Morgunblaðið - 16.07.1974, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULl 1974
25
Lokað
Lokad vegna sumar/eyfa til 12. ágúst.
Sigurður Elíasson h.f.,
Auðbrekku 52, Kópavogi.
Aðalfundur Sambands
íslenzkra rafveitna
Stúlka óskast
til afgreiðslustarfa strax. Vaktavinna. Uppl. í
síma 51 666.
Bí/astöð Hafnarfjarðar.
Dagana 4. og 5. júlí s.l. hélt
Samband fslenzkra rafveitna 32.
aðalfund sinn að Hótel Sögu f
Reykjavfk. Auk venjulegra aðal-
fundarstarfa voru á fundinum
flutt þrjú erindi.
Fyrri fundardaginn flutti
Sigurður Þórðarson, verkfræðing-
ur, erindi um nýtingu innlendra
orkugjafa f stað olíu. Skýrði hann
skýrslu iðnaðarráðherra um þetta
efni, sem lögð var fram á Alþingi
s.l. vetur.
Fyrir hádegi seinni fundardag-
Mann vantar
á Smurstöðina á Laugavegi 1 80.
Vil kaupa
lltið einbýlishús eða 3ja—4ra herb. ibúð á hitaveitusvæði Reykjavíkur,
Kópavogs eða Mosfellssveitar stærð 70—100 ferm en rúmgóð
geymsla verður að fylgja, má vera gamalt og I lélegu ástandi.
Upplýsingar I sima 13496 aðeins eftir hádegi I dag.
Bifreið til sölu
Range Rover 1 974, vel með farinn til sölu
Allar upplýsingar í síma 11188.
II iiaöaSk 11!
....-i--■ ?***«.■<■■
HUS ÞETTA
ER TIL SÖLU
Húsið er um 200 fermetrar að stærð og stendur að Þverholti 2 —
einnar minútu gang frá Hlemmtorgi. Það er litillega skemmt að innan af
eldi. Hentar fyrir hvað sem er, svo sem hverskonar verzlun og iðnað,
skrifstofur, veitingarekstur, læknastofur, bilaleigu, ferðaskrifstofur,
teiknistofur, sérskóla, félagasamtök og fjöldamargt fleira. Næg bila-
stæði við húsið. Tilboð merkt „Þverholt 7622" sendist Morgunblaðinu
eða i P.O.Box 1 94, Rvik, fyrir 1 3. júli, næstkomandi.
Bifreið til sölu
Land Rover 1972 vel með farinn til sölu. Allar
upplýsingar í síma 11188.
Þvottavinda
Vil kaupa þvottavindu (ca. 10 kg.) fyrir þvotta-
hús.
Uppl. í síma 31 380.
inn hélt Jón A. Bjamason, raf-
magnseftirlitsstjóri, erindi um
norrænt samstarf um raffanga-
prófun. Fram kom m.a., að unnió
er að því að draga úr tvíverknaði
við skoðun raffanga með þvl að
taka upp aukið norrænt samstarf.
Eftir hádegi seinni fundardag-
inn hélt Olav S. Johansen, verk-
fræðingur, erindi um Rann-
sóknarstofnun norska raforku-
iðnaðarins, EFI, I Þrándheimi, en
hann er forstöðumaður
stofnunarinnar.
Núverandi stjórn Sambands
íslenzkra rafveitna skipa: Aðal-
steinn Guðjohnsen, rafmagns-
stjóri, formaður, Eirfkur Briem,
framkvæmdastjóri, varaformað-
ur, og rafveitustjórarnir Aage
Steinsson, Adolf Björnsson, Einar
Ingvarsson, Garðar Sigurjónsson
og Magnús Oddsson. Fram-
kvæmdastjóri SlR er Gísli Jóns-
son, verkfræðingur.
Aðalfélagar SlR, sem eru raf-
veitur landsins og orkuöflunar-
fyrirtæki eru samtals 25. Auk
þess eru f sambandinu 17 auka-
félagar og 3 heiðursfélagar.
Leikfélag
Húsavíkur
sýnir í Iðnó
LEIKFÉLAG Reykjavfkur á von á
góðum gestum utan af landi f lok
þessarar viku. Leikfélag Húsavík-
ur kemur og sýnir gamanleikinn
Góða dátann Svæk í Iðnó, en Leik-
félag Húsavíkur skemmti fólki
víðsvegar á Norðurlandi með
þessum gamanleik á útmánuðum
sl.
Það er i tilefni þjóðhátíðarinn-
ar, sem Leikfélag Húsavfkur legg-
ur land undir fót og heimsækir
Reykvfkinga. Leikfélag Reykja-
víkur hefur leikhúsið við Tjörn-
ina opið f sumar vegna afmælisins
og hátfðarhalds, eða fram f fyrstu
viku ágústmánaðar.
I leikflokknum frá Húsavík eru
24 leikendur, sem fara með hlut-
verk í Góða dátanum Svæk.
Benedikt Árnason stjórnaði svið-
setningu á leiknum, en með aðal-
hlutverkið, Svæk, fer Ingimund-
■ur Jónsson. Sigurður Hallmars-
son hefur gert umbúnað.
Leikfélag Húsavíkur sýnir hjá
Leikfélagi Reykjavíkur á föstu-
dags- og laugardagskvöld, 19. og
20. júlí.
Sölumenn —
Sölukonur
Óskum eftir duglegum sölumanni eða
sölukonu til starfa í stuttan tíma. Nauð-
synlegt er að hafa bíl til umráða. Starfið
hentar sérlega vel þeim, sem hafa góð
sambönd við út- og innflutningsverzlanir
á Reykjavíkursvæðinu. Ágætt tækifæri
fyrir réttan mann eða konu til verulegrar
tekjuöflunar á stuttum tíma.
Áhugasamir sölumenn og sölukonur leggi
inn nafn, heimilisfang og síma á af-
greiðslu Morgunblaðsins sem fyrst, merkt
„Miklir peningar 1 974 — 5280"
Járnsteypan h.f.,
óskar eftir að ráða
3 aðstoðarmenn
Um framtíðarvinnu er að ræða.
Upplýsingar í síma 24400.
Lagermaður óskast
Viljum ráða sem fyrst duglegan og reglu-
saman mann, til lagerstarfa á snyrtivöru-
lager.
Allar nánari upplýsingar hjá deildarstjóra
heildsöludeildar.
Glóbus h.f.,
Lágmú/a 5,
Reykjavík.
Auglýsing
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins óskar
að ráða nú þegar stúlku til skrifstofu-
starfa. Vinna hálfan daginn kemur einnig
til greina. Upplýsingar gefnar á stofnun-
inni, Skúlagötu 4, sími: 20240, alla daga
frá kl.: 8:00 — 1 6:00.
Járnsteypan h.f.,
óskar eftir að ráða
3 nema í
málmsmíði
Upplýsingar í síma 24400.
Járnsteypan h.f.,
óskar eftir að ráða
3
málmsteypumenn
Upplýsingar í síma 24400.
Bifvélavirkjar —
Vélvirkjar
eða menn vanir viðgerðum þungavinnu-
véla óskast strax. Uppl. í síma 52050.
Ýtutækni h. f.