Morgunblaðið - 16.07.1974, Page 35

Morgunblaðið - 16.07.1974, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. JULl 1974 35 Mynd þessi var tekin f Ijmuiden f Hollandi f gær, þar sem brezka skipið Tópaz beið eftir þvf að taka við farmi geislavirkra úrgangsefna frð Sviss, sem það á að flytja til sjávar um 900 mflur suðvestur af Plymouth. Hveitisamninguriim við Rússa undirmál? Austin, Texas, 15. júl^AP JOHN White, búnaðarmálastjóri f Texas sagði um helgina, að emb- Salyut -3 Moskvu, 15. júll AP TASS fréttastofan upplýsir f dag, að komið hafi tii greina að binda enda á dvöl sovézku geimfaranna f geimstöðinni Salyut-3 fyrr en til stóð, sökum óvæntra sólarglampa og of mikillar geislahættu. Voru nokkrir sérfræðinganna, sem vinna að þessari tilraun, þeirrar skoðunar, að þegar f stað ætti að kalla geimfarana heim, en aðrir voru á öndverðum meiði og varð álit þeirra ofan á. Segir frétta- stofan, að vfsindamenn og læknar taki þessu með ró og geimferðin haldi áfram. Að sögn Tass byrjuðu þessir óvæntu sólarglampar að gera vart við sig þegar 4. júlí sl., daginn eftir að geimfari þeirra Pavels Popovich og Yuris Artyukhins var skotið á loft. Stóðu þeir síðan yfir I fjóra sólarhringa. Þeir hafa I engu truflað starfsemi geim- faranna, að sögn fréttastofunnar, en mundu hafa valdið of mikilli geislun, ef geimfarið hefði verið á öðrum stað en það er. Um helgina bárust einnig þær fréttir frá Moskvu, að málgagn sovézku verkalýðssamtakanna, ,,Trud“, hefði upplýst, að sl. laugardag hafi annar geimfaranna, Artyukhin, kastast út í einn vegg geimstöðvarinnar eftir að vifta um borð í henni bilaði. • • • Flugvélin flutt til Reykjavíkur MBL. HAFÐI f gær samband við Loftferðaeftirlitið og spurðist fyr- ir um hvort orsakir flugslyssins við Bíldudal á fimmtudag í fyrri viku væru kunnar. Fékk blaðið þær upplýsingar, að flugvélin yrði flutt til Reykjavíkur á næstu dögum og rannsökuð nánar. Fyrr yrði ekkert hægt að segja um hugsanlegar orsakir slyssins. Loftferðaeftirlitið taldi, að vélin væri gjörónýt. Sótti konu í barnsnauð Klukkan 15 f gær var spurzt fyrir um það hjá Flugstöðinni hf. f Reykjavfk hvort flugvél frá stöð- inni gæti sótt konu f barnsnauð til Stykkishólms. Þurfti konan að fæða löngu fyrir tfmann, og þótti læknum ráðlegast að senda hana til Reykjavfkur. Flugvélin var komin í loftið innan 5 mfnútna, og til Stykkis- hólms kom hún rúmlega 15.30. Til Reykjavíkur var hún komin klukkan 16.10. Tókst flugferðin í alla staði vel, og var konan flutt á fæðingardeild Landspftalans. Ljósmóðir fylgdi konunni frá Stykkishólmi. Flugmaður var Þorgeir Magnússon. ættismenn stjórnarinnar f Wash- ington hefðu sagt sér f einkavið- ræðu, að hinn svokallaði rúss- neski hveitisamningur“ hefði ver- ið hluti af þvf verði, sem Banda- rfkin urðu að gjalda til að fá Sovétrfkin til að taka þátt f að binda endi á Vfetnam-styrjöldina. White sagði þetta f sjónvarpsvið- tali nú um helgina. Hann er demókrati og hefur verið búnað- armálastjóri f rösk 20 ár og sækir um endurkjör á tveggja ára fresti. Næstu kosningar um starf hans