Morgunblaðið - 16.07.1974, Síða 27

Morgunblaðið - 16.07.1974, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULÍ 1974 27 vináttu sinni og ræktarsemi. Eftir að hann gerðist prestur austur í Hornafirði, hélt hann nánum sam- skiptum við gamla félaga í póst- þjónustunni. Hann kom ávallt, er hann var á ferð f höfuðborginni, í pósthúsið og ræddi við póstmenn um vandamál þeirra og fleira er máli skipti. A síðastliðnu vori voru nokkrir póstmenn á ferð austur í Horna- firði, og frétti hann af þvf. Brá hann skjótt við og kom til móts við þá, þrátt fyrir það, að hann væri störfum hlaðinn. Við áttum með honum ánægjulega stund í þetta sinn, og lék hann á als oddi eins og venjulega á góðra vina fundi. Þegar ég kvaddi hann, lét ég það í ljós, að vegna sérstakra ástæðna myndi ég og fleiri póst- menn koma oft á næstunni austur í Homafjörð. Skarphéðinn tók þessu vel, en um leið og hann kvaddi mig, sagði hann, að það væri ekki víst, að við sæjumst aftur. Okkur setti hljóða, þegar við fréttum um hið sviplega slys 5. júlí austur í Hornafirði. Á slfkri stund getur enginn skilið hin sviplegu atvik, er ráða oft svo miklu í mannlegum heimi. En minningin um góðan dreng, góðan félaga, mun lifa og verða okkur mikils virði. Á kveðju- stund, er kemur alltof fljótt — alltof óvænt, flytjum við konu hans, Sigurlaugu Guðjónsdóttur, börnum þeirra og barnabörnum fyllstu samúð, og vonum, að þau öðlist styrk og þrótt í sorg og raunum. Við minnumst Skarphéð- ins sem góðs félaga og tryggs vinar. Blessuð sé minning hans. Fyrir hönd Póstmannafélags Islands, Reynir Armannsson. Þar sem sr. Skarphéðinn var ráðinn prófdómari að Gagnfræða- skólanum á Höfn í Hornafirði veturinn 1973—74, og ég undirrit- aður starfaði sem kennari við sama skóla, lá það í hlutarins eðli að við ættum eftir að starfa saman áður en skólaári lyki. Þrátt fyrir tiltölulega stutta samvinnu og fremur fátækleg kynni, verður sr. Skarphéðinn mér ávallt eftirminnilegur maður sakir fádæma eiginleika hans, sem voru m. a. fólgnir í miklum fróðleik og hve víðreist hann hafði gert á sviði bókmennta. Ekki vil ég taka svo djúpt í árinni að segja hann hafa vitað „allt milli himins og jarðar", en fróður var hann mjög, því neitar enginn, sem þekkti til. Eitt sinn hafði ég gefið sr. Skarphéðni vilyrði fyrir bók, sem ég átti fyrir sunnan, en það síðan dregist úr hömlu að nálgast hana. Þetta lét sr. Skarphéðinn sér ekki lynda, heldur stikaði á eftir mér einsog ástsjúkur kvenmaður auk þess sem hann jós yfir mig háð- yrðum, þar til bókin var hans. — Já, svo mikil var forvitni og fróð- leiksfýsn sr. Skarphéðins, að kalla mátti hann hnýsinn á köfl- um. Ótalinn er sá þáttur í persónu- leika sr. Skarphéðins, sem mér finnst einna eftirtektarverðastur, en það var hreinskilni hans. Hann var ekki með neina tæpitungu né væmnis- eða hræsnistón þegar skoðanir hans og álit á mönnum eða málefnum voru annars vegar. Þetta kom við kaunin á mörgum hverjum og skapaði honum óvin- sældir sumra, en ekki er mér ör- grannt um, að hann hafi vorkennt þeim, sem ekki þoldu stungu sannleikans; Já, það er nú það. Það er sárt að sjá á bak slíkum manni, sem sr. Skarphéðinn var, því auk þess að vera sterkur per- sónuleiki, var hann sem talandi alfræðiorðabók, og þær eru jú ekki margar. Ég kveð Skarphéðinn að lokum og vona, að þekking hans fái notið sín á áfangastað. Pétur Emil AIs Emilsson. Bæjarstjórn Grindavíkur Þessi mynd var tekin á fyrsta bæjarstjórnarfundinum f Grindavfk, en sem kunnugt er hlaut Grindavfk kaupstaðarréttindi f vor. Meirihlut- ann skipa bæjarfulltrúar Framsóknar- og Alþýðuflokks, en bæjar- stjóri er Eirfkur Alexandersson. Er hann á myndinni. Ljósm. óh.