Morgunblaðið - 16.07.1974, Síða 13

Morgunblaðið - 16.07.1974, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULl 1974 13 0 Magnús Torfi Ólafs- son samglingurádherra f*r aðsfoð konu sinnar fiinriku Kristjánsdóttur Við að klippa á borðann. Matthías Johannessen formaður Þjóðhátfðar- £ Biskup íslands, herra Sigurbjörn Einarsson, í nefndar 1974 flytur ræðustól. ræðu. Q Rigningin er skollin á. Magnús Torfi Ólafsson segir Eysteinn Jónssyni, að tilgangslaust sé að halda áfram með ræðuna. verið allt að 4 sinnum meira en I síðari hlaupum. Ekki er fullljóst. hvað veldur þvl, að hlaup eru nú tíðari og minni, en talið líklegt. að það standi í sambandi við al- menna rýrnun jökla undanfarna áratugi, sagði vegamálastjóri. Þá ræddi vegamálastjóri um mannvirkin sjálf og sagði m.a.: „Hin mikla óvissa um stærð og dreifingu jökla t framtíðinni veldur þvl, að ekki þótti fært að hanna mannvirki með það fyrir augum, að þau taki stærstu hlaup áfalla- laust. Var þvl valin sú leið, að miðað skyldi við, að mannvirki gætu tekið á móti jökulhlaupum eins og þau hafa verið undanfarna áratugi án þess að vegasamband rofnaði. Á hinn bóginn er tilhögun mannvirkja þannig, að sem minnst tjón hljótist af stórum jökulhlaup- um. þó að þau komi. Þannig eru dýrustu hlutar mannvirkjanna, þ.e. brýr ásamt vegfyllingum og varnargörðum næst þeim, hönnuð með þeim hætti, að þau geti stað- izt án alvarlegra áfalla, en vatnið myndi flæða yfir varnargarða fjær brúm." Þessu næst lýsti Sigurður gerð vegarins og þar kom fram, að vegurinn er með malarslitlagi og tvöfaldri akbraut 6.5 metra breiðri. Varnargarðarnir eru byggðir úr möl og sandi. Ármegin eru þeir varðir með sprengdu grjóti eða hrauni og grjótpylsum. Stærri brýrnar eru allar sömu gerðar, stálbitabrýr með timbur- gólfi á steyptum stöpium. Stöpl- arnir hvlla á steyptum staurum, sem reknir eru niður I sandinn. Allar eru brýrnar með einfaldri akbraut, en vegna hinnar miklu lengdar þeirra eru höfð útskot á þeim með 1 50—200 m millibili til að farartæki geti mætzt. Brýrnar eru allar tiltölulega háar og er það gert til þess að ísjakar, sem brotna jafnan úr jökuljaðri I hlaupum, komist undir þær. Sagði Sigurður, að áður en framkvæmdir gátu hafizt hefði þuift að endurbyggja og bæta vegi austan og vestan við sandinn. Alls væri nýi vegurinn 61 km að lengd og styrktur og endurbættur vegur væri 7 km. Hliðarvegir væru 4 km að lengd, varnargarðarnir 17 km og brýrnar, sem hefði þurft að byggja, væru 1 2. alls 2004 metr- ar. Kostnaður við framkvæmdirn- ar, þegar þeim væri að fullu lokið. væri áætlaður 850 m. kr. og væri það innan ramma frumáætlunar- innar frá 1972, þegar tekið væri tillit til verðhækkana. Þessu næst bað vegamálastjóri samgönguráðherra að opna veg- inn fyrir umferð og fyrsta bifreið- in, sem ók eftir veginum, var bif- reið forseta fslands. Hátíðarhöld á sandinum Að formlegri opnun hring- vegarins lokinni hófst dagskrá þjóðhátíðarnefnda Austur- og Vestur-Skaftafellssýslu neðar á sandinum. Þar hafði verið komið upp bráðabirgðaskýli, sem kom að góðum notum, er leið á daginn. Dagskráin hófst með kórsöng, var það kór Skaftfellingafélagsins I Reykjavlk, sem söng undir stjórn Jóns isleifssonar. Þvl næst var helgistund. sem biskup fslands, herra Sigurbjöm Einarsson, annaðist. f lok máls slns bað hann m.a. fyrir mannvirkjunum á Skeiðarársandi. Að helgistundinni