fara fram sfðar f sumar. White sagði, að hveitið hefði verið selt til Sovétríkjanna þegar það hefði hreint ekki verið sér- lega f þágu Bandarfkjanna og skil- yrðin hefðu alls ekki verið þeim nógu hagstæð. „Við seldum þeim ekki. Við lánuðum þeim fé til að greiða hveitið og þeir keyptu það á laun gegnum einkafélög, m.a. í Texas, Oklahoma og Kansas." Bætti hann sfðan við þeim stað- hæfingum, sem fram eru settar í upphafi, að þetta hefði verið gert til að Sovétmenn beittu áhrifum sfnum við Norður-Vfetnama til að Ieiða Víetnamstyrjöldina til lykta. — Makarios Framhald af bls. 1 ingu til að halda uppi lögum og reglu f landinu og koma f veg fyrir borgarastyrjöld. Sagði út- varpið, að liðið hefði öll völd f landinu, en fréttir víða annars staðar frá, meðal annars frá útvarpsstöð brezkra hersveita á Kýpur, bentu til þess, að barizt væri af hörku á ýmsum stöðum í landinu, þar á meðal f Nikosiu, Famagusta, Limasol og Larnaca. Skriðdrekar voru sagðir um- kringja flugvöllinn og forsetahöll- ina og var talið, að varaliðssveitir lögreglunnar, sem Makarios setti á laggirnar, hefðu veitt öfluga mótspyrnu. Af hálfu þjóðvarð- lisins var hins vegar sagt, að allt lögreglulið landsins hefði verið handtekið og skipt um yfirmenn þar. Hinn nýi forseti Kýpur, sem þjóðvarðliðið hefur sett til valda, heitir Nicholas Sampson, grísk- ættaður Kýpurbúi, sem stundaði neðanjarðarstarfsemi gegn Bret- um á dögum sjálfstæðisbaráttu Kýpurbúa, þá ungur fréttamaður. Hann er nú 39 ára og ritstjóri blaðsins Machi — (Barátta) f Nikosiu. Hann er félagi í EOKA, sem er hernaðarhreyfing sam- takanna ENOSIS, er berst fyrir sameiningu við Grikkland og ákafur fylgismaður þess, að Kýp- ur sameinist Grikklandi. Sampson flutti útvarpsávarp í dag og sagði þar, að bylting þessi hefði verið óhjákvæmileg vegna atburða sfðustu daga og vikna. Hét hann þvf, að kosningar skyldu fara fram í landinu innan árs. Hann sagði, að haldið yrði við hlutleysi Kýpur og samvinnu við allar þjóðir. Eiðtöku Sampsons f dag annaðist biskup, sem Makarios setti af stóli fyrir skömmu, Gennadios að nafni. HERIR TYRKLANDS OG GRIKKLANDS VIÐBÚN- IR Vandlega er fylgzt með því, sem gerist á Kýpur, bæði f Grikklandi og Tyrklandi, þar sem herir beggja hafa fengið fyrirskipun um að vera við öllu búnir. Bulent Ecavit, forsætisráðherra Tyrk- lands, hætti við ferð sína um suðurhluta landsins til þess að taka þátt í skyndifundi stjórnar- innar og fylgjast með þróun mála á Kýpur. Hann lýsti því yfir í útvarpi í dag, að tyrkneska stjórn- in mundi standa vörð um hags- muni minnihlutans á Kýpur (tyrkneskir menn eru þar 150.000 og grískir um 450.000) Sagði Eca- vit, að engri erlendri þjóð yrði leyft að skerða grundvallarrétt- indi tyrkneskra Kýpurbúa. Var litið á ummæli hans sem ljósa vfsbendingu til grísku stjórnar- innar um hvað f vændum væri, ef reynt yrði að knýja fram samein- ingu Grikklands og Kýpur. Sam- skipti Tyrklands og Grikklands hafa verið afar stirð að undan- förnu, sem kunnugt er, vegna ágreinings þeirra um olfuvinnslu- réttindi á Eyjahafi. Brezka stjórnin hefur