þ. OMIVIDMINLS IOLt:n4AHM OMIVI VII'IINUrCLrtVjH Varahlutaverslun HÖFÐABAKKA 9. SÍMAR 84710 og 84245. Varahluta- þjónusta GM bíla er nú öll á sama stað í Höfðabakka 9 er nú samankomin á einn stað varahlutaverslun fyrir " General Motors bíla. OPEL CHEVROLET VAUXHALL BUICK BEDFORD GMC Sími 84710 Sími 84245 HÖFÐABAKKI 9 |r Varahlutaverslun i Sambandsins VESTURLANDSVEGUR Hammond Orgel Til sölu ásamt Hammond Lesley 100 watt. Hagstætt verð. Uppl. í síma 35753 frá 7—9. VÉLSKÓLI ÍSLANDS SJÓMANNASKÓLANUM Veturinn 1974—1975 verða starfræktar eftirtaldar deildir: í Reykjavík 1., 2., 3. og 4 stig. Á Akureyri: 1. og 2 stig. Á ísafirði: 1. og 2 stig. í Vestmannaeyjum: 1 stig. í ráði er að stofna deildir á Höfn í Hornafirði og í Ólafsvík, er veiti þá fræðslu, sem þarf til að Ijúka 1. stigi vélstjóranáms, ef næg þátttaka fæst. Inntökuskilyrði: 1 stig: a) Umsækjandi hafi náð 1 7 ára aldri. b) Umsækjandi sé ekki haldinn næmum sjúk- dómi eða hafi líkamsgalla, sem geti orðið honum til tálmunar við starf hans. c) Umsækjandi kunni sund. 2. stig: a) Umsækjandi hafi náð 1 8 ára aldri. b) Umsækjandi hafi lokið miðskólaprófi eða hlotið hliðstæða menntun. c) Umsækjandi sé ekki haldinn næmum sjúk- dómi eða hafi líkamsgalla, sem geti orðið honum til tálmunar við starf hans. d) Umsækjandi kunni sund. e) Umsækjandi hafi eitt af þrennu: e) Umsækjandi hafi eitt af þrennu: e 1) lokið vélstjóranámi 1. stigs, e2) öðlast a.m.k. tveggja ára reynslu í meðferð véla eða vélaviðgerðum og staðist sérstakt inntökupróf við skólann, eða e3) lokið eins vetrar námi í verknámsskóla iðnaðar í málmiðnaðargreinum og hlotið a.m.k. 6 mánaða reynslu á auki í meðferð véla eða vélaviðgerðum og ennfremur staðist sérstakt inntökupróf við skólann. Umsóknir: Umsóknareyðublöð fást í skrifstofu skólans í Sjómannaskólanum, hjá húsverði Sjómanna- skólans, hjá Vélstjórafélagi Islands, Bárugötu 11, í Sparisjóði vélstjóra, Hátúni 4A og hjá forstöðumönnum deildanna. Umsóknir um skólavist í Reykjavík, á Höfn í Hornafirði og í Ólafsvík sendist til Vélskóla íslands, pósthólf 5134, Reykjavík. Umsóknir um skólavist á Akureyri sendist til Björns Kristinssonar, pósthólf 544, Akureyri. Umsóknir um skólavíst á ísafirði sendist til Aage Steinssonar, Seljalandsvegi 16, ísafirði. Umsóknir um skólavist í Vestmannaeyjum sendist til Kristjáns Jóhannessonar, pósthólf 224, Vestmannaeyjum. Umsóknir nýrra nemenda verða að hafa borist fyrir 1. ágúst. Skólinn verður settur mánudaginn 16. septem- berkl. 14.00. Kennsla hefst miðvikudaginn 1 8. september kl. 10.00. Endurtökupróf fyrir þá, sem ekki náðu tilskilinni einkunn eða náðu ekki framhaldseinkunn, fara fram 9. —12. september. Sækja þarf um þessi próf á sérstökum eyðu- blöðum. Skólastjóri.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.