Morgunblaðið - 16.07.1974, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 16.07.1974, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULI 1974 19 fíeppnisstig Akurevringa IBA — ÍA 1:1 1 BLÖÐUM og manna á meðal hefur f sumar oft verið rætt um heppni Akurnesinga og Akureyringa f leikjum. 1. deildar. Ekki verður hér dæmt um réttmæti þess, enda hefur undirritaður séð fæsta af leikjum liðanna. En með þetta I huga var frððlegt að fylgjast með viðureign þessarra tveggja liða á Akureyri á laugardaginn. Henni lauk með jafn tefli, 1:1, og þvf verður ekki móti mælt, að f þetta sinn fylgdi heppnin Akureyringum. Miðað við gang leiksins hefðu Akurnesingar átt að sigra örugglega. Fyrri hálfleikur leiksins var fjörugur og skemmti- legur, en seinni hálfleikurinn slak- ur. Akurnesingar halda stöðu sinni á toppi 1. deildar, og Akureyringar eru sem óðast að koma sér úr fall- hættu. Akureyri skartaði sfnu fegursta á laugardaginn, það var glmpandi sól- skin en norðanstrekkingur spillti fyrir. Áhrofendur voru fjölmargir, og þeir, sem komu nógu tímanlega, fengu að sjá sögulega byrjun. Óskastart IBA Það var ekki liðin ein minúta, þegar knötturinn lá í marki Akur- nesinga. Stuttu eftir upphafsspyrnu fengu Akureyringar dæmda auka- spyrnu nálægt miðlínu hægra meg- in. Steinþór Þórarinsson tók spyrn- una og spyrnti alveg upp að mark- inu. Davíð hljóp út og kallaði um leið, að hann hefði boltann. En hann fór of langt út úr markinu með þeim afleiðingu, að hann náði ekki næg- um tökum á boltanum. Boltinn datt á marklínuna, þar sem fylking Akureyringa stóð, og það var Sigurður Lárusson, sem átti heiður- inn af þvf að ýta knettinum í mann- laust markið. Feikileg fagnaðarlæti brutust út meðal áhorfenda, og hvattir áfram af þeim sóttu Akureyringar af krafti næstu mínútur án þess þó að skapa sér veruleg tækifæri. Og smátt og smátt fóru Akurnesingar að ná tökum á leiknum, og brátt fóru atburðirnir að gerast við mark heimamanna. Á 10. mfnútu komst Matthías upp að endamörkum vinstra megin og gaf fyrir, en hætt- unni var bægt frá. A 15. mfnútu komst Eyleifur inn fyrir vörn ÍBA og átti aðeins markvörðinn eftir, en grútmáttlaust skot hans fór beint í hendurnar á Benedikt markverði. Og á 23. mínútu komst Matthías í svipað færi eftir mistök Sævars í vörninni, en aftur var skotið beint á Benedikt. Matthfas jafnar Það lá í loftingu, að þessi pressa myndi gefa af sér mark, og það kom á 24. mínútu. Karl Þórðarson lék upp hægra megin og gaf góðan bolta fyrir markið. Benedikt markvörð- ur stökk upp með tveimur Akurnesingum og sló bolt- ann frá markinu. Hann fór þó ekki lengra en til Matthíasar, þar sem hann stóð nokkru fyr- ir utan markteiginn. Og Matthías kann að nýta svona tækifæri, viðstöðulaust skot hans hafn- aði í markinu. Markmannstilburðir Sigurðar Lárussonar gátu ekki forð- að marki. og enn héldu Akurnesing- ar áfram sóknartilraunum. Á 30. mínútu átti Hörður skalla að marki, en bjargað var á línu, og sami maður átti skot f utanverða stöngina eftir hornspyrnu á 35. mínútu. Og tveim- ur mínútum síðar munaði ekki nema hársbreidd, að Matthfas skor- aði, er hann henti sér fram og skall- aði boltann f neðanverða slána, en þaðan fór boltinn niður á marklinu, og hættunni var bægt frá. Annað merkilegt, sem gerðist í hálfleikn- um, var það, að Birni Lárussyni var sýnt gula spjaldið fyrir að brúka munn við dómara leiksins, Val Benediktsson. Það var kjaftur á Birni þennan dag. Daufur hálfleikur Akurnesingar léku undan vindi í seinni hálfleik, og bjuggust menn við því, að með þeirri hjálp myndu þeir tryggja sér sigur í leiknum. En það fór á annan veg. Akurnesingar voru að vísu mun meira með bolt- ann