eindregið hvatt ríkisstjórnir beggja land- anna til að láta atburðina á Kýpur ekki verða að ófriðarefni þeirra f milli, — en f London brugðust menn ókvæða við fregnunum um að Makarios væri látinn. Talsmenn Atlantshafsbanda- lagsins vildu lftt um mál þetta segja f dag, en í kvöld ræddi Joseph Luns, framkvæmdastjóri bandalagsins, við fulltrúa Grikk- lands og Tyrklands. Af hálfu Bandarfkjastjórnar hefur verið sagt, að hún styðji eindregið sjálf- stæði Kýpur og skori á allar aðrar rfkisstjórnir að gera slfkt hið sama. Talsmaður utanrfkis- ráðuneytisins bandarfska vildi hins vegar lftið um málið segja meðan ekki væri meira vitað um ástandið á Kýpur. I einkavið- ræðum bandarfskra embættis- manna við fréttamenn f dag kom fram, að það hafi ekki komið þeim beinlínis á óvart, að til alvarlegra tfðinda drægi á Kýpur, vegna þeirra áköfu deilna, sem staðið hafa að undanförnu milli Makariosar erkibiskups og grísku stjórnarinnar. Hefur Makarios haldið því fram, að grfsku her- foringjarnir í þjóðvarðliðinu ynnu með EOKA að þvf að steypa sér af stóli og ráða sig af dögum og sfðast fyrir viku skrifaði hann grísku stjórninni og krafðist þess, að herforingjarnir yrðu kallaðir heim til Grikklands. Af hálfu Sovétstjórnarinnar hefur stjórnarbyltingin á Kýpur verið harðlega fordæmd, að því er Tass fréttastofan skýrir frá í kvöld. Segir þar, að fyrir bylting- unni hafi staðið afturhaldsöfl, sem hyggist koma þvf svo fyrir, að Kýpur verði eitt heljarmikið vopnabúr fyrir Atlantshafsbanda- lagið. Sem fyrr segir hafa fréttir af atburðum á Kýpur verið óljósar. Fyrstu fregnir af stjórnar- byltingunni í morgun voru á þá leið, að Makarios, erkibiskup, væri látinn og þjóðvarðliðið hefði tekið völdin. Frá þessu skýrði út- varpið I Nikosiu mjög snemma en greindi ekki frá hvernig dauða forsetans hefði borið að höndum. Varað var við andstöðu og hverj- um þeim hótað lffláti, sem setti sig upp á móti þjóðvarðliðinu. Skömmu síðar fóru að berast fregnir annars staðar frá um skot- bardaga á eyjunni og var sagt, að sprengingar virtust í nánd við for- setahöllina, sjúkrabifreiðar væru á þönum til og frá með sírenur á fullu og skriðdrekar víða. Frá Tyrkjum var útvarpað við- vörunum til tyrkneska minni- hlutans um að halda sig heima við og hlutast ekki til um málin. Fréttamenn voru rétt að byrja að senda fregnir sínar um að eitt- hvað meiriháttar væri að gerast, þegar ritsfma- og talsfmasam- bandi var slitið. Var það um sjö- leytið f morgun að fslenzkum tíma. Sfðan var tekið fyrir flug- samgöngur og voru fregnir mjög svo ósamhljóða eftir það og erfitt að henda reiður á því, sem gerðist. Þó heyrðist brátt frá út- varpsstöð brezka herliðsins á eyjunni, að varasveitir Makariosar hefðu gripið til vopna gegn þjóðvarðliðinu og væri vfða barizt. Er á leið morguninn var frá því skýrt f Nikosiuútvarpinu, að þjóð- varðliðið hefði tekið völdin vegna þess, að herinn hefði verið að því kominn að falla í hendur stjórn- leysingja og glæpamanna. Var og sagt, að Makarios hefði eingöngu unnið með eigin hagsmuni fyrir augum. — Nixon Framhald af