Morgunblaðið - 16.07.1974, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 16.07.1974, Qupperneq 36
ÞRIÐJUDAGUR 16. JtJLl 1974 6 ára drengur drukkn- ar í Siglufjarðarhöfn ÞAÐ hörmulega slys varð á Siglu- firði s.l. föstudagskvöld, að 6 ára drengur, Birgir Agnar Stefáns- son, féil í svokailaða Innri höfn og drukknaði. Birgir Agnar Stef- ánsson var sonur hjónanna Frfðu Sigurðardóttur og Stefáns Þórs Haraidssonar. Á föstudagskvöldið var Birgir Agnar að leika sér í knattspyrnu ásamt fleiri drengjum skammt frá slysstaðnum. Um klukkan 10 hætti hann leiknum, og héldu fé- lagar hans, að hann hefði farið heim til sín, enda mun hann hafa átt að koma heim um þetta leyti. Nokkru síðar var farið að óttast um Birgi, og var þá hafin leit. Flateyringar fá skuttogara Fyrir nokkru sömdu Flat- eyringar um smfði á skuttogara af minni gerðinni f Fiekkefjord f Noregi. A hann að verða tilbúinn f september 1975, og kaupverðið er 13 milljónir norskar, eða um 230 milljónir fslenzkra króna. Flateyringar eiga ekki skuttogara fyrir. Það er Utgerðarfélag Flateyrar hf., sem kaupir togarann, en Frystihúsið Hjálmur hf. á stærstan hlut í því fyrirtæki. Þetta er 7. togarinn, sem Vest- firðingar láta smiða fyrir sig í Flekkefjord. Er hann sömu stærðar og gerðar og 6. togarinn, Guðbjörg IS, sem er 49'A metri að lengd. Tóku faðir Birgis og nokkrir aðrir aðilar þátt í þeirri leit. Fór faðir hans niður að Innri höfninni, og þegar þangað kom sá hann Birgi litla liggja á botninum. Þetta var klukkan rúmlega 22.30. Læknir kom strax á staðinn, en lffgunar- tilraunir báru engan árangur. Innri höfnin í Siglufirði var byggð á síldarárunum, en hún hefur ekkert verið notuð um langa hríð. Þessar tvær myndir tðk Olafur K. Magnússon ljósmyndari Mbl. á Skeiðarársandi á sunnudag. Onnur myndin sýnir lengstu brú landsins, brúna yfir Skeiðará, en hin sýnir nokkuð af bflamergðinni, sem var á sandinum við vfgsluathöfnina. Nánar segir frá opnunarhátfðinni á bls. 12 og 13 f blaðinu f dag. Engin vettl- ingatök hér! ÞAÐ er ekkert verið að spyrja að þvf, hvort þetta eða hitt sé karlmannsverk eða kvenmanns- verk, þegar tjaldbúðum er slegið upp fyrir landsmót skáta. Hún sveiflar sleggjunni léttilega, skátastúlkan á myndinni, og rek- ur staurinn niður í jörðina. Landsmót skáta hófst á sunnu- dag að Ulfljótsvatni og hefur skátahreyfingin notið mikillar hylli hjá veðurguðunum fyrstu tvo dagana. Sólin hefur fylgzt af miklum áhuga með skátunum f leik og starfi — og það gerði raunar einnig blaðamaður Morgunblaðsins. Sjá bls. 10. Vegurinn yfir Skeiðarár- sand opnaður UM 3000 manns munu hafa verið á Skeiðarársandi, þegar hringveg- urinn var formlega opnaður til umferðar eftir hádegi á sunnu- daginn. Veginn opnaði Magnús Torfi Ólafsson samgönguráð- herra, að viðstöddum fjölda gesta. Meðal gesta voru forseta- hjónin, alþingismenn og ráð- herrar. Athöfnin á sandinum hófst með ræðu sýsiumanns Skaftfeiiinga, Þorleifs Pálssonar. Sfðan hélt samgönguráðherra ræðu og Sigurður Jóhannsson vegamála- stjóri lýsti gerð mannvirkjanna. Geir Hallgrímsson: Mun nú óska eftir frek ari viðræðum Gögnin liggja fyrir GEIR Hallgrfmsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur nú Loftur Bjarnason látinn LOFTUR Bjarnason útgerðar- maður lézt f Landspftalnum að- fararnótt s.l. mánudags eftir stutta sjúkdómslegu, 76 ára að aidri. Loftur hefur um árabíl rek- ið umfangsmikla útgerð og var þjóðkunnur fyrir störf sfn á þvf sviði svo og fyrir félagsmálastörf innan sjávarútvegsins. Loftur Bjarnason fæddist í Bíldudal 30. aprfl 1898. Foreldrar hans voru Bjarna Loftsson kaup- maður þar og kona hans Gfslfna