lokinni hélt kórinn áfram söng sln- um, en slðan hélt Eysteinn Jóns- son fyrrv. forseti sameinaðs al- þingis ræðu. Veðurguðirnir láta til sín taka Ekki var Eysteinn langt kominn I ræðu sinni, þegar mikill rigningarskúr skall á. Plastdúkur var yfir bráðabirgðaskýlinu þannig að mikið glumdi I þvt. Á meðan verið var að ganga betur frá hátalarakerfinu og mestu lætin voru I rigningunni varð Eysteinn að gera hlé á máli slnu. Eysteinn sagði m.a. I sinni ræðu, að jökulfIjótin hefðu aldrei verið neiri lömb að leika sér við, og sumir hefðu jafnvel haldið, að þau yrðu aldrei brúuð. En þjóðin hefði ekki fengið notið til fulls þeirra kosta að búa á eylandi fyrr en hringvegurinn var kominn. Og nú væri lokið við lokaáfanga á langri leið. Væru það orð að sönnu, að fólk þyrfti að læra landaf ræðinga upp á nýtt. Sagði hann, að engin einstök framkvæmd I landinu væri jafn mikilsverð og þessi að undan- skildu landhelgismálinu. Þessi framkvæmd væri landi og þjóð til heilla. Nú væri betra að vera fs- lendingur en áður. Þjóðinni opnuðust nú nýjar leiðir og taka þyrfti upp skynsamlega land- nýtingarstefnu. Við værum fá I stóru landi. þannig að betra væri að taka ráð I tlma. Þá sagði hann, að samgöngu- bótin væri mikilsverðust fyrir Austurland og nú gæti sá lands- fjórðungur fyrst farið að njóta sln. Næstur tók til máls MatthFas Johannessen formaður Þjóð- hátlðarnefndar 1974, en áður hafði Skaf tfellingakórinn sungið tvö lög. Hann sagði, að fs- lendingar hefðu nú lifað merki- legan dag. Hér mætti sjá örlög Islands eins og I hnotskurn. Menn hefðu hér þurft að leita á hurðir örlaganna eins og Kári á hurðir Flosa forðum. Margar þjóðir hefðu orðið auðugar vegna góðra sam- gangna og svo yrði vonandi um fsland eftir að þessi mikla sam- göngubót væri komin. Þá minntist hann á vlkingaskip in, hvlllk samgöngutæki þau skip hefðu verið á slnum tlma. Og hér % Kör Skaftfellingafélagsins syngur undir stjórn Jóns tsleifssonar. Q Á hálum fs. Ráð- herrarnir Magnús Torfi Ólafsson og Magnús Kjartansson skruppu f smágönguferð upp á Svfnafellsjökul. á þessum slóðum hefðu fyrstu vlk- ingarnir stigið á land, sem hefði orðið til þess. að þeir ákváðu að taka sér bólfestu á íslandi. — Sagði Matthlas, að Gunnlaugur Scheving listmálari hefði einu sinni sagt, að það væri vel við- eigandi, að snilldarverki eins og Njálssögu lyki i Öræfum. Á eftir ræðu Matthlasar var flutt samfelld dagskrá um Skeiðarár- sand I samantekt Páls Þorsteins- sonar fyrrv. alþingismanns. Voru þar fluttir kaflar um erfiðleika á Skeiðarársandi á liðnum árum, skrásettir af ýmsum mönnum, og einnig var lesin upp frásögn Þór- bergs Þórðarsonar „Vatnadag- urinn mikli". Þá söng Ólafur Þ. Jónsson einsöng við undirleik Ólafs Vignis Albertssonar. Að lok um lék Skólahljómsveit Kópavogs nokkur lög og reiptog var á milli Austur- og Vestur-Skaftfellinga og vegagerðarmanna. Lauk þvl með sigri Skaftfellinga. Veður var mjög gott á sandinum nema um tlma, eins og fyrr er getið. Tilkoma þessara miklu mannvirkja virðist strax vera farin að segja til sln, þvl að glfurlegur fjöldi ferðamanna er nú við Skaftafell og skoðar þjóðgarðinn þar. Sömu sögu er að segja af öðrum stöðum á Austurlandi, þar hefur sjaldan eða aldrei verið jafn mikið um ferðamenn, þrátt fyrir frekar leiðinlegt veður að undan förnu. — •>

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.