Morgunblaðið - 16.07.1974, Side 26

Morgunblaðið - 16.07.1974, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULI1974 Skarphéðinn Pétursson prófastur í Bjarnanesi Fæddur 11. október 1918 Dáinn 5. júlí 1974 SLYSFARIR eru það tíðar, að þær eru flestum aðeins fréttir þar til nærri heggur. — Leiðir okkar Skarphéðins Péturssonar lágu saman í Laugaskóla veturinn 1937—38. Hann NorðupÞingey- ingur, ég Vestur-Húnvetningur. Skarphéðinn var að vfsu ekki reglulegur nemandi heldur las undir leiðsögn skólastjórans, Leifs Ásgeirssonar, fyrir gagn- fræðapróf við Menntaskólann á Akureyri. Skarphéðni kynntist ég vel og e.t.v. mörgum öðrum betur, enda vorum við herbergisfélagar sfðari hluta vetrarins. Skarphéðni þótti alltaf vænt um veru sína á Laugaskóla og mat skólastjórann mikils. Taldi hann bæði menntunar- og uppeldislegt veganesti, sem hann hlaut I Laugaskóla, hafa verið haldgott og ómetanlegt. Skarphéðinn var um margt sér- stæður persónuleiki og fór ekki troðnar slóðir ef því var að skipta. Hann var greindur vel og víðles- inn. Lá við, að við öfunduðum hann af hans miklu námshæfi- leikum og stálminni. Hann las oft allt annað en námsbækurnar, þurfti ekki að líta nema lauslega yfir þær sumar hverjar, þar sem efni þeirra var honum kunnugt frá öðrum bókum. Hann var því strax á unga aldri óvenju fróður um menn og málefni og þekkti vel hvað var að gerast dagsdaglega og það, sem heyrði sögunni til. Skarphéðinn bjó yfir meiri við- kvæmni en ætla mætti við fyrstu sýn. Hann var hreinskilinn tryggur, raungóður og hjálpfús og kom það bezt fram, þegar mest á reyndi. Frá því leiðir okkar Skarp- héðins skildu í Laugaskóla lágu þær ekki saman að undanteknum nokkrum vikum á Akureyri er ég var að taka gagnfræða- próf við M.A. og hann tók mig I herbergi sitt. Hins vegar hitt- umst við stöku sinnum á förn- um vegi og þá oft með margra ára millibili. Lífssögu hans kann ég því ekki að rekja sem skyldi. Hitt veit ég, að við kveðjum mann, sem átti umbrotamikið sálarlíf í leit að því, sem lífsgildi hafði, og þótt margar gátur hafi ekki verið leystar tókst honum að finna svör við mörgum áleitnum spurningum sínum, sem gerðu til- veruna bjartari og Ieiðina greiðara að þeim kjarna, sem mölur og ryð fá ekki grandað. Skarphéðinn var fæddur í Reykjavík 11. okt 1918, sonur hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur frá Ásmundarstöðum á Sléttu og Péturs Zóphóníassonar ættfræð- ings. Hann lauk stúdentprófi frá Menntaskólanum á Akureyri vorið 1941. Fluttist suður og vann á Póststofunni í Reykjavík 1943—59. Hann las guðfræði við Háskóla tslands og útskrifaðist árið 1959 og vígðist sama ár prestur að Bjarnanesi í AustupSkaftafells- sýslu. Var þar sóknarprestur og síðar prófastur til dauðadags. Skarphéðinn kvæntist 9. ágúst 1945 eftirlifandi konu sinni, Sigurlaugu Guðjónsdóttur frá Marðarnúpi 1 Vatnsdal og eignuð- ust þau sjö börn. Fjölskyldu Skarphéðins og öðrum aðstandendum flyt ég inni- legar samúðarkveðjur. Páll V. Danfelsson. GÓÐUR vinur minn og félagi, Skarphéðinn Pétursson prófastur í Bjarnanesi, er látinn með voveif- legum hætti. Langar mig að minn- ast hans örfáum orðum. Séra Skarphéðinn átti til góðra að telja. Faðir hans var vinur minn Pétur Zóphoníasson ættfræð- ingur, sonur síra Zóphoníasar Halldórssonar í viðvík og konu hans Jóhönnu Jónsdóttur háyfir- dómara Péturssonar. Eru þessar ættir svo kunnar að eigi er þörf að rekja nánar. Móðir Skarphéðins var Guðrún Jónsdóttir frá Ásmundarstöðum á Melrakka- sléttú. Hún var látin áður en ég kynntist þessari fjölskyldu en öllum, sem hana þekktu, kemur saman um, að hún hafi verið ein- stök mannkostamanneskja. Ég var um margra ára skeið heima- gangur á heimili Péturs Zophoníassonar vegna þess, að við Gunngeir, sonur hans, vorum bekkjarbræður í Menntaskólan- um, en auk þess tengdi sameigin- legur bridgeáhugi okkur mjög saman á þessum árum og raunar löngum síðar. Mér er sérstaklega minnisstætt eitt kvöld