun
hring-
vegarins