bls. 34 fram á rannsókn nefndarinnar. Hún hófst f sfðustu viku að til- hlutan Williams Fulbrights, for- manns nefndarinnar, og hafa yfir- heyrslur þar farið fram fyrir Iukt- um dyrum. Rannsókn dómsmálanefndar fulltrúadeildarinnar er áfram haldið af fullum krafti og er búizt við, að vitnaleiðslum þar ljúki í þessari viku. Gert er ráð fyrir, að það taki nefndarmenn nokkrar vikur að komast að niðurstöðu um, hvað gera skuli — en reiknað er með þvf, að meirihluti nefndar- innar mæli með þvf, að forsetan- um verði stefnt fyrir rfkisrétt. 38 menn eiga sæti í nefndinni, 21 demókrati og 17 repúblikanar. Að lokinni atkvæðagreiðslu í fulltrúadeildinni þar sem einfald- ur meirihluti nægir fer málið fyr- ir öldungadeildina, en þar þurfa tveir þriðju hlutar þingmanna að greiða atkvæði með ályktun nefndarinnar til að forsetinn verði kallaður fyrir ríkisrétt. — Gíslar Framhald af bls. 1 þeirra: Þeir vilja láta flytja sig til fangelsis á auturströnd Banda- rfkjanna eða við St. Lawrence fljót; þeir krefjast þess, að þeim verði ekki stíað í sundur; að þeir verði ekki settir í einangrun og að vopn þeirra ekki tekin af þeim. Af hálfu lögreglu er nú engin tilraun gerð til að svæla mennina út, en að sögn hennar kemur ekki til greina að verða við þessum kröfum, mennirnir verði fluttir beint í fangelsissjúkrahús í Springfield í Missouri. Fangarnir fá ennþá mat, en slökkt hefur verið á loft- ræstingarkerfi. Um tfma var hit- inn settur á kjallarann, — en slökkt aftur, þegar hann var kom- inn upp í 40 stig C. Það var á fimmtudagskvöldið, sem þeir Gorham og Jones yfir- buguðu fangaverði í kjallaranum og tóku þrjátfu fanga og fanga- verði í gíslingu. Strax á föstudag slepptu þeir átta gfslum og öðrum fjórtán á laugardag. Arla sunnu- dagsmorguns tókst einum gfslanna, lögregluverði að nafni Calvin Mouton, að koma þeim boðum sfmleiðis til lögreglu úti fyrir, að hún sendi gfslunum lyftulykil í serviettu, þegar þeim yrði borinn matur. Þannig tókst sjö gfslum að komast undan meðan lögreglan hélt Jones upp- teknum I sfmanum, en Gorham var þá sofandi. Ein kona varð þá eftir, fangi að nafni Almeida Washington. Hún hafði tekið af- stöðu með blökkumönnunum og var því ekki höfð með f ráðum, þegar lyftuferðin var ákveðin. Hins vegar slepptu þeir Gorham og Jones henni skömmu síðar og sitja nú einir eftir. — Phouma Framhald af bls. 34 ingar í landinu — Pathet Lao hreyfingin, sem er kommúnisk skæruliðahreyfing og stjórnar- sinnar í Vientiane, sem fylgja hægri stefnu og frjálslyndri —, jafnmarga ráðherra í stjórn lands ins. Vinstri fylkingin er undir forystu Souvanna Vong, hálf- bróður Souvanna Phouma. Hörð átök hafa orðið milli ráðherra stjórnarinnar allt frá því hún var mynduð og hefur Phouma oft orðið að ganga þar í milli. Hann hefur áður haft forystu fyrir hlut- Ieysisstjórnum þessara afla, fyrst árið 1957 og síðan 1962. Stríðs- ástand hefur verið f Laos árum saman. Þess er getið í fréttum, að tals- verðra tungumálaerfiðleika hafi gætt í hinu fjölþjóðlega læknaliði, sem forsætisráðherrann stundar, og hafi erlendu