þegar ég kom heim til Gunngeirs og taldi víst, að okkur mundi vanta fjórða mann eins og stundum vildi koma fyrir. Ég mun hafa lýst þessum áhyggjum fyrir þeim feðgum, en þá birtist hýrubros á andlitum t Móðir okkar SIGURLÍN EINARSDÓTTIR. Ásvallagötu 55, lést I Landakotsspítala 13.7. '74 Fyrir hönd barna og barnabarna, Margrét Sigurðardóttir. t Litla dóttir okkar FJÓLA GUÐMUNDSDÓTTIR sem lést 9. júll verður jarðsungin frá Fossvogskirkju I dag þriðju- dag kl. 1.30. Guðmundur Sveinsson Sveinbjörg Karlsdóttir. feðganna og þeir sögðu mér engar áhyggjur að hafa þar eð Skarp- héðinn sonur Péturs væri kominn 1 bæinn. Þetta var fyrsta spila- kvöld okkar Skarphéðins en svo sannarlega ekki það síðasta og geymi ég í huga þakklátar minn- ingar til minna gömlu félaga frá þessum árum. En ástæðan til þess, að ég hafði ekki séð Skarp- héðinn fyrr en umrætt kvöld, var sú, að hann var að nokkru leyti alinn upp fyrir norðan hjá móður- systur sinni og manni hennar, varð stúdent frá Akureyrarskóla og því ekki samtímis okkur hér syðra fyrr en á háskólaárunum. Námsbraut séra Skarphéðins varð ekki óslitin eins og okkar hinna, því að fljótlega eftir stúd- entspróf gerðist hann póstmaður hér 1 Reykjavík og vann þau störf um langt árabil. Það var ekki fyrr en á árunum 1955—1959, að hann fór að stunda guðfræðinám og leysti hann með sóma það erfiða verkefni að ljúka Háskólanámi 1 þeim fræðum og stunda vinnuna jafnframt. Ég skal ekki segja hvað olli því, að hann gerði svo langt hlé á námi sínu en trúlega hafa fjárhags- ástæður valdið þar einhverju um, við vorum ekki allir ríkir á þess- um árum. En hvað sem um það er, er þó hitt víst, að ekki var það hæfileikaskortur, sem þessu olli, þvf að Skarphéðinn átti afar gott með að læra og hafði raunar alveg frábært minni, eins og títt er um ýmsa ættmenn hans bæði fyrr og síðar. Eftir að séra Skarphéðinn flutt- ist austur að Bjarnanesi fór fund- um okkar fækkandi, en jafnan var hátfð í bæ þegar hann kom f heimsókn og eins átti ég því láni að fagna að heimsækja þau hjón f Bjarnanesi og njóta frábærrar gestrisni þeirra. Ekki verður séra Skarphéðins svo minnst að eigi sé getið konu hans frú Sigurlaugar Guðjóns- dóttur. Þau giftust ung og stóðu saman í blíðu og stríðu. Er mér kunnugt um, að hún hvatti hann mjög til að ljúka háskólanámi og studdi hann með ráðum og dáð í því efni. Mun oft hafa þurft að halda vel á þau árin því að börnin urðu fljótlega mörg og póst- mannslaunin ekki ýkja há. Fyrír þetta erum við allir vinir séra Skarphéðins Sigurlaugu ævar- andi þakklátir. Þau hjónin eignuðust 7 börn, sem öll eru hin mannvænlegustu og hafa erft kosti foreldranna í ríkum mæli. Um störf séra Skarphéðins sem sóknarprests verða aðrir méí kunnugri að dæma en óhætt mun þó að fullyrða, að hann var vin- sæll austur þar. Mér er tregt tungu að hræra þegar svona áfall kemur fyrir. Ég sakna góðs drengs og félaga og bið blessunar og styrks til handa ekkjunni, börnunum, tengda- börnum og barnabörnum, fjöl- skyldunni allri, vinum og velunn- urum. Guð blessi minningu séra Skarphéðins Péturssonar. Einar Ágústsson. Við andlát séra Skarphéðins Péturssonar erum við enn þá einu sinni minnt á, að „bilið er mjótt milli blíðu og éls“ Hart og óvænt greiddi dauðinn höggið, svo ekki þurfti um að binda. Við stöndum eftir agndofa og hrelld. En það þýðir ekki að deila við dómarann, Skarphéðinn er dáinn, og það er að honum mikil eftirsjá. Þessum línum er ekki ætlað að vera eiginleg eftirmæli né æfi- ágrip, heldur fáein kveðju- og þakkarorð til manns, sem vildi svo til að ég tengdist og reyndi aldrei að öðru en drengskap og hjarthlýju þau ár, sem við þekkt- umst. Samfundir okkar voru að vfsu stuttir og stopulir, þótt óftast nær gæfi hann sér tíma til að koma við hjá mér, þegar hann átti leið um hér, og bar þá margt á góma. Stundum fór hann svo hátt og vítt á fluginu, að það greip mig óþolin- mæði, og ég bað hann halda orð- ræðunni í ofurlítið fastari