Morgunblaðið - 16.07.1974, Page 22

Morgunblaðið - 16.07.1974, Page 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JÚLI 1974 Bláskógaskokkið orðið alþjóðlegt Arnar, Haraldur. Stefán, Sigurður og Júlfus Arnarson Það hefur ekki verið sfður skemmtilegt að fara hina 15 km löngu leið Bláskógaskokksins á hestbakí eins og sjö fötluð börn gerðu að þesu sinni. kom í mark. Hann hafði talsvert forskot, næsti maður var einnig brezkur. Tæpur klukkutími var liðinn frá því að lagt var af stað, og nú fóru keppendur að koma í mark hver á eftir öðrum. AUir voru keppendur vandlega merkt- ir í bak og fyrir. Það fór ekki á milli mála I hvaða flokki hver var. Númer með tölu, sem tilgreindi aldur og sagði til um f hvaða flokki hver var. Flestir þeir fyrstu báru töluna 19 á brjóstinu og voru karlkyns. Það táknaði, að þeir voru í karla- flokki, á aldrinum 19—35 ára. Ekki leið þó á löngu þar til ýmsir úr öðrum flokkum fóru að láta sjá sig og þá helzt strákar úr flokki 16—18 ára. Sfðan týndust þeir inn hver af öðrum allir hinir rúmlega 200 þátttakendur. Frá því að sá fyrsti kom í markið á Laugavatni og þar til sá sfðasti komst yfir marklfnu, liðu tæpir tveir tfmar. Það gerði í rauninni ekkert til hver tíminn var. Flestir litu á Bláskógaskokkið sem gott sunnu dagstrimm. — Agalega var þetta erfitt, sagði einn keppandinn, er hann kom á milli markstanganna. Sá næsti var ekki eins óhress, spurði í rólegheitum, hvort hlaupið væri virkilega búið. — Jæja, nú er það ekki lengra, sagði hann svo þegar hann fékk að vita, að nú þyrfti hann ekkert að gera annað en að segja til nafns, svo hann gæti fengið áritað viðurkenningar- — Jú þetta hlýtur að vera Bret- inn, hann var orðinn langfyrstur, þegar komið var að áningastaðn- um. Þeir eru vanir að hlaupa á víðavangi eins og hér, jú þetta er örugglega Bretinn, sá er léttur á sér. Það er bara eins og hann sé að byrja hlaupið. Það var f Bláskógaskokkinu á sunnudaginn, sem þessi orð voru mælt. Fjöldi fólks fylgdist með úrslitum hlaupsins, beið góða veðrinu eftir vinum og ættingj- um, sem höfðu látið sig hafa það að fara f hið 15 km langa Blá- skógaskokk; Sumir f fyrsta skipti aðrir í annað og sumir hafa verið með í öll þrjú skiptin, sem skokk þeirra Skarphéðinsmanna milli Þingvalla og Laugarvatns hefur farið fram. Það kom á daginn, að það var Bretinn Seymour, sem fyrstur Aldursforsetinn Páll Hallbjörns- son fsr sér heitt kaffi að skokk- ínu Ioknu Bretinn Seymour kemur langfyrstur f mark f Bláskógaskokkinu (ljósm. Mbl. RAX.) skjal. — Mér fer fram með aldrin- um, sagði kunnur'kaupmaður úr Reykjavík, þegar hann hitti sitt fólk að hlaupinu loknu. — Ég verð orðinn góður um aldamót, sagði hann, en hefur þó örugglega verið búinn að lifa í góða hálfa öld. Fötluð börn voru með í fyrsta sinn, en óhætt er að bóka, að það verður ekki sfðasta skiptið. Fóru börnin yfir heiðina á hestum og höfðu að sögn hina mestu ánægju af. Voru þau sjö saman, sem not- uðu þarfasta þjóninn að þessu sinni og gekk mjög vel, þó að flest þeirra stigju á sunnudaginn í fyrsta skipti á hestbak. Litlu mun- aði þó, að illa færi við endamark- ið. Sjömenningunum var fagnað með miklu lófataki, en við það fældust hrossin mjög. Enginn datt þó af baki og allt fór vel. Þátttakan í Bláskógaskokkinu að þessu sinni var heldur minni en í tvö fyrri skiptin. Ástæðan er eflaust sú, að um sfðastliðna helgi fóru víða fram