Þórðardóttir. Loftur stundaði sjómennsku frá 12 ára aldri, og tók farmannapróf frá Stýri- martnaskólanum f Reykjavík 1916. Eftir það var hann stýri- maður á farskipum í nokkur ár, en 1926 fluttist Loftur til Hafnar- fjarðar og setti á stofn fisk- verkunarstöð, sem hann rak ásamt Geir Zoéga í 14 ár. Loftur var einn af stofnendum útgerðar- féiagsins Júní 1927—’31 og Marz 1940. Framkvæmdastjóri beggja félaganna var hann um tíma. Þá var hann einn af stofnendum úgerðarfélagsins Venusar 1936 og framkvæmdastjóri þess. Loftur var einn af stofnendum Hvals hf. 1947, formaður frá byrjun og lengi framkvæmdastjóri. Loftur Bjarnason starfaði mikið að félagsmálum. Hann var bæjar- fulltrúi í Hafnarfirði 1934—’50. í stjórn Landssambands fslenzkra útvegsmanna 1944—1973, vara- formaður frá 1947. I stjórn Félags íslenzkra botnvörpuskipaeigenda 1948—’73, þar af formaður frá 1959. I stjórn Sambands íslenzkra fiskframleiðenda sat Loftur um Framhald á bls. 35 fengið f hendur bráðabirgðayfir- lit yfir stöðu efnahagsmálanna, sem hagrannsóknadeild Fram- kvæmdastofnunar rfkisins hefur unnið. Geir Hallgrfmsson sagði f samtali við Morgunblaðið f gær, að hann myndi nú óska eftir áframhaldandi viðræðum við aðra stjórnmálaflokka, þar sem kannaðir yrðu möguleikar á sam- stöðu um lausn efnahagsvanda- málanna á grundvelli þessara nýju upplýsinga. 1 samtalinu sagði Geir Hall- grfmsson: „Ég hef nú fengið f hendur drög að yfirliti yfir stöðu efnahagsmálanna um mitt ár 1974, sem hagrannsóknadeild Framkvæmdastofnunarinnar hef- ur unnið. Enn er verið að vinna að endanlegri gerð þessa yfirlits. Gerðar hafa verið ráðstafanir til þess að fulltrúar allra stjórn- málaflokka fái þetta bráðabirgða- yfirlit í hendur. I framhaldi af því mun ég óska eftir áframhaldandi viðræðum við þá, þar sem kannað- ir yrðu möguleikar á samstöðu um lausn efnahagsvandamálanna. Geir Hallgrfmsson. Fram—Vík- ingur 1:0 FRAM sigraði Vfking f 1. deild Islandsmótsins f knattspyrnu f gærkvöldi 1:0. Markið skoraði Marteinn Geirsson f fyrri hálf- leik. Þetta er fyrsti sigur Fram f mótinu. Leikurinn fór fram á Laugardalsvellinum. Hann bað sfðan samgönguráð- herra að opna veginn. Fyrsta bif- reiðin, sem sfðan ók um veginn, var bifreið forseta Islands. Að opnunarhátfðinni lokinni gengust þjóðhátíðarnefndir Skaftafellssýslu fyrir hátfð- arhöldum skammt fyr- ir neðan vestari brúarsporð- inn, þar sem vegurinn var opnaður. Þar fór m.a. fram kór- söngur, biskup Islands annaðist helgistund, Eysteinn Jónsson fyrrv. formaður sameinaðs Alþingis flutti ræðu. Matthías Johannessen formaður Þjóð- hátíðarnefndar 1974 flutti ræðu og flutt var samfelld dagskrá um Skeiðarársand, sem Páll Þor- steinsson fyrrv. alþingismaður hafði tekið saman. Þá söng Ólafur Jónsson við undirleik Ölafs Vignis Albertssonar. Að þvf loknu fór fram reiptog milli vegavinnu- manna og Austur- og VesturSkaft- fellinga. Þó að vegurinn um Skeiðarár- sand hafi formlega verið opnaður á sunnudaginn, þá var umferð hleypt yfir sandinn strax í byrjun þessa árs, þegar bráðabirgða- tengingu var komið á við brúna yfir Skeiðará. Verkinu, sem kostar um 840 millj. kr., er að vísu ekki fulllokið enn, þvf enn á eftir að ganga frá ýmsu smávægilegu, en öllu starfi á sandinum mun væntanlega ljúka síðar í sumar. Góð veiði í Miðfjarðará Góð veiði hefur verið undan- farna daga f Miðfjarðará. A sunnudaginn veiddust t.d. 35 laxar f ánni á átta stengur. Matthfas Guðmundsson forstjóri f Reykjavfk fékk 16 fiska og marga þeirra mjög væna, sá stærsti vó 19.5 pund. Mikil ganga er f ánni, meiri en menn muna eftir f langan tfma.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.