skorð- um, svo ég, vesöl manneskjan af „Mörtu kyni“ gæti fylgst með. Hann fór nefnilega ekki alltaf troðnar slóðir, hann séra Skarp- héðinn. En alltaf þótti mér vænt um að sjá hann, fannst hann girnilegur til fróðleiks og hugsaði oft, að ég þyrfti að gefa mér meiri og betri tíma til að tala við hann næst. — En hvenær í ósköpunum ættum við að leyfa okkur að tala um „næst“. Augnablikið, sem við lifum, er aleiga okkar f tfmanleg- um skilningi — og nú hefi ég ekki tækifæri til að kynnast séra Skarphéðni betur. Samt sem áður tel ég mig hafa þekkt hann það vel, að ég get fullyrt, að hann var tryggðatröll, hjálpsamur og vinfastur, og á bak við glens og stundum hálfkæring greindi ég mann næmra tilfinn- inga, og mann, sem að mfnu áliti hafði ekki glatað sínu barnshjarta — og það er mikil gæfa. Skelfing finnst mér sárt, að hann fékk ekki að lifa lengur. Hann bar lffsþorstann í brjósti sér — og hafði svo mikið að lifa fyrir. Vegna lítt viðráðanlegra orsaka get ég ekki fylgt Skarp- héðni til grafar og fellur það sannarlega illa. En úr fjarlægð sendi ég öllum þeim, sem hann unni og unnu honum, einlægar samúðarkveðjur og bið þess, að þeim veitist styrkur nú og í fram tíðinni til að bera þennan sára og óvænta missi. Og að endingu þakka ég kynnin og ég þakka fyrir, hve hann var dóttur minni góður og skilnings- ríkur tengdafaðir. Ég þakka ástrfkið á sonardótturinni litlu, sem hann fór með í sfðasta ferða- lagið og er ein til frásagna um síðasta spölinn á lffshlaupi þínu. Forsjóninni þakka ég þá mildi, að hún fékk að lifa áfram hjá okkur. Hún mun áreiðanlega aldrei gleyma afa í Bjarnarnesi. Friður sé með þér Skarphéðinn. Lára Gunnarsdóttir. Kveðja frá Póstmannafélagi Is- lands. Séra Skarðhéðinn Pétursson hóf störf f póstþjónustunni í Reykjavfk árið 1943, þar sem hann starfaði sem póstafgreiðslu- maður og var póstfulltrúi frá ár- inu 1958, uns hann lét af störfum árið 1959 og vígðist til prests í Bjarnanesprestakalli. Skarphéðinn vann mikið að fé- lagsmálum póstmanna og var for- maður Póstmannafélags Islands 1955—1956. Meðal annars mætti hann á norrænni póstmannaráð- stefnu f Ösló 1955 sem fulltrúi íslehskra póstmanna. Hann var vel að sér í Norðurlandamálum og vakti óskerta athygli margra ráð- stefnumanna, og varð hann þeim mjög minnistæður og ekki síst sökum þess, að þeir fréttu sfðar, að hann væri orðinn prestur á Islandi. Þeir minntust hans oft sem fslenska póstprestsins. Skarphéðinn var sérstaklega góður félagi, tryggur og sannur f S. Helgason hf. S7EINIDJA Clnholti 4 Slmar 74677 og U254 t Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ARON I. GUÐMUNDSSON skipstjóri, Þórsgötu 2, Reykjavfk, andaðist á Landspitalanum 14. júll Ingveldur Pálsdóttir, Guðmundur Aronsson Páll Aronsson, Ragnhildur Aronsdóttir, Óli Már Aronsson, og bamabörn t Maðurinn minn, faðir okkar og frændi, ÞORVALDUR EINARSSON, bakari, Laugamesvegi 56 lést I Landakotsspitala aðfaranótt 1 3. júli. Gunnhildur Gestsdóttir, Einar Þorvaldsson. Elfn Melsted. SigurBur Valur Þorvaldsson. .......... .....■■■■...... — t Maðurinn minn GUÐBRANDUR MAGNÚSSON lést 13 þ m. Matthildur Kjartansdóttir og vandamenn Faðir okkar t andaðist í SKARPHÉÐINN NJÁLSSON, Meðalholti 13, Reykjavfk. Landspitalanum, sunnudaginn 14 júlí Fyrir hönd aðstandenda Sigrún Skarphéðinsdóttir, Vilberg Skarphéðinsson. t Eiginmaður minn PÉTUR AÐALSTEINSSON, stöðvarstjóri. SkeiSarvogi 101, verður jarðsettur frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 17. júlí kl. 1 3 30. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Dagmar Helgadóttir. t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og jarðarför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu KRISTÍNAR SIGUROARDÓTTUR Vatnsleysu. Sérstakar þakkirfærum við Kvenfélagi Biskupstungna. Erlendur Bjömsson, börn, tengdabörn og bamabörn. Inga Einarsdóttir. Haukur Leósson, Kristfn Gunnarsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.