og hver sóknarlotan af annarri var byggð upp. En framlínumenn liðsins virtust bara ekki vera með f leiknum, þegar að þeirra þætti kom, og því má segja, að einungis tvö umtalsverð tækifæri hafi komið upp í seinni hálfleik, og bæði fengu Akurnesingar. Það fyrra kom upp á 17. mínútu seinni hálfleiks, þegar Jón Gunnlaugsson skallaði rétt framhjá úr aukaspyrnu, og þremur mínútum síðar átti Jón Alfreðsson skalla í stöng. Það er táknrænt, að hvorugt tækifæranna féll f hlut framlínumanna Akraness, en þeir gerðu sig seka um furðuleg mistök hvað eftir annað, enda virtust þeir áhugalitlir. Akureyringar náðu ein- staka sinnum rokum upp völlinn, en þær sóknarlotur strönduðu oftast nær á afar sterkum miðvörðum Akranesliðsins, þeim Jóni og Þresti. Menn voru því almennt fegnir, þeg- ar dómarinn flautaði leikinn af, ekki sízt heimamenn, sem máttu sannarlega þakka fyrir þetta eina stig. Liðin Af framansögðu má sjá, að öll umtalsverð tækifæri leiksins féllu Akurnesingum í skaut, en Akureyr- ingar skoruðu úr eina verulega góða marktækifærinu, sem þeir fengu og það fyrir mistök Davíðs. Eins og í fyrri leikjum sfnum léku Akurnes- ingar oft skfnandi vel saman úti á vellinum, einkum í fyrri hálfleik, en segja má, að framlínan hafi alveg brugðizt. Vörn IA var mjög sterk með þá Þröst og Jón sem beztu menn. Það voru ófáar sóknarlotur IBA, sem þeir stöðvuðu og snéru í sókn IA. Bakverðirnir voru einnig virkir í sókninni, Björn í fyrrihálf- leik og Benedikt f þeim seinni. A miðjunni var Haraldur Sturlaugs- son mjög virkur. Akureyringarnir leggja alla áherzlu á vörnina, og hún stóð sig oft ágætlega. Þar var Gunnar Aust- fjörð sem fyrr fremstur i flokki. Síðan er treyst á skyndisóknir, en þær gáfu ekki mikinn árangur f þetta sinn, þótt þeir Gunnar og Arni reyndu mikið. Miðað við þann leik, sem Akureyringar sýndu, má það heita merkilegt, hve mörg stig þeir hafa hlotið í mótinu. I STUTTU MÁLI: Akureyrarvöllur 13. júlí 1974. Is- landsmótið 1. deild IBA—ÍA 1:1 (1:1). Mark IBA: Sigurður Lárusson á 1. mínútu. Mark tA: Matthías Hallgrfmsson á 24. mfnútu. Áminning: Björn Lárusson bókaður á 40. mínútu fyrir ljótan munnsöfn- uð við dómara leiksins. Áhorfendur: 1286. Dómari: Valur Benediktsson. Hann hafði nokkuð góð tök á leiknum, en hefði mátt nota flautuna meira. Texti og myndir: Sigtryggur Sigtryggsson. Akureyringar f þann veg að skora mark sitt. Davfð missir knöttinn yfir sig og Sigurður fylgir vel og skorar auðveldlega. Haukarnir harðir á Húsavík Unnu Völsunga örugglega 3:1 ÞRATT fyrir að Völsungar hefðu ekki tapað leík á heimavelli á keppnistfmabilinu var ekki að sjá neina feimni á Haukunum er liðin mættust á Húsavfk á laugardaginn. Haukarnir léku eins og þeir sem völdin hafa og sigruðu örugglega f leiknum, 3:1. Með þessum sigri tryggja Haukarnir enn stöðu sfna meðal efstu liða deildarinnar, eru komnir með 10 stig og eru þvf tveimur stigum á eftir Blikunum. Haukar koma að vfsu ekki til með að sigra f 2. deild f ár, en lið þeirra lofar góðu, ungt og efnilegt. Haukar hófu strax góða sókn á mark Völsungs f leiknum á laugar- daginn, en gekk illa að finna leiðina f mark andstæðingsins. A 10. mfn- útu leiksins losuðu Völsungar skyndilega um og sneru vörn f skyndisókn. Júlfus Bessason komst einn innfyrir og skoraði gott mark, þrátt fyrir að að honum væri sótt. Var þetta eina mark hálfleiksins og máttu heimamenn vel við una. I sfðari hálfleiknum fundu Haukarnir fljótlega hina vandröt- uðu leið f mark Völsunganna. A 10. mfnútu var Steingrfmur kominn f ágætt marktækifæri, er brotið var á honum. Dæmd var vftaspyrna og úr henni skoraði Loftur Eyjólfsson. Enn liðu 10 mfnútur, þar til Haukar gerðu mark sitt