mikil hátíðahöld, sem drógu að sér þúsundir manna. Einn af skipuleggjendum keppninnar sagði okkur, að góða veðrið og þurrkurinn héldi bænd um úr sveitunum í kring heima við. — Þeir þora ekki að hreyfa sig frá heyinu, sem þeir eiga um allar jarðir. Segja má, aðBIáskógaskokkiðsé nú orðið alþjóðlegt. Tveir Eng- lendingar voru meðal keppenda, tveir þeir fyrstu í hlaupinu reynd- ar, enda báðir þrautþjálfaðir langhlauparar. Nokkrir Norð- menn hlupu að þessu sinni og svo einn Grænlendingur. Bezta afrek- ið f hlaupinu vann Bretinn Seymour og setti hann nýtt Blá- skógaskokksmet, 50.31. Eldra metið átti Jón Sigurðsson hljóp á 55.59 f fyrsta skipti, sem skokkið fór fram, árið 1972. Og þó. Ef til vill hefur Bretinn ekki unnið bezta afrekið. Páll Hallbjörnsson, hinn 75 ára gamli hlaupagarpur, var meðal kepp- enda og virtist ekki vera lengi að jafna sig eftir að hann kom í markið. Einn sex ára snáði tók nú þátt í fyrsta skipti, en sennilega ekki það síðasta. Hópur sjö ára krakka skokkaði og komust öll í mark, sem og reyndar allir aðrir, sem hófu hlaupið. Wm mm -j. '&t*. '"r ^ Brynleifur Steingrfmsson héraðs- læknir á Selfossi Labbaði upp fyrir veg og settist á mosavaxna þúfu —MAÐUR hefur gott af þessu, ég er vanur að hlaupa, þó ekki f svona brekkum. Þetta er bara eins og góð æfing. Þetta sagði Brynleifur Stefánsson, héraðs- læknir á Selfossi, er við Morg- unblaðsmenn hittum hann að máli að hlaupinu loknu. Bryn- leifur var einn af þeim, sem kom Bláskógaskokkinu á lagg- irnar fyrir þremur árum. — Það er þó dálftið hættulegt fyr- ir fólk að taka þátt f Bláskóga- skokkinu án þess að æfa sig eitthvað fyrir það. Þegar við byrjuðum með þetta skokk, var það gert með það f huga að fá fólk til að koma út og hreyfa sig. Talsvert var um það, að fjöl- skyldur hlypu saman. Sigurveg- arinn f flokki kvenna 35 ára og eldri, Lilja Þorleifsdóttir, hafði til ^æmis tvo syni sfna með sér. Unnu þeir báðir til silfurverð- launa, en móðirin fékk bikar. Júlfus Arnarson tók nú þátt f hlaupinu f þriðja skiptið og hafði með sér tvo syni sfna og mága, eiginkonan ók á eftir skokkurunum, svona til vonar og vara ef einhver skyldi gefast upp. Það kom þó ekki tii; allir luku þeir kapparnir hlaupinu, en virtust þó misjafnlega þreyttir, þegar f markið kom. Sá, sem tók þessu með hvað mestri ró, var yngsti þátttak- andinn, Arnar Júlfusson. Hann hafði skokkið yfir heiðina f ró- legheitum, en þegar hann sá mannfjöldann við markíð leizt honum greinilega ekki á blik- una. f stað þess að hlaupa f gegnum endamarkið á mikilli ferð eins og flestir aðrir þátt- takendur, labbaði hann upp fyrir veg og settist þar á mosa- vaxna þúfu. Þar sat hann góða stund, eða þar til frændi hans kom og sótti hann. Af hverju gerði hann það? — Af þvf bara! Júlfus sagðist hafa tekið þátt f skokkinu f öil þrjú skiptin og hefði nú bætt sig um samtals 20 mfnútur f skiptin þrjú. Tfmi hans núna var klukkustund og 10 mfnútur. — Eigum vi3 ekki að segja að ég verði innan við klukkustund næst, — ég ætla alla vega að reyna. Við spurðum þá fimmenning- ana, hvort þeir ætluðu ekki all- ir að vera með næst. Þeir sögð- ust reikna fastlega með þvf, nema einn. — Ef maður nennir þvf þá sagði hann. Á þriðja hundrað manns skokkuðu á sunnudaginn milli Þingvalla og Laugarvatns. 70 ára aldursmunur á yngsta og elzta keppandanum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.