sérfræðingarnir lítið getað gert annað en staðfesta sjúkdómsgreiningu og meðferð franska hjartasérfræðingsins, sem fyrstur fékk forsætisráð- herrann til meðferðar. — Loftur Bjarnason Framhald af bls. 36 áraraðir. Þá hefur hann einnig átt sæti í stjórn Stuðla h.f., stjórn Eimskipafélags Islands hf., bygginganefnd Hallgrímskirkju f Saurbæ, stjórn Hafrannsókna- stofnunarinnar o.fl. Loftur var heiðursfélagi Félags íslenzkra botnvörpuskipaeigenda, og hann var sæmdur stórriddarakrossi hinnar islenzku fálkaorðu 1973. Alls staðar þar sem Loftur Bjarnason kom við sögu félags- mála í sjávarútvegi reyndist hann farsæll í störfum, atkvæðamikill og manna ráðhollastur. Loftur Bjarnason kvæntist 11. maf 1939 Solveigu Ingibjörgu Sveinbjarnardóttur kaupmanns á Isafirði Kristjánssonar og lifir hún mann sinn. Varð þeim tveggja barna auðið, sem bæði eru á lffi. — Þjóðhátíð Framhald af bls. 2 I tilefni hátíðarinnar verða listasýningar i gagnfræðaskólan- um, Möðruvöllum, húsi mennta- skólans, og auk þess verður menntaskólinn sýndur með þeim listaverkum, sem í eigu skólans eru. Sýningar þessar verða opnað- ar föstudaginn 19. júlf kl. 20.00, en þá hefst einnig hraðmót í knattspyrnu á fþróttavellinum á Akureyri. Þjóðhátíðarnefnd hefur látið gera ýmsa gripi í tilefni hátíðar- innar, sem eru til sölu í verzlun- um á Akureyri og verða seldir á hátíðinni. Þjóðhátíðarnefnd væntir mikillar þátttöku héraðsbúa og heimsóknar brottfluttra íbúa á hátíðina. Þá mun um 150 manna hópur Vestur-Islendinga koma á hátíðina. — Flugvélarrán Framhald af bls. 1 um eftir að þotan lagði upp frá Osaka á leið til Tokío. Otaði hann sveðjunni að flugstjóranum og krafðist þess, að Takaya Shiomi, fyrrum leiðtogi „Rauða hersins" japanska, þ.e. skæruhers rót- tækra í Japan, yrði látinn laus og þeir saman fluttir til Norður- Kóreu. Hótaði ræninginn að skera alla farþegana á háls, einn af öðr- um, ef ekki yrði gengið að kröfum hans. Þeim var komið á framfæri og þegar vélin var lent á Haneda- flugvelli við Tokfo hófust fjögurra klukkustunda samninga- viðræður milli ræningjans, sem alltaf hafðist við í flugstjórnar- klefanum og lögregluyfirvalda á flugvellinum. Loks varð ræning- inn óþolinmóður og skipaði flug- stjóranum að hefja vélina á loft. Hafði hún þá aðeins eldsneyti til klukkustundar flugs og var því lent á flugvellinum í Nagoya til að taka eldsneyti. Þaðan sagðist ræninginn ætla að neyða vélina til Pyongyang, höfuðborgar N- Kóreu. Meðan verið var að setja elds- neyti á vélina, tókst farþegum og flugfreyjum að opna neyðarút- gang og laumast út án _þess ræninginn yrði þess var. Hann átti enn J orðaskiptum við lögregluna á flugvellinum þegar 11 lögreglumenn læddust um borð í vélina og komu honum að óvörum. Rauði herinn, sem ræninginn kvaðst tilheyra, hefur áður staðið að ýmiss konar hryðjuverkum og skærum, þar á meðal flugvélar- ráni árið 1970 og var þeirri vél flogið til N-Kóreu Skæruher þessi er hinn róttækasti í Japan en talið, að hann hafi ekki meira en 300 manna innan sinna vébanda.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.