númer 2 og náðu þar með forystu f leiknum. Gefið var fyrir mark Húsvfkinganna og Loftur sendi knöttinn f netið. Loftur er nú orðinn markhæstur f 2. deild, ásamt Breiðabliksmanninum Guðmundi Þórðarsyni, báðir hafa skorað 7 mörk. Fast á eftir þeim fylgja svo nokkrir leikmenn með 6 mörk. Sfðasta mark leiksins á Húsavfk skoraði Danfel Hálfdánarson, en heiðurinn af þvf marki átti Guðjón Sveinsson algjörlega. Hann lék á tvo varnarmenn Völsungs og sendi knöttinn sfðan fyrir markið, þar sem Danfel var ekki f vandræðum með að skora. Það verður ekki annað sagt en að lið Húsvfkinga hafi valdið miklum vonbrigðum f þessum leik. Liðið lék langt undir getu og voru flestallir leikmenn liðsins langt frá sinni eðlilegu getu. Helzt Júlfus Bessa- son, sem barðist af krafti allan leik- inn. Hermann Jónasson var f leik- banni að þessu sinni. Guðmundur Sigmarsson var sterkastur Haukanna að þessu sinni, en yfirleitt áttu allir leik- menn liðsins þokkalegan dag. Annað kvöld mæta Haukarnir FH- ingum f bikarkeppninni og verður án efa hart barizt, eins og venja er þegar þessi lið mætast. Sigbjörn Gunnarsson: Akur- eyringar eru í stöðugri framför I VOR spáðu 9 af hverjum 10 þvf, að Akureyringar myndu falla niður f 2. deild f sumar. Eftir nokkra fyrstu leikina virt- ist sem þessi spá ætlaði að ræt- ast, en f sfðustu leikjum sfnum hafa Akureyringar heldur betur smalað saman stigum og eru á góðri leið með að tryggja stöðu sfna f deildinni. Eftir leik tBA og ÍA snéri Mbl. sér til Sigbjörns Gunnarssonar, hins snaggaralega framherja Akur- eyrarliðsins. Hann var fyrst spurður um leikinn við lA: „Ég viðurkenni það fúslega, að Akurnesingar áttu miklu meira f leiknum. Við lögðum meiri áherzlu á vörnina og ger- um okkur fyllilega ánægða með stigið.“ — Nú hafið þið verið taldir heppnir f leikjum ykkar? „Já, það hefur mikið verið talað um ósanngjarna sigra. En þessir ágætu menn athuga ekki, að þetta er bara leikað- ferð. Við leikum sterkan varnarleik og treystum svo á fljóta framherja f skyndiupp- hlaupum. Kúnstin er jú sú að nýta tækifæri sfn, og það höf- um við gert 11 sinnum f sumar.“ — Ertu ánægður með frammistöðu liðsins? „Ég er vissulega mjög ánægð- ur með árangur Akureyrarliðs- ins. Ég varð að vfsu fyrir von- brigðum fyrst, en eftir leikinn við Val fór þetta að ganga hjá okkur, og sfðan höfum við verið í stöðugri framför. Við eigum eftir marga leiki heima og munum ekkert gefa eftir þar.“ — Svo það verða einhverjir aðrir en þið sem fallið? „Já, ég er ekki í nokkrum vafa um það. Ég vil engu spá á þessu stigi, nema það lið, sem fellur, verður með 8—10 stig. Hins vegar eru Akurnesingar sterkastir þeirra liða sem við höfum mætt, og ég hef þá trú að þeir verði meistarar f ár.“ — Hefur æfingasókn verið góð? „Já, hér hefur verið feiki- legur áhugi og vel mætt á æf ingar, enda held ég að við höf- um verið einstaklega heppnir með þjálfara." — Og að lokum Sigbjörn, hvað finnst þér um knattspyrn- una, eins og hún hefur verið leikin f sumar? „Mér finnst knattspyrnan eins og hún hefur verið f sumar ekki nærri þvf eins skemmtileg og þegar ég var að byrja fyrir 3—4 árum. Þá langar mig einnig að geta þess, að mér finnst dómgæzlan f sumar sú versta, sem ég hef kynnst. Ósamræmið er alveg yfirgengi legt. Þessu er vel hægt að kippa f lag, dðmarar þurfa að æfa sig eins og aðrir.“ — SS. illlKIUIIHII Útbúum borðfána, hornveifur og bílmerki fyrir íþróttafélög og önnur samtök. Prentum merki og myndir á boli. Prentum gluggamerkingar fyrir verzlanir og fyrirtæki. Útbúum alls konar plast- skilti. Reynið viðskiptin, vönduð vinna. Silkiprent Lindargötu48 sími 14480.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.