Morgunblaðið - 16.07.1974, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 16.07.1974, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULl 1974 Olafur Júlfusson átti stórgóðan leik með tBK I fyrrakvöld. Myndin hér að ofan er af Olafi, sem nýlokið hefur við að senda knöttinn. Rafn Hjaltalfn dómari, Grétar Magnússon og Hörður Ragnarsson fylgjast með. Heildsala smásala WOWLDCUP l/MM 74 Núllinu bjargað Á 22. mínútu sfðari háifleiksins óð Stefán Sigurðsson upp > allan völl og lék á þrjá ÍBK-ara. Er hann nálgaðist vítateiginn, vippaði Stefán knettinum inn fyrir Guðna og Atli sigldi aleinn inn að marki IBK. Nú lét hann ekkert koma sér úr jafn- vægi og sendi knöttinn af öryggi fram hjá Þorsteini. Þar með höfðu KR-ingar bjargað núllinu. 3:1. Aftur tvö á tveimur Olafur Júlíusson skoraði falleg- asta mark leiksins á 87. mínútu. Óvænt og eldsnöggt skot hans smaug á milli leikmanna KR í stöng- ina fjær og þaðan aftur fyrir Magnús í KR-markinu. Hálfri mínútu síðar skoraði Jón Ólafur fimmta mark Keflvíkinga. Af stuttu færi sendi hann knöttinn í netið af öryggi hins leikreynda. Liðm KR-ingar reyndu I þessum leik Grétar Magnússon og Sigurður Indriðason f harðri baráttu um knöl inn. til var sáð þessar mundir. Það sem hann gerir, er gert af öryggi og maður veltir því fyrir sér, hvernig Þorsteinn myndi standa sig, ef hann hefði slaka vörn fyrir framan sig og fengi virkilega að sfna hvað í honum býr. I stuttu máli Islandsmótið 1. deild, Keflavíkur- völlur 14. júlf. ÍBK—KR 5:1. Mörk IBK: Ólafur Júlíusson á 20. mín. 28. mín. og 87. mínútu, Steinar Jóhannsson á 21. mínútu og Jón Ólafur Jónsson á 88. mínútu. Mark KR: Atli Þór Héðinsson á 67. mín. Áminning: Hauki Ottesen var sýnt gula spjaldið fyrir óþarfa brot og gróft á Ástráði Gunnarssyni. Dómari: Rafn Hjaltalín, virðist vera í mjög lftilli æfingu. JOHANN CRUYFF SNILLINGUR SNILLINGANNA Á WM 74 NOTAR Texti: Agúst I. Jónsson Myndir: Ragnar Axelsson Betur uppskorið, en / / Olafur Júlíusson með þrennu er IBK vann KR 5:1 ÞAÐ er ekki á hverjum degi sem maður fær að sjá sex mörk f einum knattspyrnuleik — þvf miður. Á sunnudagskvöldið urðu þó áhorfendur að leik IBK og KR f Keflavfk vitni að slfku markaregni. Það voru heimamenn, senf unnu öruggan sigur með því að senda knöttinn fimm sinnum f net KRIiðs- ins, en máttu einu sinni gjöra svo vel að hirða knöttinn úr eigin marki. 5:1 urðu úrslitin f leiknum og auðvitað gefa þau til kynna mikla yfirburði Keflavfkurliðsins. Vissulega voru Suðurnesjamennirn- ir mun sterkari, en markatalan ýkir muninn á liðunum þó talsvert. Ólafur Júlíusson var í miklum ham f leiknum og var ekki ánægður, fyrr en hann hafði skorað þrjú mörk. 1 heild áttu flestir leikmenn IBK þokkalegan dag. Liðið lék ágæt- lega, en var langt frá því að sýna einhverja snilli. KR-ingarnir voru vægast sagt daprir í leiknum, en áttu þó góða spretti. ÍBK er nú aðeins tveimur stigum á eftir liði Skagamanna, svo enn getur allt gerzt á toppi deildarinnar. KRing- arnir geta hins vegar hætt að láta sig dreyma um Islandsmeistaratitil- inn f ár. Fallbaráttan verður verk- efni þessa vængbrotna liðs það sem eftir er mótsins. Liðið, sem byrjaði svo vel í vor, er ekki lengur svipur hjá sjón og margar skrautfjaðranna fallnar. Þannig er t.d. hálf tylft leik- manna á sjúkralista, og það hefur ekkert lið efni á þvf að missa svo marga menn, sérstaklega ef liðið er ekki alltof gott fyrir. Tvö mörk á mínútu Ekki var ástæða til að lyfta minnisbókinni fyrr en á 20. mínútu leiksins, en þá færðist líka það mikið fjör í leikinn, að ekki tók því að stinga þessari ágætu bók í vasann strax aftur. Eftir langt innkast Ástráðs náði Guðni að skalla knött- inn fyrir mark KR-inga. Ólafur skaut föstu skoti að marki KR. Magnús varði, en missti knöttinn frá sér út í vítateiginn. Ólafur var fyrstur til að átta sig á hlutunum og sendi knöttinn í slá og inn í mark KR-inga, 1:0. Byrjað var á miðju, Keflvíkingar náðu knettinum snarlega. Sóttu upp vinstri vænginn, Kári gaf vel fyrir markið. Steinar kom að á fullri ferð og sendi knöttinn laglega í netið með fastri kollspyrnu; 2:0. Heppninni ójafnt skipt Atli komst einn inn fyrir vörn Keflavíkurliðsins á 25. mínútu leiks- ins. Virtist Atli eitthvað óákveðinn og náði ekki að nýta þetta mjög svo góða tækifæri. I stað þess að skjóta strax hikaði hann nógu lengi til að Þorsteinn hafði tíma til að koma út úr markinu og verja skot Atla loks- ins, þegar það kom. Þar fór gott tækifæri í vaskinn hjá KR. Saklaus hornspyrna færði Kefl- víkingum hins vegar mark hinum megin á vellinum litlu sfðar. Auðvitað var það Ólafur Júlíusson, sem sneri knettinum inn I mark KR-inga. Laglega gert hjá Ólafi; hafði þó vindinn á móti sér. 3:0. mjög stífa maður-á-mann vörn, með litlum árangri. Leikmenn réðu ekki við það sem ætlast var til af þeim og miðjuleikmenn IBK fengu auðan sjó. Ólafur Ólafsson stóð sig bezt KR-inga í leiknum og kom f veg fyrir enn stærra tap. Atli gerði ýmsa hluti laglega f framlfnunni, en mátti sín lítils. Breytingar þær, sem gerðar voru á liði KR í seinni hálf- leiknum voru mjög til bóta, bæði Gunnar og Guðjón stóðu sig betur en þeir sem byrjað höfðu inn á. Eins og áður sagði, stóðu flestir Keflvíkinganna sig þokkalega í leiknum, en Ólafur Júlíusson þó allra bezt. Það fer tæpast á milli mála, að endurkoma Guðna hefur verkað eins og vítamínssprauta á Keflavíkurliðið; samt átti Guðni engan stórleik að þessu sinni. Karl, Hörður og Grétar léku allir vel f leiknum og einnig nýliðinn Kári Gunnlaugsson, sem er ódrepandi baráttumaður. Þorsteinn Ólafsson er sennilega okkar langsterkasti markvörður um

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.